Lestin - podcast cover

Lestin

RÚVwww.ruv.is
Popp og pólitík Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Að gera dósamat úr tónlist

Hvað er mennsk sköpun? Hvert er gildi listar og listamanna í samtímanum, þegar gervigreind verður sífellt betri í að herma á sannfærandi hátt eftir mennskri list? Þórhallur Magnússon, rannsóknarprófessor við Háskóla Íslands og prófessor í framtíðartónlist við háskólann í Sussex, er eini farþegi Lestarinnar í dag. Við tökum upp þráðinn frá því í síðustu viku og ræðum gervigreindartónlist.

Nov 05, 202459 minEp. 183

2 mánuðir án snjallsíma, geðveiki og tónlistarlífið, thrift á Tiktok

Lóa hefur lifað tvo mánuði án snjallsíma eftir að iPhone-inn hennar týndist. Hún gefur hlustendum skýrslu: einræði messenger á Íslandi, einbeitingar-forrit, og nígerískar fréttir koma meðal annars við sögu. Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves fer fram um helgina. Í aðdraganda hátiðarinnar fer fram svokölluð bransaveisla í tónlistarmiðstöðinni við Austurstræti. Þarna eru bransamálin rædd: bisness, útrás, tengslanet, hvernig er hægt að koma sér á framfæri. En eitt vakti sérstaka athygli okkar í þess...

Nov 04, 202455 minEp. 182

Er þetta gervigreind eða nýtt íslenskt popplag?

Nýlega upphófust heitar umræður á facebook-síðunni Nýleg íslensk tónlist um eðli listar og tengsl hennar við tækni eftir að tónlistarmaður að nafni Meistari F deildi tónlist á síðunni. Samkvæmt Spotify aðgangi Meistara F hefur hann gefið út 6 plötur á árinu, en sú nýjasta nefnist Suno Íslensk meistaraverk 1 og inniheldur 44 lög. Vísbendingin er í nafni plötunnar. Meistaraverkin eru smíðuð í samstarfi við tónlistar-spunagreindina Suno AI. Fjöldi tónlistarmanna og menningarvita hafa tjáð sig á síð...

Oct 31, 202454 minEp. 181

Heimsókn Zelensky, hundamyndir, af hverju að læra íslensku?

Haukur Már Helgason rithöfundur og heimspekingur fylgdist með heimsókn Volodomirs Zelensky til Íslands í gær. Og hann spilar nokkuð hlutverk í fjórða innslaginu í pistlaröð hans um upplýsingaóreiðu. Haukur fjallar um samstöðu, ofureinfaldanir og óskilvirknina sem felst í lýðræðinu - eða upplýsingaóreiðu. Við heimsækjum kennslustund í íslensku sem annað mál í Háskóla Íslands og spjöllum við annars árs nema. Af hverju að læra íslensku? Kolbeinn Rastrick er mikill áhugamaður um hundamyndir, starfræ...

Oct 30, 202455 minEp. 180

Kísildalurinn styður Trump, menningarheimar eða kynþættir?

Við rýnum í orð Bjarna Benediktssonar sem hann lét falla í hlaðvarpsþættinum Ein pæling í síðustu viku. Haft var ranglega eftir honum á Vísi að hann hefði varað við blöndun kynþátta. Það gerði hann ekki og fréttin var lagfærð. En hver voru skilaboð forsætisráðherra í þættinum? Við veltum fyrir okkur muninum á því að vara við blöndun menningarheima eða kynþátta og ráðherra sem geldur varhug við moskubyggingum og gerir greinarmun á ákjósanlegum og óákjósanlegum innflytjendum. Í yfirstandandi forse...

Oct 29, 202456 minEp. 179

Yung Lean í stórri úlpu, Þústlar á Tiktok, Una heimsækir afa

Á föstudagskvöld fylltist Eldborg af ungmennum í víðum buxum með snjallsímana sína á lofti. Sænski rapparinn Yung Lean faldi sig á miðju sviðinu í ljósadýrð og stórri úlpu og flutti sína helstu slagara. Við tökum púlsinn á gestum og gangandi. “bro ég ELSKA þennan account svo mikið😤 ég er actually að læra meira um ísland 🫶” Þannig hljómar ein athugasemdin við Tiktok-myndband frá sögunördinum Þorsteini Rafnssyni. Á samfélagsmiðlaaðganginum Þústlar fjallar hann um ýmsa furðulega og fróðlega hluti...

