Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 7. janúar. Umsjón: Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson. Gestur er Sigurður Garðarsson, formaður Keflavíkur, sem svarar fyrir sögur um að fjárhagserfiðleikar herji á félagið. Lið Keflavíkur hefur misst marga lykilmenn frá síðasta tímabili og stuðningsmenn hafa áhyggjur. Þá er farið yfir fyrstu ótímabæru spá Bestu deildarinnar 2023. Farið er yfir hvað liðin hafa gert á félagaskiptamarkaðnum í vetur.
Jan 07, 2023
Langt síðan síðast. Enski boltinn snýr aftur í dag úr HM-pásu og stuttu jólafríi. Enska úrvalsdeildin er komin aftur á fleygiferð og er spilað mjög þétt um þessar mundir. Tvær umferðir fóru fram á milli jóla og nýárs. Svo er leikur í kvöld þegar Liverpool og Brentford mætast. Er Arsenal í alvöru að fara að vinna þessa deild? Hringt var í Gunnar Birgisson, íþróttafréttamann og harðan stuðningsmann liðsins, til þess að ræða það. Þá var farið yfir stöðu mála og janúargluggann. Hvað eiga stóru félög...
Jan 02, 2023
Elvar Geir, Tómas og Benedikt Bóas gera upp fótboltaárið 2022 og veita verðlaun í ýmsum flokkum. Hilmar Jökull á línunni, Bjarki Már Elísson handboltahetja er heiðursgestur og Röddin mætir í lokin. Flugeldasýning og stuð þar sem gleðin er í fararbroddi. Takk kærlega fyrir hlustunina á árinu!
Dec 31, 2022
Heimavöllurinn snýr aftur eftir haustpásu og nú er komið að því að gera upp fótboltaárið sem er að líða. Reynsluboltarnir og kempurnar Guðrún Jóna Kristjánsdóttir, Helena Ólafsdóttir og Kristrún Lilja Daðadóttir mæta í sett og fara yfir árið með Mist Rúnarsdóttur. Þátturinn er sem fyrr í boði Orku Náttúrunnar, Dominos og Heklu.
Dec 29, 2022
Elísabet Gunnarsdóttir er einn besti fótboltaþjálfari sem hefur komið frá Íslandi, það er óhætt að fullyrða það. Hún hefur frá því í janúar árið 2009 þjálfað Kristianstad í Svíþjóð þar sem hún hefur náð mjög svo eftirtektarverðum árangri. Þar áður gerði hún Val að besta liði landsins, mögulega var það besta lið Íslandssögunnar. Í þessum hlaðvarpsþætti fer Elísabet yfir byrjunina á þjálfaraferlinum, verkefnið í smábænum Kristianstad, framtíðina og margt fleira. Markmiðin eru skýr fyrir næstu leik...
Dec 29, 2022
Síðasta HM hringborðið! Elvar Geir, Guðmundur Aðalsteinn og Arnar Laufdal gera upp stórkostlegan úrslitaleik HM. Lionel Messi lyfti heimsmeistarabikarnum eftir sigur Argentínu í hreint rosalegum úrslitaleik, skemmtilegasta úrslitaleik sögunnar. Rætt er um leikinn, þetta svakalega argentínska lið, Guðmundur velur sitt úrvalslið mótsins og Arnar fimm bestu ungstirni mótsins.
Dec 18, 2022
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 17. desember. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke í hljóðveri X977 á Suðurlandsbraut og Tómas Þór beintengdur frá hljóðveri DR í Kóngsins Kaupmannahöfn. Hitað er upp fyrir úrslitaleik HM, úrvalslið mótsins valið, HM leikmenn sendir í ensku úrvalsdeildina og Birkir Már Sævarsson er á línunni. Birkir Már þekkir það að mæta bæði Argentínu og Frakklandi. Hvort er erfiðara að mæta Messi eða Mbappe? Síðasti þáttur fyrir jól. Gleðilega hátíð!
