Lestin - podcast cover

Lestin

RÚVwww.ruv.is
Popp og pólitík Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Vampírur á Músíktilraunum og Björk, að sjálfsögðu

Nú á laugardaginn var íslenska leikritið And Björk of course sýnt í síðasta skipti í Samkomuhúsinu á Akureyri, að minnsta kosti í bili. Næst á dagskrá er að setja verkið upp í Borgarleikhúsinu, eftir Páska. Verkið er skrifað af Þorvaldi Þorsteinssyni rithöfundi, leikskáldi og myndlistarmanni, frumsýnt árið 2001 í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. 2004 kom út sjónvarpsmynd, þá var leikstjórn í höndum Lárusar Ýmis Óskarssonar. Og nú er verkið í höndum leikstjórans Grétu Kristínar Ómarsdóttur. Rúm...

Mar 18, 202455 minEp. 93

Fjölheimar, karlmennska á TikTok, hvenær drepur kona mann?

Við förum í heimsókn í FB og ræðum við sérstakan samfélagsmiðlaráðgjafa Lestarinnar, fatahönnunarnemann Reyni Ólafsson, Við ræðum algórythmann, fyrir-þig síðuna á TikTok, karlmennskuímyndir og hljóð sem borga fyrir mannúðaraðstoð. Við höldum áfram að ræða myndina Anatomy of a Fall eða fallið er hátt. Að þessu sinni er það fræðikonan Berglind Rós Magnússdóttir sem veltir vöngum yfir henni. Elín Halldórsdóttir hefur verið iðin við tónsmíðar og tónlistarútgáfu undanfarin ár, og hafa nokkur laga hen...

Mar 14, 202459 minEp. 92

Dune: Part Two, Íslensku tónlistarverðlaunin og verðlaunahátíðir

Hver er bestur í tónlist? Er það sá sem getur spilað flóknasta gítarsólóið, snúnustu selló-svítuna? Eða hraðasta trommutaktinn? Er það höfundur margslungnasta eða jafnvel lengsta tónverksins, eða söngvarinn sem kemst upp á hæsta flaututóninn? Eða er það sá sem selur flestar plötur - nær mestum fjölda spilana á streymiveitum? Alla þessa þætti getur reynst erfitt að mæla, en þó eru haldnar hátíðir víða um heim um þessar mundir ár hvert, verðlaunahátíðir sem leitast við að lyfta því upp sem þótti s...

Mar 13, 202457 minEp. 91

Hvítur feminismi, þjóðlagahryllingur, Elvis-brúðkaup

Vatnið brennur er nýjasta skáldsaga Gunnars Theodórs Eggertssonar. Hér er á ferðinni tónlistarhrollvekja sem kannar samband tónlistar og ofbeldis, meðal annars, og er innblásinn að hluta af framsækinni sænskri þjóðlagatónlist frá áttunda áratugnum. Hjalti Freyr Ragnarsson pistlahöfundur varð nett stressaður þegar hann las fréttir um að það ætti að banna Elvis-eftirhermur í hjónavígslum í Las Vegas. Á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna þann 8.mars síðastliðinn var haldinn ganga og samstöðufundur fyri...

Mar 12, 202456 minEp. 90

Fall hjónabandsins, siðfræði fjallgarða, tónleikabrölt

Við rennum yfir helstu sigurvegara á Óskarnum og svo beinum við sjónum okkar að verðlaunahafanum í flokkinum besta handrit. Það er franska kvikmyndin Anatomy of a Fall, Anatomie d'une chute eða Fallið er hátt. Við veltum fyrir okkur hjónaböndum og kynjajafnrétti, valdi og réttarhöldum og gluggum af tilefni í bókina Communion: The Female Search for Love eftir bell hooks. Guðrún Úlfardóttir er landvörður og landfræðinemi og þekkir vel siðfræði fjallgarða. Við fáum að heyra um líkin á Everest og ma...

