Grindvíkingar - ári seinna - podcast episode cover

Grindvíkingar - ári seinna

Oct 23, 202455 minEp. 176
--:--
--:--
Download Metacast podcast app
Listen to this episode in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episode description

Það fer bráðum að verða komið ár síðan að Grindavíkurbær var rýmdur vegna eldgosahættu. Fyrir rétt tæpu ári síðan höfðum samband við fjóra íbúa bæjarins og fengum þau til þess að taka reglulega upp hljóðdagbækur á símana sína. Þau deildu hversdagsleikanum sínum, hugsunum sínum og áhyggjum á óvissutímum. Við klipptum það svo saman og fluttum í Lestinni yfir nokkurra mánaða skeið. Körfuboltaleikir, safnskólar, svefnleysi og maturinn sem varð eftir í frystikistum var meðal þess sem þau sögðu frá. Þannig gátum við sett manneskjur og líf í samhengi við fréttir af náttúruhamförum. Í Lestinni í dag fáum við Grindvíkingana sem við kynntumst vel hér í Lestinni, en höfum aldrei hitt, til að setjast niður með okkur og segja okkur hvað er að frétta. Hvað hefur breyst. Hvernig líður þeim. Þetta eru Sigríður Gunnarsdóttir, Teresa Birna Björnsdóttir, Siggeir Fannar Ævarsson og Andrea Ævarsdóttir.
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android