Heimildarmyndahátíðin Skjaldborg verður haldin á Patreksfirði í sautjánda sinn um helgina, og við ætlum að hefja Lestina í dag á því að taka stöðuna á skipuleggjendum hátíðarinnar. Guðrún Úlfarsdóttir, pistlahöfundur, fjallar um hljómsveitina The Shaggs. Fyrsta plata þeirra, The Philosophy of the World, kom út seint á sjöunda áratugnum og þykir ýmist meistaraverk, eða ein versta plata allra tíma. Við heimsækjum Gallerý Port sem er flutt í glænýtt húsnæði við glænýja götu í Reykjavík. Gallerý Por...
May 16, 2024•55 min•Ep. 123
Tryggvi Hansen hefur um áratuga skeið lagt stund á myndlist, torfhleðslu, og tónlist, en hann er mikill áhugamaður um þjóðhætti, þjóðfræði, sögu og heimspeki. Við kíkjum í heimsókn til Tryggva á Gufunesi, ræðum við hann um lífið og listina, og skoðum hluta úr hljóðfærasafni hans. Brynja Hjálmsdóttir spilaði Fallout tölvuleikinn á sínum tíma. Nú hafa verið gerðir samnefndir sjónvarpsþættir byggðir á leiknum, sem gerast eftir 200 ár og kjarnorkustyrjöld. Brynja rýnir í þættina. Við kíkjum líka í Á...
May 15, 2024•1 hr 2 min•Ep. 122
Glamúrinn á hinu víðfræga Met Gala-kvöldi í New York í síðustu viku hefur farið öfugt ofan í netverja síðan í síðustu viku. Myndir af stórstjörnum í skrautlegum og íburðarmiklum tískufatnaði fara um miðlana eins og eldur í sinu, og er gjarnan stillt upp andspænis myndum af hryllingi stríðsátaka og hungursneyðar. Nú er kallað eftir því að við blokkerum stjörnur og áhrifavalda á öllum helstu samfélagsmiðlum. Hvers vegna? Baldur og Erla Hlín kynntust í djasshljómfræðitíma í MÍT, og stofnuðu í kjölf...
May 14, 2024•57 min•Ep. 121
Bresku Netflix þættirnir Baby Reindeer, úr smiðju skoska grínistans Richards Gadd, hafa verið á allra vörum síðan þeir litu dagsins ljós fyrir rúmum mánuði, enda lang vinsælustu þættirnir á þessari stærstu streymiþjónustu heims. Guðrún Elsa Bragadóttir kemur í heimsókn og ræðir við okkur um þessa athyglisverðu þætti og átökunum sem hafa einkennt umræðuna í kringum þá. Við heimsækjum höggmyndagarð Myndhöggvarafélagsins á Nýlendugötu og ræðum við Agnesi Ársælsdóttur myndlistamann. Hún er hætt að p...
May 13, 2024•57 min•Ep. 120
Við höldum áfram að velta fyrir okkur umræðunni í kringum Eurovision. Á að sniðganga? Eða ekki? Bjarni Daníel rölti út í Kringlu og tók púlsinn á gestum og gangandi. Kolbeinn Rastrick fór að sjá myndina Four Daughters sem nú er sýnd í Bió Paradís, en hún hlaut tilnefningu til óskarsverðlauna í flokki heimildarmynda. Myndin segir sögu mæðgna frá Túnis og er í leikstjórn Kaouther Ben Hania. Í Tjarnabíói annað kvöld fara fram útgáfutónleikar, þar sem plötunni Our Daily Apocalypse Walk verður fagnað...
May 08, 2024•53 min•Ep. 119
Olga Maggý Winther og Cristina Agueda eru dansnemar á þriðja ári við Listaháskóla Íslands. Seinna í þessari viku munu þær, ásamt bekkjarfélögum sínum, flytja tvö dansverk á útskriftarsýningu í Laugarnesinu. Þær segja okkur betur frá. Katrín Helga Ólafsdóttir, tónlistarkona, flytur pistil um tónlistarkeppnina Pan-Arctic Vision. Keppnin er svipuð Eurovision í sniði en ólík að því leyti til að hún er yfirlýst pólitísk og hafnar hugmyndum um þjóðríkið og landamæri, en miðjusetur jaðarett þjóðbrot á ...
