Lestin - podcast cover

Lestin

RÚVwww.ruv.is
Popp og pólitík Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Átökin um ölduna í Þorlákshöfn

Ný landfylling í Þorlákshöfn ógnar bestu og vinsælustu brimbrettaöldu landsins. Í bæjarfélaginu takast á ólíkir hagsmunir - iðnaður, náttúra, peningar - og hópur sörfara hefur fundið sig knúinn til að láta í sér heyra. Við sláumst í för með brimbrettaköppum sem vilja vernda ölduna í Þorlákshöfn.

Sep 12, 202452 minEp. 153

Gleymd íslensk kántrýstjarna, Ljósvíkingar (gagnrýni), snillingshugmyndin

Kvikmyndin Ljósvíkingar fjallar um tvo gamla vini sem reka veitingastað á vestfjörðum, en það reynir á samstarfið og vinskapinn þegar annar þeirra kemur út úr skápnum sem transkona. Þetta er fyrsta leikna íslenska kvikmyndin sem skartar transkonu í aðalhlutverki. Kolbeinn Rastrick rýnir í myndina, og við heyrum brot úr viðtali við leikstjórann Snævar Sölva Sölvason. Við kynnum okkur líka gleymda íslenskra kántrýstjörnu, Johnny King, en hann er viðfangsefni nýrrar heimildarmyndar Kúrekar Norðursi...

Sep 11, 202455 minEp. 152

69 ástarlög, íslensk heimspeki á miðöldum, Taktu flugið beibí

Um helgina voru 25 ár frá því að platan 69 Love Songs með hljómsveitinni The Magnetic Fields kom út, 7. September 1999. Platan öðlaðist költstöðu á því augnabliki sem hún kom út, brjálæðislegt verkefni sem gengur fullkomlega upp. Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir er að fara að frumsýna nýtt leikrit á fimmtudaginn í Kassanum. Taktu flugið, beibí er byggt á lífshlaupi og lífsreynslu höfundarins. Lóa ræðir við Kolbrúnu um verkið. Ýmis ummerki eða spor eftir heimspekilega hugsun er að finna í miðaldarbók...

Sep 10, 202456 minEp. 151

Kapítalískt raunsæi (í bókaklúbbi), grísk menning

Hvað er að gerast í grískri menningu? Hvaða tónlist eru Grikkir að dansa við, hvaða bækur eru þeir að lesa, og hvað finnst þeim um nýjustu bíómyndina frá Yorgos Lanthimos? Við hringjum í Auði Ýr Sigurðardóttur sem er í Þessaloniki í norður Grikklandi og forvitnumst um gríska dægurmenningu. Við förum og hittum bókaklúbbinn Bók í dós, sem var að enda við lesa bókina Capitalist Realism: Is there no alternative? eftir breska heimspekinginn og menningarrýninn Mark Fisher. Kapítalískt raunsæi er hugta...

Sep 09, 202458 minEp. 150

Að rawdogga, dekurrófu-sumar, Ljósbrot

Haustlægðirnar eru farnar að níðast á landanum og Davíð Roach Gunnarsson ætlar að kveðja með pistli um tónlistarsumarið, um nostalgíu og nýjabrum, tónlistarhátíðir og dekurrófur. Charli xcx, tónleikastaðurinn Kex og Rottweiler hundar koma við sögu. Kolbeinn Rastrick fjallar um Ljósbrot, nýja kvikmynd Rúnars Rúnarssonar og svo heyrum við viðtal við Rúnar og aðalleikkonu myndarinnar, Elínu Hall. Við fjöllum um fyrirbærið að 'rawdogg-a' eitthvað, og hvaða áhrif það hefur að vera snjallsímalaus í nú...

Sep 05, 202455 minEp. 149

Nýnasistar gera leikhús, innflytjendur með uppistand, ratleikur

Árið 1999 ákvað eitt þekktasta leikskáld heims, svíinn Lars Norén, að búa til leikrit í samstarfi við þrjá fanga sem afplánuðu langa dóma í öryggisfangelsi - þar af tvo nýnasista. Leikritið 7:3 vakti mikla athygli og umtal en ferlið endaði með tveimur morðum. Þessu verkefni eru gerð skil í nýrri leikinni þáttaröð, Sársaukapunktur, Smärtpunk. Við ræðum söguna á bakvið þættina við Hlín agnarsdóttur. Daniel Roh segir okkur frá uppistandssýningunni Belonging? sem verður haldin í Salnum í Kópavogi næ...

