Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Siggi Höskulds gerir upp tíma sinn í Breiðholtinu

Sigurður Heiðar Höskuldsson, nýráðinn aðstoðarþjálfari Vals og fyrrum aðalþjálfari Leiknis í Breiðholti, mætti á skrifstofu Fótbolta.net í dag í mjög gott spjall. Hann fór þar yfir árin hjá Leikni og þá sérstaklega tímabilið í sumar þar sem Leiknir þurfti að sætta sig við fall eftir erfiða úrslitakeppni. Hann fer yfir ýmis mál. Þá fer hann yfir framhaldið með Val og af hverju hann ákvað að taka það starf að sér. Hvað er langtímamarkmiðið hjá þessum efnilega þjálfara?

Nov 04, 2022

Valgeir Lunddal: Maður stefnir alltaf hátt en þetta toppar allt

Valgeir Lunddal Friðriksson varð sænskur meistari með Häcken á sunnudag þegar liðið vann 0-4 sigur á Gautaborg í næstsíðustu umferð Allsvenskan. Häcken endaði í 12. sæti deildarinnar í fyrra og stekkur því upp um ellefu sæti milli tímabila. Valgeir hefur átt gott tímabil, komið við sögu í langflestum leikja Häcken, lagt upp þrjú mörk og bæði spilað sem hægri og vinstri bakverði. Hálftíma viðtal við Valgeir um tímabilið og ýmislegt annað má nálgast í spilaranum að ofan sem og í öllum hlaðvarpsvei...

Nov 01, 2022

Enski boltinn - Kaninn keypti sér tíma á Anfield

Það var nóg um að ræða í Enski boltinn þennan mánudaginn. Heil umferð var leikin í ensku úrvalsdeildinni á laugardag og sunnudag. Óskar Smári Haraldsson, þjálfari kvennaliðs Fram, kom í heimsókn og ræddi um vandræði Liverpool við Gumma og Steinke. Einnig var Mate Dalmay, þjálfari körfuboltaliðs Hauka, með fyrsta hálftímann í þættinum og lét ýmislegt flakka. Ásamt því að vandræði Liverpool voru rædd þá var farið yfir stórkostlegan sigur Brighton gegn Chelsea, endurkomu Tottenham, rúst Arsenal geg...

Oct 31, 2022

Innkastið - Sá besti gestur í lokaþætti ársins

Lokaþáttur Innkastsins þetta árið. Gestur er Ísak Snær Þorvaldsson en Fotbolti.net valdi hann besta leikmann tímabilsins. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Steinke ræddu við Ísak, gerðu upp tímabilið og horfðu fram veginn.

Oct 31, 2022

Útvarpsþátturinn - Íslenskar fréttir og enska hringborðið

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 29. október. Farið er yfir íslenskar fréttir og svo er enska hringborðið dregið fram og meðal annars opinberað val á liði tímabilsins hingað til. Elvar Geir, Tómas Þór og Kristján Atli í fiskabúrinu.

Oct 29, 2022

Enski boltinn - Getur ekki verið mikið verra en Gerrard

Það var leikið í ensku úrvalsdeildinni um helgina og litu nokkur óvænt úrslit dagsins ljós. Stærst var það að nýliðar Nottingham Forest lögðu Liverpool. Það voru meiðslavandræði hjá Liverpool sem höfðu mikil áhrif. Gummi og Steinke fara vel yfir umferðina; rætt er um óvæntan sigur Forest, stórleik Chelsea og Manchester United, ferð á Tottenham Hotspur Stadium og margt fleira. Þá er rætt um Unai Emery sem er kominn aftur í enska boltann, tekinn við Aston Villa af Steven Gerrard.

Oct 25, 2022

Innkastið - Gummi girnist gullskóinn

Guðmundur Magnússon, sóknarmaður Fram, er sérstakur gestur Innkastsins þessa vikuna. Ef Gummi skorar gegn Keflavík í lokaumferð Bestu deildarinnar á laugardaginn verður gullskórinn hans. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Gummi Magg fara yfir 26. umferð Bestu deildarinnar og Sæbjörn velur einnig besta leikmann hvers liðs í sumar og einnig mestu vonbrigðin. Þá er auðvitað rætt við Gumma um árangur hans og Framliðsins í sumar og ýmislegt skemmtilegt.

Oct 25, 2022

Útvarpsþátturinn - Besta deildin innan og utan vallar

Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon gera upp Bestu deildina jafnt innan vallar sem utan í útvarpsþætti vikunnar. Lokahóf deildarinnar var haldið í hljóðverinu og opinberað val Fótbolta.net á liði ársins, leikmanni ársins, efnilegasta leikmanninum, besta þjálfaranum og besta dómaranum. Í seinni hlutanum ræðir Tómas við Birgi Jóhannsson og Björn Þór Ingason frá ÍTF um deildina. Meðal annars er rætt um fyrirkomulagið sem hefur verið mikið í umræðunni.

