Færeysk listsköpun, Svartur svanur, Eric
Jun 20, 2024•55 min•Ep. 141
Episode description
Trygvi Danielsen er frá Þórshöfn í Færeyjum. Hann fæst við list á mjög breiðum grunni, hann er skáld, kvikmyndagerðarmaður, tónlistarmaður og nemur nú færeyskar bókmenntir við háskólann í Færeyjum. Við hittum Trygva á Stúdentakjallaranum í hádeginu, en þar sýndi hann nýja stuttmynd eftir sjálfan sig og framdi ljóðagjörning.
Brynja Hjálmsdóttir, sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar, rýnir í nýju Netflix-þættina Eric, með Benedict Cumberbatch í aðalhlutverki.
Lóa Björk ræðir við Jóhannes Kr. Kristjánsson um nýja danska heimildaþætti, Svartan svan, sem eru í sýningu á RÚV um þessar mundir.
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android