Mar 11, 202454 minEp. 89

Erfitt væb í Söngvakeppninni + besta myndin á Óskarnum

Við förum yfir atburðarrásina í kringum Söngvakeppnina og þau ólíku sjónarmið sem takast á hvort sniðganga eigi keppninna eða ekki. Við ræðum líka kynþáttafordómana í kommentakerfinu í kjölfar keppninnar og upplifun tveggja kvenna af erlendu bergi af því, þeirra Miriam Petru og Kristínar. Eru kynþáttafordómar að aukast eða eru þeir einungis sýnilegri? Og yrði Bashar Murad einhverntímann nógu íslenskur til þess að sigra Söngvakeppnina? Að lokum fáum við lokapistil í Óskarsyfirferð Pálma Freys, ha...

Mar 07, 202454 minEp. 88

Gummi Emil í köldum potti, No Other Land, Pálmi sér loks Poor Things

Við byrjum í bakgarðinum hjá líkamsræktarfrömuðinum Guðmundi Emil sem hefur vakið athygli fyrir áhugaverð myndbönd á samfélagsmiðlum. Og þar höldum við áfram að velta fyrir okkur víkingum og tilhneigingu ungs fólks til að líta til fortíðar eftir svörum við vandamálum nútímans. Pálmi Freyr Hauksson var staddur á ferðalagi í Marokkó og átti í stökustu vandræðum með að sjá kvikmyndina Poor Things til að geta fjallað um hana í Óskarsyfirferð Lestarinnar. Nú hefur hann hins vegar séð myndina, og í da...

Mar 06, 202458 minEp. 87

Söngvaskáld á SoundCloud, Taugadeildin, Natatorium rýni

Kolbeinn Rastrick, kvikmyndarýnir Lestarinnar, rýnir í Natatorium, fyrstu mynd leikstjórans og handritshöfundarins Helenu Stefánsdóttur í fullri lengd. Á vefsíðunni SoundCloud þrífst blómlegt samfélag ungra söngvaskálda sem eru við það að brjóta sér leið upp á yfirborðið. Sigríður Langdal er ein þeirra. Þórður Ingi Jónsson mælti sér mót við meðlimi Taugadeildarinnar. Um er að ræða goðsagnakennda nýbylgjusveit sem hefur haft mikil áhrif á jaðarrokk hér á landi þrátt fyrir afar stuttan feril. Laga...

Mar 05, 202455 minEp. 86

Ósýnilegt landslag framtíðar, sjónarhorn Skúla, True Detective

Invisible Landscapes, ósýnilegt landslag, nefnist nýleg heimildamynd eftir tékkneska leikstjórann Ivo Bystřičan. Myndin byggir á vettvangsupptökum og umhverfishljóðum, og varpar fram spurningum um það sem hljóðin í kringum okkur hafa að segja um framtíðina. Um er að íslenskt-tékkneskt samstarfsverkefni, en einn af Íslendingunum sem tóku þátt í gerð myndarinnar er Pan Thorarensen. Hann stendur fyrir sýningu á myndinni í plötubúð Smekkleysu við Hverfisgötu í Reykjavík á fimmtudaginn kemur. Brynja ...

Mar 04, 202455 minEp. 85

Natatorium, dapurleg danstónlist, The Zone Of Interest

Natatorium er ný íslensk kvikmynd í leikstjórn Helenu Stefánsdóttur. Myndin skartar Ilmi Maríu Arnarsdóttur í aðalhlutverki, dóttur Helenu og Elinu Petersdóttur, sem leikur vægast sagt furðulegu ömmu hennar. Myndin er fjölskyldu-sálfræðitryllir og gerist öll inni í sama húsinu. Um er að ræða fyrstu mynd Helenu í fullri lengd. Nína Solveig Andersen gaf út sína fyrstu plötu undir nafninu Lúpína í upphafi síðasta árs, og á miðnætti í kvöld kemur út önnur smáskífan af væntanlegri annarri plötu henna...

