Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Enski boltinn - Allt blómstrar á Old Trafford og þarfagreining á Anfield

Það er feikilega mikið í gangi í boltanum og því er hér mættur þriðji þátturinn af Enska boltanum þessa vikuna. Elvar Geir og Guðmundur Aðalsteinn fengu Magnús Hauk Harðarson til sín til að skoða málin. Rýnt í Evrópuleiki vikunnar og hitað upp fyrir leiki helgarinnar, þar á meðal úrslitaleik Manchester United og Newcastle í deildabikarnum. Magnús er stuðningsmaður Liverpool og skoðar það sem hann vill sjá gerast hjá sínum mönnum í sumar.

Feb 24, 2023

Heimavöllurinn - Túr, bros og takkaskór

Kynin er líffræðilega ólík en lengst af hefur lítið tillit verið tekið til þess er kemur að þjálfun í íþróttum. Flestar íþróttarannsóknir hafa verið miðaðar að körlum og íþróttabúnaður að mestu hannaður fyrir karllíkamann. Þetta er þó að breytast og mikil vitundarvakning er að eiga sér stað. Þema Heimavallarins að þessu sinni er þjálfun kvenna og gestir þáttarins sérfræðingar á því sviði. Það eru þær Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir og Katrín Ýr Friðgeirsdóttir. Báðar hafa þær kynnt sér þjálfun út f...

Feb 23, 2023

Enski boltinn - Liverpool niðurlægt og Katar eða Ratcliffe?

Manchester United og Liverpool voru aðallega til umræðu í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag. Liverpool tapaði 2-5 fyrir Real Madrid í Meistaradeildinni í gær. Ótrúlegur leikur en Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke hringdu í Atla Má Steinarsson, fjölmiðlamann, til að ræða leikinn og tímabilið hjá Liverpool. Þá hringdu þeir einnig í Tryggva Pál Tryggvason, fréttamann á Stöð 2 og Vísi, til að fara yfir tímabilið hjá Manchester United, möguleg eigendaskipti og leikinn gegn Barcelona á morgun....

Feb 22, 2023

Júlli Magg: Snerist frá þeirri hugsun á lokametrunum

Júlíus Magnússon samdi við norska félagið Fredrikstad í lok síðasta mánaðar. Júlíus var fyrirliði Víkings á síðasta tímabili og var í algjöru lykilhlutverki í liðinu sem endaði í 3. sæti Bestu deildarinnar og vann bikarmeistaratitil. Hann er 24 ára djúpur miðjumaður sem lék með Víkingi í fjögur tímabil eftir að hafa komið heim frá hollenska félaginu Heerenveen þar sem hann lék með unglingaliðum og varaliði. Hann ræðir um félagaskiptin, ákvörðunina, norska félagið, landsliðið og Víking í viðtalin...

Feb 21, 2023

Ægismenn fá allt aðra áskorun - Upp um deild í febrúar

Að félag komist upp um deild á Íslandi í febrúar er fáheyrður atburður, en það gerðist síðasta laugardag þegar KSÍ staðfesti að Kórdrengir yrðu ekki með í sumar. Ægir, sem lenti í þriðja sæti 2. deildar á síðasta tímabili, mun spila í Lengjudeildinni en þetta hafði líka áhrif í öðrum deildum. Þetta er í fyrsta sinn í sögunni þar sem Ægir spilar í næst efstu deild en félagið náði sínum besta árangri í sögunni síðasta sumar. Núna þurfa Ægismenn að undirbúa sig fyrir allt aðra áskorun en þeir voru ...

Feb 20, 2023

Enski boltinn - Möguleg meistaraheppni

Tíðindamikil helgi í ensku úrvalsdeildinni er gerð upp í hlaðvarpsþættinum enski boltinn. Elvar Geir, Guðmundur Aðalsteinn og Tómas Þór í þættinum að þessu sinni. Allt sem Ten Hag snertir virðist breytast í gull, Tottenham komið í Meistaradeildarsæti, Arsenal er aftur skellihlæjandi á toppnum, City fór illa með færin og Newcastle fór illa að ráði sínu gegn Liverpool.