May 07, 2024•56 min•Ep. 118
Sjaldan hefur verið jafn mikilvægt að opna Genius.com til að skilja rapptexta, skilja samhengi. Það er beef í rappheimum Vestanhafs, og að þessu sinni eru það Kendrick Lamar og Drake sem fljúgast á. En hvers vegna eiga þeir í útistöðum? Hvað gerðist? Hvar endar þetta? Við kryfjum ríginn milli Drake og Kendrick ásamt Gissuri Ara sem er búinn að vera fylgjast afar grannt með málum. Að einhverju leyti er hundasundið orðið nokkuð hversdagslegt. Ég ranka reglulega við mér og spyr mig: „hvað er ég eig...
May 06, 2024•55 min•Ep. 117
Bandaríkin búa yfir langri og djúpri sögu stúdentamótmæla, og nú stendur yfir sérstaklega áberandi mótmælaalda. Stúdentar víða um landið hafa slegið upp tjaldbúðum og krefjast þess að skólayfirvöld rjúfi tengsl við Ísrael. Emil Dagsson er doktorsnemi í hagfræði, og stundar nú rannsóknir við Brown háskóla í Providence í Rhode Island fylki. Hann fór yfir stöðuna með okkur. Brynja Hjálmsdóttir, sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar, hefur verið að fylgjast með sjónvarpsþáttunum Skvíz, en um er að ræða n...
May 02, 2024•55 min•Ep. 116
Við ætlum í fjallgöngu. Fjallgöngu sem mögulega breytir öllu. Fimm vinkonur, fimm fræknar, fóru yfir Fimmvörðuháls seinasta sumar. Upptakan hefur setið ónsert í tölvunni síðan í júlí í fyrra. En nú er kominn tími til að skoða hvað gerðist þegar Fimmvörðuháls varð að Everest. Hljómsveitin ex.girls er í hópi áhugaverðustu rafsveita Reykjavíkursenunnar, og eftir margra ára vinnu leit fyrsta plata þeirra í fullri lengd dagsins ljós á seinni hluta síðasta árs. Platan heitir Verk og á henni leitast sv...
Apr 30, 2024•58 min•Ep. 115
Listafólkið Snorri Ásmundsson og Elísabet Jökulsdóttir eiga það sameiginlegt að hafa boðið sig fram til embættis forseta Íslands. Snorri árið 2004 og Elísabet árið 2016. Elísabet stofnaði Mæðraveldi og fór á puttanum að safna undirskriftum, Snorri lenti í fjölmiðlaskandal sem sneri að fortíð hans. Að gefnu tilefni rifjum við upp framboðstímana. Davíð Roach Gunnarsson, tónlistargagnrýnandi Lestarinnar, fjallar um bandaríska plötusnúðinn DJ Shadow, sem hefur boðað komu sína hingað til lands í suma...
Apr 29, 2024•55 min•Ep. 114
Hljóðið nefnist ný tónlistarhátíð sem verður haldin í miðbæ Reykjavíkur í fyrsta sinn síðar í vikunni. Viðburðurinn er hugsaður sérstaklega fyrir ungmenni, og skipulagður af þeim Önnu Eir Uggadóttur, Atlas Njálssyni og Hróa Sigríðar sem öll eru í tíunda bekk. Við slógum á þráðinn til þeirra til að forvitnast um framtakið. Á dögunum sendi Taylor Swift frá sér plötuna Tortured Poets Department. Platan sló met á Spotify og var mikið lagt í markaðssetningu hennar. Við veltum fyrir okkur póstfeminism...
Apr 24, 2024•56 min•Ep. 113
Í tilefni að setningu Barnamenningarhátíðar tekur Krakkaveldi við stjórnartaumunum í Lestinni í dag. Væb, Halldóra Geirharðs, Eurovision-sniðganga og pistill um fangelsismál eru meðal þess sem krakkarnir bjóða upp á. Borghildur, Sóley og Margrét tóku viðtal við bræðurna Matta og Hálfdán en saman eru þeir í hljómsveitinni VÆB. Hvað er uppáhalds bragðarefurinn þeirra? Hvernig gengur þeim að vinna saman? Og hver er apinn? Fangelsi eru stofnanir sem ætlað er að refsa og endurhæfa einstaklinga sem ha...