Feb 29, 202456 minEp. 84

Víkingar vakna, gítarkaup & stofutónleikar, Strik Studio

Víkingar vakna - er frasi og jafnvel lífsspeki Guðmundar Emils Jóhannssonar, einkaþjálfara, en hann er betur þekktur sem Gemil. Og þessa lífsspeki boðar hann á samfélagsmiðlum af fullum krafti. Hann er vöðvatröll og brennur heitt fyrir heilsurækt. Og hann vill að víkingar vakni. En hvað eru víkingar og er eftirsóknarvert að líkjast þeim? Við hefjum þá rannsókn á samtali við Þóri Jónsson Hraundal. Katrín Helga Ólafsdóttir, tónlistarkona og pistlahöfundur, er búsett í Kaupmannahöfn. Þar hefur hún ...

Feb 28, 202454 minEp. 83

Hrægammar Kanyes, Club Zero

Í rúmar tvær vikur hefur tónlistarmaðurinn Logi Pedro Stefánsson verið að hlusta á og melta nýjasta listaverk Kanye West, plötuna Vultures 1 sem hann gaf út ásamt Ty Dolla $ign. Platan er sjálfútgefin og trónir á toppi vinsældarlista. En hvaða siðferðilegu klemmur fylgja því að vera Kanye West aðdáandi? Club Zero er níunda kvikmynd Austurríska leikstjórans Jessicu Hausner. Í myndinni fylgjumst við með hópi nemenda við alþjóðlegan heimavistarskóla sem skrá sig í róttækan næringarfræðikúrs hjá hin...

Feb 27, 202458 minEp. 82

Von sem varð að ágætis byrjun, Kvæðakórinn, misheppnaðar bíóferðir

Linus Orri Gunnarsson Cederborg er kórstjóri og einn stofnenda Kvæðakórsins. Kórinn samanstendur af ungu fólki sem hefur metnað fyrir því að setja íslenskan kvæðasöng í samhengi við samtímann. Pálmi Freyr Hauksson setti sér eitt markmið á ferðalagi sínu um Norður-Afríku: að fara í bíó og sjá nýjustu kvikmynd gríska leikstjórans Yorgos Lanthimos, myndina Poor Things með Emmu Stone í aðalhlutverki. Þetta hefur ekki gengið sem skyldi. Blaðamaðurinn og nú rithöfundurinn Svanur Már Snorrason hefur ný...

Feb 26, 202457 minEp. 81

Strump, Varði fer á vertíð, erjur Capotes og svananna

Magnús Axelsson er stundum kallaður Maggi Strump, eftir safnplöturöð sem kom út á hans vegum á tíunda áratugnum. Brynja Hjálmsdóttir, sjónvarpsrýnir Lestarinnar, rýnir í nýja þætti Ryans Murphy um erjur rithöfundarins Trumans Capote og svananna svonefndu. Varði fer á vertíð nefnist umdeild kvikmynd frá 2001. Bíótekið býður upp á sjaldgæfa sýningu á myndinni í Bíó Paradís á sunnudaginn, og í tilefni af því ræðir Lóa Björk um hana við Arnar Eggert Thoroddsen. Lagalisti: Dýrðin - Popp & Co. Kók...

Feb 22, 202455 minEp. 80

Unaðsdalur Kiru Kiru, Laurie Anderson á TikTok

Unaðsdalur hlýtur að vera í hópi fegurstu örnefna Íslands og það er því kannski engin furða að Kristín Björk Kristjánsdóttir, Kira Kira, hafi valið það sem nafn á tíundu breiðskífu sína sem kom út á dögunum. En tenging Kristínar við Unaðsdal nær út fyrir fegurð nafnsins því hún á ættir að rekja þangað. Við skoðum hljóðbrot sem er vinsælt á samfélagsmiðlinum TikTok um þessar mundir, þar sem listakonan Laurie Anderson kemur við sögu. Lóa Björk ræðir málið við Berglindi Maríu Tómasdóttur. Lagalisti...