Oct 22, 2022

Enski boltinn - Að telja sig vera stærri en félagið

Það er svo mikið í gangi í ensku úrvalsdeildinni að ekki er annað hægt en að bjóða upp á annan þátt af Enska boltanum þessa vikuna. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn fara yfir tíðindamikla viku þar sem Cristiano Ronaldo var settur í skammarkrókinn og Steven Gerrard var rekinn. Farið er yfir þessar risafréttir, úrslit helgarinnar og leikir helgarinnar skoðaðir.

Oct 21, 2022

Enski boltinn - Í draumalandi Laufdalsins

Það er frábær umferð að baki í ensku úrvalsdeildinni þar sem stórleikur Liverpool og Manchester City stóð upp úr. Gummi og Steinke fóru yfir umferðina með Arnari Laufdal, þáttastjórnanda Ungstirnanna. Síðustu sjö dagar hafa verið ansi góðir hjá Laufdalnum; Breiðablik varð Íslandsmeistari, Liverpool vann Man City og hann fór á árshátíð. Eitt er víst eftir þennan leik Liverpool og Man City: Darwin Nunez er kóngurinn.

Oct 17, 2022

Innkastið - Leikurinn þar sem bæði liðin töpuðu

Allt stefnir í að Leiknir og ÍA leiðist hönd í hönd niður í Lengjudeildina eftir 2-2 jafntefli liðanna í Breiðholtinu á Laugardag. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke, Guðmundur Aðalsteinn og Sverrir Mar gera upp 25. umferð Bestu deildarinnar og ræða helstu fréttapunkta deildarinnar.

Oct 17, 2022

Útvarpsþátturinn - Ómar Ingi og helstu boltamálin

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 15. október. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta í boltanum og með þeim í þættinum er Ómar Ingi Guðmundsson, þjálfari HK. Rætt er um fréttir vikunnar; heimaleikjabann Víkings, þjálfarahræringar, Íslandsmeistaratitil Breiðabliks, tap kvennalandsliðsins og næstu leiki í Bestu deildinni. Þá gerir Ómar upp tímabil HK. Einnig koemur enski boltinn við sögu.

Oct 15, 2022

Enski boltinn - Víður völlur og sameiginlegt byrjunarlið

Það var farið um víðan völl þegar Gummi og Steinke settust niður á skrifstofu Fótbolta.net í dag. Farið var yfir umferðina í ensku úrvalsdeildinni sem fram fór um síðustu helgi og umferðina sem hefst í kvöld. Einnig var farið yfir Meistaradeildina, Evrópudeildina og Sambandsdeildina en það var spilað í öllum þessum keppnum núna í vikunni. Liverpool og Manchester City eigast við í stórleik helgarinnar. Hvernig lítur sameiginlegt byrjunarlið þeirra út?

Oct 14, 2022

Innkastið - Blikar krýndir bestir í sófanum og FH greip líflínu

Til hamingju Breiðablik! Kópavogsliðið er orðið Íslandsmeistari. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke fara yfir liðna umferð í Bestu deildinni og heyra í góðum mönnum. Viktor Karl Einarsson, miðjumaður og Íslandsmeistari, er á línunni. Í seinni hlutanum er fjallað um neðri deildina og svakalega mikilvægan sigur FH gegn Leikni í fallbaráttuslagnum. Þá er Eiður Aron Sigurbjörnsson, fyrirliði ÍBV, á línunni frá Vestmannaeyjum og í lok þáttarins er rætt um riðilinn sem íslenska landsliðið er í.

Oct 11, 2022

Útvarpsþátturinn - Harka og hræringar í fallbaráttunni í Bestu

Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta í boltanum í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Það eru sviptingar og spenna í harðri fallbaráttu Bestu deildarinnar. Eiður Smári steig til hliðar og Siggi Höskulds tekst á við nýjar áskorarnir eftir tímabilið. Sérfræðingur þáttarins, Rafn Markús Vilbergsson, spáir í spilin fyrir sex stiga fallbaráttuslag FH og Leiknis. Enski boltinn. Stórleikur helgarinnar er viðureign Arsenal og Liverpool. Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur um enska bolta...

Oct 08, 2022

Kristján Guðmundsson - Hvernig náði Stjarnan Evrópusæti?