Apr 23, 2024•55 min•Ep. 112
Fáir hafa haft jafnmikil áhrif á vestræna heimspeki og Immanuel Kant, og í dag eru einmitt þrjú hundruð ár frá fæðingu hans. Emma Björg Eyjólfsdóttir og Björn Þorsteinsson heimspekingar líta við í tilefni dagsins. Barnamenningarhátíð hefst í vikunni, og til að fagna því verður umsjón Lestarinnar í höndum Krakkaveldis á morgun. Við heyrum hljóðið í fjórum ungum útvarpsmönnum. Á morgun verður opnuð við Austurstræti ný Tónlistarmiðstöð, sem hefur það markmið að verða einn af hornsteinum íslensks tó...
Apr 22, 2024•56 min•Ep. 111
Juno Paul er listamannsnafn tónlitstarmannsins Andra Franz Baldvinssonar, sem skaust fram á sjónarsviðið á síðasta ári. Andri hefur verið áberandi í reykvísku grasrótarsenunni undanfarið, og nú styttist í útgáfu á hans fyrstu plötu. Það standa yfir miklar deilur í rappheimum vestanhafs þessa stundina, en Kendrick Lamar og Drake hafa meðal annars átt í útistöðum upp á síðkastið. Þeir hafa gripið til þess að kveðast á, komið skotum hvor á annan með grimmilegum níðvísum, diss-lögum. Sævar Andri Sig...
Apr 18, 2024•58 min•Ep. 110
Plast er út um allt, það er allstaðar, nema þar sem við viljum hafa það. Á meðan við þrífum tómatssósuflöskurnar hellist tilgangsleysið yfir. Fólk hvartar yfir flokkunarþreytu, það les enn eina greinina, enn eina skýrsluna, sem sýnir fram á misfellur endurvinnsluiðnaðarins. Í leit að von, í leit að tilgangi, förum við í heimsókn í Plastplan, til að ræða plast við Björn Steinar Blumenstein. En við hefjum þáttinn á því að ræða við leikstjórann Sigurð Anton Friðþjófsson og aðalleikkonu í nýrri kvik...
Apr 17, 2024•56 min•Ep. 109
Á jarðhæð Borgarbókasafnsins í Gerðubergi standa nokkur glær borð, og á þau hefur verið raðað fjöldanum öllum af eldhúsáhöldum og borðbúnaði. Þessa dagana stendur nefnilega yfir skiptimarkaður, sem er sérstaklega tileinkaður öllu því sem viðkemur eldhúsinu. Bjarni Daníel kynnti sér málið, og græddi nýjan bolla í leiðinni. Guðrún Úlfarsdóttir, pistlahöfundur, sendir okkur hugleiðingu um kynusla í klæðaburði goða og garpa í gegnum tíðina, og framtíð kynhlutlauss þjóðbúnings. Í næstu viku kemur út ...
Apr 16, 2024•54 min•Ep. 108
Júlíus og Þórbergur eru meðlimir í tiltölulega ungum kór í íslensku kór-flórunni, en það er Kammerkórinn Huldur (fallbeygist eins og Hildur). Huldur hefur frumflutt fjöldann allan af nýjum íslenskum verkum undanfarin tæp þrjú ár, enda er í kórnum er nokkur fjöldi upprennandi tónskálda. Við heyrum sögur af kórstarfinu og veltum fyrir okkur muninum á kammerkór og bílskúrshljómsveit. Melkorka Gunborg Briansdóttir, rýnir í hina margverðlaunuðu Poor Things, nýjustu kvikmynd gríska leikstjórans Yorgos...
Apr 15, 2024•58 min•Ep. 107
Það er einhver bölvaður óþverri að ganga, veikindi, flensur, veirur, kvefpestar og sýkingar á hverju horni. Það er vont að vera lasinn, en verst af öllu eru leiðindin, þegar maður situr aðgerðarlaus uppi í rúmi meðan pestin gengur yfir. Við heyrum hljóðið í nokkrum mishressum veikindapésum. Davíð Roach Gunnarsson, tónlistargagnrýnandi Lestarinnar, rýnir í nýjustu plötu rapparans GKR, sem kom út á dögunum. Á morgun verður haldin ráðstefna á Sjóminjasafninu sem ber yfirskriftina Horft til framtíða...
