Lestin - podcast cover

Lestin

RÚVwww.ruv.is
Popp og pólitík Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Rauða Serían ei meir, Kaupaekkertbúðin, skilti í iðnaðarhverfum

Rauða serían hættir að koma út eftir 38 ár af starfsemi og 2300 titla. Rósa Vestfjörð er konan á bakvið örlagasögurnar, ástarsögurnar og sjúkrasögurnar. Við kíkjum í heimsókn til hennar í Grafarvoginn. Una María Magnúsdóttir, grafískur hönnuður, fer með okkur í skoðunarleiðangur um iðnaðarhverfi á Höfuðborgarsvæðinu og rýnir í skiltin með okkur. Og að lokum fer Kristján Guðjónsson í Kaupaekkertbúðina, þar sem allt er til sölu, og ræðir við Elínu Elísabetu Einarsdóttur og Rán Flygenring, listakon...

Nov 28, 202355 minEp. 33

Íslensk andlit til sýnis, asískar goðsögur, glataðar ljósmyndir

Kristínu Loftsdóttur mannfræðingi leiddist á safni á Kanaríeyjum þangað til hún kom auga á brjóstmyndir sem voru nokkuð kunnuglegar. Gipsafsteypur af Íslendingum og öðrum þjóðarbrotum endurspegla þá kynþáttahyggju sem var forsenda ofbeldis og rányrkju nýlenduveldavelda á 19. öld. Brjóstmyndirnar urðu kveikjan að rannsókn hennar og nýrri bók, Andlit til sýnis, sem er gefin út af Sögufélaginu. Við heyrum um aðra bók sem kemur út fyrir jólin. Goðsögur frá Kóreu og Japan inniheldur 10 goðsögur auk i...

Nov 27, 202355 minEp. 32

Sam Altman rekinn og ráðinn, Panflautuplata André 3000, Grindvíkingar

Mörgum aðdáendum rapparans brá í brún þegar þau tóku eftir því að ný plata André 3000 innihélt einungis panflaututónlist. Davíð Roach var einn þeirra, hann rýnir í plötuna New Blue Sun. Við förum yfir kaosið í tækniheiminum, brottrekstur og endurráðningu Sam Altman, forstjóra gervigreindarfyrirtækisins OpenAi. Og að lokum heyrum við hljóðdagbækur þriggja Grindvíkinga, þeirra Teresu Bangsa, Siggeirs Ævarssonar og Andreu Ævarsdóttur.

Nov 23, 202355 minEp. 31

Þjóðarpúls Lóu, rapptextar sem sönnunargögn, sungið á ísl-ensku

Það er dimmt og það er ömurlegt veður. Það er kominn vetur og skammdegi. Lóa fer í Smáralindina og tekur púlsinn á þjóðinni. Er þunglyndið að hellast yfir fólk, eða er það bara farið að hlakka til jólanna? Í dómssal í Atlanta í Georgíuríki Bandaríkjanna er nú réttað yfir einum þekktasta rappara heims. 31 árs grammíverðlaunahafanum og íslandsvininum Yung Thug. Hann er kærður fyrir að standa fyrir skipulagðri glæpastarfsemi í glæpagenginu Young Slime Life. Rapparinn á að hafa notað metsölutónlist ...

Nov 22, 202355 minEp. 30

Hugtakið þjóðarmorð, hárkolla kjörin forseti, ný plata frá Ex.Girls

Javier Milei, el loco, el peluca, klikkhausinn og hárkollan, öfga-hægrimaður sem er nýliði í Argentínskum stjórnmálum bar sigur úr býtum í forsetakosningum í vikunni. Felix Woelflin, Argentínumaður búsettur á Íslandi, ræddi þessar niðurstöður við okkur. Davíð Roach rýnir í nýja plötu hljómsveitarinnar Ex.Girls, Verk. Stöðvið þjóðarmorðin, er ákall stuðningsfólks Palestínu. Við ræddum þetta hugtak, þjóðarmorð, við hernaðarsagnfræðinginn Erling Erlingsson.

Nov 21, 202355 minEp. 29

Afsagnir vegna Gaza, Grindavík í biðstöðu, best skrifaða hjónarifrildi

Við rýnum í myndina sem fékk Gullpálmann í Cannes í ár, Anatomie d'une chute, Anatomy of a Fall, sem mætti kannski þýða sem Fallið er hátt. Mynd eftir Justine Triet sem inniheldur mögulega best skrifaða hjónarifrildi kvikmyndasögunnar. Kolbeinn Rastrick segir frá. Við höldum áfram að heyra hljóðdagbækur Grindvíkinga sem þurftu að rýma heimili sín fyrir 10 dögum. Reiði, sobril, Skopp, körfubolti og gasmengun koma meðal annars við sögu. Afsagnir og uppsagnir í listheiminum eru ein birtingamynd átá...

