Fyrir helgi opnaði ný sýning í Nýlistasafninu, sem ber titilinn Af hverju er Ísland svona fátækt? Í sýningunni er nýjum verkum Sæmundar Þórs Helgasonar stillt upp í samtali við valin verk úr safneign safnsins og einlægum spurning um fátækt á Íslandi velt upp. Kanema Mashinkila er nýr pistlahöfundur í Lestinni og í dag flytur hún okkur sinn fyrsta pistil úr nýrri seríu, Sjáumst og heyrumst, þar sem hún veltir fyrir sér birtingarmyndum í sviðslistum. Og úr leikhúsinu færum við okkur yfir í bíó og ...
Jan 24, 2024•57 min•Ep. 63
Við förum á Austurvöll í heimsókn í tjalbúðirnar og ræðum við mótmælendur sem hafa reist þar tjaldbúðir, sem óvíst er hvort fái að standa áfram. Benni Hemm Hemm er gestur Önnu Marsibilar Clausen í fjórða þætti af Á samviskunni. Að lokum rýnum við í tæknispá fyrir árið 2024, sem Hjálmar Gíslason, framkvæmdastjóri, birti í Heimildinni á dögunum. Lagalisti Al Fajer - Rubbama John Friusciante - Song to sing when I'm lonely
Jan 23, 2024•55 min•Ep. 62
Við ræðum við Tyrfing Tyrfingsson leikskáld um nýtt verk hans, Lúna, sem frumsýnt var í Borgarleikhúsinu á dögunum. Verkið var orðið umdeilt löngu fyrir frumsýningu, vegna þess að í titli þess var nafn manns sem hlotið hefur dóm fyrir kynferðisbrot, verkið hét áður Kvöldstund með Heiðari snyrti. Guðrún Úlfarsdóttir er nýr pistlahöfundur í Lestinni. Í sínum fyrsta pistli veltir hún fyrir sér sambandi heimilisþrifa við línulega, kapitalíska tímaskynjun. Í október opnaði nýtt listamannarekið galler...
Jan 22, 2024•57 min•Ep. 61
Tæplega 550 íslenskir tónlistarmenn hafa skrifað undir undirskriftarlista þar sem RÚV er hvatt til að sniðgganga Eurovion taki Ísrael þátt í keppninni. Í dag var fékkst það svo endanlega staðfest frá EBU að Ísrael yrði með í keppnni. Töluverð umræða hefur skapast um málið og við tókum stöðuna á mótmælendum fyrir utan Útvarpshúsið í dag. Anna Margrét Björnsson hjá Franska sendiráðinu á Íslandi fer yfir dagskrá Frönsku kvikmyndahátíðarinnar sem hefst í kvöld í Bíó Paradís. Brynja Hjálmsdóttir, ská...
Jan 18, 2024•56 min•Ep. 60
Við spjöllum við þá Vilhjálm Yngva Hjálmarsson og Örlyg Steinar Arnalds um hljómsveitina Glupsk, sem mætti lýsa sem gegnumsýrðum fartölvuspuna. Gunnar Hersveinn, heimspekingur, ræðir kosti vínlaus lífstíls og Katrín Helga Ólafsdóttir segir okkur frekari fréttir af færeysk-danska listamanninum Goodiepal.
Jan 17, 2024•55 min•Ep. 59
Við ætlum að byrja á ástarleit og einmanaleika, opnum stefnumótaforritið Tinder og förum á trúnó með einhleypu fólki sem hefur notað netið í makaleit. Og rannsóknarspurningin er eftirfarandi: virkar Tinder? Árið 1938 fékk Melitta Urbancic leyfi til að koma til Íslands með börnin sín þrjú þar sem maðurinn hennar, tónlistarmaðurinn Viktor Urbancic, beið þeirra. Ferðalagið reyndist háskaför en áratugum síðar kom í ljós hversu hætt fjölskyldan var komin í raun, jafnvel þegar hún taldi sig komna í sk...
Jan 16, 2024•57 min•Ep. 58
Við fáum að heyra hvernig undanfarinn sólarhringur hefur verið í lífi þeirra Teresu, Siggeirs og Andreu, en þau eiga öll heimili í Grindavík. Facebook-hópurinn Nýleg íslensk tónlist var settur á fótinn í desember 2020. Birgir Örn Steinarsson, Biggi Maus, heldur úti spilunarlista á Spotify undir sama nafni, enda er hann einn virkasti meðlimur hópsins. Didda Flygenring, grafískur hönnuður, hefur verið að velta fyrir sér internetinu. Skömmu fyrir áramót færði hún okkur pistil um internetið sem fram...