Feb 21, 202455 minEp. 79

Innviðir illskunnar, Hvalasöngur, dansarinn Luis

Hvers vegna er þetta orð 'innviðir' út um allt núna? Hvers vegna eru vinstrimenn farnir að tala eins og hægrimenn í útlendingamálum? Við rýnum í orð Kristrúnar Frostadóttur með Eiríki Bergmann. Anahita Babaei komst í fréttir á síðasta ári þegar hún dvaldi í þrjátíu klukkustundir í mastri hvalveiðiskips í mótmælaskini. Hún tilheyrir samtökunum Hvalavinir en þau, auk Ungra Umhverfissinna, standa fyrir viðburðinum Hvalasöngur í Tjarnarbíói á laugardaginn kemur. Erna Kanema Mashinkila hefur upp á sí...

Feb 20, 202457 minEp. 78

Ízleifur, heterótópía vitavarðarins, afþreyingargildi mannshvarfa

Við ræðum við ritstjóra hlaðvarpa hér á Rúv, sem vinnur þessa dagana að nýjum þáttum sem fjalla um hvarf Jóns Þrastar Jónssonar í Dyflinni árið 2019, í samhengi við vinsældir svokallaðra True-crime hlaðvarpa. Hvernig skal gera gott hlaðvarp sem fjallar um mannshvarf? Og hvað ber að varast? Guðrún Úlfarsdóttir býr og starfar í húsi sem er lífsbjörg fólks sem hún mun aldrei hitta; hún er vitavörður. Á dögunum kom út fyrsta sólóplata Ízleifs, en hann hefur verið afkastamikill pródúser í hipphopp se...

Feb 19, 202456 minEp. 77

Lyktarsafnið, LungA kveður, Fullt hús

Við kíkjum á fimmtu hæð Grófarhússins og kynnum okkur Lyktarsafnið sem er hluti af Stofunni, sem er verkefni í Borgarbókasafninu. Þar hittum við þau Juan Camilo Roman Estrada og Dögg Sigmarsdóttur. Listahátíðin LungA var haldin í fyrsta sinn á Seyðisfirði sumarið 2000, og hefur verið stólpi í flóru menningarviðburða á sumrin hér á landi síðan. Í ár verður hátíðin haldin í tuttugasta og fimmta, en jafnframt, síðasta sinn. Við fáum að heyra ástæðurnar fyrir því að skipuleggjendur hafi ákveðið að s...

Feb 15, 202457 minEp. 76

Football Manager, Damo Suzuki og CAN, Besti leikari í aðalhlutverki

Japanski tónlistarmaðurinn Damo Suzuki féll frá á dögunum, 74 ára að aldri, en hann var líklega þekktastur sem söngvari hinnar áhrifamiklu þýsku súrkálsrokksveitar CAN á fyrri hluta áttunda áratugarins. Magnús Tryggvason Eliassen lék á tónleikum með Suzuki í Reykjavík árið 2012. Á næstunni mun Pálmi Freyr Hauksson fara yfir tilnefnda í helstu verðlaunaflokkum Óskarsverðlaunanna. Í dag skoðar hann flokkinn Besti leikari í aðalhlutverki. Football Manager er afar vinsæll tölvuleikur og ekki alls ól...

Feb 14, 202457 minEp. 75

Skært lúðar hljóma, blaðamaðurinn Jakob Bjarnar

Við höldum áfram umfjöllun um íslenskar grasrótarsafnplötur sem við hófum í síðustu viku. Á árunum 1987-1991 stóð Erðanúmúsík, rassvasafyrirtæki Dr. Gunna, fyrir útgáfu á safnplöturöðinni Snarl. Blaðamaðurinn Jakob Bjarnar býður í kaffi á kaffistofu á Suðurlandsbrautinni. Við ræðum við hann um blaðamennsku og hvaða ógnir steðja að starfsgreininni. Lagalisti: Kátir piltar - Feitar konur Kátir piltar - Heyrðu Kátir piltar - Killerinn Sogblettir - 5. gír Snorra-Gissur Gylfason frá Bólu - Dóp & ...