Oct 28, 202455 minEp. 178

Yung Lean í Eldborg, rýni í Missi og Topp 10 möst, nýjir umsjónarmenn Ólátagarðs

Yung Lean er sænskur tónlistarmaður sem er fæddur árið 1996, hann sló í gegn fyrir áratug síðan, varð heimsfrægur aðeins 17 ára gamall. Miðar á tónleika hans í Eldborg í Hörpu, sem fara fram á morgun, seldust upp á þremur dögum. Egill Ástráðsson, er aðdáandi Yung Lean, og einn þeirra sem standa að því að flytja hann inn til landsins, við ræðum áhrif listamannsins og Íslandstenginguna. Árið 2021 fór í loftið á Rás 2 útvarpsþátturinn Ólátagarður. Þátturinn var frá upphafi nátengdur reykvísku grasr...

Oct 24, 202457 minEp. 177

Grindvíkingar - ári seinna

Það fer bráðum að verða komið ár síðan að Grindavíkurbær var rýmdur vegna eldgosahættu. Fyrir rétt tæpu ári síðan höfðum samband við fjóra íbúa bæjarins og fengum þau til þess að taka reglulega upp hljóðdagbækur á símana sína. Þau deildu hversdagsleikanum sínum, hugsunum sínum og áhyggjum á óvissutímum. Við klipptum það svo saman og fluttum í Lestinni yfir nokkurra mánaða skeið. Körfuboltaleikir, safnskólar, svefnleysi og maturinn sem varð eftir í frystikistum var meðal þess sem þau sögðu frá. Þ...

Oct 23, 202455 minEp. 176

Fleiri hlusta á Diddy, tækni án hindrana, Pan-arctic vision

Undanfarna mánuði hefur bandaríski tónlistarmaðurinn og útgefandinn Sean Combs, betur þekktur sem Puff Daddy eða Diddy, verið reglulega í fréttum. Ástæðan eru holskefla hryllilegra ásakana um ofbeldi, kynferðisofbeldi, kúganir - ákærur fyrir mansal og skipulagða glæpastarfsemi. En þrátt fyrir ásakanirnar hafa hlustunartölur Diddy á streymisveitum rokið upp síðustu vikur - og þetta virðist raunar vera reglan frekar en undantekningin þegar stórstjörnur eru sakaðar um ofbeldi. Við pælum í slaufunum...

Oct 22, 202454 minEp. 175

Skaginn er mekka pönksins, Moldin heit, Ari Alexander um Missi

Kvikmyndin Missir fjallar um mann á efri árum sem er nýlega orðinn ekkill. Hann ákveður að drekka ösku látinnar eiginkonu sinnar. Þegar hann drekkur úr bollanum, birtist hún honum. Við ræðum við leikstjóra myndarinnar, Ara Alexander Ergis Magnússon, sem byggði handrit myndarinnar á samnefndri bók Guðbergs Bergssonar, sem kom út 2010. Birgitta Björg Guðmarsdóttir var núna í mánuðinum að senda frá sér skáldsöguna Moldin heit. Birgitta sem einnig er meðlimur í hljómsveitinni Ólafur Kram, er aðeins ...

Oct 21, 202456 minEp. 174

The Penguin, andlát Liam Payne, 10 ára plötubúð, fyrsti gjörningurinn

Karitas M. Bjarkadóttir, umsjónarmaður Krakkaheimskviða, var harmi slegin þegar hún fékk fregnir af því að Liam Payne, meðlimur bresku strákahljómsveitarinnar OneDirection, væri látinn. Sveitin, sem lagði upp laupana árið 2016, er ein af söluhæstu hljómsveitum í heimi, og á sér enn marga, trygga aðdáendur. Fréttir bárust af því í gærkvöldi að Liam hefði fallið til jarðar úr hótelherbergi í Argentínu. Við hringdum í Karítas til þess að fá meiri upplýsingar um Liam, Tara og Silla eru gjörningatvíe...

Oct 17, 202455 minEp. 173

Vinstri-hægri-snú, upplýsingaóreiða #3, skrásetti öll smáatriði lífs síns

Haukur Már Helgason flytur sinn þriðja pistil um upplýsingaóreiðu, að þessu sinni fær hann aðstoð frá gervigreindarspjallmenni. Við kíkjum niður í Norræna húsið þar sem stendur yfir sýningin Open house, sem er hluti af grísk-íslensku listahátíðinni Head-2-Head. Í norræna húsinu eru sýnd verk tveggja grískra listamanna og þriggja íslenskra. Meðal annars má þar finna athyglisverðar möppur sem Eiríkur Páll Sveinsson, læknir á akureyri, gerði. Hann skráði niður öll smáatriði lífs síns, skráði inn í ...