Jan 15, 2024•56 min•Ep. 57
Intelligent Instruments Lab er rannsóknarhópur við Listaháskóla Íslands sem fæst við að rannsaka samband gervigreindar og tónlistar. Jack Armitage, tónlistarmaður og nýdoktor við rannsóknarstofuna, segir okkur frá snjöllum hljóðfærum á borð við prótó-langspilið og dórófóninn, sem nota algóritma til að bregðast við spilamennsku hvers og eins hljóðfæraleikara. Kolbeinn Rastrick, kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar, fjallar um rómantísku gamanmyndina Anyone But You sem var frumsýnd hér á landi í síðus...
Jan 11, 2024•55 min•Ep. 56
Hvað er að looksmaxxa? Er dónalegt að mogga? Virkar að mewa? Hvað þýða þessi orð? Við fáum Reyni Ólafsson, 16 ára nema við Fjölbrautarskólann í Breiðholti til að hjálpa okkur að skilja ný hugtök sem hafa náð vinsældum á TikTok. Katrín Helga Ólafsdóttir fjallar um tónlistarmanninn Goodiepal. Hann er ættaður frá Danmörku og Færeyjum og stofnaði nýverið hljóðfærabókasafn í Þórshöfn. Við förum í heimsók til Unnar Andreu Einarsdóttur, listakonu, en hún gefur út tónlist undir nafninu Apex Anima. Hún s...
Jan 10, 2024•56 min•Ep. 55
Sturla Sigurðarson, myndlistar- og tónlistarmaður, flutti til Berlínar síðasta sumar. Þar varð hann sér úti um sérkennilegt starf: að tæma dánarbú. Við heyrum sögur af vettvangi og veltum fyrir okkur hvað verður um alla hlutina sem við sönkum að okkur, hvort það sé hægt að finna merkingu í handahófskenndum munum af heimilum ókunnugra. Una María Magnúsdóttir er að vinna í því að verða gjaldgeng í samfélagi kvikmyndaáhugafólks. Í dag veltir hún því fyrir sér hvernig við lýsum kvikmyndunum sem við ...
Jan 09, 2024•53 min•Ep. 54
Við rennum yfir helstu sigurvegara Golden Globes verðlaunanna, sem fram fóru í Hollywood í gær. Barbie sem hlaut flestar tilnefningar, sópaði fáum verðlaunum að sér. Sigurvegarar gærkvöldsins voru Oppenheimer í leikstjórn Martin Scorsese og Poor Things úr smiðju Yorgos Lanthimos. Um helgina kom fjöldi fólks saman á Austurvelli og talið að á fimmta tug manna hafi varið aðfaranótt sunnudags í tjaldbúðunum sem þar hafa staðið í tæpar tvær vikur. Við höldum áfram að kynnast tjaldbúunum og ræðum við ...
Jan 08, 2024•57 min•Ep. 53
Síðan að Grindavík var rýmd þann 11. Nóvember höfum við flutt regluglega hljóðdagbækur nokkurra íbúa bæjarins hér. Í dag fáum við að heyra hvernig jól og áramót voru hjá þeim Siggeiri, Teresu og Andreu. Í gær var fyrsti þáttur nýrrar þáttarraðar, Nordic Beats eða norrænir rafstraumar, sýndur á Rúv. Þorsteinn Hreggviðsson, eða Þossi, útvarpsmaður á Rás 2, er þulur þáttarins. Davíð Roach, tónlistargagnrýnandi Lestarinnar, fer skýrt og skilmerkilega yfir árið 2023 í tónlist.
Jan 04, 2024•55 min•Ep. 52
Stirnir Kjartansson hefur verið virkur í íslensku indí-senunni undanfarin ár. Hann er meðlimur í nokkrum fjölda hljómsveita, meðal annars Trailer Todd en gefur einnig út tónlist undir eigin nafni. Sóló-plötur Stirnis eru nú fjórar talsins og hafa aðallega komið út á bandcamp en nýjasta platan hans nefnist Apple pie and <3 the razor. Við höldum áfram að kynnast mótmælendum frá Palestínu sem dvelja um þessar mundir í tjaldbúðum beint á móti Alþingishúsinu við Austurvöll í svokölluðum kyrrsetumó...
Jan 03, 2024•55 min•Ep. 51
Katrín Helga Ólafsdóttir gerði sér ferð á þrenna tónleika milli jóla og nýjárs, hún kíkti í Pipumessu í Tóma rýminu, Vetrarkyrrð á jólum í Landakotskirkju og Kickstart the new year á vegum samlagsins Rask. 'Þetta verður eins og skólaleikrit sem fjallar um vinsælustu krakkana í árganginum og er skrifað af þeim og leikið af þeim,' sagði Jón Trausti Reynisson á Heimildinni í gær. Við hefjum Lestina á nýju ári á fyrstu menningarátökum ársins, sem snúast iðulega um áramótaskaupið. Er nóg að það sé fy...