Dec 17, 2022
Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins, tilkynnti í dag 22 leikmenn sem verða í landsliðshópnum í janúar þegar spilað verður við Svíþjóð og Eistlandi á Algarve í Portúgal. Tveir nýliðar eru í hópnum, það eru þeir Aron Bjarnason og Nökkvi Þeyr Þórisson. Aron Sigurðarson er þá í hópnum í fyrsta sinn síðan í janúar 2018. Fótbolti.net ræddi við landsliðsþjálfarann í dag og spurði hann sérstaklega út í þessa þrjá leikmenn auk þess sem spurt var út í yngsta leikmann hópsins, Danijel ...
Dec 16, 2022
Undanúrslitin á HM í Katar eru gerð upp við HM hringborðið. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke í hljóðverinu með tvo góða gesti: Davíð Snorri Jónasson þjálfari U21 landsliðs Íslands er HM sérfræðingur okkar og Óðinn Svan Óðinsson, frétta- og íþróttafréttamaður RÚV, er einnig við hringborðið. Heimsmeistararnir lögðu Marokkómenn sem geta þó borið höfuðið afskaplega hátt. Messi hefur verið besti maður mótsins og mun berjast við Mbappe í úrslitaleiknum á sunnudag.
Dec 14, 2022
Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn fara yfir allt það helsta frá HM í Katar. Lukkan var með Frökkum sem sendu Englendinga heim, Southgate íhugar að hætta, Ronaldo grét þegar draumurinn varð að engu, spænski dómarinn er líka farinn heim, Marokkó heillar heimsbyggðina, hverjir skipta um lið eftir HM?, þjálfarahræringarnar, spáð í undanúrslitin og fleira.
Dec 12, 2022
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 10. desember. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke, Gunni Birgis og Tommi Steindórs við HM hringborðið. Rætt er um sturlunina í fyrstu tveimur leikjum 8-liða úrslitanna og hitað upp fyrir framhaldið. Í seinni hluta þáttarins er rætt við Arnór Sigurðsson og Óttar Magnús Karlsson kemur í heimsókn.
Dec 10, 2022
Það er ekki töluð vitleysan við HM hringborðið. Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar og Davíð Snorri Jónasson þjálfari U21 landsliðsins eru sérfræðingar Elvars Geirs. Portúgal fór á kostum með Ronaldo í kælinum, Marokkómenn sendu hugmyndasnauða Spánverja heim, Brasilía blæs í danssýningu og Króatar elska langa leiki. Rætt um alla leiki 16-liða úrslita HM og komandi leikir í 8-liða úrslitum skoðaðir.
Dec 06, 2022
Fjögur lið eru komin í 8-liða úrslitin. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn gera upp fyrstu fjóra leiki 16-liða úrslitanna. Vængbakverðir Hollands fóru illa með Bandaríkin, Messi leiddi Argentínu áfram en Ástralía getur borið höfuðið hátt, Mbappe var magnaður fyrir Frakka og Jude Bellingham heillaði í sigri Englands gegn Senegal.
Dec 04, 2022
Elvar Geir og Tómas Þór gera upp riðlakeppni HM í útvarpsþætti vikunnar, velja úrvalsliðið til þessa, mestu vonbrigðin og skemmtilegustu karakterana. Sérfræðingur þáttarins, Kristján Atli Ragnarsson, spáir í viðureignir 16-liða úrslitanna. Fjallað er um vonbrigði Þýskalands. Sæbjörn Steinke ræðir við Guðmund Hreiðarsson, markvarðaþjálfara Jamaíku og sérfræðing um þýska fótboltann. Í lok þáttarins er svo farið yfir fréttir vikunnar í íslenska boltanum.
Dec 03, 2022
Svava Rós Guðmundsdóttir hefur átt viðburðaríkt ár, hún skipti um félag í upphafi árs, vann tvo titla með Brann í Noregi og fór með landsliðinu á EM í sumar. Seinni hluta síðasta árs var Svava ekki á góðum stað, föst í liði þar sem þjálfarinn ætlaði sér ekki að spila henni. Svava ræðir tímann hjá Bordeaux; síðustu mánuðina, viðskilnaðinn og skiptin í Brann, tímann sinn í Noregi til þessa, fagnið sitt á móti Rosengård, titlana tvo, úrslitakeppnina í Noregi, Berglindi Björgu Þorvaldsdóttur, Natösh...