Nov 20, 202355 minEp. 28

Iceland Noir sniðgengin, Trúbadorinn Stella Haux, Drif á Lækjartorgi

Við förum yfir menningarátökin sem standa nú yfir í bókmenntaheiminum. Þar er verið að ræða hvort rithöfundar eigi að sniðganga Iceland Noir, glæpasagnahátíð í Reykjavík, vegna þátttöku Hillary Clinton, fyrrum forsetaframbjóðanda og fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á hátíðinni. Stríðið á Gaza og afstaða Hillary Clinton til vopnahlés er ástæðan fyrir því að nokkrir hafa ákveðið að taka ekki þátt í ár. Er bókmenntahátíð vettvangur fyrir pólitísk átök og er Hillary Clinton meira en bara umde...

Nov 16, 202355 minEp. 27

Skilnaður

Það getur fylgt því ný sjálfsmynd að skilja, það myndast gapandi tóm, sorgin er talin annars flokks, við erum öll að fylgja ósýnilegu handriti. Við ræðum þetta og meira við sviðslistakonurnar Evu Rún Snorradóttur og Vilborgu Ólafsdóttur í Kviss Búmm Bang. Þær eru að hefja rannsóknarvinnu fyrir nýtt sjálfsævisögulegt verk sem fjallar um menningu og arfleið hjónabandsins - og ekki síst algengnan fylgifisk þess, skilnað. Svo rifjum við upp ástarrannsóknir, viðtal við hjónabandsráðgjafa og framsögur...

Nov 15, 202355 minEp. 26

Fimm mínútur í Grindavík, ljósmynd í útvarpi, sigurvíma eftir Skrekk

Við hittum fimm unglinga í Hagaskóla sem sigruðu Skrekk í gær. Þau eru í sigurvímu og ætla að halda hópinn eftir stífar Skrekksæfingar haustsins. Atriðið þeirra fjallaði um símafíkn og heitir 'Líttu upp, taktu eftir'. Við höldum áfram að heyra hljóðdagbækur Grindvíkinga, sem fengu að fara heim til sín í fimm mínútur í gær. Una María Magnúsdóttir, grafískur hönnuður, veltir því fyrir sér hvernig væri hægt að lýsa ljósmynd í útvarpi.

Nov 14, 202355 minEp. 25

Flóttafólk í eigin landi, fréttaljósmyndun, dauðarokk í Botsvana

Eftir nokkrar vikur af jarðskjálftum og gosóróa á Reykjanesi gáfu Almannavarnir út tilmæli til íbúa Grindavíkur, seint á föstudagskvöld, að rýma bæinn samstundis. Þar með urðu tæplega fjögur þúsund íbúar bæjarins að flóttafólki í eigin landi. Á þrjá daga hafa nokkrir Grindvíkingar skrásett fyrir okkur atburðarásina, hugsanir sínar og tilfinningar: Sigríður Gunnarsdóttir, Siggeir Ævarsson og Teresa Birna Björnsdótir, Teresa Bangsa. Þórdís Nadia Semichat pistlahöfundur fjallaði fyrir stuttu síðan ...

Nov 13, 202355 minEp. 24

Birdnoise, aðeins meira Airwaves, hasar í kennaraverkföllum

Hljómsveitin Sucks to be you nigel kom með krafti inn í reykvísku grasrótarrokksenuna fyrir tveimur árum með plötunni sinni Tína Blóm. Þetta var hrátt og unggæðingslegt pönk, gítarriff klippt út úr íslensku 80s pönk bylgjunni, og textarnir súrir og hressir brandarar um það að skera börn í tvennt, um þrána eftir raflost og ljót blóm. Fyrir hana fengu þau Kraumsverðlaunin og hlutu einnig viðurkenningu á tónlistarverðlaunum Reykjavík Grapevine. Á morgun kemur svo önnur plata sveitarinnar, Birdnoise...

