Fotbolti.net
Last refreshed: ⓘ

Episodes
Tveggja Turna Tal - Þorkell Máni Pétursson
Þorkell Máni hefur marga fjöruna sopið. Máni kom og við ræddum þjálfaraferilinn hans, stjórnarsetuna í KSI og það að vera fótboltapabbi. Mögulega ræddum við líka um Leeds og pappakassa!Góða skemmtun.
Freysi á heimavelli - Hvernig er líf íslenska þjálfarans í Bergen?
Fréttamaður Fótbolta.net er kominn til Bergen í Noregi og fyrsta verk á dagskrá var að hitta Frey Alexandersson, þjálfara Brann, og ræða við hann um líf þjálfarans í Bergen - þessari fallegu borg. Það er óhætt að segja að Brann er flaggskip borgarinnar og hér halda allir og ömmur þeirra með félaginu. Í þessu langa spjalli fer Freyr yfir fyrstu mánuðina hjá Brann og lífið hér í borginni. Hann er ekki enn búinn að koma sér almennilega fyrir en það kemur með tímanum. Það var svo gott veður í Bergen...
Útvarpsþátturinn - Boltinn, Brann og bestu barirnir
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 31. maí. Elvar Geir, Valur Gunnars og Benedikt Bóas. Sævar Atli Magnússon, nýjasti leikmaður Brann, kom í upphafi þáttar og svo var farið yfir Lengjudeildina og Bestu deildina. Garðar Ingi frá FH kom, heyrt er í hressum hlustendum og bestu barirnir í Bestu deildinni valdir. Biggi hjá ÍTF ræðir um leiðinlega fólkið sem vill banna bjór á vellinum. Þá er Hannes Þór Halldórsson á línunni og ræðir um Systraslag og íslenska kvennalandsliðið.
Innkastið - Bitlausir Blikar og galopnir KR-ingar
Innkastið eftir 9. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Haraldur Örn, fréttamaður Fótbolta.net og stuðningsmaður KA. ÍA, KA og ÍBV unnu öll í þessari umferð og náðu þannig að snúa deildinni á hvold. Sóknarleikurinn er áhyggjuefni Breiðabliks sem tapaði öðrum leiknum í röð. Víkingur vann leiðinlegan toppslag og Valsmenn nálgast.
Grasrótin - 4. umferð, Baldvin Borgars í mánaðarfrí
Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 4. umferð í 2. og 3. deild karla, 3. umferð í 4. deild og 2. umferð í 5 deild. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi.2.deild, 2:50, 3.deild, 32:00, 4.deild, 1:06:45, 5.deild, 1:26:10Þátturinn er í boði Ásachat.is, vertu viss sem fyrst.
Hugarburðarbolti Uppgjörið í Enska !
Það komu frábærir gestir í uppgjörs þátt Hugarburðarbolta. Villi Neto og Davíð Guðbrands gerðu upp tímabilið með okkur og vinningshafar voru krýndir. Þökkum kærlega fyrir tímabilið og heyrumst á því næsta.
Sveindís fer yfir ákvörðunina óvæntu - Valdi borg englanna
Landsliðskonan vinsæla Sveindís Jane Jónsdóttir gekk á dögunum í raðir Angel City í Bandaríkjunum. Þetta voru skipti sem komu nokkuð mikið á óvart.Hún hefur síðustu ár verið á mála hjá Wolfsburg í Þýskalandi en hefur nú nýjan kafla í borg englanna í Bandaríkjunum í sumar. Þetta er áhugaverð.Sveindís settist niður með fréttamanni Fótbolta.net í Þrándheimi í Noregi í dag og ræddi þar betur um þessi áhugaverðu skipti. Sveindís gerði einnig upp tímann hjá Wolfsburg og ræddi auðvitað um landsliðið lí...
Hugarburðarbolti GW 38 Sturlaður lokasprettur í enska!
Newcastle, Aston Villa og Nottingham Forest töpuðu öll sínum leikjum í baráttunni um meistaradeildarsætin. Evrópudeildarmeistarar Tottenham steinlágu á heimavelli gegn Brighton 1-4 Man Utd kvöddu stuðningsmenn sína með sigri og á Anfield fór Englandsbikarinn á loft.
Leiðin úr Lengjunni - Hamingja á Húsavík og fúlir Fylkismenn
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Sverrir Örn Einarsson.