Dec 02, 2022
Þá er fjórum riðlum á HM í Katar lokið. Tveir riðlar kláruðust í dag og vantaði ekki dramatíkina í þá fjóra leiki sem voru spilaðir. Danir eru farnir heim, Frakkar töpuðu óvænt, Messi og félagar kláruðu sitt og það gerðist næstum því að lið færi áfram á háttvísisstigum. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Steinke fara yfir leiki dagsins í HM hringborðinu ásamt því að ræða við góða gesti. Hringt er til Danmerkur þar sem er rætt við Frey Alexandersson, þjálfara Lyngby, um ófarir danska liðsins og svo ...
Nov 30, 2022
Tveimur riðlum á HM er lokið, hvað varðar leikjafjölda er mótið rúmlega hálfnað og það er margt í spilunum. Nýjar stjörnur verða til, glæstar vonir og súr vonbrigði. Elvar Geir og Guðmundur Aðalsteinn eru við HM hringborðið og sérstakur gestasérfræðingur er Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar og fyrrum ritstjóri Fotbolti.net. Farið er yfir leiki síðustu tveggja daga og skoðað hvað er framundan. Englendingar mæta Senegal og Holland leikur við Bandaríkin í 16-liða úrslitum. Rætt er um Ron...
Nov 29, 2022
Á morgun er lokadagurinn í 2. umferð riðlakeppninnar. Við hringborðið í dag var farið yfir leiki helgarinnar þar sem spilað var í C,D, E og F riðli. Það er mikil spenna í öllum riðlunum og einungis ein þjóð komin áfram í 16-liða úrslit. Sæbjörn Steinke fékk Framarana Guðmund Magnússon og Óskar Smára Haraldsson með sér í yfirferðina. Meðal efnis: Niclas Füllkrug, Belgar í brasi, Messi steig upp, Frakkar líklegir, Danir með örlögin í sínum höndum, kraftmiklir Króatar, massífir Marokkóar og svakale...
Nov 27, 2022
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er í óvenjulegri útgáfu þessa vikuna. Hann er sendur út frá Mývatni. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas fara yfir gang mála á HM í Katar og þá eru fótboltafréttir vikunnar á sínum stað. Þátturinn er frumfluttur í hlaðvarpsútgáfu að þessu sinni.
Nov 25, 2022
HM er farið á fulla ferð og við hringborðið er farið yfir allt það helsta sem hefur gerst á mótinu til þessa. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke ræða mótið með góðum gesti. Sérfræðingur þáttarins er Davíð Snorri Jónasson, þjálfari U21 landsliðsins. Davíð starfaði sem leikgreinandi hjá íslenska landsliðinu á HM 2018. Meðal efnis: Heimsmeistararnir byrja á sigri, óvæntustu úrslit HM sögunnar, Danir ekkert spes, England byrjar á markaflóði, Ronaldo rifti við Man Utd og íslenska U21 liðið vann Skota....
Nov 22, 2022
Útvarpsþátturinn 19. nóvember 2022. Umsjón: Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór. Rætt um Ronaldo málið við Tryggva Pál Tryggvason, fréttamann og sérfræðing um Manchester United. Í kjölfarið er farið yfir helstu fréttir. Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson á RÚV ræðir um HM utan og innan vallar og Sævar Sævarsson kynnir bók sína um Kjartan Másson sem er nýkomin út.
Nov 19, 2022
Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn skoða F, G og H riðla heimsmeistaramótsins og helstu fréttir. Arnar Þór Viðarsson gefur innsýn í belgíska liðið og Aksentije Milisic í það serbneska.
Nov 17, 2022
Við höldum áfram að hita upp fyrir HM í Katar. Í þættinum að þessu sinni skoða Elvar Geir og Sæbjörn Steinke riðla C, D og E. Freyr Alexandersson þjálfari Lyngby er á línunni og gefur innsýn í danska landsliðið.
