Íslenskan gæti staðið sterkar innan ESB
Episode description
Íslenskan myndi líklega standa sterkari innan Evrópusambandsins en utan þess, að mati Gauta Kristmannssonar, prófessors í þýðingafræði og deildarforseta íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands. Gauti er meðal þeirra sem sáu um túlkun í síðustu aðildarviðæðum Íslands og ESB, og hefur hann þegar fengið fyrirspurnir frá yfirmanni fjöltyngis á Evrópuþinginu um undirbúning að menntun fleiri túlka ef af aðildarviðræðum verður.
Erla Hlynsdóttir ræðir við Gauta Kristmannsson um stöðu íslenskrar tungu í tengslum við mögulegar aðildarviðræður við ESB. Það helsta úr viðtalinu:
- Gangi ríki í ESB verður tungumál þess sjálfkrafa eitt af opinberum málum sambandsins.
- Hver borgari aðildarríkis á rétt á að eiga samskipti við stofnanir sambandsins á eigin móðurmáli og fá öll lög og reglugerðir á sínu tungumáli.
- Hugmyndir um að fækka opinberum tungumálum sambandsins hafa ekki fengið hljómgrunn. Hvert ríki hefur neitunarvald og „það vill enginn fórna sínu tungumáli".
- Þegar síðustu aðildarviðræður fóru fram var túlkanám við Háskóla Íslands eflt fyrir tilstilli ESB.
- Að mati Gauta steðja meiri ógnir að íslenskunni innanlands og frá bandarískum tæknirisum, en nokkurn tíma frá Brussel.
Evrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn. Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi.
Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