Sep 04, 202455 minEp. 148

Lesbíu-endurreisnin, íslenskt afróbeat, Extreme Chill

Þeir eru eflaust fáir sem hugsa um okkar kalda sker í Norður-Atlantshafi þegar þeir heyra afróbeats-tónlist - en héðan sprettur þó slík tónlist. Nonykingz er rúmlega þrítugur tónlistarmaður, fæddur og uppalinn í Nígeríu en búsettur hér undanfarin 8 ár. Frá 2016 hefur hann sent frá sér fjölda laga um ástina, kynlíf og partý. Við ræðum við Nonykingz um afrobeat, tónlistarbransann, um Nígeríu og ástina sem dróg hann til Íslands frá Filippseyjum. Hvað þýðir það þegar sjálfsmynd kemst í tísku? Er les...

Sep 03, 202457 minEp. 147

Stríð um Friðarsúluna, menning í Úkraínu, House of the Dragon

Fyrir helgi tilkynnti Reykjavíkurborg að til stæði að gera endurbætur á Friðarsúlu Yoko Ono í Viðey fyrir 33 milljónir króna. Súlan var tendruð árið 2007 á fæðingardegi Johns Lennon, 9. Október. Í kjölfarið sköpuðust umræður um súluna, er hún mikilvæg áminning um friðarboðskapinn eða pirrandi ljósmengun? Í sumar kom út önnur sería af sjónvarpsþáttunum House of the dragon, en það eru þættir úr sama sagnaheimi og Game of Thrones. Brynja Hjálmsdóttir sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar nýtti grámyglul...

Sep 02, 202456 minEp. 146

Átak í Lestinni

Þátturinn í dag er í höndum meðlima í stjórn Átaks, sem er félag fólks með þroskahömlun. Við skyggnumst inn í störf töframannsins, ræðum leiklist og tækifæri við Fúsa úr samnefndri leiksýningu, veltum fyrir okkur foreldramissi og pælum svo í EM í fótbolta. Viðmælendur: Lárus Blöndal Guðjónsson Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson Jóhann Páll Ástvaldsson Umsjónarmenn og ritstjórn: Atli Már Haraldsson Helga Pálína Sigurðardóttir Inga Hanna Jóhannesdóttir Sveinbjörn Benedikt Eggertsson Haukur Guðmundsson...

Jun 27, 202456 minEp. 145

Lúsmý, Átak, meiri framritun

Á morgun verður síðasti þáttur Lestarinnar fyrir sumarfrí. Til að loka önninni fengum við dagskrárgerðarfólk með okkur í lið sem eru stjórnarmeðlimir í Átaki, félags fólks með þroskahömlun. Dagskrá Lestarinnar á morgun verður því fjölbreytt, Atli Már Haraldsson segir okkur frá því. Við ætlum að rifja upp atburði á Ísafirði frá því síðasta sumar. Þá deildu ættingjar á Ísafirði um það hvort það væri komið lúsmý vestur. Við heyrum innslag frá síðasta sumri. Við spilum svo seinni hlutann af samtali ...

Jun 26, 202455 minEp. 144

Kántríbylgjan, sexismi í danska tónlistarbransanum, kjöt og líkamar

Fyrr í júní hóf göngu sína í danska ríkissjónvarpinu, DR, heimildaþáttaröð sem nefnist Sexisme i musikbranchen, sexismi í tónlistarbransanum. Þættirnir gera grein fyrir þeim mikla kynjahalla sem ríkt hefur í dönsku tónlistarlífi um árabil, með vísan til rannsóknar á stöðu kvenna í geiranum sem birt var 2022. En auk þess að greina frá sláandi tölfræði, er í þáttunum rætt við ýmsa sérfræðinga og fjöldan allan af dönskum tónlistarkonum sem segja frá reynslu sinni úr bransanum. Við hringjum til Kaup...

Jun 25, 202457 minEp. 143

Svartigaldur Svartþoku, Skítabær, Seneca

Við bryjum þáttinn í félagsíbúð í Þrándheimi. Ole Martin Hafsmo vann til verðlauna fyrir hlaðvarpsþættina Skitbyen sem hann gerði fyrir NRK síðastliðið vor. Lóa hitti hann á útvarpsráðstefnu í Róm í vor og ræddi við hann um þættina sem segja sögu móður hans sem býr í Skítabæ. Fjóla Gerður er nemi við Menntaskólan í Hamrahlíð. Hún hefur áhuga á heimspeki, list og körfubolta. Og í dag flytjum við fyrsta pistilinn hennar í þættinum, sem fjallar um hugmyndir Seneca og hinna stóuspekinganna um ferlið...

