Útgerðarmenn með reynslu af ESB jákvæðari fyrir aðild
Episode description
„Þeir sem enga hafa reynslu af ESB virðast hafa sterkustu skoðanirnar og sjá engin tækifæri,“ segir Hjálmar Vilhjálmsson, viðskiptafræðingur og framkvæmdarstjóri á uppsjávarsviði hjá Brimi hf. Hjálmar er einn fárra Íslendinga sem þekkja rekstur í sjávarútvegi innan ESB af eigin raun. Í viðtali við Gímaldið rekur hann hvernig viðhorf hans til ESB breyttust, hvað aðild að Evrópusambandinu myndi þýða fyrir íslenskan sjávarútveg og hvers vegna honum finnst full ástæða til að láta reyna á aðildarviðræður.
- Viðhorf útgerðarmanna til ESB
- Sjávarútvegsstefna ESB og stefnuleysi Íslands
- Önnur aðildarríki eiga auðlindir
- Sérlausnir fínar en óþarfar
- Tækifærin og hætturnar
- Áhugi erlendra fjárfesta ofmetinn
- Þunglamalegt Brussel eða hringlandaháttur Íslands
- Reynslan af embættismönnum í Brussel
- Þjóðir með sérþekkingu hafa áhrif í Brussel
Textaútgáfu viðtalsins má finna á vef Gímaldins.
Evrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn. Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi.
Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