Nov 16, 2022
Cristiano Ronaldo er á allra vörum í dag eftir viðtal sem hann fór í hjá umdeilda fjölmiðlamanninum Piers Morgan. „99 prósent af stuðningsmönnum Man Utd munu standa með Erik Ten Hag, sem sýnir í raun hversu illa Ronaldo kom að málunum. Þetta eitt prósent mun styðja Ronaldo er Rio (Ferdinand), Roy (Keane) og Patrice (Evra)," sagði Jamie Carragher, fyrrum varnarmaður Liverpool, í gær. Það má segja að Mate Dalmay, körfuboltaþjálfari Hauka, sé í þessu eina prósenti. Hann er mikill Ronaldo maður og e...
Nov 14, 2022
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 12. nóvember.Tómas Þór og Benedikt Bóas stýrðu þættinum að þessu sinni. Í fyrsta hlutanum kom Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA í heimsókn en hann var í bænum að semja við leikmenn og segir frá því og uppgangi félagsins og vinnunni á bakvið hann.Um miðjan þátt var fari yfir helstu fótboltafréttirnar hér á landi og þar var af nægu að taka.Í síðasta hlutanum rætt um ensku úrvalsdeildina sem fer eftir helgina í frí vegna Heimsmeistaramótsins í Kat...
Nov 13, 2022
Það eru níu dagar í HM, þetta er að bresta á! Í dag fóru Gummi og Steinke yfir A- og B-riðla með Arnari Laufdal, fréttamanni. Hollendingar eru líklegastir til að vinna A-riðil en gætu heimamenn í Katar komið á óvart með því að fara áfram? Rætt var við Bjarka Má Ólafsson, fyrrum leikgreinanda Al Arabi í Katar, til að fá innsýn í lið heimamanna. Þá var einnig rætt um B-riðil og þá sérstaklega um England en margir skjóta á það að Englendingar muni floppa á mótinu.
Nov 11, 2022
Aron Jóhannsson varð fyrsti Íslendingurinn til að spila á HM þegar hann fór með Bandaríkjunum til Brasilíu árið 2014.Það eru núna tólf dagar í HM í Katar og fékk undirritaður því Aron í áhugavert spjall í dag.Hann ræðir ákvörðunina að spila fyrir bandaríska landsliðið frekar en það íslenska, upplifunina að spila á HM í Brasilíu og mótið sem framundan er.Bandaríkin eru með spennandi lið núna og stefna á það að fara upp úr riðli sínum sem inniheldur meðal annars England. En aðalmálið er HM 2026 þa...
Nov 08, 2022
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir er einn sigursælasti leikmaður í sögu íslenska boltans. Hún ákvað að leggja skóna á hilluna eftir síðustu leiktíð en hún endaði á því að verða bæði Íslands- og bikarmeistari með Val. Í þessu hlaðvarpi ræðir Adda við undirritaðan um stórkostlegan feril sinn þar sem hún vann fjölda titla með bæði Stjörnunni og Val. Þá lék hún einnig fyrir íslenska landsliðið. Adda ræðir einnig um næsta kafla í fótboltanum en hún er að byrja að þjálfa ásamt því að starfa sem sérfræði...
Nov 07, 2022
Það var skemmtileg helgi í ensku úrvalsdeildinni, og þá var sunnudagurinn sérstaklega áhugaverður. Hæhæ tvíeykið, Helgi Jean Claessen og Hjálmar Örn Jóhannsson, gera upp helgina og þá aðallega stórleik Liverpool og Tottenham en þeir eru stuðningsmenn þessara tveggja liða; Helgi heldur með Liverpool og Hjálmar með Tottenham. Skemmtileg saga af Grétari Rafni Steinssyni, sem er núna háttsettur hjá Tottenham, er á meðal þess sem kemur við sögu í þessum fjöruga þætti.
Nov 07, 2022
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 5. nóvember. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir helstu fótboltafréttirnar. Sæbjörn Steinke er með þeim og sett saman líklegt byrjunarlið Íslands gegn Sádi-Arabíu. Þá er helgin í enska boltanum skoðuð. Arsenal er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og Daníel Geir Moritz velur fimm uppáhalds leikmenn sína í Arsenal frá upphafi. Einnig er spilað viðtal sem Sæbjörn tók við Daníel Hafsteinsson, miðjumann KA, í vikunni. Daníel er með landsliðinu í arabísku...
Nov 05, 2022