Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Innkastið - Mótlæti og mætir ekki í viðtöl

Innkastið eftir 13. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke. KR með nauðsynlegan sigur, Víkingur vann Aftureldingu naumlega, það hallar undan fæti hjá Vestra og ÍBV og Lárus Orri átti óskabyrjun sem þjálfari ÍA.

Jun 29, 2025

Útvarpsþátturinn - Besta deildin, TG9 og EM

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 28. júní. Umsjón: Elvar Geir og Valur Gunnars. Besta deildin er í aðalhlutverki og leikir gærdagsins gerðir upp. Lárus Orri Sigurðsson, nýr þjálfari ÍA, er á línunni og Tryggvi Guðmunds skoðar komandi leiki. Lengjudeildin er á sínum stað og Guðmundur Aðalsteinn er í beinni frá Sviss þar sem EM kvenna fer í gang á miðvikudag.

Jun 28, 2025

Tveggja barna móðirin sem leikur á sínu fjórða stórmóti fyrir Ísland

Dagný Brynjarsdóttir er ein besta fótboltakona sem Ísland hefur átt. Á því liggur enginn vafi. Hún er núna á leiðinni á sitt fjórða stórmót eftir að hafa eignast sitt annað barn. Dagný er elsti leikmaður íslenska liðsins og mesti reynsluboltinn en hún hefur spilað 118 landsleiki fyrir Íslands hönd og skorað í þeim 38 mörk. Dagný settist niður með fréttamanni Fótbolta.net í Serbíu og ræddi um ferilinn, móðurhlutverkið, Evrópumótið sem er framundan og sitthvað fleira.

Jun 27, 2025

Diljá og Karólína: Úr Krikanum á Evrópumótið með Íslandi

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Diljá Ýr Zomers eru tvær af þeim 23 sem valdar voru í EM-hóp Íslands. Þær eru á leið til Sviss um helgina og mótið hefst í næstu viku. Þær eru jafnaldrar og léku upp alla yngri flokkana saman með FH. Báðar stigu þær sín fyrstu skref í meistaraflokki með Fimleikafélaginu áður en þær fóru mismunandi leið. Núna eru þær saman í landsliðinu sem er á leið á stórmót; Karólína er að fara á sitt annað mót og Diljá sitt fyrsta. Þær settust niður með fréttamanni Fótbolta.net...

Jun 26, 2025

Turnar segja sögur: Ísland og Júgóslavía

Á níunda áratug síðustu aldar voru erlendir leikmenn enn fáir í íslenskum fótbolta. Með átökunum á Balkanskaganum fylgdi þó mikil breyting, þegar fjölmargir leikmenn og þjálfarar frá fyrrum Júgóslavíu leituðu hingað og hófu að leggja sitt af mörkum. Þeir færðu með sér djúpa þekkingu, fagmennsku og ástríðu sem hafði djúpstæð áhrif á íslenskan fótbolta. Margir þeirra áttu glæsilegan feril hér á landi og enn í dag má sjá áhrif þeirra bæði inni á vellinum og í þjálfun. Við rifjuðum upp þessa mikilvæ...

Jun 26, 2025

Grasrótin - 9. umferð, línurnar farnar að skýrast í neðri deildum

Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 9. umferð í 2. og 3. deild karla, 7. umferð í 4. deild og 6. umferð í 5 deild. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi og tölum um það.2. deild, 12:00, 3. deild, 40:20, 4. deild, 1:05:35, 5.deild, 1:23:50, Utandeild, 1:34:25.Þátturinn er í boði Asachat.is. Kíktu á Ásu til þess að vera viss sem fyrst.

Jun 25, 2025

Leiðin úr Lengjunni - Fjölnismenn sóttu langþráðan sigur

Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson og Sölvi Haraldsson.

Jun 24, 2025

Innkastið - Stuðningsmenn KR bauluðu á Hlíðarenda

Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Haraldur Örn í Innkastinu eftir 12. umferð Bestu deildarinnar. KR fékk skell gegn Val og stuðningsmenn KR létu óánægju sína í ljós, það voru læti í Kópavogi, Afturelding skoraði og vann á útivelli, Stjarnan á flugi, ekkert virðist geta bjargað ÍA og Gylfi átti góðan leik fyrir norðan.

Jun 23, 2025

Uppbótartíminn - Núna fer hausinn á EM

Það eru níu dagar í fyrsta leik Íslands á Evrópumótinu í Sviss. Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur Harðarson og Óskar Smári Haraldsson hita vel upp fyrir Evrópumótið í þætti dagsins af Uppbótartímanum. Hvernig eru andstæðingar Íslands og hverjar eiga vonir okkar og væntingar að vera? Einnig er aðeins talað um Bestu deildina fyrir langa EM-pásu sem er framundan.