Oct 16, 202456 minEp. 172

Topp 10 möst, jólabókunum slaufað, Jamie XX, Fred again.., Osamu Sato

Ólöf B. Torfadóttir frumsýndi aðra kvikmynd sína á dögunum, grínmyndina Topp 10 Möst. Í aðalhlutverkum eru Tanja Björk og Helga Braga, sem leika strokufanga og gjaldþrota myndlistakonu. Við heimsækjum Ólöfu upp á Akranes. Í september gáfu tveir breskir danstónlistarmenn af svipaðri kynslóð út langþráðar plötur, Jamie XX og Fred again.. Davíð Roach Gunnarsson rýnir í plöturnar í þætti dagsins. Við fræðumst um hinn goðsagnakennda og síkadelíska tölvuleik LSD: Dream Emulator. Þórður Ingi Jónsson á ...

Oct 15, 202457 minEp. 171

Vafasamar vefsíður hýstar á Íslandi, stjórnmálaflokkarnir á TikTok, ógleymanleg stef

Netþrjótar frá Norður Makedóníu svíkja peninga frá stuðningsfólki Donald Trump. Nýnasistar svíkja fé út úr transfólki með því að þykjast selja þeim hormónalyf. Rússneskar gervifréttasíður básúna lygum til að reyna að hafa áhrif á kosningar í Bandaríkjunum. Vefsíður allra þessara hópa eru hýstar á sama stað, á skrifstofu fyrirtækisins Withheld for Privacy, á Hafnartorgi í miðborg Reykjavíkur. Við ræðum við Skúla Geirdal, sviðsstjóra netöryggismiðstöðvar Íslands, um hýsingu á vafasömum vefsíðum á ...

Oct 14, 202455 minEp. 170

Grafftí í göngunum, Jóker gagnrýni, hverfandi tónleikastaðir

Á miðvikudag verður frumsýnd ný heimildarmynd um graffitímenningu Reykjavíkur, Göngin. Björgvin Sigurðarson og Hallur Örn Árnason hafa unnið að myndinni í rúman áratug og veitir hún innsýn í upphafsár íslenskrar graffitímenningar. Við höldum niður í göngin undir Miklubraut og veltum fyrir okkur graffití sem er á sama tíma listræn tjáning og uppreisn. Svo fáum við gagnrýni um nýja kvikmynd um Batman-illmennið Jókerinn, Joker: Folie á Deux. Þetta er framhald gríðarvinsællar og umtalaðrar kvikmynda...

Oct 10, 202458 minEp. 169

Tapararnir, flókinn fréttaflutningur um stríðið á Gaza

Ef hlustendur Lestarinnar eiga leið hjá finnsku borginni Turku þá standa nú yfir sýningar í sænska leikhúsinu þar í borg, Åbo Svenska Theater, á verkinu Förlorana, Tapararnir, eftir Hallveigu Kristínu Eiríksdóttur. Verkið er útskriftarverkefni Hallveigar úr meistaranámi í leikstjórn frá leikhúsakademíunni í Helsinki. Verkið hefur hlotið þó nokkra umfjöllun í finnskum fjölmiðlum, en það fjallar um sigur og töp á handboltavellinum. Þrír blaðamenn velta fyrir sér flækjunum sem fylgja því að flytja ...

Oct 09, 202455 minEp. 168

Elskling, rýnt í Kött Grá Pje, dægurmenning í Dubai

Vera Sölvadóttir, kvikmyndagerðarkona, getur ekki hætt að tala um kvikmyndina Elskling eftir Lilju Ingólfsdóttur. Af hverju er þetta fólk í sæta húsinu í Noregi ekki bara hamingjusamt? Lóa og Vera ræða hjónabandserjur og heterónormatífu í þætti dagsins. Við hringjum til Dubai og ræðum við Indriða Grétarsson, Didda, sem hefur verið búsettur í borginni undanfarin 5 ár. Hann segir frá dægurmenningunni í Dubai, tónleikamenningu, arkitektúr og ljósmyndabanni í borginni. Dulræn atferlismeðferð nefnist...

Oct 08, 202455 minEp. 167

Menningarwitinn, Gottsunda, norska Succession

Menningarwitinn hefur sett sér það markmið að sækja einn menningarviðburð á hverjum degi, og sýnir frá því á Instagram. En hvers vegna? Við förum á menningarviðburð með Hafliða Ingasyni, menningarvita. Brynja Hjálmsdóttir, sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar, horfði á þætti sem hafa verið kallaðir norska útgáfan af Succession. Fjölskyldudrama, milljarðarmæringar og laxeldi. Þættirnir heita Eyja milljarðamæringanna, og eru á Netflix. Ný mynd Loran Batti var sýnd á RIFF um helgina, G - 21 sena frá Go...

