Ingibjörg Isaksen kallar eftir samvinnu þvert á flokka í málefnum barna - podcast episode cover

Ingibjörg Isaksen kallar eftir samvinnu þvert á flokka í málefnum barna

Jan 20, 202625 minEp. 19
--:--
--:--
Download Metacast podcast app
Listen to this episode in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episode description

Í við­tali við Gímald­ið fer Ingi­björg Isaksen þingflokksformaður Framsóknarflokksins yf­ir stöðu ­flokks­ins, fram­tíð­ar­sýn sína fyr­ir flokk­inn og póli­tík­ina í þing­in­u. Ingibjörg hefur lýst yfir framboði til formanns flokksins. Sigurður Ingi Jóhannsson hættir sem formaður á flokksþingi Framsóknarflokksins í febrúar. 

Ingibjörg seg­ir í viðtalinu að tæki­færi fel­ist í tóma­rúm­inu á vinstri væng stjórn­mál­anna. „Ef við horf­um á þetta póli­tíska lit­róf sjá­um við að flokk­ar sem eru hægra meg­in eru komn­ir tölu­vert langt til hægri eins og Mið­flokk­ur­inn sem er stofn­að­ur í raun­inni út frá Fram­sókn. Hann er kom­inn jafn­vel hægra meg­in við Sjálf­stæð­is­flokk­inn í ein­hverj­um mál­u­m,“ seg­ir Ingi­björg og bæt­ir við: „Við er­um ekki alltaf þar. Við er­um frek­ar að leita til vinstri. Við sjá­um það bara í raun­inni í alls kon­ar mál­um þeg­ar kem­ur að til dæm­is inn­flytj­enda­mál­u­m.“

Und­an­farn­ar vik­ur hef­ur ver­ið beð­ið eft­ir yf­ir­lýs­ing­um frá Will­um Þór Þórs­syni og Lilju Al­freðs­dótt­ur um for­manns­fram­boð en Ingi­björg hef­ur nú brot­ið ís­inn og er fyrst til að til­kynna fram­boð til for­manns.

Gímaldið er nýr fjölmiðill í áskrift.
Áskriftir gera okkur kleift að vinna að því að byggja upp fjölmiðil sem lýsir upp samfélagið.
Gerast áskrifandi að Gímaldinu.

For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android