Gímaldið - podcast cover

Gímaldið

Gímaldiðgimaldid.is
Hlaðvarpsþjónusta Gímaldsins 🧡
Last refreshed:
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Lesin grein: Frá þjóðaratkvæði til aðildar: atburðarrásin ef þjóðin segir já

Lestur á fréttaskýringu af vef Gímaldsins um líklega tímalínu frá þjóðaratkvæðagreiðslu til fullgildrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu, segi þjóðin já þann 29. ágúst næstkomandi. Í greininni er fjallað um: Ferlið hjá ESB eftir móttöku tilkynningar frá Íslandi um vilja til að taka upp viðræður mikilvægi þess að umsókn Íslands frá 2009 er enn virk mótun samningsafstöðu hjá ESB og ríkjaráðstefnu aðildarríkja eldri og nýrri viðræðuramma samninganefndir Íslands og samráð innanlands þjóðaratkvæða...

Jun 20, 202614 minEp. 56

Íslenskan gæti staðið sterkar innan ESB

Íslenskan myndi líklega standa sterkari innan Evrópusambandsins en utan þess, að mati Gauta Kristmannssonar, prófessors í þýðingafræði og deildarforseta íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands. Gauti er meðal þeirra sem sáu um túlkun í síðustu aðildarviðæðum Íslands og ESB, og hefur hann þegar fengið fyrirspurnir frá yfirmanni fjöltyngis á Evrópuþinginu um undirbúning að menntun fleiri túlka ef af aðildarviðræðum verður. Erla Hlynsdóttir ræðir við Gauta Kristmannsson um stöðu íslenskrar tu...

Jun 18, 202625 minEp. 55

Þorgerður Katrín biður eldra fólk að íhuga jáið fyrir ungu kynslóðina

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er gestur Gímalsins og ræðir áherslur í mögulegum viðræðum Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Hvaða ferill fer í gang ef þjóðin segir já í haust? Hverjir verða valdir til að skilgreina samsningsafstöðu Íslands? Hvað verður sett á oddinn í viðræðunum? Er rétti tíminn núna til að setja auðlindaákvæði í stjórnarskrá? Á Ísland að halda til streitu undanþágu til að stunda hvalveiðar? Af hverju mega útlendingar koma nálagt orkufrekum iðnaði en ekki sjávarútvegi? Er Ev...

Jun 16, 202657 minEp. 53

Breyting en ekki umbylting fyrir íslensk fyrirtæki ef Ísland gengi í ESB

Ef Ísland gengi í Evrópusambandið þá yrði það breyting fyrir íslensk fyrirtæki, en ekki endilega umbylting á einni nóttu. Hugveitan Evrópustraumar vann skýrslu fyrir Félag atvinnurekenda og Íslensk-evrópska verslunarráðið þar sem greind eru áhrif aðildar á rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja og dregnir fram bæði kostir og gallar. Í samtali við Gímaldið segist höfundurinn vona að skýrslan sé gagnlegt framlag inn í umræðuna. Eyrún Magnúsdóttir ræðir við Hallgrím Oddsson hagfræðing og framkvæmdas...

Jun 13, 202630 minEp. 54

Stóru samtökin þegja: ASÍ og SA munu ekki lýsa afstöðu til ESB-þjóðaratkvæðagreiðslu

Stór samtök á vinnumarkaði – ASÍ og SA – munu ekki lýsa afstöðu til ESB-þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst Sólveig Anna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Eflingar og einn forseta ASÍ, hefur lýst sinni skoðun en talar ekki fyrir hönd ASÍ Félag atvinnurekenda birti skýrslu með kostum og göllum aðildar fyrir atvinnulífið en telur ekki hlutverk sitt að lýsa afstöðu Íslenska yrði opinbert tungumál ESB ef til aðildar kæmi og gæti styrkt stöðu sína, líkt og írskan gerði Fyrirspurnir og erindi til Brussel yrði ...

Jun 11, 202626 minEp. 52

Útgerðarmenn með reynslu af ESB jákvæðari fyrir aðild

„Þeir sem enga hafa reynslu af ESB virðast hafa sterkustu skoðanirnar og sjá engin tækifæri,“ segir Hjálmar Vilhjálmsson, viðskiptafræðingur og framkvæmdarstjóri á uppsjávarsviði hjá Brimi hf. Hjálmar er einn fárra Íslendinga sem þekkja rekstur í sjávarútvegi innan ESB af eigin raun. Í viðtali við Gímaldið rekur hann hvernig viðhorf hans til ESB breyttust, hvað aðild að Evrópusambandinu myndi þýða fyrir íslenskan sjávarútveg og hvers vegna honum finnst full ástæða til að láta reyna á aðildarviðr...