Oct 07, 202456 minEp. 166

Dægurflugur, næst vinsælasti YouTube aðgangurinn, seinustu þrjár myndirnar á RIFF

Er hægt að búa til stuttmynd á 24 klukkustundum? Á laugardaginn mun hópurinn Dægurflugur halda stuttmyndahátíð í Bíó Paradís, þar sem allar stuttmyndirnar verða búnar til á sólarhring. Næst vinsælasti YouTube aðgangur í heimi, á eftir Mr. Beast, er indverska jölmiðlafyrirtækið T series. Við heyrum sögu manns sem byrjaði sem götusali en endaði sem stærsti tónlistarmógúll Indlands. Að lokum förum við yfir þrjár myndir sem Gunnar Theódór Eggertsson fór að sjá á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjaví...

Oct 03, 202455 minEp. 165

Hlekkur í efstu athugasemd, meiri RIFF-rýni, upplýsingaóreiða

Af hverju eru allir að deila hlekkjum í efstu athugasemd á Facebook? Við pælum í Meta-algóryþmanum, ritskoðun á færslum tengdum Palestínu og fleiri samfélagsmiðlamálum með Sigurði Svanssyni. Haukur Már Helgason, rithöfundur, heldur áfram að pæla í hugtakinu upplýsingaóreiða. Kvikmyndirnar No Other Land, Temporary Shelter og Grand Tour verða teknar fyrir í RIFF-rýni dagsins.

Oct 02, 202455 minEp. 164

Ofát í streymi, Samherji vs. Odee, ungir listnemar tala

Mukbang er vinsælt internetfyrirbæri þar sem áhrifavaldar sitja fyrir framan myndavél og borða gríðarlegt magn af mat, háma, gúffa í sig. Þórdís Nadía Semichat segir frá þessari furðulegu suður-kóreska netmenningu. Í síðustu viku fór fram fyrirtaka í máli Samherja gegn myndlistarmanninum Odee í Bretlandi. Hann sendi út afsökunarbeiðni í nafni og með merki Samherja, þar sem hann baðst afsökunar á spillingarmálum fyrirtækisins í Namibíu. Í málinu er meðal annars tekist á um mismunandi skilning á h...

Oct 01, 202456 minEp. 163

Fredric Jameson, gott bíó og skringilegt meistaraspjall á Riff

Gunnar Theódór Eggertsson segir okkur frá þremur myndum sem hann er búinn að sjá á RIFF, og hvernig honum finnst hátíðin hingað til. Við ræðum meistaraspjall með Natösju Kinski og fleira sem hefur verið áhugavert á hátíðinni. Fredric Jameson, bókmenntafræðingur og heimspekingur, lést núna í september. Hann er þekktastur fyrir kenningar sínar um póstmódernisma. Magnús Þór Snæbjörnsson, bókmenntafræðingur, þekkir vel til verka hans.

Sep 30, 202458 minEp. 162

Úkraínskir flóttamenn á Ásbrú, Natassja Kinski, RIFF-spjall

Lestin í dag er tileinkuð alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, sem hefst í dag. Hin Úkraínska Anastasiia Bortuali þurfti að hætta í kvikmyndanámi í Pétursborg þegar innrás Rússa hófst í febrúar 2022. Fyrir tilviljun endaði hún sem flóttamaður á Íslandi. Hún byrjaði að skrásetja líf fólksins í kringum sig á Ásbrú á snjallsímann sinn og nú frumsýnir hún heimildamyndina Temporary Shelter, Tímabundið skjól. Við fáum Anastasiiu í heimsókn. Við fáum líka heimsókn frá tveimur ungum kvikmyndage...

Sep 26, 202454 minEp. 161

Riff-yfirferð, Dacia Duster, hvaða stétt tilheyrir þú?

Við ræðum við félagsfræðiprófessor um stéttir, og veltum því fyrir okkur hvernig sé hægt að komast að því hvaða stétt maður tilheyrir. Ef maður upplifir sig í millistétt, er maður þá ekki í millistétt? Tilefnið er fyrirlestur á vegum RIKK, en fyrirlestrarröðin er tileinkuð stéttarhugtakinu í haust. Datsía Duster er einhver vinsælasti bíll á Íslandi, að minnsta kosti á bílaleigum landsins. Raunar er hann svo áberandi að hann er orðinn að hálfgerðu tákni - en hvað táknar hann? Bjarni Daníel hélt í...