Nov 09, 202355 minEp. 23

Inspector Spacetime + Airwaves yfirferð

Þau Vaka Agnarsdóttir og Egill Gauti Sigurjónsson úr hljómsveitinni Inspector Spacetime verða lestarstjórar í þætti dagsins ásamt Lóu Björk. Tilefnið er útkoma nýrrar stuttskífu hljómsveitarinnar, Extravaganza, sem kemur út föstudaginn næstkomandi. Við frumflytjum tvö glæný lög með hljómsveitinni, drekkum kaffi og ræðum málin. Er Airwaves komin af léttasta skeiði, eða má hún muna fífil sinn fegurri, einhvern veginn þannig mætti þýði titil skoðanapistil sem birtist í Reykjavík Grapevine í gær. Pi...

Nov 08, 202355 minEp. 22

Gaza í story, Íslandsklisjur listafólks, The Blind Side

Lóa veltir fyrir hvort hún eigi að pósta eða sleppa því að pósta í story um stríð. Undanfarna þrjá áratugi hafa óvenjulega margir íslenskir popptónlistarmenn notið vinsælda utan landsteinana. Björk ruddi brautina og í kjölfarið komu hljómsveitir eins og Sigur Rós og Múm, seinna Of monsters and Men og Kaleo, og núna síðast Laufey. Þessum listamönnum hefur mörgum hverjum verið troðið inn í ákveðnar þjóðarklisjur en hafa líka notfært sér þær. Við spjöllum við Þorbjörg Daphne Hall og Nína Hjálmarsdó...

Nov 07, 202355 minEp. 21

Af hverju styðja Íslendingar Palestínu?, tölvuleikjatónlist, AI-Lestin

Það er mánuður frá því að átök blossuðu aftur upp fyrir botni miðjarðarhafs þegar liðsmenn Hamas frömdu fjöldamorð á ísraelskum borgurum og tóku nokkur hundruð gísla sem margir hverjir eru enn í haldi. Í kjölfarið hefur Ísraelsher haldið úti fordæmalausum loftárásum á Gaza-svæðið, sprengt íbúðabyggingar, ráðist á flóttamannabúðir. Lokað er fyrir vatn og rafmagn og heilbrigðisstofnanir geta illa starfað. Tala látinna hækkar hratt og nálgast 10 þúsund. Um helgina fór fram fjölmennur fundur í Háskó...

Nov 06, 202355 minEp. 20

Dúskhúfuklæddir kanar eru mættir á Airwaves, nýja Scorcese-myndin

Þátturinn verður að miklu leyti tekinn undir tónlistarhátíðina Iceland Airwaves sem hefst formlega í dag. Þriggja daga tónlistarhátíð í miðborg reykjavíkur. Við fáum til okkur tvær tónlistarkonur sem spila á hátíðinni í ár, Sölku Valsdóttur úr Cyber og Neonme, og Brynhildi Karlsdóttur úr Kvikindi. Þær ræða um bransa speed-dating, að spila á tónleikum með smábarn, og það að sleikja svitann af bringunni á bassaleikaranum í Vintage Caravan. Við kíkjum lika niður i Kolaport þar sem gestir eru byrjað...

Nov 02, 202355 minEp. 19

Dýrlingurinn Séra Friðrik, Skagamenn skoramörkin, Radar

Við kíkjum á nýjan klúbb sem opnar á morgun í Reykjavík. Staðurinn Radar opnar þar sem skemmtistaðurinn Húrra var áður til húsa. Á Radar verður áherslan á raftónlist, Séra Friðrik Friðriksson, stofandi KFUM og KFUK , er í hálfgerðri dýrlingatölu á Íslandi. Við ræðum við Jón Karl Helgason um eðli og tilgang dýrlinga, en bókin hans Ódáinsakur frá árinu 2013 fjallar um helgifestu þjóðardýrlinga. Heimildaþættirnir Skaginn fjalla um eitt besta fótboltalið íslandssögunnar. Handritshöfundur þáttanna, b...

Nov 01, 202355 minEp. 18

Rauða borðið X Lestin

Lestin er ekki eini þátturinn sem fagnar um þessar mundir. Rauða Borðið, viðtalsþáttur Gunnars Smára Egilssonar á Samstöðinni, hefur núna verið sent út 500 sinnum. Lóa heimsótti Gunnar Smára en hann hafði ekki tíma til að koma í viðtal nema hann mætti taka viðtal við Lóu um leið. Og þannig sameinuðust Lestin og Rauða borðið. Við fáum pistil frá Katrínu Helgu Ólafsdóttur, tónlistarkonunni K.óla, sem heldur áfram að fjalla um tónlistarsenurnar í löndunum í kringum okkur. Hún hefur kynnt okkur fyri...