Jun 24, 202456 minEp. 142

Færeysk listsköpun, Svartur svanur, Eric

Trygvi Danielsen er frá Þórshöfn í Færeyjum. Hann fæst við list á mjög breiðum grunni, hann er skáld, kvikmyndagerðarmaður, tónlistarmaður og nemur nú færeyskar bókmenntir við háskólann í Færeyjum. Við hittum Trygva á Stúdentakjallaranum í hádeginu, en þar sýndi hann nýja stuttmynd eftir sjálfan sig og framdi ljóðagjörning. Brynja Hjálmsdóttir, sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar, rýnir í nýju Netflix-þættina Eric, með Benedict Cumberbatch í aðalhlutverki. Lóa Björk ræðir við Jóhannes Kr. Kristjáns...

Jun 20, 202455 minEp. 141

Hlutverk Rásar 1, Þöglar byltingar, Passages

Við byrjum Lestina í dag á naflaskoðun. Við veltum fyrir okkur hlutverki Ríkisútvarpsins og Rásar 1 út frá grein sagnfræðingsins Láru Magnúsardóttur, sem birtist í Skírni á dögunum. Kolbeinn Rastrick, kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar, rýnir í nýjustu kvikmynd leikstjórans Ira Sachs, Passages, sem hefur verið í sýningu í Bíó Paradís nýverið. Þöglar byltingar nefnist stutt leikverk eftir Magnús Thorlacius. Um er að ræða einþáttung sem var fyrst sýndur á faraldstímanum, en verður nú sýndur aftur á ...

Jun 19, 202456 minEp. 140

Trúðurinn Ari Árelíus, ranghugmyndir Cyber, Rúna í jökulsprungu

Myndlistakonan Guðrún Benedikta Elíasdóttir er fædd og uppalin á Höfn í Hornafirði. Á jóladag árið 1976 fór hún með fjölskyldunni sinni upp á jökul í skoðunnarferð og féll ásamt móður sinni í sprungu. Hún er ein þeirra listamanna sem sýna verk sín á myndlistasýningunni nr. 5 Umhverfing á suðausturhorni Íslands. Verkin á sýningunni standa frá Lómagnúpi að Eystrahorni. Joe meðlimur í hljómsveitarinnar Cyber er gestaþáttastjórnandi Lestarinnar í dag. Við frumflytjum lag sem er ábreiða af lagi Britn...

Jun 18, 202455 minEp. 139

Útrýming miðbæjarrottunnar og tónleikastaða í Reykjavík

Lestin í dag fjallar um tónleikahald í Reykjavík. Ástæðan er yfirvofandi lokun tónleikarýmisins á Kex-hosteli, sem hefur verið mikilvægt rými fyrir senuna. Við tölum við tónlistarfólk, bókara, bransalið og manneskju hjá borgaryfirvöldum í leit að svörum við spurningunni - hvers vegna verður sífellt erfiðara að halda tónleika í Reykjavík? Lagalisti: Sameheads - Gutl Flaaryr - Eldhús Flaaryr - To be the eyes and the ears and conscience of the creator of the universe (1) Krabba Mane og Bngrboy - Ha...

Jun 13, 202456 minEp. 138

Hugleiðsluþungarokk, Apple gervigreind, sideproject

Af hverju er Elon Musk að hóta að banna Apple vörur í fyrirtækjunum sínum? Við kynnum okkur Apple Intelligence með Hafsteini Einarssyni, lektor við Háskóla Íslands. Hugleiðsla og þungarokk eru fyrirbæri sem eiga kannski ekki mikla samleið á yfirborðinu, en hljómsveitin Osme hefur unnið gagngert með að tvinna þau saman, allt frá stofnun á síðasta ári. Í næstu viku heldur hljómsveitin tólf klukkustunda langa sólstöðutónleika í Sköpunarmiðstöðinni á Stöðvarfirði. Við fáum heimsókn frá Örlygi og Atl...

Jun 12, 202456 minEp. 137

Afturámóti, passamyndir, Birnir & Bríet og Floating Points

Í gær kynntumst við tveimur önnum köfnum sviðslistakonum sem eru í óða önn að setja á svið þó nokkrar nýjar leiksýningar í lok mánaðar. Það sem við náðum ekki að skoða í gær, hins vegar, er rýmið sem verkin verða flutt í, en það er borgarbúum að góðu kunnugt þó það birtist okkur nú í nýrri mynd. Sviðslistafélagið Afturámóti hefur tekið við lyklum að Háskólabíói og opnar dyr sínar að fjölbreyttri leikhússtarfsemi þar á bæ yfir sumarið. Davíð Roach Gunnarsson, tónlistargagnrýnandi Lestarinnar, rýn...

