Femínismi á tímum Valkyrjustjórnar - podcast episode cover

Femínismi á tímum Valkyrjustjórnar

Dec 05, 202457 minEp. 201
--:--
--:--
Download Metacast podcast app
Listen to this episode in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episode description

Þessa dagana funda formenn þriggja stjórnmálaflokka og freista þess að mynda nýja ríkisstjórn. Þessi sögulega stjórn hefur verið kölluð valkyrjustjórnin enda eru þetta allt konur, Kristrún Frostadóttir frá Samfylkingu, Þorgerður Katrín frá Viðreisn og Inga Sæland frá Flokki Fólksins, og munu þær líklega skipta með sér valdamestu embættum ríkisstjórnarinnar á næstu árum. En það verða ekki bara forsætisráðherra og fjármálaráðherra sem verða að öllum líkindum konur næstu árin heldur er nú þegar kona í embætti forseta Íslands, kona er biskup þjóðkirkjunnar, kona er ríkislögreglustjóri og konur skipa æðstu embætti í mörgum af menningarstofnunum þjóðarinnar. Spurningin sem við ætlum að velta upp í dag, er hvort að kynjajafnrétti sé endanlega náð á Íslandi, eru einhver verkefni eftir fyrir femínismann, er Ísland að stefna í átt að mæðraveldi? Hvernig lítur femínismi út á tímum valkyrjustjórnarinnar? Gestir okkar eru Kristín Ástgeirsdóttir, sagnfræðingur og fyrrum þingkona Kvennalistans svo eitthvað sé nefnt, Brynhildur Karlsdóttir, tónlistarkona, og Alma Dóra Ríkharðsdóttir, viðskiptafræðingur og stofnandi smáforritsins Heima.
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android