Jun 09, 20261 hr 16 minEp. 51

Vonin liggur í samtalinu – Hanna Birna Kristjánsdóttir og Svandís Svavarsdóttir

Þær hafa verið í forystu fyrir ólíka stjórnmálaflokka og segjast stundum rífast við sjónvarpið þrátt fyrir að vera hættar í pólitík. Í viðtali við Gímaldið ræða þær Hanna Birna Kristjánsdóttir og Svandís Svavarsdóttir um konur í pólitík, um erfiða en viðburðaríka tíma í borgarstjórn skömmu eftir hrun og það hvernig samvinna þvert á flokka skilar meiri árangri en átök. Þáttastjórnandi er Eyrún Magnúsdóttir. Meðal þess sem kemur fram: Hanna Birna og Svandís kynntust í borgarstjórn fyrir 20 árum og...

Jun 03, 20261 hr 15 minEp. 50

Sirkabát #17: Dýrtíð á Íslandi

Hvað þýðir það þegar sagt er Ísland sé orðið 84 prósent dýrara en aðrar Evrópuþjóðir? Nýlega birti stéttarfélagið Viska greiningu sem sýndi fram ískyggilega þróun í verðlagi hér landi. Vörur og þjónustu umtalsvert dýrari hér landi en í nágrannaþjóðunum og verðlag hefur hækkað hraðar en í samanburðarlöndunum. Þáttastjórnendur fara ofan í saumanna á verðlagsmælingum og ályktunum sem draga má út frá alþjóðlegum samanburði. Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson sjá um þáttinn Viðmæland...

Jun 01, 202642 minEp. 49

Áhrif ESB-aðildar fyrir budduna og bókhaldið

Gangi Ísland í ESB, kasti krónunni og taki upp evru, mun það hafa margvísleg áhrif á heimilin í landinu, fyrirtækin og ríkissjóð. En hvaða áhrif nákvæmlega? Við vitum það ekki fyrir víst. Það fer eftir því hvernig okkur semst og hvernig við höldum á spöðunum. Þingið spurði Hagfræðistofnun og í áliti stofnunarinnar má finna áhugaverðar vísbendingar um: Aukin viðskipti og umsvif Breytingar á verðlagi Lærra matvöruverð Betri lánakjör Breytta eftirspurn eftir vinnuafli Breytt landslag í hagstjórn Ým...

May 25, 202636 minEp. 48

Gímaldið kíkir í pakkann: Samningsmarkmið utanríkismálanefndar

Gímaldið rýnir í nefndarálit meirihluta utanríkismálanefndar um ESB-tillögu ríkisstjórnarinnar. Í álitinu eru sett fram helstu markmið aðildarviðræðna við ESB, ákveði þjóðin að þær skuli hefja á ný. Í þættinum ræða Aðalheiður Ámundadóttir og Eyrún Magnúsdóttir óvenjuleg einkenni nefndarálitsins og hvernig það bætir upp snubbótta tillögu utanríkisráðherra. Meðal umræðuefna í þættinum: Dramatískar lýsingar í umsögnum fyrrverandi stjórnmálamanna Áhersla á sérbókun um yfirráð yfir auðlindum Sérlausn...

May 23, 202629 minEp. 47

R-listinn með meira fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn

Er hin svokallaða hægri sveifla á landinu jafn skýr og af er látið, eða er kannski vinstri sveifla sem öllum er að yfirsjást? Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir halda áfram að rýna í kosningaúrslitin og velta upp áhugaverðum vinklum og spurningum: Flokkar R-listans fá meira fylgi í Reykjavík en Sjálfstæðisflokkurinn Velgengni Miðflokksins er birtingarmynd klofningsins frá Framsókn fyrir átta árum Vinstri græn eru að stimpla sig aftur inn í umræðuna bæði í kosningunum og landsmálunum V...