Jun 11, 202455 minEp. 136

Charli xcx, Prjónagleði, samtal um klám

Charli xcx gaf út plötuna BRAT síðastliðinn föstudag, og hefur hún vakið mikla lukku hlustenda sem og gagnrýnenda. Hún rammar inn þær flóknu og mótsagnakenndu tilfinningar sem fylgja því að vera 31 árs kona. Eða stelpa. Arnar Ingi Ingason, tónlistarmaður, hlustaði og dýrkaði, hann rýnir í plötuna út frá sjónarhorni pródúsentsins. Af hverju finnst okkur svona óþægilegt að tala um klám þegar allir hafa horft á það? Þessari spurningu og fleirum er varpað fram í einleiknum Þegar við erum ein eftir þ...

Jun 10, 202456 minEp. 135

La Presidenta, Spacestation í draumalandi, (H)andaflug

Claudia Sheinbaum er fyrsti kvenkynsforseti Mexíkó, La Presidenta er hún kölluð. Við hringjum í Elínu Emilsson sem er búsett í Mexíkóborg og heyrum viðbrögð hennar við þessum fréttum. Ef þú ferð aldrei að sofa, þá vaknarðu aldrei. Þetta er þrástef í nýjasta lagi reykjavíkurrokkhljómsveitarinnar Spacestation. Enda er lagið, sem heitir Í draumalandi, samið sem eins konar kvæði til þeirra sem fara aldrei að sofa, heldur eru á vökunni, í draumalandinu. O.N. Sviðslistahópur blæs til yfirtöku á Klúbbi...

Jun 06, 202454 minEp. 134

Strákasveitin Spark, framritun í baksýnisspeglinum, KUSK

Við rifjum upp gleymda gersemi úr íslenskri tónlistarsögu, plötuna Lífið er leikur með strákasveitinni Spark, sem kom út árið 2005 þegar meðlimir sveitarinnar voru 10 og 11 ára gamlir. Kolbrún Óskarsdóttir, Kusk, sendi frá sér plötuna Rammar undir lok maímánaðar. Hún lítur við í hljóðveri og segir okkur frá. Þórður Ingi Jónsson sendir okkur línu frá Kaliforníu, hann ræddi um framritunartónlist við DJ_Dave og c_robo_ sem eru búsett þar en verða með tónleika á Radar í Reykjavík annað kvöld ásamt í...

Jun 05, 202455 minEp. 133

Halla T á TikTok, rýnt í Snertingu, hlustunarpartý með sameheads

Lóa Björk ræðir við Reyni Ólafsson, ungling og sérlegan samfélagsmiðlaráðgjafa Lestarinnar, um frammistöðu nýkjörins foresta Íslands, Höllu Tómasdóttur á TikTok í aðdraganda kosninga. Kolbeinn Rastrick, kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar, rýnir í nýjustu kvikmynd Baltasars Kormáks, Snertingu. Við höldum lítið hlustunarpartý með hljómsveitinni sameheads og hlustum saman á þeirra fyrstu plötu, Tónlykt, sem væntanleg er til útgáfu á föstudaginn kemur.

Jun 04, 202455 minEp. 132

Skuggasund

Lögregla beitti piparúða á mótmælendur í Skuggasundi þann 31. maí síðastliðinn. Mótmælendur höfðu safnast saman fyrir utan ríkisstjórnarfund til að mótmæla aðgerðarleysi stjórnvalda gagnvart Palestínu. Við heyrum frá þeim sem voru á staðnum. Lesari: Sólveig Hauksdóttir. Tónlist í þættinum er eftir Víf Ásdísar Svansbur, hljóðmaskínu, af plötunni Hljóðmaskína.

Jun 03, 202452 minEp. 131

Katrín Jakobs klýfur menningarelítuna, kvenleiki og valdastéttir

Við ætlum að ræða pistil Auðar Jónsdóttur um framboð Katrínar Jakobsdóttur sem hún segir hafa anda elítisma yfir sér. Ragnar Kjartansson hefur svarað pistli Auðar og mikill hiti hefur færst í umræðuna um framboð Katrínar á samfélagsmiðlum út frá þessum greinum. Berglind Rós Magnúsdóttir félagsfræðingur og ástarannsakandi, leggur orð í belg út frá hugmyndum samfélagsins um kvenleika og völd. Svo ræðum við við Nönnu Hlín Halldórsdóttur, heimspeking, um völd, feminisma og nýfrjálshyggju.