Apr 11, 2024•58 min•Ep. 106
Lóa fer á rúntinn með Jóhanni Kristófer og Patrek Jaime. Þau spjalla um Æði, það góða, slæma og flókna við að gera þátt um unga menn sem eru að læra að fóta sig í lífinu. Brynja Hjálmsdóttir tekur svo við keflinu og rýni í lokaseríuna af Æði, þá fimmtu, og bregður útaf vananum og gefur þeim stjörnur. En við byrjum á því að kíkja í heimsókn til Ránar Flygenring, á vinnustofuna hennar vestur í bæ.
Apr 10, 2024•56 min•Ep. 105
Í gær voru liðin þrjátíu ár frá andláti einnar skærustu rokkstjörnu síðustu aldar, Kurts Cobain, söngvara, lagahöfundi og forsprakka bandarísku grugg-sveitarinnar Nirvana. Við rýnum í arfleifð þessarar goðsagnakenndu persónu. Af hverju fylgir því svona mikil skömm að fá sekt á bókasafninu? Er það vegna þess að við óttumst dómhörku bókavarðanna? Er það vegna þess að okkur finnst við hafa brugðist? Lóa burðast um með skömm í töskunni, bók sem hún er búin að vera með að láni síðan í nóvember. Lagal...
Apr 09, 2024•54 min•Ep. 104
Í nafnaveislu í Hafnarfirði um helgina, yfir kaffibolla, aspasbrauðrétt og marengstertu, vakna hugleiðingar um nöfn og nafngiftir. Hvað á barnið að heita - og af hverju? Við heyrum alls konar sögur af alls konar nöfnum. Við ræðum við kántrí tónlistarmanninn Axel O sem hefur náð langt í kántrí senunni í Texas, Axel O, og Önnu Marsibil Clausen, um nýútkomna plötu Beyoncé, Cowboy Carter. Fyrsti singúll plötunnar, Texas Hold’em er kántrílag, en hvað með restina af plötunni? Lagalisti: Tyler, The Cre...
Apr 08, 2024•58 min•Ep. 103
Hver er Blanksy? Og hverjum datt í hug að búa til karakteri sem lspreyjar tölfræði um aðstæður öryrkja á bíla hjá áhrifavöldum? Við ræðum við Einar Ben hjá Bien og veltum fyrir okkur stafrænni markaðssetningu og vitundarvakningum á TikTok. Við heyrum endurflutt innslag Kristjáns Guðjónssonar frá því í fyrra, um hugtakið Enshittification. Við bregðum okkur í heimsókn í Hitt Húsið í Elliðaárdal, þar sem undirbúningur fyrir Söngkeppni framhaldsskólanna er í fullum gangi þessa dagana. Marinó Lillien...
Apr 04, 2024•57 min•Ep. 102
Einar Valur Másson er formaður Íslenska Myndasögusamfélagsins, ÍMS, sem var stofnað síðla árs 2019 með það fyrir augum að hefja myndasöguformið til vegs og virðingar hér á landi. Við fáum að vera fluga á vegg í kennslustund í fagurfræði í MH. Þar eru nemendur í umræðutíma að velta fyrir sér listaverkinu, listamanninum og sköpunarferlinu. Stórar spurningar, stórar hugmyndir og róttækar skoðanir. Eru allir listamenn? Hver ákveður hvað er listaverk? Hver ákveður hvað þér finnst flott? Flipper’s Gui...
Apr 03, 2024•57 min•Ep. 101
Vinsælasta þáttaröðin á íslenska Netflix síðan fyrir páska, er átta þátta sería sem nefnist 3 Body Problem - Þriggja hnatta vandinn. Hér er á ferðinni aðlögun á fyrstu bókinni af þremur úr margrómuðum vísindaskáldsagnaflokki, Remembrance of Earth’s Past eftir hinn kínverska Cixin Liu. Ingi Markússon, rithöfundur og trúarbragðarfræðingur, er mikill aðdáandi þessara bóka. Svo kíkjum við í heimsókn á æfingu í Borgarleikhúsinu. Íslenski dansflokkurinn er að æfa sýninguna Rómeó hjarta Júlía, eftir þæ...