May 19, 202632 minEp. 46

Kosningaúrslitin: Lesið á milli línanna

Hægri sveifla fór yfir landið í sveitarstjórnarkosningum. Gímaldið rýnir í niðurstöðurnar með tölfræðingnum Brynjólfi Gauta og stjórnmálaskýrandanum Aðalheiði Ámundadóttur. Í þættinum er meðal annars rætt um þetta: Meirihlutar féllu víða um land og hægri sveiflan er staðreynd Samfylkingin er næst stærsti flokkurinn í sveitarstjórnum á eftir Sjálfstæðisflokknum Sjálfstæðismenn eru í sókn og Píratar horfnir af stjórnmálasviðinu Samfylkingin og fleiri borga fyrir mistök í kosningabaráttunni Guðlaug...

May 17, 202630 minEp. 45

Næsti kafli í Reykjavík og það sem við hefðum átt að tala meira um

Síðasti þátturinn í röðinni Börn og bílastæði, kosningaumfjöllun Gímaldsins, er kominn í loftið. Í þættinum ræða Aðalheiður Ámundadóttir og Erla Hlynsdóttir útlitið fyrir Reykjavík og málin sem þær hefðu viljað meiri umræðu um fyrir kosningar. Töfratalan 12 sem allt snýst um Sviptingar í síðustu könnun fyrir kosningar Meirihlutaþreifingar gætu orðið meira spennandi en kosningarnar Hvernig munu hægri vindar fara með Reykjavík Hvað verður um Borgarlínu Sorphirðan og ítalska mafían Viðkvæmustu hópa...

May 15, 202637 minEp. 44

Við þurfum að geta rekið samfélagið fyrir okkur öll

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir lifir og hrærist í samfélagi jaðarsettra hópa. Hún er framkvæmdastjóri Samhjálpar og stjórnarkona í samtökum gegn fátækt og félagslegri einangrun. Hún segir það tvennt ólíkt að reka fyrirtæki og að reka samfélag, og að Reykjavík spili í annarri deild en önnur sveitarfélög þegar kemur að þjónustu við jaðarsett fólk. Erla Hlynsdóttir ræðir við Guðrúnu Ágústu í nýjasta þætti af Börn og bílastæði þar sem fjallað er um ábyrgð samfélags, pólitíkina í aðdraganda sveitarstjó...

May 15, 202651 minEp. 43

Eru tölur í kosningabaráttu til að upplýsa eða sannfæra?

Í þættinum fara Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson og Georg Gylfason úr hlaðvarpinu Sirkabát yfir nokkrar áhugaverðar tölur sem tengjast sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu ásamt Eyrúnu Magnúsdóttur. Íbúar höfuðborgarsvæðisins eyða tæpum fjórum sólarhringum á ári í umferð – en er þetta stór tala? Við hvað á að miða? Hvernig stendur Reykjavík fjárhagslega og hvaða sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu sker sig úr þegar kemur að fjárhagsstöðu? Aðeins eitt sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu nær að koma...

May 14, 202643 minEp. 42

Á borgin að fela einkaðilum verkefnin eða sjá um þau sjálf?

Í þættinum er rætt við prófessor í stjórnmálafræði um þá leið sveitarfélaga að útvista verkefnum til einkaaðila. Hvaða flokk­ar vilja fela einka­að­il­um verk­efnin í Reykjavík? Hvaða flokk­ar vilja að borg­in vinni öll verk sjálf? Kostn­að­ur við út­vist­un verk­efna er oft van­met­inn og sparnaður ofmetinn Eftirliti með einkaaðilum sem veita opinbera þjónustu er ábótavant Kjörnir fulltrúar missa yfirsýn og vald yfir málaflokkum sem útvistað er Gestur: Eva Marín Hlynsdóttir, prófessor í stjórnm...

May 13, 202626 minEp. 41

Hinsegin bókmenntir í brennidepli á bókmenntahátíðinni Queer Situations

Ásta Kristín Benediktsdóttir bókmenntafræðingur hefur sérhæft sig í hinsegin bókmenntum. Hún segir bókmenntir ekki hlutlausar heldur sýni þær okkur ákveðna mynd af samfélaginu. Hinsegin bókmenntahátíðin Queer Situations fer fram í maí og þar er Ásta með erindi sem ber yfirskriftina: Hver má skrifa (um) hinsegin bókmenntir? Vangaveltur um væntingar og tjáningarfrelsi . Erla Hlynsdóttir ræðir við Ástu í nýjasta þætti Bókapressunnar. Hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við fr...

