Víkingar vakna, gítarkaup & stofutónleikar, Strik Studio - podcast episode cover

Víkingar vakna, gítarkaup & stofutónleikar, Strik Studio

Feb 28, 202454 minEp. 83
--:--
--:--
Download Metacast podcast app
Listen to this episode in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episode description

Víkingar vakna - er frasi og jafnvel lífsspeki Guðmundar Emils Jóhannssonar, einkaþjálfara, en hann er betur þekktur sem Gemil. Og þessa lífsspeki boðar hann á samfélagsmiðlum af fullum krafti. Hann er vöðvatröll og brennur heitt fyrir heilsurækt. Og hann vill að víkingar vakni. En hvað eru víkingar og er eftirsóknarvert að líkjast þeim? Við hefjum þá rannsókn á samtali við Þóri Jónsson Hraundal. Katrín Helga Ólafsdóttir, tónlistarkona og pistlahöfundur, er búsett í Kaupmannahöfn. Þar hefur hún verslað þungarokksgítara og húsgögn á sölusíðu á netinu, og haldið stofutónleika heima hjá sér. Bankastræti 12 er eitt af þekktustu húsum miðbæjarins, en þar hefur Prikið verið til húsa síðan um miðja síðustu öld. Á síðasta ári var ráðist í töluverðar breytingar á húsinu, en efri hæð þess hýsir nú nýja hönnunarstofu sem nefnist Strik Studio. Við kynnumst starfsemi Striks og skoðum okkur um á þessari sögufrægu efri hæð. Lagalisti: Gemil - Víkingar Sly & The Family Stone - If It Were Left Up To Me Hand Habits - No Difference Haruomi Hosono, Mac DeMarco - Boku Wa Chotto
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android