Jun 23, 2025

Tveggja Turna Tal - Ásmundur Guðni Haraldsson

Ásmundur Guðni Haraldsson er maður margra hatta. Hann er aðstoðarskólameistari í Brekkubæjarskóla á Akranesi, aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins í knattspyrnu og landsliðsþjálfari Reitaboltalandsliðsins.Við Ási settumst niður og spjölluðum um væntanlegt Evrópumót, hvers vegna honum finnst svo gefandi að starfa með kvennalandsliðinu, liði sem hann hefur unnið með í yfir 100 landsleikjum og fórum yfir ferilinn frá því Guðjón Þórðar og Luka Luka Kostic gáfu honum sénsinn í KR.Ási sagði mér hvernig...

Jun 23, 2025

Útvarpsþátturinn - Þjálfaraskiptin á Skaganum

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 21. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Lárus Orri Sigurðsson er tekinn við ÍA en Jón Þór Hauksson, sem var látinn taka pokann sinn eftir síðustu umferð, er á línunni í þættinum. Fjallað er um Mjólkurbikarinn, Bestu deildina, Lengjudeildina og ýmislegt fleira.

Jun 21, 2025

Turnar Segja Sögur - Kamerún 1990

Grænu ljónin frá Kamerún breyttu knattspyrnuheiminum varanlega á HM á Ítalíu árið 1990. Roger Milla og félagar mættu, sáu og sigruðu en saga liðsins er um margt ótrúleg. Paul Biya, sem hefur verið við völd í Kamerún síðan 1982, fyrirskipaði að Roger Milla skyldi taka þátt í mótinu og þar með var það mál útrættMilla hafði þá þegar lagt skóna á hilluna, en ákvörðun forsetans reyndist snilldarleg. Við fórum yfir þessa mögnuðu sögu og rýndum í hvernig framganga ljónanna breytti fótboltaheiminum – bæ...

Jun 19, 2025

Uppbótartíminn - EM hópurinn og þrjú lið jöfn á toppnum

Það var nóg að ræða í Uppbótartímanum, hlaðvarpi um kvennaboltann á Íslandi, í dag. EM hópurinn var valinn síðasta föstudag og ljóst er hvaða 23 leikmenn verða fulltrúar Íslands á EM í Sviss. Hvaða leikmenn eru svekktastir með valið? Þá hefur Besta deildin ekki verið eins skemmtileg í mörg ár. Þrjú lið eru jöfn á toppnum og risi er í veseni. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur fóru yfir sviðið en einnig var aðeins snert á Lengjudeildinni og 2. deild í þættinum.

Jun 18, 2025

Innkastið - Fyrsti hausinn fokinn

Innkastið eftir elleftu umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Benedikt Bóas og Sæbjörn Steinke. Jón Þór Hauksson var látinn fara eftir tap ÍA gegn Aftureldingu, Karl Friðleifur átti að fá rautt spjald í sigri Víkings gegn KR, Blikar stukku yfir einnota grill og aðrar hindranir í Eyjum, Vestri vann KA, Vuk heldur áfram á flugi og Valsmenn bregðast enn og aftur þegar þeir fá tækifærið.

Jun 16, 2025

Tveggja Turna Tal - Úlfur Ágúst Björnsson

Úlfur Ágúst er einn af helstu sóknarmönnum FH auk þess að vera einn af fjölmörgum fyrirliðum Duke háskólans í norður Karólínu í Bandaríkjunum.Við ræddum saman um líf fótboltamannsins í Bandaríkjunum, möguleikann á að spila í MLS, Coach K og marg fleira. Eðaldrengur.Njótið vel!

Jun 16, 2025

Betkastið - Eru öll lið svona jöfn í neðri deildunum?

Hvað er eiginlega málið með að allir geta unnið alla og eru deildirnar að styrkjast? - Förum yfir allar neðri deildirnar - Nýjustu úrslit og umferðir - Hvað er að frétta í Utandeildinni? - Spurningar frá fans

Jun 16, 2025

Útvarpsþátturinn - Í návígi við Gulla Jóns og Bestu

Besta deildin fer aftur af stað. Elvar Geir og Tómas Þór í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 Gunnlaugur Jónsson, einn besti vinur þáttarins, kemur í heimsókn og skoðar komandi umferð í Bestu og ræðir meðal um hlaðvarpsþættina Návígi þar sem hann fylgir eftir sjónvarpsþáttunum A&B. Þá kemur landsliðið og HM félagsliða einnig til umræðu og Baldvin Borgarsson skoðar gang mála í Lengjudeildinni.