May 13, 202624 minEp. 40

Málefnin sem kjósendur leggja áherslu á — Skipulagsmál á toppnum

Skipulagsmál og málefni leik- og grunnskóla eru þeir tveir málaflokkar sem flestir íbúar leggja áherslu á vegna komandi sveitarstjórnarkosninga, hvort sem litið er til Reykjavíkur, nágrannasveitarfélaga borgarinnar, eða íbúa á landsbyggðinni. Þetta sýna niðurstöður Þjóðmálakönnunar Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands um viðhorf til málefna fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí. Rúnar Vilhjálmsson, prófessor í félagsfræði, lét gera könnunina og hefur unnið úr niðurstöðunum, en honum hefur fu...

May 11, 202630 minEp. 38

Gísli Marteinn: Reykjavík á að bera sig saman við aðrar höfuðborgir

Margt kemur Gísla Marteini Baldurssyni spánskt fyrir sjónir í umræðu flokkanna um skipulagsmál í Reykjavík. Í þættinum Börn og Bílastæði er rætt við Gísla Martein um Reykjavík í samanburði við aðrar borgir og þau öngstræti sem umræðan um skipulagsmál er komin í í aðdraganda kosninga. Er raunhæft að bera Reykjavík saman við aðrar borgir? Hvernig væri Reykjavík ef þéttingin væri eins og í París? Af hverju töldu Barselónabúar að þar væri ekki hægt að hjóla? Stærð borga máli og almenningssamgöngur M...

May 09, 202653 minEp. 39

Bannorðin í stefnuskrám flokkanna og sundlaugar ofar Sundabraut

Rýnt í stefnuskrár flokkanna í borginni. Eru þær innantóm loforð eða fullar fyrirheitum um það sem koma skal? Þættinum stýra Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir. Fjallað er um: Sundlaugar oftar nefndar en Sundabraut í stefnuskránum Nokkur bannorð virðast vera í stefnum flokkanna Allir vilja bæta leikskóla en greinir á um það hvort rekstrarform leysir vanda Flokkar sem hafa stutt samgöngusáttmála hafna honum korter í kosningar Börn og bílastæði er kosningaþáttur Gímaldsins. Hann er öllu...

May 06, 202633 minEp. 37

Sirkabát #16: Mælingar á atvinnuleysi

Hvort eru atvinnulausir rúmlega níu þúsund eða nálega átján þúsund talsins? Tvær stofnanir hafa umsjón með að telja fjölda hverju sinni, Vinnumálastofnun og Hagstofa Íslands. Mælingar beggja stofnana á atvinnuleysi fylgjast venjulega að. Nú ber hins vegar svo við að munur á mælingunum hefur aukist mikið á sama tíma og fólki án vinnu hefur fjölgað vegna kólnunar í hagkerfinu.

May 04, 202627 minEp. 16

„Það er enginn að segja að allir eigi að hætta að keyra“ – Bílastæði og borgarumhverfi

Tölum um bílastæði! Bílastæði hafa verið í brennidepli í kosningabaráttu á höfuðborgarsvæðinu. En hvað eru bílastæði? Hvaða tilgangi þjóna þau í borgarumhverfi og hvaða áhrif hefur það ef við fjölgum þeim stöðugt? Eyrún Magnúsdóttir ræðir við sérfræðinga um fyrirbærið bílastæði og skoðar hugmyndir annarra borga um bílastæði og tengsl þeirra við skipulag borga en einnig við líðan íbúa og heilsu. Viðmælendur í þættinum eru Ásdís Hlökk Theodórsdóttir , aðjúnkt í skipulagsfræði við LBHÍ og fyrrveran...

May 02, 202652 minEp. 36

Er umræðan um borgina á villigötum? – Kosningaþátturinn Börn og bílastæði hefur göngu sína

Kosningaþáttur Gímaldsins rúllar af stað. Hann heitir Börn og bílastæði ! Stór hluti verkefna sveitarfélaga snýst um börn, velferð þeirra, menntun og lífsgæði. Miðað við umræðu fyrir þessar kosningar mætti þó halda að börn þrái fyrst og fremst eitt: bílastæði! Í þáttunum verða málefnin í forgrunni en frambjóðendur fá frí. Í fyrsta þætti fara Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir yfir fjölbreyttan vettvang kosningabaráttunnar, hlutverk fjölmiðla í þessu nýja landslagi. Þær spyrja hvort þo...