Stjarnan endaði í 2. sæti Bestu deildar kvenna á liðnu tímabili. Liðið verður því í forkeppni Meistaradeildarinnar á komandi tímabili. Liðið vann fimm af síðustu sjö leikjum sínum í deildinni og gerði tvö jafntefli. Kristján Guðmundsson var að klára sitt fjórða tímabil sem þjálfari liðsins og ræddi hann við Fótbolta.net í dag. Kristján fór yfir markmiðasetninguna, tvískiptinguna á tímabilinu, breytingu í þjálfun hjá leikmönnum, stemninguna, næringarráðgjöf, markmannsmálin, öðruvísi nálgun gagnva...

Oct 06, 2022

Innkastið - Læti í Laugardal og sparkað í liggjandi mann

Víkingur vann FH í framlengdum bikarúrslitaleik og fyrstu fjórir leikirnir eftir tvískiptingu Bestu deildarinnar eru að baki. Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke fara yfir það helsta sem er í gangi í íslenska boltanum í Innkasti vikunnar. Meðal efnis: Lætin í Laugardalnum, Haddi byrjar á sigri fyrir norðan, Blikar miklu betri en Stjörnumenn, sparkað í liggjandi Skagamenn og Fram tók fernuna gegn Leikni.

Oct 04, 2022

Ástríðan - Uppgjör í 3. deildinni - Fulltrúar toppliða og viðurkenningar

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar. Sverrir Mar og Gylfi Tryggva fengu í heimsókn góða fulltrúa frá toppliðunum tveimur. Bjarki Flóvent frá Sindra og svo kom Balvin Borgarsson fyrir hönd Dalvíkur. Þeir mættu í spjall þar sem farið var yfir tímabil liðanna í ár, framhaldið og fleira. Bjarki Flóvent fór yfir mikilvægi Óla Stefáns og hvernig framhaldið lítur út á Höfn, hvernig liðið fór á run þegar hann kom...

Oct 04, 2022

Enski boltinn - Ótrúlegur viðsnúningur og sjokkerandi á Etihad

9. umferð ensku úrvalsdeildarinnar fór að mestu fram á laugardag og sunnudag. Skagamaðurinn Albert Hafsteinsson og Keflvíkingurinn Kristinn Guðbrandsson fóru yfir það helsta með Sæbirni Steinke. Arsenal er áfram á toppnum og Manchester City fylgir í kjölfarið. Þeir Albert og Kiddi eru Arsenal menn og var vel farið yfir þeirra sigur á nágrönnunum. Er Arsenal eina liðið sem getur barist við City? Áfram vandræði hjá Liverpool, Chelsea harkaði út sigur, meira stál hjá Everton og Newcastle með örugga...

Oct 03, 2022

Heimavöllurinn: Besta eftirpartýið

Keppni í Bestu deildinni er lokið þetta tímabilið og því ekki um annað að ræða en að gera mótið almennilega upp í boði Dominos, Heklu og Orku Náttúrunnar. Þau Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Guðrún Jóna Kristjánsdóttir og Ingunn Haraldsdóttir mættu í gott spjall og fóru ítarlega yfir sumarið ásamt Mist Rúnarsdóttur.

Oct 03, 2022

Útvarpsþátturinn - Ísland, DKÓ, Besta og enski

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 1. október. Elvar Geir og Benedikt Bóas halda um stýrið og skoða allt það helsta sem er í gangi í boltanum. Meðal annars er rýnt í landsleiki Íslands, jafnteflið í Tirana og þennan hörkuleik hjá U21 liðinu í Tékklandi. Landsliðsmaðurinn Davíð Kristján Ólafsson er á línunni. Farið er yfir fréttir og slúður, rætt um bikarúrslitaleikinn, spáð í spilin fyrir komandi leiki í Bestu deildinni og fjallað um enska boltann. Ingimar Helgi Finnsson gerir upp...

Oct 01, 2022

Ástríðan - Uppgjör í 2. deildinni - Gestir frá toppliðum og lið ársins

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar. Sverrir Mar og Óskar Smári fengu í heimsókn góða gesti frá toppliðunum tveimur. Guðmundur Axel frá Þrótti R. og Maggi Matt frá Njarðvík mættu í spjall þar sem farið var yfir tímabil liðanna í ár, framhaldið og fleira. Guðmundur Axel svaraði fyrir gagnrýni Ástríðunnar undanfarna mánuði auk þess sem hann fór vel yfir hvað er í vændum í Laugardalnum.Maggi Matt mætti með r...

Sep 30, 2022

Heimavöllurinn: Fram flaug upp í fyrstu, hverjar fara í Evrópureisu?