Jan 02, 2024•55 min•Ep. 50
Víðsjá og Lest fara saman yfir árið 2023
Dec 28, 2023•55 min•Ep. 49
Kristján og Lóa fara yfir mest spiluðu þætti Lestarinnar á árinu 2023.
Dec 27, 2023•55 min•Ep. 48
Bjarni Daníel fer á stúfanna í Kringlunni og veltir fyrir sér vondum jólagjöfum. Viðar Þorsteinsson, heimspekingur, segir frá ítalska heimspekingnum Antonio Negri, sem lést í desember. Hann er einn þeirra hugsuða sem hefur haft hvað mest áhrif á róttækar vinstrihreyfingar á seinni hluta tuttugustu aldar og upp úr aldamótum. Hann var umdeildur, á sér sérstaka sögu, sat í fangelsi og var sendur í útlegð.
Dec 21, 2023•55 min•Ep. 47
Í Lestinni í dag ætlum við að rýna í plötur ársins samkvæmd vefsíðunni Album of the year punktur org. Heyra hvaða plötur skora hæst á listum gagnrýnenda og tónlistartímarita. Við fáum pistil frá Sigríði Þóru Flygenring, listamanni. Hún er að pæla í internetinu, eða kóngulóarvefnum, og velta því fyrir sér hvort internetið sé mögulega einhverskonar framlenging á heilunum okkar. Undir lok þáttar sláumst við svo í för með Önnu Marsibil Clausen, ritstjóra hlaðvarpa hjá RÚV, en hún eyddi nóttinni með ...
Dec 20, 2023•55 min•Ep. 46
Það er hafið eldgos á Reykjanesskaga! Seint í gærkvöldi hófst eldgos rétt fyrir norðaustan Grindavík. Frá því að bærinn var rýmdur höfum við reglulega fengið að fylgjast með tilfinningum og hversdagslífi þriggja Grindvíkinga. Teresa, Siggeir og Andrea sendu okkur hljóðdagbækur eftir að gosið hófst. Kona ælir yfir allan bílinn sinn, önnur byrjar á túr, sú þriðja getur ekki svæft börnin sín. Þetta er aðeins örfá dæmi um þá fyrirboða sem fólk upplifði í gær í aðdraganda eldgossins. Lóa Björk veltir...
Dec 19, 2023•55 min•Ep. 45
IceGuys seldu upp þrenna tónleika í Kaplakrika um helgina og eiga vinsælasta lagið í dag. Er IceGuys markaðsstönt eða brandari sem gekk of langt? Þeir Jón Jónsson og Hannes Þór Helgason, leikstjóri þáttanna um IceGuys voru gestir Lestarinnar í dag. Una María Magnúsdóttir, grafískur hönnuður, veltir fyrir sér letri, sérstöfum og bókakápum. Við förum í heimsókn í Bókina á Hverfisgötu og heyrum hvaða gömlu jólabækur seljast. Og hvort jólabókaflóðið nái inn fyrir dyr fornbókabúða.
Dec 18, 2023•55 min•Ep. 44
Á dögunum gaf Netflix streymisveitan áhorfstölur út í fyrsta sinn. Hrafn Jónsson, kvikmyndagerðarmaður, rýnir í Netflix-tölfræði eða skort á henni. Og við veltum því fyrir okkur hvers vegna það er svona erfitt að nálgast áhorfstölur eftir tilkomu streymisins. Kolbeinn Rastrick rýnir í nýja mynd frá framleiðslufyrirtækinu A24, myndina Dream Scenario í leikstjórn hins norska Kristoffer Borgli.
Dec 14, 2023•55 min•Ep. 43
Við vörðum heilum degi um borð í leið 4, strætó sem keyrir úr Mjódd niður á Hlemm um Breiðholtið. Í dag heyrum við sögur fólks sem ferðaðist með vagninum síðastliðin föstudag. Strákur á leið að fá sér drekatattú, stuðningsfulltrúi á leið heim úr vinnu, Venesúelskur söngvari á leið til sálfræðings og danskur kökuskreytingameistari situr undir stýri.
Dec 13, 2023•55 min•Ep. 42
Á föstudag fóru Lóa og Kristján í strætó-rúnt með upptökutæki meðferðis. Hugmyndin var að ræða við farþega strætó, komast að því hvert þau væru að fara, hvaðan þau voru að koma. Meðan sá þáttur verður til rifjum við upp vídjóleiguþáttinn frá því í vor.