Oct 31, 202355 minEp. 17

Lestarfestival í þúsundasta Lestarþættinum

Lestin brunar af stað í þúsundasta skipti. Lestarþáttur númer nákvæmlega eitt þúsund. Um það bil 55 þúsund mínútum af Lest hefur verið útvarpað hérna á Rás 1, 916 klukkutímar, rúmlega 38 dagar af Kanye West, Netflix, gervigreind, Hegel, Húgó, MeToo, mannöldinni, uppistandi, raunveruleikasjónvarpi, samfélagsmiðlum, poppi og pólitík. Að þessu tilefni höldum við hátíð, litla sjálfshátíð eðða Lestarfestival. Við bjóðum gömlum vinum í partý og gerum það sem fólk gerir í öllum góðum partýum, förum í s...

Oct 30, 202355 minEp. 16

Markaðssnillingurinn Taylor Swift, Grænlenska tónlistarsenan, barnabíó

Nýjasta tónleikaferð bandarísku poppsöngkonunnar Taylor Swift er nú þegar komin í sögubækur tónlistariðnaðarins. Tekjuhæsta tónleikaferð konu frá upphafi og hún verður að öllum líkindum tekjuhæsta tónleikaferð allra tíma, óháð kyni tónlistarmanns. Kvikmynd unnin upp úr tónleikum hennar í Inglewood, í Kaliforníu í ágúst er orðin vinsælasta tónleikakvikmynd allra tíma. Eldheitir aðdáendur, Swifties, um allan heim, meðal annars hér á Íslandi, flykkjast á myndina, skreyttir glitrandi gervidemöntum o...

Oct 26, 202353 minEp. 15

Tómur þáttur vegna kvennaverkfalls (+ græn landamæri)

Fjölmargar konur leggja niður störf í dag 24. október í kvennaverkfalli. Lestin er því fáliðuð í dag. Við höfum ekki einu sinni mannskap í að skrifa kynningartexta. Kristján þarf að sinna barnavaktinni en Kolbeinn Rastrick mætir og rýnir í pólsku myndina Grænu landamærin. Og svo spilum við tónlist eftir konur og kvára.

Oct 24, 202355 minEp. 13

Foreldrar elska Blæju, Afi rússneskrar rokktónlistar, stafræn upprisa

Það er stór stund í Lestinni í dag. Kristján fær loksins að hitta átrúnaðargoð sitt, rússneska rokktónlistarmanninn Boris Grebenshchikov úr hljómsveitinni Aquarium. Boris, sem hefur verið kallaður afi rússneskrar rokktónlistar eða hinn sovéski Bob Dylan, er nú í útlegð eftir að hafa talað gegn stríðinu í Úkraínu og hefur verið settur á lista Putins yfir erlenda útsendara. Við ræðum rokk og pólitík við eina mestu goðsögn rússneskrar rokktónlistarsögu. Ástralski hundurinn Bluey, eða Blæja á íslens...

Oct 23, 202355 minEp. 12

Meðleigjandi óskast

Í þættinum í dag ætlum við að skoða leigumarkaðinn út frá sambandsstöðu, skömm, heterónormatívu, tengslarofi og forréttindum. Við ræðum við leigjendur, húseigendur, fólk sem er fætt á Íslandi og aðflutt. Hvers vegna er staða leigjenda svona slæm á Íslandi?

Oct 19, 202355 minEp. 11

Morgunball í Færeyjum, ástin er blind, stafræn hugvísindi

Björk Þorgrímsdóttir hefur verið að horfa á sjónvarpsþættina Love is Blind, en síðasti þáttur í fimmtu seríu þáttanna kom nú um helgina. Björk fékk til sín Hauk Inga Jónasson, sálgreini og kennara, til að velta fyrir sér blindri ást fyrir allra augum. Við förum í ferðalag um Færeyjar og spenanndi tónlistarlíf sem blómstrar þar. Fararstjórinn okkar er Katrín Helga Ólafsdóttir. Og að lokum veltum við fyrir okkur stafrænum hugvísindum, með Eiríki Smára Sigurðssyni, heimspeking og formanni miðstöðva...

Oct 18, 202355 minEp. 10

Twitter ömurlegt, rekinn vegna skopmyndar um Gaza, Stop making sense

Prófessor í blaðamennsku við Stokkhólmsháskóla er staddur á Íslandi. Tilefnið er erindi hans um kaup Elon Musk á samfélagsmiðlinum Twitter í Háskóla Íslands, 'Elon Musk, goðsagnir um málfrelsið og daður við öfga-hægrið.' Við ræðum allar þær ólíku birtingarmyndir þess hversu lélegt og ömurlegt Twitter er orðið við Christian Christensen, og hvernig það hefur mögulega áhrif á upplifun okkar af stríðinu í Ísrael og Palestínu. Steve Bell hefur starfað í rúmlega 40 ár fyrir The Guardian en hefur núna ...