Feb 20, 2023

Útvarpsþátturinn - Rúnar Páll, Kórdrengir kveðja og ársþingið

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 18. febrúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Fylkis mætir, farið er yfir fréttir vikunnar í íslenska boltanum og Þórir Hákonarson skoðar komandi ársþing KSÍ. Þingið verður kannski áhugaverðara en útlit var fyrir í fyrstu.

Feb 18, 2023

Enski boltinn - Ekki bara tveir hestar, heldur þrír

Það er frábær fótboltavika að baki þar sem hæst stóð stórleikur Arsenal og Manchester City í ensku úrvalsdeildinni. Titilbaráttan er galopin en Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke fengu Jón Kaldal, stuðningsmann Arsenal, til að fara yfir stórleikinn. Jón er á þeirri skoðun að titilbaráttan sé ekki tveggja hesta kapphlaup, heldur sé um þrjá hesta að ræða. Í þættinum var jafnframt farið yfir leiki vikunnar í Meistaradeildinni og Evrópudeildinni.

Feb 17, 2023

Enski boltinn - Vanhæfir í VAR-herberginu

Það var nokkuð mikið rætt um dómaramistök í hlaðvarpinu Enski boltinn í dag. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke fengu Magnús Val Böðvarsson til að fara yfir umferðina um liðna helgi. Maggi Bö, eins og hann er ávallt kallaður, er dómari, vallarstjóri og stuðningsmaður Crystal Palace. Stuðningsmenn Arsenal, Chelsea og Brighton geta verið ansi reiðir út í dómarastéttina eftir þessa umferð. Arsenal, sem er á toppnum, hefur verið leikið ansi grátt af dómurum á þessari leiktíð og verður líkle...

Feb 14, 2023

Útvarpsþátturinn - Rúnar Kristins og áhugaverð leikmannakaup

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 11. nóvember. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fótboltafréttir vikunnar, enskar og íslenskar. Rætt um stóru fréttirnaf af Manchester City, tíðindi á íslenska leikmannamarkaðnum, undirbúningsleiki og Rafn Markús Vilbergsson segir okkur frá áhugaverðum leikmanni sem Njarðvík var að fá frá Malasíu. Gestur þáttarins er Rúnar Kristinsson, þjálfari KR. Rætt er um Bestu deildina, síðasta tímabil KR-inga og það sem hefur gerst hjá félaginu í vetur.

Feb 11, 2023

Enski boltinn - Eldræða frá Mána en áhyggjurnar litlar hjá City

Það er boðið upp á veisluþátt af Enski boltinn hlaðvarpinu á þessum ágæta föstudegi. Byrjað er á því að hringja í Þorkel Mána Pétursson, stuðningsmann Leeds. Hann fer vel yfir málin hjá sínum mönnum en hann er ekki sáttur með allt sem hefur verið í gangi þar. Leeds gerði 2-2 jafntefli gegn Manchester United í miðri viku og er farið vel yfir þann leik í þættinum. Svo er hringt í Magnús Ingvason, stuðningsmann Manchester City. Hann er rólegur yfir stöðu mála þó enska úrvalsdeildin hafi ákveðið að ...

Feb 10, 2023

Atli Hrafn: Stefnir alltaf hærra en þar sem þú ert

Atli Hrafn Andrason er uppalinn KR-ingur sem farið hefur víða á sínum ferli þrátt fyrir ungan aldur. Atli er 24 ára sóknarsinnaður miðjumaður sem skrifaði undir hjá HK í desember. Hann varð Íslandsmeistari með 3. flokki KR árið 2014 og samdi við Fulham sumarið 2016. Hann var á Englandi í tvö og hálft ár. Næsta stopp var Víkingur, svo Breiðablik, næst ÍBV og loks HK. Atli lék á sínum tíma 25 leiki fyrir yngri landsliðin. Í spjallinu við Sæbjörn Steinke fór hann yfir ferilinn til þessa. Hann fer y...