Feb 13, 202455 minEp. 74

Cyber, Á láði og legi, ferðataska Kim Gordon

Við kíkjum í bollukaffi til hljómsveitarinnar Cyber og veltum fyrir okkur hvað hefur breyst síðan hljómsvetin var stofnuð í MH, líklega árið 2012. Vinirnir Sigurgeir og Almar bjuggu til nýtt borðspil, sem heitir Á láði og legi, við heyrum allt um það. Og svo hlustum við á nýtt lag með Kim Gordon. Cyber - starry night Cyber - I'm yo new stepmom Cyber - The Event Cyber - PORN STARR Cyber - NO CRY Spilmenn Ríkínís - Strengleikar Spilmenn Ríkínís - Eitt sinn fór ég yfir Rín Spilmenn Ríkínís - Fyrstu...

Feb 12, 202456 minEp. 73

Joni & Helga Möller, ástarbréf, grasrótarsafnplötur

Við fáum ástsæla tónlistarkonu í heimsókn til þess að ræða aðra ástsæla tónlistarkonu. Þær hófu tónlistarferla sína á sama hátt, með kassagítar sem þær kenndu sér sjálfar á. Að troða upp á kaffihúsum og börum, ein á Íslandi en hin í Kanada. Það líður senn að Valentínusardeginum, degi elskenda, og Guðrún Úlfarsdóttir er að velta fyrir sér ástinni. Hún flytur okkur pistil um eitthvað: bréf, frímerki, minningar, og ást sem felst í orðum og hlutum. Hvað er safnplata? Tímahylki? Ljósmynd af tónlistar...

Feb 08, 202457 minEp. 72

Torgið, tvöföld meðvitund, skátauppgjör

Sigríður Halldórsdóttir ræðir við okkur um nýja sjónvarpsþætti í dagskrá RÚV, umræðuþættina Torgið. Í gærvköldi fór þriðji þáttur í loftið og snerist hann um málefni innflytjenda og flóttafólks. Yfirskrift þáttarins var inngilding. Málefnið passaði vel við daginn, sem hófst á skólaverkfalli Hagskælinga, sem héldu niður á Austurvöll með kröfubréf í 6 liðum. Erna Kanema Mashinkila heldur áfram að velta fyrir sér birtingarmyndum í örþáttaröðinni Sjáumst og heyrumst. Að þessu sinni er hún með hugan ...

Feb 07, 202454 minEp. 71

Nytjamarkaðurinn, Marvaða, rýnt í Andrésblað

Við byrjum á því að gera okkur ferð á nytjamarkað í Kópavogi og spyrjum viðskiptavini stóru spurningarinnar, hverju ertu að leita að? Hjalti Freyr Ragnarsson nældi sér í nýjasta Andrés Andar-blaðið á dögunum. Hann rýnir í gripinn. Marvaða Creations er sköpunarkjarni og tónlistarútgáfa sem hóf störf í Reykjavík á síðasta ári. Arnbjörg María Danielsen segir okkur frá starfseminni. Lagalisti: neonme - Yet again Kónguló, neonme - The Water In Me Varna GL - Pilarngar neonme - Princess Varna GL - Cele...

Feb 06, 202455 minEp. 70

Demó-dagar við Rafstöðvarveg, Húsó, er gott að fyrirgefa?

Í dag var opnað fyrir skráningu í Músíktilraunir 2024. Í aðdraganda keppninnar í ár verður boðið upp á svokallaða demó-daga, þar sem ungu tónlistarfólki gefst kostur á að taka upp demó af lögunum sínum með aðstoð starfsfólks. Brynja Hjálmsdóttir, sjónvarpsrýnir Lestarinnar, hefur verið að horfa á Húsó, nýja íslenska þætti sem eru í sýningu á RÚV. Er alltaf gott að fyrirgefa? Hvað hafa valdatengsl með fyrirgefningu að gera? Og hvað er fyrirgefningarlíkan Nýja-testamentisins. Elín Pjetursdóttir er...