Oct 17, 202355 minEp. 9

Snjallsími góða fólksins, hýr illmenni í hundrað ár, goth Atlanta rapp

Aðstæður verkafólks í Kína, kolefnisfótspor, barnaþrælar í kóbaltnámum í Kongó. Það er ýmislegt sem hönnuður siðferðilega þolanlegs snjallsíma þarf að hafa í huga. Nú er í fyrsta skipti hægt að kaupa siðlega snjallsímann, snjallsíma góða fólksins, Fairphone, á Íslandi. Við pælum í snjallsímum og siðferði með Bjartmari Oddi Þey Alexanderssyni blaðamanni. Í dag, 16. Október á Disney fyrirtækið 100 ára afmæli. Við ætlum að halda upp á það í þættinum í dag og rifja upp þætti fyrrum lestarstjórans Ön...

Oct 16, 202355 minEp. 8

Vallarvörður sendur úr landi, Hreyfing hermir eftir, Ísafjarðar-PIFF

Við byrjum niðri í Laugardal þar sem við röltum í vindi og örlítilli snjókomu um íþróttasvæði Þróttar með vallarverðinum Isaac Kwateng, 28 ára Ganamanni. Isaac, sem hefur spilað fótolta með SR, varaliði Þróttar, og verið virkur í starfi félagsins nokkur undanfarin ár, verður að öllu óbreyttu sendur úr landi á mánudag. Við fáum að kíkja í heimsókn í hljóðver glænýrrar hljómsveitar. Hljómsveitin Hreyfing er skipuð þeim Elíasi Geir Óskarssyni (úr Inspector Spacetime) og Baldri Skúlasyni (úr Samehea...

Oct 12, 202355 minEp. 7

Baráttan um hrunsmyndina + Færeysk tónlist

Baráttan um sögu hrunsins hefur staðið yfir í fimmtán ár og heldur áfram. Á sunnudags og mánudagskvöld var frumsýnd ný heimildarmynd um íslenska bankahrunið á RÚV, Baráttan um Ísland. Myndin er framleidd af Sagafilm fyrir erlendan markað - Good banks, bad banks nefnist hún á ensku. Og þeir sem eru skráðir sem leikstjórar eru sænski verðlaunablaðamaðurinn Bosse Lindquist, Margrét Jónasdóttir og Jakob Halldórsson. Eins og flest allt sem tengist hruninu þá hefur myndin vakið sterk viðbrögð á samfél...

Oct 11, 202355 minEp. 6

Besta afsögn ársins, Julie Byrne, goðsagnakenndir eyðimerkurtónleikar

Risafréttir úr íslenskum stjórnmálum. Bjarni Benediktsson hefur sagt af sér sem fjármálaráðherra. Snemma í morgun birtist álit umboðsmanns Alþingis á sölu ríkisins á hlut sínum í Íslandsbanka í fyrra. Pabbi Bjarna var meðal þeirra sem keyptu hlut í bankanum. Umboðsmaður segir Bjarna hafa verið vanhæfan. Og Bjarni bregst við með að segja af sér. Sumir hafa túlkað þetta sem snjallan pólitískan leik hjá teflon-Bjarna sem sé núna að setja pressu á Svandísi Svavarsdóttur og ætli svo bara að verða uta...

Oct 10, 202355 minEp. 5

Besta stuttmyndin, Supersport selja út? og stóri hvalurinn

Ásdís Sól Ágústsdóttir fór að bera kennsl á rauðan þráð Í bókmenntum, bíómyndum og myndlist, hvalinn, hann virtist vera alls staðar. Hún ákvað að lesa Moby Dick eftir Herman Melville og varð stórhrifin, og prófar að setja hana í samhengi við umræðurnar um hvalveiðar á Íslandi. Bergur Árnason kvikmyndagerðarmaður hlaut verðlaun fyrir bestu íslensku stuttmyndina á RIFF, fyrir myndina Bókaskipti, síðsumar í Reykjavík, en hátíðinni lauk formlega í gær. Hann nefnir Hlyn Pálmason og Rúnar Rúnarsson se...

Oct 09, 202355 minEp. 4
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android