Apr 02, 2024•56 min•Ep. 100
Við höldum áfram að rýna í hugarfarsbreytingar og tískustrauma á samfélagsmiðlum. Við ræðum nú við hlaðvarpsþáttastjórnandann Bergþór Másson, um feminisma, meninisma, andleg málefni og peninga. Allt sem þú snertir - breytirðu; allt sem þú breytir - breytir þér; breytingin er hinn eini varanlegi sannleikur; guð er breytingin sjálf. Nokkurn veginn svona gætum við þýtt eitt fleygasta vers bandaríska rithöfundarins Octaviu E. Butler, sem birtist í bókinni Parable Of The Sower frá 1993. Um er að ræða...
Mar 27, 2024•55 min•Ep. 99
Við hringjum vestur á Ísafjörð og ræðum við Matthildi Helgadóttur Jónudóttur. Hún er ein þeirra fjölmörgu Ísfirðinga sem gera það kleift að tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður, verði að veruleika. GDRN, Guðrún Ýr Eyfjörð, sendi frá sér nýja plötu í síðustu viku, Frá mér til þín. Platan er poppuð og hress. Hún varð til skömmu eftir fæðingarorlof Guðrúnar. Á því tímabili fattaði hún að henni er slétt hvað öðrum finnst. Að lokum heyrum við í Þórði Inga Jónssyni, sem ræddi nýverið við rapparann 330...
Mar 26, 2024•56 min•Ep. 98
Vondi hirðirinn eru nýjir þættir úr smiðju Friðgeirs Einarssonar sem frumfluttir verða um Páskana á Rás 1. Við spjöllum við hann um hluti og tiltekt og drasl. Konráð sonur hans er með í för, kominn í páskafrí. Við rifjum líka upp innslag frá árinu 2019, þar sem Eiríkur Guðmundsson veltir fyrir sér vorinu. Var íslenska vorið fundið upp í Kaupmannahöfn? Kemur vor á Íslandi? Eru fjórar árstíðir? Að lokum segir Katrín Helga Ólafsdóttir okkur frá Lucky Lo, tónlistarkonu sem hún heldur mikið upp á....
Mar 25, 2024•55 min•Ep. 97
Lóa opnar Biblíuna og rifjar upp Guð sem hún lærði um í Sunnudagaskólanum. Hvað á hann sameiginlegt með þeim Guð sem er í tísku á samfélagsmiðlum núna. Guð sem er minnst á í sömu andrá og vöðvar og völd? Kolbeinn Rastrick, kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar, fór á Dune: Part 2 og rýnir nú í verkið. Marc Wilde er þýskur tónlistaráhugamaður, sem skrifar greinar fyrir veftímaritið Kaput í hjáverkum. Í gær tók hann viðtal við Bjarna Daníel, sem verður hluti af umfjöllun hans um íslensku tónlistarsenun...
Mar 21, 2024•55 min•Ep. 96
Nýtt spjallmenni Google, Gemini, varð óvænt að að bitbeini í menningarstríðinu. Ástæðan var sú að spjallmennið virtist varla vera fært um að framleiða myndir af hvítu fólki. Við reynum að skilja af hverju og fáum fleiri fréttir af gervigreind. Tónlistarhátíðin South By Southwest eða SXSW fór fram í borginni Austin í Texas um helgina sem leið, og hefur verið haldin þar árlega síðan 1987. Í ár vakti athygli að fjöldi listafólks ákvað að sniðganga hátíðina vegna tengsla hennar við bandaríska herinn...
Mar 20, 2024•55 min•Ep. 95
Í úthverfi í Kópavogi er lítil tannlæknastofa, sem Bjarni Daníel hefur heimsótt reglulega frá þriggja ára aldri. Við heimsækjum tannlæknastofunna í Lestinni í dag. Þessa daganna stendur sviðslistahátíðin Reykjavík Cringe Festival yfir. Hún fer fram í Listaháskóla Íslands og á henni eru útskriftarverk Sviðshöfunda sýnd. Við ræðum við þrjá nemendur sem eiga öll eftir að frumsýna, leikhúsfólk framtíðarinnar, og ræðum leikhús, er það í krísu? Sævar Andri Sigurðarson, tónlistarmaður og einn af pistla...
Mar 19, 2024•57 min•Ep. 94