Apr 28, 202626 minEp. 35

„Leyfi til að gera ljótar byggingar er mikið“ – Umsögnin um Græna gímaldið sem aldrei átti að fara í loftið

„Leyfi til að gera ljótar byggingar er mikið á Íslandi,“ voru orð sem Borghildur Sölvey Sturludóttir arkitekt lét falla um Græna gímaldið og fóru fyrir mistök út með umsögn um verkefnið. Í viðtali sem birt er í hlaðvarpi Gímaldsins er rætt við Borghildi um tilurð þessara orða og viðbrögð við þeim innan borgarkerfisins en einnig um Græna gímaldið og um þróun í skipulagsmálum. Í þættinum, sem Gímaldið gefur út, kemur meðal annars fram: Umsögn með orðalaginu átti aldrei að fara í loftið og sú sem s...

Apr 18, 202638 minEp. 34

Sigríður Andersen ræðir ESB-tillögu stjórnarinnar og stöðuna í stjórnarandstöðu

Sig­ríð­ur Á And­er­sen formaður þingflokks Miðflokksins seg­ir ESB-­­til­lög­u ríkisstjórnarinnar þurfa að taka breyt­ing­um í með­för­um þings­ins en telur að þing­menn meiri­hlut­ans séu of háð­ir ráð­herr­um sín­um. Hún býst við átökum í utanríkismálanefnd á lokaspretti þingvetrar.

Apr 14, 202624 minEp. 32

Birgir Ármannsson tekur til máls um fundarstjórn forseta

Hvaða herr­um þjón­ar for­seti Al­þing­is og hver ræður dagskrá þingsins í raun og veru? Hvernig býr meirihlutinn sig undir málþóf og hvernig heldur forseti sönsum þegar allt verður vitlaust? Þess­um spurn­ing­um og mörg­um öðr­um svar­ar Birg­ir Ár­manns­son, fyrr­ver­andi þing­for­seti í við­tali um leikja­fræð­ina á Al­þing­i.

Apr 09, 202643 minEp. 33

Þjálfuð til að berjast gegn eigin þjóð: Þórdís Kolbrún segir frá skipulögðum barnsránum

Þór­dís Kol­brún R. Gylfa­dótt­ir ræð­ir skipu­lögð barns­rán Rússa í Úkra­ín­u; Um börn­in sem num­in hafa ver­ið á brott og eru rænd upp­runa sín­um með heila­þvott­i, hvern­ig unn­ið er að end­ur­heimt þeirra og hvern­ig Evr­ópa og al­þjóða­sam­fé­lag­ið geti og eigi að bregð­ast við. Gímaldið er áskriftarmiðill. Þú getur gerst áskrifandi hér

Apr 02, 202632 minEp. 31

Heppinn að geta einbeitt sér að loftslagsmálum

Verðlaunablaðamaðurinn Kjartan Kjartansson ræðir hvernig hann nálgast fréttaskrif, áhugann á vísindum og hvernig fjölmiðlaumfjöllun um loftslagsmál hefur þróast.

Mar 28, 202619 minEp. 30

Sirkabát #15: Skoðanakannanir

Rík þörf er á umræðu um gæði þeirra skoðanakannana sem birtast víða í opinberri umræðu. Þetta segir Ólafur Þór Gylfason, sviðstjóri markaðarannsókna hjá Maskínu, en hann settist niður með þáttastjórnendum Sirkabát og ræddi um úrtaksrannsóknir hér á landi og erlendis og þær breytingar sem hafa átt sér stað á undanförnum áratugum. Hann segir sérstöðu Íslands í þessum efnum að hverfa og ræðir áskoranir sem því fylgja. Þátturinn er opinn á helstu hlaðvarpsveitum. Sirkabát er hlaðvarp sem rýnir í töl...

Mar 25, 202626 minEp. 15

Pawel Bartoszek: Stuðningsfólk ESB geti lært af baráttunni gegn Brexit

Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar, ræðir Evrópumálin, sigursögu Póllands og Brexit. Hann telur óttann við að glata fullveldinu í viðskiptabandalögum fela í sér minnimáttarkennd. Öflug fullvalda ríki innan ESB beri vott um hið gagnstæða. Pawel segist ekki kvíða umræðu næstu mánaða. Ísland sé rótgróið lýðræðisríki og þjóðin eigi sér langa og ríka umræðuhefð. Aðalheiður Ámundadóttir ræðir við Pawel Bartoszek. Gímaldið er áskriftarmiðill. Hver einasta áskrift ski...

Mar 07, 202620 minEp. 29
Hosted on Transistor
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android