Gímaldið - podcast cover

Gímaldið

Gímaldiðgimaldid.is
Hlaðvarpsþjónusta Gímaldsins 🧡
Last refreshed:
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Sirkabát - Þáttur 3

Landsmönnum hefur fjölgað hratt á undanförnum árum og mannfjöldaspá Hagstofu Íslands spáir því að landsmenn gætu slagað í hálfa milljón á eftir um það bil tvo áratugi. Hversu nákvæm er þessi spá? Á hvaða gögnum byggir hún? Og hvernig ber túlka hana? Þessum spurningum og fleirum munu þáttastjórnendur leitast við að svara í þriðja þætti Sirkabát.

Nov 27, 202525 minEp. 3

Ný fjármögnunarleið fyrir íbúðir, ráðherra íhugar nýja rannsóknarnefnd og vangaveltur um Ísland sem nýlendu

Lán eða ekki lán? – Ný leið til fjármögnunar er til skoðunar hjá Neytendastofu og Seðlabanka Íslands. Ráðherra dómsmála íhugar að setja á fót rannsóknarnefnd kvennamorða. Þetta kemur fram í aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi sem birt hefur verið í samráðsgátt stjórnvalda. Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir ræða um efni Gímaldsins.

Nov 26, 202518 minEp. 9

Sigrar og áskoranir í málefnum fatlaðs fólks

Stór hópur fatlaðs fólks fær ekki, fötlunar sinnar vegna, rafræn skilríki og getur þar af leiðandi ekki fylgt sínum málum eftir, til að mynda þegar kemur að heilsufari, fjármálum eða menntun. Þetta er staðan í dag þrátt fyrir að fjórir ráðherrar hafi vorið 2023 undirritað viljayfirlýsingu um þróun á lausnum að rafrænu aðgengi fyrir fatlað fólk. Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka, segir í viðtali við Gímaldið að það sé miður að þessi mál séu ekki enn komin í lag. „Það er ofboðsle...

Nov 22, 202521 minEp. 6

Þolinmóðasti flokkur landsins bíður færis

Framsóknarflokkurinn hlaut verstu kosningu í sögu flokksins í síðustu alþingiskosningum og er frekar vansæll í sinni stjórnarandstöðu. Formannskosningar eru framundan og flokkurinn vinnur að því að finna sína fótfestu á pólitíska litrófinu að nýju. Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir ræða um Framsóknarflokkinn, en Gímaldið birtir ítarlegar greiningu á stöðu flokksins og rýnir í möguleika hans til framtíðar með Ólafi Þ. Harðarsyni. Hér geta áskrifendur lesið greiningu Gímaldsins á Frams...

Nov 19, 202529 minEp. 5

Sirkabát - Þáttur 2

Í öðrum þætti Sirkabát ræða Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson við þau Ara Klæng Jónsson, doktor í félags- og lýðfræði og Jóhönnu Gunnarsdóttur, forstöðumann fræðasviðs á fæðinga- og kvenlækningasviði. Þýðir hækkandi meðalaldur kvenna þegar þær eignast fyrsta barn endilega að frjósemi minnki? Hvað þýðir það að frjósemi sé minni meðal erlenda kvenna en íslenskra? Þessum spurningum og fleirum er velt upp með sérfræðingunum

Nov 17, 202529 minEp. 2

Sirkabát - Þáttur 1

Í Sirkabát skoða Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson tölur úr fréttum og þjóðfélagsumræðunni og spyrja sig: Er umræðan rétt? Er hún röng? Eða svona sirkabát? Í fyrsta þættinum skoða þeir tölur Hagstofu Íslands um frjósemi kvenna á Íslandi. Hvað þýðir það þegar Hagstofan segir að frjósemi var 1,56 árið 2024? Hvernig hefur þetta breyst með árunum? Hefur breytt samsetning þjóðarinnar undanfarinn áratug áhrif á þessa mælingu?

Nov 11, 202518 minEp. 1

Beðið eftir Guðlaugi og Sanna heimilislaus

Oddvitarnir og flokkarnir í borginni Und­ir­bún­ing­ur fyr­ir val á lista fyr­ir kosn­ing­ar til sveitar­stjórna er nú í full­um gangi hjá flokk­un­um. Það hef­ur gu­stað um marga odd­vita í Reykja­vík­ur­borg á kjör­tíma­bil­inu og þótt flest­ir þeirra vilji gefa kost á sér aft­ur er all­ur gang­ur á því hvort flokks­fé­lag­ar þeirra vilji veita þeim braut­ar­geng­i. Samkvæmt samantekt Gímaldsins má ætla að farnar verði fjölbreyttar leiðir við val á lista; leiðtogakjör, prófkjör, uppstilling og...

Nov 09, 202527 minEp. 4

Bókapressan - Þáttur 2

Annar þáttur Bókapressunnar er kominn í loftið. Auður Jónsdóttir og Kristján Hafþórsson fá til sín Tómas Hermannsson útgefanda hjá Sögum. Hann hefur staðið að útgáfu ótal bóka um fótbolta og körfubolta, svo eitthvað sé nefnt, og segir skipta máli að börn fái bækur sem þeim þyki gaman að lesa og veki hjá þeim áhuga.

Nov 06, 202547 minEp. 2

Gímaldið - 5. nóvember 2025

Zohran Mamdani er nýr borgarstjóri í New York. Hverju breytir kjör hans fyrir Demókrata og bandarísk stjórnmál? Aðalheiður Ámundadóttir og Eyrún Magnúsdóttir ræða þessa nýjustu stjörnu bandarískra stjórnmála, viðspyrnuna gagnvart Trumpismanum og skoða hvaða áhrif þessar sviptingar vestra hafa á íslenska pólitík.

Nov 05, 202532 minEp. 3

Bókapressan - þáttur 1

Gímaldið kynnir fyrsta bókaþáttinn. Hann heitir Bókapressan og umsjónarmenn eru þau Auður Jónsdóttir og Kristján Hafþórsson. Gestur þáttarins er enginn annar en Árni Helgason sem nýverið gaf út bókina Aftenging.

Nov 03, 202542 minEp. 1
Hosted on Transistor
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android