Davíð Þorláksson segist sjaldan heyra nýja spurningu eða hugmynd sem tengist Borgarlínunni. Vangaveltur og ýmis konar gagnrýni sem fram komi um Borgarlínuna sé almennt eitthvað sem hafi fyrir löngu verið svarað. Hann segir eðlilegt að fólk spyrji spurninga og það sé líka eðlilegt að verkefnið sé ekki endilega sérlega vinsælt. Innviðaverkefni, af þeirri stærðargráðu sem Borgarlínan er, njóti almennt ekki hylli fyrr en fólk sjái þau virka. Davíð hefur verið framkvæmdastjóri Betri samgangna undanfa...
Mar 06, 2026•31 min•Ep. 28
Í janúar 2026 uppfærði Hagstofan flokkunarkerfi vísitölu neysluverðs yfir í alþjóðlegan staðal sem nefnist COICOP 2018. En hvað þýðir það eiginlega – og hvernig er verðbólga mæld? Ásta Jenný Sigurðardóttir, teymisstjóri vísitölu neysluverðs á Hagstofunni, útskýrir hvernig neyslunni er skipt í flokka og hvaðan vogir mismunandi útgjaldaliða koma. Ef þú sérð tölu í fréttum og vilt vita meira, sendu okkur línu á sirkabat@gimaldid.is .
Mar 05, 2026•25 min•Ep. 12
Þorsteinn Hjálmsson ræðir meistaraverkefni sitt í mannauðsstjórnun við HÍ: „Nei, en ég vinn á Ríkisútvarpinu. Það eru hinir sem eiga erfiðara.“ Upplifun blaða- og fréttamanna á sálfræðilega samningnum. Þorsteinn segir að samningurinn sé sterkur í faginu en hann mótist á ólíkan hátt eftir því hvort blaðamennirnir starfa á RÚV eða einkareknum fjölmiðlum.
Mar 02, 2026•27 min•Ep. 27
Bækur hafa alltaf verið stór þáttur í lífi Önnu Leu Friðriksdóttur sem nýverið var kjörin formaður Félags íslenskra bókaútgefenda fyrst kvenna. „Við vitum það að bóklestur fer minnkandi. Það er mest rætt um börnin og þeirra bóklestur. En ég held að yngstu börnin séu í raun meiri fyrirmyndir fyrir fullorðna heldur en fullorðnir fyrir börnin,“ segir Anna Lea í viðtali við Bókapressuna. Hún segir að fullorðna fólki megi gjarnan skoða eigin bóklestur en ekki alltaf bara einblína á börnin. Gímaldið g...
Mar 02, 2026•19 min•Ep. 26
Hvernig eru afbrot í samfélaginu mæld og metin? Fjölbreyttum upplýsingum er safnað um afbrot sem gefa vísbendingar um fjölda og þróun þeirra í samfélaginu. Haldið er utan um fjölda handtaka, ákærðra og fjölda sem sitja í gæsluvarðhaldi eða afplána dóm í fangelsi. Þrátt fyrir það ná gögn sem til eru ekki yfir nema brot af þeim afbrotum sem framin eru hverju sinni, flest afbrot eru hvergi tilkynnt og rata því ekki í opinber gögn. Þetta kemur fram í nýjasta þætti Sirkabát þar sem rætt er við Margré...
Feb 28, 2026•31 min•Ep. 13
Tölur um ákærur á hendur erlendum ríkisborgurum hér á landi hafa verið nokkuð til umræðu eftir að dómsmálaráðuneytið sendi frá svar við fyrirspurn þingmanns sem reyndist innihalda reiknivillu, líkt og Gímaldið sagði frá í frétt um málið . Hvað má lesa úr þessum tölum og hvaða aðferðum er hægt beita til að skoða gögnin í réttu samhengi? Þetta er rætt í nýjasta þætti Sirkabát. Gímaldið er nýr áskriftarmiðill sem meðal annars gefur út hlaðvarpið Sirkabát. Hægt er að gerast áskrifandi hér. Hver eina...
Feb 24, 2026•19 min•Ep. 12
Blaðamenn Gímaldsins fara yfir mál sem fjallað hefur verið um í vikunni. Væringar innan VG og rekstrarstuðningur við fjölmiðla eru meðal þess sem er til umfjöllunar. Gímaldið er nýr fjölmiðill í áskrift, hægt er að lesa eða hlusta
Feb 21, 2026•13 min•Ep. 25
Nágrannar eru nýir hlaðvarpsþættir Gímaldsins sem Erla Hlynsdóttir stýrir. Gestur hennar að þessu sinni er Anna Ólafsdóttir Björnsson sem hefur átt fjölmarga nágranna í gegn um tíðina, jafnvel þó hún hafi nú búið á sama stað í 45 ár. Anna talar um sig sem ákveðið lukkudýr í nágrannamálum og aldrei átt leiðinlega nágranna, ekki einu sinni nágranninn sem hún var fyrirfram vöruð við en reyndist síðan hinn besti karl. Hún segir frá áhugaverðum sögum af samskiptum við nágranna fyrr og síðar. Þú getur...
