Gervigreindarhljóðfæri, Anyone But You, Bachelor-klúbburinn - podcast episode cover

Gervigreindarhljóðfæri, Anyone But You, Bachelor-klúbburinn

Jan 11, 202455 minEp. 56
--:--
--:--
Download Metacast podcast app
Listen to this episode in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episode description

Intelligent Instruments Lab er rannsóknarhópur við Listaháskóla Íslands sem fæst við að rannsaka samband gervigreindar og tónlistar. Jack Armitage, tónlistarmaður og nýdoktor við rannsóknarstofuna, segir okkur frá snjöllum hljóðfærum á borð við prótó-langspilið og dórófóninn, sem nota algóritma til að bregðast við spilamennsku hvers og eins hljóðfæraleikara. Kolbeinn Rastrick, kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar, fjallar um rómantísku gamanmyndina Anyone But You sem var frumsýnd hér á landi í síðustu viku. Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir og Emilía Antonsdóttir Crivello tilheyra klúbbi kvenna sem hefur hist vikulega undanfarin fjögur ár til að horfa á sjónvarpsþættina The Bachelor. Lagalisti: Kira Kira, Eyjólfur Eyjólfsson - Gjafir Kairos Eydís Kvaran - Lampinn Egill Sæbjörnsson - Free Again
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android