Keppni í 2. deild kvenna er lokið og ljóst er að Fram stendur uppi sem sigurvegari. Þjálfarar liðsins, þau Aníta Lísa Svansdóttir og Óskar Smári Haraldsson eru gestir Heimavallarins að þessu sinni en þau ræða sumarið og deildina sem hefur aldrei verið betri. Þá rýna gestirnir einnig í Meistaradeildarbaráttuna sem er framundan. Þátturinn er að sjálfsögðu í boði Orku Náttúrunnar, Heklu og Dominos.

Sep 27, 2022

Útvarpsþátturinn - Stóru fréttirnar að norðan, landsliðin og bestir í Bestu

Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta í boltanum. Risafréttirnar frá Akureyri eru fyrst á dagskrá. Arnar Grétarsson er hættur sem þjálfari KA og Hallgrímur Jónasson gerði þriggja ára samning. Örvar Arnarsson ræðir um landsleikinn gegn Venesúla, U21 landsleikurinn er til umfjöllunar, farið yfir kosningu á bestu leikmönnunum í Bestu, leigubílasögur úr íslenska boltanum og England er fallið niður í B-deild Þjóðardeildarinnar.

Sep 24, 2022

Ástríðan - 22. umferð - Síðasta yfirferð sumarsins

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar.Trúðarnir þrír komu saman og fóru yfir síðustu umferðina auk þess sem að umræðan færðist yfir í tímabilið sem heild.Meðal umræðuefnis:- Haukar enda í 9.sæti, ekki 10.- Bikarinn á loft á Höfn- Jarðtenging Sverris fyrir Kormák/Hvöt- Markakóngarnir- Síðasti leikur nokkurra Ástríðugoðsagna- Nýjir þjálfarar óskast fyrir norðan- KFG í 3.sæti þriðja árið í röð, hvers vegna?Hlu...

Sep 21, 2022

Davíð Þór Ásbjörnsson - Fimmti heilahristingurinn fyllti mælinn

Davíð Þór Ásbjörnsson þurfti að leggja skóna á hilluna fyrir rúmlega ári síðan, þá 29 ára gamall. Hann ræddi við Fótbolta.net í dag. Davíð fékk heilahristing í fimmta sinn á ferlinum í leik með Kórdrengjum gegn ÍBV og fann að það væri nóg komið.

Sep 20, 2022

Innkastið - Titillinn á hraðleið í Kópavog og FH í fallsæti

22. umferð Bestu deildarinnar fór fram um helgina. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn ræða um leikina. Stjarnan batt enda á taphrinuna og sendi FH í fallsæti, Leiknir vann botnslaginn og það er uppgjafartónn á Akranesi, Íslandsmeistaratitillinn er á hraðleið í Kópavoginn, Kjartan Henry settur út úr hóp hjá KR, KA að gera frábæra hluti, Eyjamenn sogast aftur niður og það var handboltaleikur í Úlfarsárdal. Í þættinum er einnig rætt um leikjadagskrána í tvískiptingunni, Lengjudeild...

Sep 19, 2022

Útvarpsþátturinn - Landsliðin, Jamaíka, Besta og enski

Útvarpsþátturinn 17. september. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Landsliðsverkefnin og hóparnir í brennidepli, U21 landsliðið á leið í umspil og A-landsliðið í mögulegan úrslitaleik í Albaníu. Heimir er kominn til Jamaíku, verið að tvískipta Bestu deildinn og Gunanr Ormslev ræðir um enska boltinn.

Sep 17, 2022

Enski boltinn - Norðrið gegn suðrinu í stjörnuleik

Gummi og Steinke settust niður í dag og tóku upp aukaþátt af Enski boltinn hlaðvarpinu.Það hefur ekkert verið spilað í ensku úrvalsdeildinni upp á síðkastið út af virðingu við drottninguna. Það má samt deila um það hversu mikil virðing það sé að spila bara ekki og hvort hún hefði viljað það.Í þættinum var aðallega rætt um skemmtilega hugmynd sem Todd Boehly, eigandi Chelsea, henti fram í gær um stjörnuleik í enska boltanum. Gummi og Steinke settu upp sín stjörnulið: Norðrið gegn suðrinu.

Sep 14, 2022

Ástríðan - 21. umferð - Allt klárt í öllum deildum, afsökunarbeiðni og rýnt í gamla spá

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar. Skytturnar þrjár mættar til þess að fara yfir liðna helgi þegar spiluð var 21.umferð í báðum deildum. Meðal umræðuefnis: - Víðismenn tapa tveimur í röð á heimavelli- Dalvík og Sindri tryggja sér sæti í 2.deild- Þjálfarinn byrjaði fyrir Kormák/Hvöt- Maggi Matt átti að fá rautt en skoraði svo þrennu- Julio Cesar skoraði fjögur á Reynismenn sem mættu til að tapa- ÍH örugg...

Sep 14, 2022
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android