Feb 18, 2026•35 min•Ep. 24
Árið hófst á vonbrigðum þegar árleg verðbólga skaust úr 4,5% í 5,2% á einum mánuði. En hvað liggur að baki? Þáttastjórnendur Sirkabát kafa ofan í vísitölu neysluverðs, skoða flokkana sem ýttu henni upp og reikna út hvað hefði gerst ef lagabreytingar á vörugjöldum ökutækja hefðu ekki tekið gildi um áramótin. Niðurstaðan: Gagnrýnin á gjaldahækkunina á við, en svartsýnisspáin kannski ekki. Lestu lengri greiningu Sirkabát á verðbólgutölum á Gímaldinu. Gímaldið er nýr fjölmiðill í áskrift. Hver einas...
Feb 12, 2026•26 min•Ep. 11
Nýlegar fréttir hafa bent á mikla fjölgun erlendra lífeyrisþega. En hvaða samhengi vantar? Þorsteinn Siglaugsson hagfræðingur hjá Hagstofunni bendir á að þótt fjöldinn hafi aukist hefur hlutfallið haldist lágt: aðeins 3,6% útlendinga á vinnumarkaði þiggja örorku- eða endurhæfingarlífeyri, samanborið við 18% Íslendinga. Gott dæmi um mikilvægi þess að greina tölur áður en þeim er slegið upp. Sirkabát er hlaðvarp sem rýnir í tölurnar í fréttum og fréttirnar í tölum. Þáttastjórnendur Sirkabát eru Br...
Feb 11, 2026•9 min•Ep. 10
Hallur Hallsson, rannsóknarlögreglumaður hjá kynferðisbrotadeild, ræðir störf deildarinnar og alþjóðlegt samstarf til að finna og greina barnaníðsefni á netinu þar sem markmiðið er að koma þolendum til bjargar. Erla Hlynsdóttir ræðir við hann. Gímaldið er nýr fjölmiðill í áskrift. Þú getur keypt áskrift og verið þannig með í að lýsa upp samfélagið. Hver einasta áskrift skiptir okkur máli.
Feb 09, 2026•29 min•Ep. 23
Fjöldamótmæli gegn aðgerðum ICE hafa farið fram víða um Bandaríkin að undanförnu. Ríkisstjórn Trump hefur lagt mikla áherslu á fjölgun ICE-liða og þjálfunartími þeirra styttur til að koma sem flestum á göturnar sem fyrst. Þá hefur Trump snaraukið fjárframlög til ICE. Hvað þarf til að komast inn í ICE? Hversu miklum fjármunum er veitt í þetta fyrirbæri og hvað gerist næst í Bandaríkjunum? Erla Hlynsdóttir blaðamaður fjallar um ICE – Innflytjenda- og tollaeftirlitið alræmda Gímaldið er áskriftarmi...
Jan 28, 2026•14 min•Ep. 22
Lilja Dögg Alfreðsdóttir hefur tilkynnt um framboð til formanns Framsóknarflokksins, en hún er varaformaður flokksins. „Framsóknarflokkurinn á að mínu að mati að sækja fram og koma með lausnir," segir Lilja Alfreðsdóttir í viðtali við Gímaldið. Lilja nefnir til dæmis lausnir sem Framsókn geti talað fyrir á vettvangi efnahagsmála. „Ég viðurkenni að efnahagsstefna Kristrúnar kemur mér á óvart,“ segir Lilja sem telur viðbrögð ríkisstjórnarinnar, til að ná niður verðbó...
Jan 27, 2026•26 min•Ep. 21
„Norðurlöndin eru að búa sig undir stríð, ekki bara með hernaðaruppbyggingu heldur einnig með öðrum viðbúnaði til dæmis á sjúkrahúsum og með birgðasöfnun,“ segir Dagur B. Eggertsson þingmaður í viðtali við Gímaldið. „Maður vill ekki mála upp of dökka mynd en þetta er svolítið eins og í almannavörnunum að við verðum að vera samt heiðarleg með það sem getur teiknast upp og axla ábyrgð á að búa okkur undir það. Hluti af því er að fólk átti sig á því að í þessum br...