Jun 14, 2025

Fótbolta nördinn - Sigurvegarinn tekst á við þáttastjórnandann

Fótbolta Nördinn snýr aftur með þessum sérstaka þætti þar sem sigurvegarinn í fyrstu seríu, Ragnar Bragi Sveinsson, tekst á við þáttastjórnandann, undirritaðann Harald Örn Haraldsson. Þá var fenginn að gesta þáttastjórnanda en það er hann Daníel Óli Ólafsson frá geysivinsæla hlaðvarpinu Trivíaleikarnir.

Jun 12, 2025

Turnar Segja Sögur - Eric Cantona

Eric Cantona er einn af fyrstu erlendu leikmönnunum sem setti svip sinn á enska boltann. Eric ólst upp í helli, brenndi allar brýr að baki sér í Frakklandi en er einn af mikilvægustu leikmönnunum sem spilaði fyrir Sir Alex hjá Man Utd. Cantona er raðsigurvegari, söngvari, leikari og alger snillingur.Allt við King Cantona er áhugavert ! Góða skemmtun

Jun 11, 2025

Grasrótin - 7. umferð, tölum aðeins um neðrideildirnar

Grasrótin er nýr hlaðvarpsþáttur sem fjallar alfarið um neðri deildirnar á Íslandi.Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 7. umferð í 2. og 3. deild karla, 5. umferð í 4. deild og 4. umferð í 5 deild. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi og tölum um það.2. deild, 3:25, 3. deild, 38:50, 4. deild, 1:13:40, 5.deild, 1:38:50Þátturinn er í boði Asachat.is. Kíktu á Ásu til þess að vera viss sem fyrst.

Jun 10, 2025

Tveggja Turna Tal - Aron Ýmir Pétursson

Er þjálfun ofmetin? Er DNA-ið á skaganum betra en annarsstaðar? Hvernig nýta skagamenn allar þær lifandi goðsagnir sem alið hafa manninn í fótboltabæ Íslands og þótt víða væri leitað?Aron Ýmir er yfirþjálfari ÍA og við fórum yfir þetta allt og fleira til!

Jun 10, 2025

Leiðin úr Lengjunni - ÍR á toppinn og ekkert gengur upp í Árbænum

Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Sverrir Örn Einarsson.

Jun 07, 2025

Útvarpsþátturinn - Sigur á Hampden, Besta liðið og Gunnar Heiðar

Tómas Þór, Benedikt Bóas og Valur Gunnars í útvarpsþættinum Fótbolti.net laugardaginn 7. júní. Í fyrri hluta þáttarins er 3-1 sigur Íslands gegn Skotlandi gerður upp og valið úrvalslið Bestu deildarinnar hingað til á skemmtilegan hátt. Í seinni hlutanum kemur Gunnar Heiðar Þorvaldsson í heimsókn en hann er að gera mjög áhugaverða hluti sem þjálfari Njarðvíkur.

Jun 07, 2025

Turnar Segja Sögur - Írland frá Jackie Charlton til Heimis Hallgríms

Turnar segja sögur er nýr liður þar sem við Krissi setjumst niður og ræðum algjörlega tilgangslausar staðreyndir úr knattspyrnusögunni – sem eru samt óskiljanlega fastar í hausnum á okkur.Í þessum þætti förum við yfir sögu írska landsliðsins, allt frá tímum Jack Charlton til Heimis Hallgríms. Charlton masteraði „the granny rule“ og fékk blessun frá Jóni Páli Páfa í Vatíkaninu. Við kíkjum líka á skrautlegan tíma Mick McCarthy og Roy Keane og rifjum upp nokkrar gullmolarasögur af stórkostlegum kar...

Jun 06, 2025

Uppbótartíminn - Þurfum að vinna leikina á EM

Ísland endaði í þriðja sæti í riðli sínum í Þjóðadeildinni og fer í umspil þar. Næsta verkefni er EM í Sviss og þar þurfum við að fara að vinna einhverja leiki, en stelpurnar hafa núna farið í gegnum tíu leiki í röð án sigurs. Guðmundur Aðalsteinn fór yfir síðasta landsliðsglugga og framhaldið með þeim Orra Rafni Sigurðarsyni og Gylfa Tryggvasyni. Icelandair, TM, Lýsi, Landsbankinn og Hertz styðja umfjöllun Fótbolta.net um kvennaboltann.

Jun 04, 2025

Leiðin úr Lengjunni - Leiknismenn rifu í gikkinn og afgerandi úrslit

Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Sverrir Örn Einarsson.

Jun 03, 2025
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android