Feb 09, 2023

Enski boltinn - Staðan hjá Liverpool mikið áhyggjuefni

Það gengur hvorki né rekur hjá Liverpool þessa stundina. Liðið tapaði 3-0 gegn Úlfunum um helgina. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke fengu Hallgrím Indriðason, fréttamann á RÚV, til að fara yfir stöðuna hjá félaginu en hún er áhyggjuefni. Einnig er rætt um aðra leiki helgarinnar en tvö efstu lið ensku úrvalsdeildarinnar töpuðu bæði um helgina. Þá er rætt um það að deildin saki Manchester City um að brjóta fjármálareglur.

Feb 06, 2023

Gunnhildur Yrsa er mætt heim - Kom ekkert annað til greina

Landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er komin aftur heim til Íslands eftir langa dvöl í atvinnumennsku. Hún bjóst aldrei við því að verða atvinnukona í fótbolta eftir að hafa slitið krossband tvisvar. Það gerðist svo í þriðja sinn eftir að hún fór til Noregs frá Stjörnunni. En hún hélt alltaf áfram og endaði á því að leika í tíu ár erlendis, fyrst í Noregi og svo í Bandaríkjunum. Hún á þá að baki 96 A-landsleiki með Íslandi. Gunnhildur er núna komin heim í Stjörnuna en það kom ekki til grei...

Feb 05, 2023

Útvarpsþátturinn - Ótímabæra spáin og Óli Kristjáns

Íslenski boltinn er í aðalhlutverki í útvarpsþættinum Fótbolti.net þessa vikunar. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson opinbera nýja ótímabæra spá fyrir Bestu deildina. Ólafur Kristjánsson, yfirmaður fótboltamála hjá Breiðabliki, mætir í þáttinn og ræðir um starf sitt í Kópavoginum, íslenska leikmannamarkaðinn og fleira.

Feb 04, 2023

Orri Steinn: Þá hefði ég hlegið í andlitið á þér

Orri Steinn Óskarsson er einn mest spennandi ungi framherji í Danmörku. Hann hefur verið á mála hjá FC Kaupmannahöfn frá því hann yfirgaf Gróttu eftir tímabilið 2019. Þegar Orri hugsar til baka til tímabilsins 2019 þá hugsar hann um lagið sem heyrist í byrjun klippunnar. Orri raðaði inn mörkum fyrir U17 og U19 ára lið FCK og steig sín fyrstu skref með aðalliðinu á síðasta ári. Hann kom inn á í lokaleik deildarinnar og kom við sögu í níu leikjum með aðalliðinu á fyrri hluta þessa tímabils. Á glug...

Feb 02, 2023

Enski boltinn - Boðið upp á bombu klukkutíma fyrir gluggalok

Tímabil Newcastle og janúarglugginn var það sem var helst til umræðu í hlaðvarpinu Enski boltinn á þessum fimmtudegi. Félagaskiptaglugginn lokaði síðasta sunnudag og það er óhætt að segja að félög í ensku úrvalsdeildinni hafi misst sig í gleðinni þegar kom að því að kaupa leikmenn. Þá aðallega Todd Boehly, eigandi Chelsea. Hann ákvað að gera Enzo Fernandez að dýrasta leikmanni í sögu enska boltans rétt áður en glugginn lokaði. Gummi og Steinke fengu til sín góðan gest í dag því Jón Júlíus Karlss...

Feb 02, 2023

Enski boltinn - Óvænt skipti og slúðursögur fyrir gluggadag

Á morgun er gluggadagur og það er nóg af slúðursögum í gangi er viðkemur félögum í ensku úrvalsdeildinni. Fer Moises Caicedo til Arsenal? Fer Enzo Fernandez til Chelsea? Liverpool og Manchester United eru róleg og þá er Manchester City að selja Joao Cancelo. Nóg að gerast eins, en Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke fara yfir allt það helsta í þessum þætti af Enski boltinn hlaðvarpinu. Þá er einnig farið yfir helgina í enska FA-bikarnum þar sem 32-liða úrslitin voru spiluð.

