Heimsókn til Sisimiut, OG Maco, eftirmálar HM95, óskarstilnefningar - podcast episode cover

Heimsókn til Sisimiut, OG Maco, eftirmálar HM95, óskarstilnefningar

Jan 23, 202556 minEp. 223
--:--
--:--
Download Metacast podcast app
Listen to this episode in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episode description

Fyrir þrjátíu árum síðan ríkti mikil bjartsýni og stórhugur meðal íslenskra handboltaunnenda, en þá, árið 1995 hélt Ísland einmitt heimsmeistaramótið í handbolta - fyrsta og eina skiptið sem Ísland hefur haldið stórmót í boltaíþrótt. Að þessu tilefni höfum við verið að endurflytja örseriuna “Þegar Ísland hélt stórmót” sem við Anna Marsibil Clausen gerðum hér í Lestinni fyrir nokkrum árum um þetta sögulega mót - mót sem var mjög umdeilt á sínum tima, og er það kannski enn. Í þætti dagsins heyrum við fjórða og síðasta þátt seríunnar og þá verður rætt um afleiðingar og eftirmála keppninnar. Við heyrum líka um bandaríska rapparann OG Maco sem lést í lok síðasta árs, en hann var rétt rúmlega þrítugur. Maco spilaði á Íslandi árið 2017 og vakti mikla athygli fyrir sviðsframkomu sína. Þórður Ingi Jónsson minnist rapparans og ræðir um hann við Lexa Picasso. Katrín Helga Ólafsdóttir tónlistarkona og pistlahöfundur í Lestinni ferðaðst til Sisimiut á vesturströnd Grænlands í desember í fyrra og kynnti sér land og þjóð. Í dag flytur hún okkur pistil um það hvernig þjóðarsálin kemur henni fyrri sjónir: litaval á húsum, skammdegið, jólaljós, kóramenning, mótmæli vegna foreldraprófa, endurvakning gamalla hefða, Allt þetta og margt fleira kemur við sögu í innslaginu. Við nefnum líka tilnefningar til Óskarsverðlaunanna sem voru kunngjörðar fyrr í dag.
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android