Brotinn barnasáttmáli, samþykki, norskt kókaín og kóngafjölskylda - podcast episode cover

Brotinn barnasáttmáli, samþykki, norskt kókaín og kóngafjölskylda

Sep 16, 202456 minEp. 154
--:--
--:--
Download Metacast podcast app
Listen to this episode in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episode description

Seint í gærkvöldi var Yazan Tamimi, 11 ára palestínskur drengur með taugahrörnunarsjúkdóminn Duchenne, sóttur á Landspítalann, af lögreglunni, sem hafði fyrirmæli um að senda hann ásamt foreldrum sínum úr landi. Á þriðja tug manns fór á Keflavíkurflugvöll til þess að mótmæla og reyna að koma í veg fyrir að Yazan færi með fluginu. Svo fór að Yazan var ekki sendur með fluginu, fyrirmæli úr dómsmálaráðuneytinu komu um að beðið skildi vera með það. Í kjölfar þessara frétta ætlum við að velta fyrir okkur barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna. Er brottvísun fatlaðs barns á flótta brot á barnasáttmálanum? Við forvitnumst um það sem er efst á baugi í norskri dægurmenningu og umræðu. Rapp, hlaðvörp, kókaín og kóngafjölskyldan eru meðal þess sem kemur við sögu. Leiðsögumaður okkar er Snæbjörn Helgi Arnarson Jack. Orðið samþykki hefur verið áberandi í umræðunni undanfarin ár í kjölfar Metoo-byltingarinnar. En er samþykki jafn einfalt hugtak og það virðist vera? Katrín Pálmad. Þorgerðardóttir doktorsnemi í heimspeki fjallar um samþykki.
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android