Jan 24, 2026•44 min•Ep. 20
Hvað þýðir það að vera hægri- eða vinstrisinnuð í stjórnmálum? Viktor Orri Valgarðsson, doktor í stjórnmálafræði, útskýrir uppruna hugtakanna og hvernig merking þeirra breytist eftir tímabilum, löndum og deilumálum í stjórnmálum hverju sinni. Sirkabát er hlaðvarp sem Gímaldið gefur út. Í þáttunum er rýnt á bak við fréttir, gjarnan í tölfræði eða annað sem er til þess fallið að dýpka umræðuna. Gímaldið er fjölmiðill í áskrift – þú getur stutt við okkur með því að kaupa áskrift og fengið þannig að...
Jan 21, 2026•26 min•Ep. 9
Í viðtali við Gímaldið fer Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknarflokksins yfir stöðu flokksins, framtíðarsýn sína fyrir flokkinn og pólitíkina í þinginu. Ingibjörg hefur lýst yfir framboði til formanns flokksins. Sigurður Ingi Jóhannsson hættir sem formaður á flokksþingi Framsóknarflokksins í febrúar. Ingibjörg segir í viðtalinu að tækifæri felist í tómarúminu á vinstri væng stjórnmálanna. „Ef við horfum á þetta pólitíska litróf sjáum við að flokkar sem eru h...
Jan 20, 2026•25 min•Ep. 19
Nágrannar er nýtt hlaðvarp úr smiðju Gímaldsins sem Erla Hlynsdóttir stýrir. Við ætlum að fjalla um nágranna frá ýmsum hliðum. Við eigum öll nágranna. Þeir búa í búsinu við hliðina á okkur, í íbúðinni fyrir neðan okkur eða uppi á næstu hæð. Sumum nágrönnum kynnumst við en öðrum ekki. Við kynnumst broti af lífi nágranna okkar og þeir broti af okkar. Guðríður Haraldsdóttir er viðmælandi fyrsta þáttar. Hún segir það óskeikult ráð að vera bara næs við nágranna og bjóða góðan daginn á ganginum. Hún s...
Jan 17, 2026•33 min•Ep. 18
Einhverf Barbie er ekki bara dúkka heldur tákn um sýnileika og viðurkenningu í heimi þar sem stelpur með einhverfu hafa lengi verið ósýnilegar. Erla Hlynsdóttir fjallar um einhverfa Barbie-dúkku sem er nýkomin á markað. Pistillinn birtist á áskriftamiðlinum Gímaldinu. Þú getur verið með í að styðja við Gímaldið með því að kaupa áskrift eða leggja til frjálst framlag .
Jan 14, 2026•8 min•Ep. 17
Þingmaðurinn Víðir Reynisson hefur víðtæka reynslu á sviði almannavarna og þjóðaröryggis. Aðalheiður Ámundadóttir blaðamaður ræðir við hann um viðbúnað á Íslandi ef til stríðsátaka kæmi og um nýja stefnu utanríkisráðherra í öryggis- og varnarmálum. Víðir starfaði við almannavarnir í rúma tvo áratugi áður en hann tók sæti á þingi, síðast sem sviðsstjóri almannavarna hjá embætti ríkislögreglustjóra. Þá hefur hann setið í almannavarnanefnd ESB og ver...
Jan 10, 2026•35 min•Ep. 16
Ár hvert safnast 14-19 ára ungmenni saman og rýna í tölur og gögn í keppninni Greindu betur. Keppnin hefur vaxið mikið frá því hún hófst árið 2021. Keppninni er skipt upp í tvo aldursflokka eftir námsstigi og keppnisefnið er sniðið að getu hvers flokks. Tilgangurinn er að efla upplýsingalæsi grunn- og framhaldsskólanema. Kristín Ingvarsdóttir og Arndís Vilhjálmsdóttir hjá Hagstofunni ræða um keppnina í nýjasta þættinum af Sirkabát.
Jan 08, 2026•22 min•Ep. 8
Hver er tala ársins 2025? Sirkabát rýnir í tölur ársins með gestum þáttarins. Tölur ársins segja margar og ólíkar sögur. Sirkabát fékk nokkra einstaklinga til að rýna í árið, velja sína uppáhalds tölu og deila með hlustendum. Arndís Vilhjálmsdóttir, teymisstjóri notendaþjónustu hjá Hagstofunni Emil Dagsson, doktorsnemi í hagfræði við Háskóla Íslands og starfsmaður deildar rannóknar og spár hjá Seðlabanka Íslands Kolbeinn Stefánsson, félagsfræðingur og dósent við félagsráðgjafadeild Háskóla Íslan...
Dec 30, 2025•42 min•Ep. 7
Hvað er margar mismunandi tegundir af jólabjórum til sölu í ríkinu? Í þessum jólaþætti Sirkabát taka þáttastjórnendur sér fyrir hendur að greina þróun á sölu og breytingum á úrvali á jólabjór seldur er í verslunum ÁTVR.