May 30, 202455 minEp. 130

Fatlað fólk og forsetaframbjóðendurnir, Glerhúsið og díalektísk efnishyggja

Við heimsækjum skrifstofur Átaks og ræðum við þau Atla Má og Ingu Hönnu um viðtöl þeirra við forsetaframbjóðendur. Átak er félag fólks með þroskahömlun og í viðtölunum við forsetaframbjóðendur er lögð sérstök áhersla á málefni fatlaðra. Því næst förum við á Vesturgötuna í heimsókn í galleríið Glerhúsið, ræðum við Kristínu Ómarsdóttur, skáld, og myndlistarkonuna Sigrúnu Hrólfsdóttur.

May 29, 202454 minEp. 129

Menntaskóla-reunion, bækur forsetaframbjóðenda, formaður húsfélagsins

Menntaskólar landsins eru í óða önn að útskrifa nemendur í massavís um þessar mundir. En það sem fylgir þessum árstíma líka fyrir sum okkar, eru útskriftarafmælin, svokölluð menntaskóla-reunion, viðburðir þar sem heilu árgöngunum er boðið á stefnumót við fortíðina. Helgi Grímur Hermannsson býr í fjölbýli og hann er formaður húsfélagsins. Hann er að velta fyrir sér mannlífi milli íbúða, nánd milli veggja. Forsetaframbjóðendur voru beðnir, af Amtsbókasafninu á Akureyri, að mæla með bók. Steinunn Ó...

May 28, 202455 minEp. 128

Dansdagar, áttavilt átta á Skjaldborg, húsa- og lagasmíðar

Streetdance, sem væri hægt að þýða sem götudans, þó þetta sé í daglegu tali einfaldlega kallað streetdance, er þema Dansdaga, sem eru nú haldnir á annað sinn. Við kíkjum í heimsókn á Dansverkstæðið og spjöllum við Gígju Jónsdóttur og Liinu Magneu um hátíðina í ár, dansböttl og fjölskylduþerapíu. Ásgeir H. Ingólfsson klárar yfirferð sína á Skjaldborgarhátíð þessa árs. Kári Kresfelder er tuttugu og tveggja ára gamall tón- og húsasmiður sem býr og starfar á Neskaupsstað. Hann er í progg-metal hljóm...

May 27, 202457 minEp. 127

Una Schram snýr aftur, 25 ára rapphundar, Lærdómstími ævin er

Á miðnætti í kvöld kemur út nýtt lag eftir tónlistarkonuna Unu Schram. Una hefur áður sent frá sér þó nokkrar smáskífur, eina stuttskífu og eina blandspólu á árunum 2019 til 2022 og þetta nýja lag er því það fyrsta sem heyrist frá Unu í einhver tvö ár. Það ber titilinn titilinn 1999 (There You Go) og verður frumflutt í útvarpi hér í Lestinni í dag. Rappsveitin XXX Rottweiler hundar hafði mikil og mótandi áhrif á íslenskt rapp uppúr aldamótum, og fögnuðu nú um helgina tuttugu og fimm ára starfsaf...

May 23, 202454 minEp. 126

Bókverkamarkaðurinn, meiri Skjaldborg

Bókverkamarkaðurinn í Reykjavík eða Reykjavík Art Book Fair opnar á morgun. Joe Keys og Edda Kristín Sigurjónsdóttir taka á móti okkur í Hafnarhúsinu og segja frá. Ásgeir H. Ingólfsson, menningarblaðamaður og menningarsmyglari, sá allar myndirnar á Skjaldborgarhátíðinni um helgina. Í dag flytur hann okkur fyrri pistil af tveimur um upplifun sína af þessari merku hátíð.

May 22, 202454 minEp. 125

Bíó í beinni, Starafugl

Joe Bini og Maya Daisy Hawke eru bæði par og samstarfsfélagar, og hafa síðan á tíunda áratugnum fengist við að klippa kvikmyndir. Þau voru heiðursgestir á Skjaldborg í ár og í þætti dagsins kynnumst við þeim betur - ræðum við þau um Grizzly Man og Navalny, myndir sem þau klipptu, og listgreinina sem klippið raunverulega er. Vi[ rifjum upp vefrit um menningu sem var upp á sitt besta fyrir um áratug og hristi rækilega upp í íslenskri menningarumræðu. Lóa Björk ræðir við Eirík Örn Norðdahl um Stara...

May 21, 202455 minEp. 124
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android