Dec 12, 2023•55 min•Ep. 41
Á föstudag létu mótmælendur rauðu glimmeri rigna yfir Bjarna Benediktsson utanríkisráðherra til að andmæla afstöðuleysi ríkisins gagnvart framferði Ísraelshers á Gaza. Við pælum í glimmeri, eggjum, skóm og öðrum hlutum sem mótmælendur hafa kastað í stjórnmálafólk í gegnum tíðina. Lestin er komin í jólaskap og ætlar að velta fyrir sér nýjum og sígildum jólalögum. Iceguys, Prettyboichocco og Laddi koma meðal annars við sögu. Þungarokkshátíðin Andkristni hefur farið fram í kringum jólin frá árinu 2...
Dec 11, 2023•55 min•Ep. 40
Mikil umræða um sniðgöngu um þessar mundir í tengslum við framferði Ísraelshers á gaza undanfarnar vikur. Stuðningsfólk Palestínu hér á landi hefur reynt að beita þrýstingi á fólk, fyrirtæki og stofnanir til að sniðganga Ísrael eða þá sem styðja árásir ísraelska hersins á Gaza. Þessi krafa nær inn á nánast öll svið samfélagsins: menntakerfið, íþróttir og menningu. Við tileinkum Lestina í dag hugtakinu sniðganga. Við fáum sjónarhorn frá Kristínu Sveinsdóttur, Ásgeiri Brynjari Torfasyni, Tómasi Þó...
Dec 07, 2023•55 min•Ep. 39
40% fimmtán ára nemenda á Íslandi búa ekki yfir grunnhæfni í lesskilningi. Þetta kemur fram í niðurstöðum úr PISA-könnuninni 2022 sem voru birtar í dag. Hvað er OECD? Hvað er PISA? Af hverju fengum við svona lága einkun í PISA? Og hverju er það að kenna? Og hverja erum við að bera okkur saman við og af hverju? Við fáum nokkra Rúvara til að taka PISA-prófið umrædda. Katrín Helga Ólafsdóttir heldur áfram að fjalla um listir og menningu nágrannaþjóða okkar á Norðurslóðum. Að þessu sinni fja...
Dec 06, 2023•55 min•Ep. 38
Friedrich Nietzsche er einhver alræmdasti hugsuður vestrænnar nútímasögu og alltaf virðast nýjar kynslóðir heillast af skrifum þessa þýska heimspekings, fólk verður heltekið. Nú á dögunum kom út íslensk þýðing á bókinni Andkristur frá árinu 1888, bók með ógnvænlegan titil, bók sem er skrifuð af knýjandi þörf, jafnvel heift gagnvart kristinni trú, en líka djúpu innsæi og mannskilningi. Andkristur er með því síðasta sem kom frá Nietzsche en aðeins nokkrum mánuðum síðar fékk hann taugaáfall, missti...
Dec 05, 2023•55 min•Ep. 37
Við ræðum leik Breiðabliks og Maccabi Tel Aviv við Tómas Þór Þórðarson íþróttafréttamann. Hefði Breiðablik getað sniðgengið, hætt við, neitað að keppa? Og hvaða afleiðingar hefði það haft í för með sér? Og hvenær mega íþróttir og pólitík blandast, hvenær ekki? Eiríkur Guðmundsson fór í heimsókn í Skerjafjörðinn árið 2018 og ræddi við Odd F. Helgason, ættfræðing. Oddur og kona hans Unnur Björg Pálsdóttir féllu frá í vikunni, til stóð að fá Odd í Lestina, en við huggum okkur við þetta viðtal sem l...
Dec 04, 2023•55 min•Ep. 36
Við heyrum um költ-hasarmyndina Foxtrot frá árinu 1988, en það stendur til að dusta rykið af henni í Bíó Paradís um helgina. Kolbeinn Rastrick fjallar um stórmynd Ridleys Scott um franska keisarann Napóleon, eina umdeildustu persónu evrópskrar sögu. Pabbar og sagnfræðinördar hafa flykkst á myndina og eru mjög mishrifnir. Það hefur verið fundið að ýmsum sagnfræðilegum rangfærslum. En Kolbeinn skemmti sér ágætlega þó að myndin væri langt því frá gallalaus. Katrín Helga Ólafsdóttir, tónlistarkona, ...
Nov 30, 2023•55 min•Ep. 35
Nú er byrjað að grafa ofan í sprungur í Grindavík, fólk er mætt til vinnu í fiskvinnslunni, bæjarbúar fá meiri tíma heima hjá sér og einhverjir eru farnir að hugsa um að jólaskreyta. Við höldum áfram að heyra hljóðdagbækur Grindvíkinga sem við höfum fylgt eftir í tæpar þrjár vikur eða alveg frá því því að bærinn var rýmdur 10. nóvember. Siggeir Ævarsson, Teresa Bangsa og Andrea Ævarsdóttir leyfa okkur að fylgjast með hversdeginum sínu. Fyrir fimmtíu árum birtist grein Þorsteins Gylfasonar, ?Að h...
Nov 29, 2023•55 min•Ep. 34