Dagur B. Eggertsson: Norðurlöndin búa sig undir stríð - podcast episode cover

Dagur B. Eggertsson: Norðurlöndin búa sig undir stríð

Jan 24, 202644 minEp. 20
--:--
--:--
Download Metacast podcast app
Listen to this episode in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episode description

„Norð­ur­lönd­in eru að búa sig und­ir stríð, ekki bara með hern­að­ar­upp­bygg­ingu held­ur einnig með öðr­um við­bún­aði til dæm­is á sjúkra­hús­um og með birgða­söfn­un,“ seg­ir Dag­ur B. Eggertsson þingmaður í viðtali við Gímaldið.

„Mað­ur vill ekki mála upp of dökka mynd en þetta er svo­lít­ið eins og í al­manna­vörn­un­um að við verð­um að vera samt heið­ar­leg með það sem get­ur teikn­ast upp og axla ábyrgð á að búa okk­ur und­ir það. Hluti af því er að fólk átti sig á því að í þess­um breytta heimi get­um við ekki bara leg­ið á bak­inu og von­að það besta,“ segir hann í viðtalinu.

Dag­ur er for­mað­ur Ís­lands­nefnd­ar NATO­­-þings­ins og átti sæti í þing­manna­nefnd þeirri sem lagði grunn að ör­ygg­is­ og varn­ar­stefnu sem er til með­ferð­ar á Al­þing­i. Áð­ur en Dag­ur sett­ist á þing var hann um ára­bil for­mað­ur Al­manna­varn­ar­nefnd­ar. Gímald­ið ræð­ir við Dag um heims­mál­in, vest­ræna sam­vinn­u, sam­band­ið við Banda­rík­in og Evr­ópu, vígbúnað Norðurlandanna og hvern­ig Ís­lend­ing­ar eiga að fara að því að verj­ast mögu­leg­um ófrið­i. Aðalheiður Ámundadóttir ræðir við Dag.

Gímaldið er nýr fjölmiðill. Hver einasta áskrift skiptir okkur máli.
Þú getur tekið þátt í að lýsa upp samfélagið með því að kaupa áskrift

For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android