Sep 25, 202455 minEp. 160

Notuð merkjavara, tékknesk dægurmenning, einlægni á tæknitímum

Margrét Unnur lærði að leita uppi gersemar á nytjamörkuðum í Berlín. Nú hefur hún opnað vefverslunina Brot, þar sem hún selur merkjavörur sem hún hefur sjálf fundið í búðum eða á netinu. Við ræðum tísku og flíkur með sál. Við hringjum til Prag og forvitnumst um tékkneskt bíó, tónlist og skemmtanalíf. Nikulás Tumi Hlynsdóttir nemi í kvikmyndagerð við FAMU er leiðsögumaður okkar. Hvað eiga Charli XCX og Radiohead sameiginlegt? Nína Þorbjörg Árnadóttir setur fram kenningu um einlægt popp á tæknitím...

Sep 24, 202457 minEp. 159

Framhaldslíf SOPHIE, haustlitaferð, pakkhús í Köben

Um helgina kemur út önnur breiðskífa hinnar áhrifamiklu skosku tónlistarkonu, Sophie. Hún var komin langleiðina með plötuna þegar hún lést af slysförum við heimili sitt í Aþenu í byrjun árs 2021. Sophie var einhver framsæknasti hljóðsmiður popptónlistarheimsins og íkon í transheiminum. Við veltum fyrir okkur áhrifum og framhaldslífi Sophie í tilefni af nýju plötunni. Katrín Helga Ólafsdóttir, tónlistarkona, heimsækir gamalt pakkhús á Norðurbryggju í Kaupmanna. Þar er starfrækt menningarhús tilei...

Sep 23, 202457 minEp. 158

Snjallsíminn: hinn nýi Satan?

Undanfarnar vikur hafa hörmulegar fréttir dunið á Íslendingum og tilfinning margra virðist vera að óhamingja sé að aukast í samfélaginu, aftenging, kvíði, þunglyndi, einmanaleiki, ofbeldi. Við setningu Alþingis í síðustu viku settu fjölmargir þingmenn og forseti Íslands þetta í samhengi við snjallsímanotkun. Snjallsíminn er nýr djöfull sem allir geta sameinast um að kenna um allt sem úrskeiðis fer. En samt virðist enginn vilja eða geta staðið í vegi fyrir framgangi þessarar tækni. Hið opinbera j...

Sep 19, 202456 minEp. 157

Oasis miðasölurugl, upplýsingaóreiða árið 1813, draugagangur

Undir lok síðasta mánaðar fengu allir unglingar næntísins sameiginlega raðfullnægingu þegar tilkynnt var að þekktustu villingar tjallapoppsins, Oasis, ætluðu að koma aftur saman á nokkrum tónleikum á Bretlandseyjum næsta sumar. Milljónir næntísunglinga hrúguðust inn á vefsíðu miðasölurisans Ticketmaster snemma morguns þann 31. Ágúst og vonuðust til að kaupa miða á rúmlega 11 þúsund krónur, en það var auglýst verð á ódýrustu miðum. En hjá flestum fór það öðruvísi en áætlað var. Við heyrum um síkv...

Sep 18, 202455 minEp. 156

Shogun, samþykki, Þessir djöfulsins karlar

Sænska bókin Þessir djöfulsins karlar í þýðingu Þórdísar Gísladóttur kom út hjá Benedikt bókaútgáfu snemma í september. Djöfulsins karlar er uppgjör við brösulegt uppeldi í boði 68-kynslóðarinnar og sannsöguleg uppvaxtarsaga þar sem skáldað er í eyðurnar. Sjónvarpsþættirnir Shogun voru sigursælir á Emmy-verðlaunahátíðinni á sunnudag. Shogun er 10 þátta sería sem byggir á sögulegri skáldsögu James Clavell um valdabrölt meðal stríðsherra Japans um aldamótin 1600. Við pælum í Shogun og menningu sam...

Sep 17, 202458 minEp. 155

Brotinn barnasáttmáli, samþykki, norskt kókaín og kóngafjölskylda

Seint í gærkvöldi var Yazan Tamimi, 11 ára palestínskur drengur með taugahrörnunarsjúkdóminn Duchenne, sóttur á Landspítalann, af lögreglunni, sem hafði fyrirmæli um að senda hann ásamt foreldrum sínum úr landi. Á þriðja tug manns fór á Keflavíkurflugvöll til þess að mótmæla og reyna að koma í veg fyrir að Yazan færi með fluginu. Svo fór að Yazan var ekki sendur með fluginu, fyrirmæli úr dómsmálaráðuneytinu komu um að beðið skildi vera með það. Í kjölfar þessara frétta ætlum við að velta fyrir o...

Sep 16, 202456 minEp. 154
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android