Jan 30, 2023

Björn Már fer yfir Juventus málið

Á föstudag bárust þær risastóru fréttir að fimmtán stig voru dregin af ítalska stórliðinu Juventus. Félagið er undir rannsókn vegna alvarlegra fjársvika þar sem svindlað hefur verið í bókhaldi og leikmönnum greitt svart. Björn Már Ólafsson, sérfræðingur um ítalska boltann og einn af umsjónarmönnum hlaðvarpsþáttarins Punktur og Basta, ræddi við Sæbjörn Steinke um málið. Enn eru margir lausir endar en farið var yfir helstu vinkla málsins og velt vöngum um hvað gæti gerst á næstu vikum og jafnvel m...

Jan 25, 2023

Enski boltinn - Landsbyggðin talar um hugarfarsskrímsli

Mikið var rætt um sigur Arsenal á Manchester United í þætti dagsins og orðin mentality monsters notuð til að lýsa Arsenal liðinu. Ingimar Helgi Finnsson var á línunni og ræddi um Tottenham og Óskar Smári Haraldsson gasaði um sína menn í Liverpool. Arsenal er með fimm stiga forskot og á leik til góða, en tvær innbyrðisviðrueignir eru eftir við City. Hvort liðið verður meistari? Nær Tottenham Meistaradeildarsæti?

Jan 24, 2023

Útvarpsþátturinn - Adam Páls, íslensk tíðindi og Arsenal fær rödd

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 21. janúar. Elvar Geir, Benedikt Bóas, Kári Kongó og nýjasti leikmaður Vals, Adam Pálsson, í hljóðveri. Fréttir úr íslenska boltanum, Arsenal er á toppnum í enska, Newcastle í Meistaradeildarbaráttu og þá er Arnar Daði sérfræðingur í beinni frá Gautaborg í handboltahorninu.

Jan 21, 2023

Heimavöllurinn - Bleikir fílar, samstaða og Sara sigrar

Ár er síðan Hagsmunasamtök knattspyrnukvenna voru endurvakin og þau hafa haft í nægu að snúast. Á Heimavöllinn eru mættar þær Anna Þorsteinsdóttir, forseti samtakanna, og Rebekka Sverrisdóttir, nýliði í stjórn. Þær fara yfir málin sem hafa verið veigamest á þessu fyrsta starfsári og rýna í það hvar gera má betur hvað varðar umgjörð um knattspyrnu kvenna. Þetta gera þær að sjálfsögðu í boði Dominos og Orku Náttúrunnar

Jan 20, 2023

Enski boltinn - London er rauð og það er Manchester líka

Það er nóg um að ræða í hlaðvarpsþættinum Enski boltinn í dag. Það voru tveir mjög svo áhugaverðir nágrannaslagir um helgina. Manchester United og Arsenal stóðu uppi sem sigurvegarar í þessum tveimur leikjum eru gestir dagsins Albert Hafsteinsson og Magnús Ingi Þórðarson, leikmenn Fram. Albert heldur með Arsenal og Magnús er stuðningsmaður United. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke fara yfir málin með þeim tveimur. Farið er yfir alla leiki helgarinnar og undir lokin á þættinum er uppgjö...

Jan 16, 2023

Arnar gerir upp janúarverkefnið - „Viljum ekki vera lið sem er fyrirsjáanlegt"

Ísland lék tvo vináttuleiki í janúar, fyrri leikurinn var gegn Eistlandi og sá seinni var gegn Svíþjóð. Leikið var í Portúgal, fyrri leikurinn endaði með jafntefli en seinni leikurinn tapaðist. Landsliðsþjálfarinn Arnar Þór Viðarsson ræddi við Sæbjörn Steinke og voru leikirnir gerðir upp. Rætt var um leikkerfi, leikmenn sem heilluðu, seinni vítaspyrnuna gegn Eistlandi og ýmislegt annað. Arnar segir að það sé ekkert leyndarmál að einhverjir í þessum hópi komi til greina í næstu landsleiki. Þegar ...