Dec 23, 2025•15 min•Ep. 6
Í Bókapressunni fáum við innsýn inn í heim ritstjóra bóka í desember, en Einar Kári Jóhannsson hjá Benedikt bókaútgáfu er í viðtali við Erlu Hlynsdóttur. Fáar bækur hafa hreyft eins mikið við honum og bókin „Beðið eftir barbörunum“ – Waiting for the Barbarians eftir J. M. Coetzee. Starfsfólk bókaútgáfa þarf að ganga í flest störf í desember. Bókaútgefendur eru eins og á hlaupabretti í desember við að halda öllu gangandi og tryggja að bækur berist í búðir, segir Einar meðal annars í viðtalinu. Þú...
Dec 18, 2025•28 min•Ep. 15
Er jólamaturinn dýrari í ár en í fyrra? Þáttastjórnendur Sirkabát útbjuggu sína eigin jólamatarkörfu og reiknuðu út vísitölu jólaveisluverðs.
Dec 16, 2025•17 min•Ep. 5
Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambands Íslands, segir jólavertíðina mikilvæga fyrir rithöfunda en bendir á í viðtali við Gímaldið að innviðirnir sem styðja við bókmenntir séu brothættir. Bókabúðir séu til að mynda fáar, sérstaklega á landsbyggðinni, og skólabókasöfn fái ekki nægt fé til að börn hafi jafnt aðgengi að nýjum bókum. Félagið hefur látið til sín taka í höfundarréttarmálum að undanförnu, en gervigreindarrisar vilja helst gleypa íslenskar bækur í sig án greiðslu. Þá hefur Sa...
Dec 15, 2025•30 min•Ep. 13
Úr pistli á Gímaldinu í dag: „Nú leggjum við Íslendingar upp í aðra Evrópuumræðu. Það var vissulega fyrirsjáanlegt að fyrstu skrefin í henni yrðu, líkt og í Bretlandi, stígin með gífuryrðum og hræðsluáróðri. Þetta hefur auðvitað bæði þann tilgang og þau áhrif að við sem viljum ræða Evrópumál, töpum þræðinum og glórunni, hoppum á reiðivagninn og förum að tala um eitthvað allt annað en ætluðum. Í stað þess að ræða kosti og galla aðildar að Evrópusam...
Dec 15, 2025•14 min•Ep. 14
Auður Jónsdóttir tekur barna- og ungmennabækur til umfjöllunar í Bókapressunni að þessu sinni. Að skrifa barnabækur er að vissu leyti hugsjónastarf því höfundur barnabókar fær talsvert minna fyrir hvert selt prentað eintak, einfaldlega vegna þess að barnabækur eru oft töluvert ódýrari en skáldsögur fyrir fullorðna. Þannig þarf fólk sem einbeittir sér að þessu mikilvæga – og í raun vanþakkláta – starfi að skrifa fyrir börn og unglinga sérstaklega á því að halda að samfélagið komi til móts við það...
Dec 13, 2025•56 min•Ep. 12
Gímaldið hefur fjallað um heilabilunarsjúkdóma undanfarna daga. Fólk sem greinist ungt með heilabilun upplifir útskúfun af vinnumarkaði þegar það þyrfti í raun að fá skilning og rými til að átta sig á hlutunum. Við fjöllum í dag um verðmálafyrirtæki sem ganga sífellt lengra í því að komast að í íþróttaheiminum. Eistneskt körfuboltafélag, frá bænum Keila í Eistlandi, sem atti kappi við Tindastól í vikunni heitir í raun fullu nafni Keila Coolbet. Nafni félagsins var breytt fyrir tveimur árum í tak...
Dec 11, 2025•23 min•Ep. 11
Skáldaparið Bergþóra Snæbjörnsdóttir og Bragi Páll Sigurðarson eru bæði þekkt fyrir magnaðar skáldsögur, óhrædd við að beita rödd sinni. En þegar þau voru að lesa fyrir krakkana sína uppgötvuðu þau að krakkar eru ekki hræddir við neitt! Því byrjuðu þau að skrifa hrollvekjandi sögur fyrir krakka, svokallaðar hrekkjavökusögur sem komu út sem hljóðbækur hjá Storytel, fjórar bækur í fyrra og tvær í haust; en nú er ein hryllingssagan þeirra að koma út á prenti, gefin út af Sögum-útgáfu, sú fyrsta í b...
Dec 06, 2025•49 min•Ep. 10
Í nýlegri tilkynningu frá barna- og menntamálaráðherra kemur fram að „áætlað sé að eitt af hverjum tíu börnum á Íslandi búi við fátækt.“ Er þessi tala rétt? Þáttastjórnendurnir Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson ræða við Kolbein H. Stefánsson prófessor við HÍ um rannsóknir og mælingar á fátækt.
Dec 04, 2025•30 min•Ep. 4