Heimavöllurinn - Túr, bros og takkaskór - podcast episode cover

Heimavöllurinn - Túr, bros og takkaskór

Feb 23, 2023
--:--
--:--
Download Metacast podcast app
Listen to this episode in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episode description

Kynin er líffræðilega ólík en lengst af hefur lítið tillit verið tekið til þess er kemur að þjálfun í íþróttum. Flestar íþróttarannsóknir hafa verið miðaðar að körlum og íþróttabúnaður að mestu hannaður fyrir karllíkamann. Þetta er þó að breytast og mikil vitundarvakning er að eiga sér stað. Þema Heimavallarins að þessu sinni er þjálfun kvenna og gestir þáttarins sérfræðingar á því sviði. Það eru þær Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir og Katrín Ýr Friðgeirsdóttir. Báðar hafa þær kynnt sér þjálfun út frá ýmsum vinklum. Bára er bæði sjúkra- og knattspyrnuþjálfari og Katrín starfar sem styrktarþjálfari samhliða doktorsnámi í íþróttafræðum við HR. Þátturinn er sem fyrr í boði vina okkar hjá Orku Náttúrunnar og Dominos og við kunnum þeim bestu þakkir fyrir að styðja við umfjöllun um knattspyrnu kvenna.
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android