Jan 16, 2023

Útvarpsþátturinn - Janúarverkefni Íslands og viðburðarík fréttavika í Bestu

Það er tíðindamikil vika að baki í boltanum, bæði hér heima og erlendis. Í útvarpsþættinum Fótbolti.net fara Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke yfir allt það helsta. Janúarverkefni íslenska landsliðsins, ótrúleg úrslit í Reykjavíkurmótinu, leikmannahræringar í Bestu deildinni og enski boltann koma við sögu. Í handboltahorninu er hringt til Svíþjóðar og púlsinn tekinn á Henry Birgi Gunnarssyni.

Jan 14, 2023

Enski boltinn - Krísuástandið hjá Chelsea krufið til mergjar

Í dag fá Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke góðan gest í hlaðvarpsþáttinn Enski boltinn. Stefán Marteinn Ólafsson mætti á skrifstofuna og fór yfir það hvað í ósköpunum væri í gangi hjá Chelsea þessa stundina. Chelsea tapaði fyrir Fulham í gær og það er krísuástand á Brunni um þessar mundir. Graham Potter, stjóri liðsins, virðist sigraður og staða hans er auðvitað rædd ásamt ýmsu öðru. Þá er einnig rætt um deildabikarinn og rosalega umferð sem er framundan í ensku úrvalsdeildinni um helg...

Jan 13, 2023

Freysi um Söru Björk: Draumur fyrir alla þjálfara

Í morgun tilkynnti Sara Björk Gunnarsdóttir að landsliðsskórnir væru komnir á hilluna eftir sextán ára feril. Hún fór á fjögur stórmót, lék 145 landsleiki og skoraði 24 landsliðsmörk á sínum ferli. Á árunum 2013-2018 lék hún undir stjórn Freys Alexanderssonar í landsliðinu. Freyr er í dag þjálfari Lyngby í Danmörku og ræddi við Fótbolta.net um Söru Björk í kjölfar tíðindanna í dag. Freyr gerði Söru að fyrirliða á sínum tíma þegar Margrét Lára Viðarsdóttir var með barni og leiddi hún liðið á EM í...

Jan 13, 2023

Heimavöllurinn: Lífstíðarbönn eftir að viðbjóðurinn vall upp úr skýrslunni

Heimavöllurinn er klár í nýtt fótboltaár og ýmsar vendingar hafa þegar orðið í boltanum á nýju ári. Stórtíðindi af lífstíðarbönnum fjögurra þjálfara úr Bandarísku úrvalsdeildinni hafa vakið mikla athygli en gríðarlega stór rannsókn var nýlega gerð á ofbeldi og ofbeldismenningu í deildinni. Daði Rafnsson þekkir vel til í bandaríska boltanum og mætir til að fara yfir málin. Auðvitað í boði Dominos, Heklu og Orku Náttúrunnar.

Jan 12, 2023

Enski boltinn - Hvað er að hjá Liverpool og hvað gerir Boehly?

Þeir Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Steinke ræddu það helsta í enska boltanum í dag. Farið var yfir umferðina í síðustu viku og rætt um bikarhelgina.Það er bras á Liverpool, Chelsea og Everton þessa dagana og spilamennska liðanna voru til umræðu. Á Chelsea að láta Potter fara? Hvað er að hjá Liverpool og hefur Darwin Nunez valdið vonbrigðum? Er Rooney lausnin fyrir Everton?Þá var rætt um það helsta í slúðrinu: Hvaða sóknarmann tekur Man Utd? Nær Arsenal að landa Mudryk? Miðjumaður í Liverpool? ...

Jan 09, 2023
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android