Feb 05, 202456 minEp. 69

Mennirnir sem ég elska, Justice, áköf mæðrun

Eftir vægt dramakast í líkamsræktarstöð í gærkvöldi fór Bjarni Daníel að hugsa um alla mennina sem hann elskar, en hefur hægt og rólega verið að fjarlægjast. Davíð Roach, tónlistargagnrýnandi Lestarinnar, rýnir í feril franska raftvíeykisins Justice í aðdraganda plötu þeirra Hyperdrama, sem er væntanleg til útgáfu með vori. Við endurflytjum innslag Lóu Bjarkar frá því á síðasta ári, þegar hún ræddi við Auði Magndísi Auðardóttur og Önnudís Gretu Rúdólfsdóttur, fræðikonur á menntavísindasviði Hásk...

Feb 01, 202456 minEp. 68

Krýsuvíkurleiðin, Secret Solstice, hafnar.haus í Mengi

Það hefur verið svolítið vont veður undanfarið. Í dag fóru margir fyrr heim úr vinnu vegna veðurs, alla vega hér á skrifstofunni okkar. Veðrið spilar líka stórt hlutverk í lífi Grindvíkinga um þessar mundir; veðrið og færð á vegum. Sævar Andri Sigurðarson, tónlistarmaður, hefur verið að velta fyrir sér tónlistarhátíðinni Secret Solstice sem fór fram í Laugardalnum árin 2014-2019, en á dögunum bárust fréttir af því að bandaríska thrash-metal hljómsveitin Slayer hefði sigrað dómsmál gegn aðstanden...

Jan 31, 202455 minEp. 67

Chicanas, sjónsteypa handa alþingismönnum, Pitchfork á dánarbeðinu

Nýtt skrifstofuhúsnæði Alþingis, Smiðjan, sem hönnuð er af Studio Granda, hefur vakið nokkuð umtal upp á síðkastið. Sér í lagi sjónsteypan og vír, sem eru áberandi í byggingunni. Við mælum okkur mót við Óskar Örn Arnórsson, arkitekt og skoðum húsið. Þórdís Nadia Semichat pistlahöfundur veltir fyrir sér tískufyrirbæri sem á rætur að rekja til Bandarískra kvenna af mexíkóskum uppruna. Fyrr í þessum mánuði bárust fréttir af því að bandaríska veftímaritið Pitchfork, sem um tæplega þriggja áratuga sk...

Jan 30, 202457 minEp. 66

Engar tjaldbúðir, að lýsa íþróttaleik, hver erum við?

Hver er kúnstin við að lýsa íþróttaleik? Lóa er að velta því fyrir sér vegna þess að hún fékk það verkefni að lýsa klifurmóti í kvöld. Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson og Gunnar Birgisson, íþróttafréttamenn á RÚV, miðla þekkingu sinni á íþróttalýsingum. Tjaldbúðir sem hafa staðið á móti Alþingishúsinu við Austurvöll í rúman mánuð voru felldar í síðustu viku. Kyrrsetumótmælunum sem þær hýstu er þó hvergi nærri lokið. Við heyrum fimmta og síðasta þátt örseríu Önnu Marsibil Clausen frá 2022, Á samvisk...

Jan 29, 202456 minEp. 65

Djöfullegur flautuleikur, þættir um Sigga Hakkara, palestínskar myndir í Bíó Paradís

Þættirnir A dangerous boy sem fjalla um Sigurð Þórðarson, eða Sigga hakkara, fóru nýlega í sýningu á Stöð 2. Ættingjar eins þolanda Sigurðs, sem er dæmdur kynferðisbrotamaður, lýstu yfir mikilli óánægju með þættina og sérstaklega atriði í þeim þar sem Siggi fer að leiði drengsins, sem tók sitt eigið líf árið 2016. Við ræðum þetta og þau álitamál sem tengjast þáttunum við Aðalstein Kjartansson, blaðamann Heimildinnar, og Hrafnhildi Gunnarsdóttur, heimildamyndagerðakonu. Sunnudaginn 28. janúar fer...

Jan 25, 20241 hrEp. 64
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android