Uppbótartíminn - Nýtt lið á toppnum og mikilvægir landsleikir
Það voru vendingar í síðustu umferð Bestu deildar kvenna eins og rætt er um í nýjum þætti af Uppbótartímanum, sérstökum hlaðvarpsþætti um kvennaboltann. Þróttur Reykjavík er á toppnum eftir að FH tókst að leggja Breiðablik að velli í Kaplakrika. Rætt er um síðustu umferð sem er að baki og einnig um mikilvæga leiki sem eru framundan hjá kvennalandsliðinu gegn Noregi og Frakklandi. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur sjá um þáttinn en Hertz er stoltur stuðningsaðili kvennaboltans á Fótbolta.net....
Enski boltinn - Rándýr dómaramistök og bikar á loft á Anfield
Liverpool er Englandsmeistari. Það er löngu vitað. En bikarinn fór á loft á Anfield í gær. Lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar var annars mjög áhugaverð þar sem dómaramistök á Old Trafford höfðu mikið að segja í Meistaradeildarbaráttunni. Hrafn Kristjánsson, stuðningsmaður Liverpool, og Haraldur Örn Haraldsson, gerðu lokaumferðina og tímabilið upp ásamt Guðmundi Aðalsteini.
Tveggja Turna Tal - Óskar Smári Haraldsson
Óskar Smári Haraldsson er bóndasonur úr Varmahlíð. Hann var tvisvar sinnum valinn í lið umferðarinnar í Lengjudeildinni fyrir rúmum áratug síðan og það var hápunktur ferilsins sem var sjálfmiðaður, að hans mati!Kristján Guðmundsson tók í burtur úr honum hrokann og kenndi honum auðmýkt, leikgreiningu og ýmislegt annað og undanfarin fjögur ár hefur Óskar Smári unnið þrekvirki með kvennalið Fram. Við fórum yfir þetta allt og miklu fleira í þessum þætti!Góða skemmtun.
Innkastið - Blikar lúta í gras og Davíð Smári finnur lausnir
Innkastið eftir 8. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Óskar Smári, þjálfari kvennaliðs Fram. Víkingur tók toppsætið, Blikar töpuðu verðskuldað fyrir FH og Vestri kom til baka með stæl gegn Stjörnunni. Skagamenn eru á botninum en KA náði í mikilvægan sigur.
Útvarpsþátturinn - Vond vörn og uppgjör við enska hringborðið
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 24. maí. Umsjón: Tómas Þór og Elvar Geir. Íslenski boltinn í fyrri hálfleik þáttarins. Baldvin Borgarsson ræðir um 8. umferð Bestu deildarinnar, leikur KR og Fram er gerður upp og einnig rætt um Lengjudeildina. Enska hringborðið í seinni hálfleik þáttarins. Kristján Atli gerir upp tímabilið í ensku úrvalsdeildinni, skoðar liðin sem eru að koma upp og um úrslitaleik Evrópudeildarinnar.
Grasrótin - 3. umferð, neðri deildirnar í stuði
Grasrótin er nýr hlaðvarpsþáttur sem fjallar alfarið um neðri deildirnar á Íslandi.Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 3. umferð í 2. og 3. deild karla, 2. umferð í 4. deild og 1. umferð í 5 deild. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi.2. deild, 2:10, 3. deild, 37:20, 4. deild, 1:10:00, 5.deild, 1:29:20
Enski boltinn - Fyrsti bikar Tottenham í 17 ár
Það var stór stund fyrir Tottenham í gær þegar liðið fór með sigur af hólmi í Evrópudeildinni. Spurs lagði Manchester United að velli í Bilbao. Þessu var vel fagnað hjá stuðningsmönnum Tottenham enda fyrsti bikar félagsins í 17 ár. Hörður Ágústsson og Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmenn Tottenham, gerðu stóru stundina upp í skemmtilegum hlaðvarpsþætti.
Leiðin úr Lengjunni - Þéttur pakki eltir Keflvíkinga á toppnum
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Sverrir Örn Einarsson.
Hugarburðarbolti GW 37 Lokaleikur í Liverpool !
Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn! Nottingham Forest eru ennþá í möguleika á meistaradeildar sæti. Brighton lögðu meistara Liverpool. Aston Villa með lífsnauðsynlegan sigur á Tottenham. Fulham með flottan útisigur á Brentford. Og Jaime Vardy kvaddi King Power með stæl! Declan Rice tryggði Arsenal í meistaradeildina með 1-0 sigri gegn Newcastle.
Tveggja Turna Tal - Jóhann Kristinn Gunnarsson
Jóhann Kristinn Gunnarsson, Jói Belladona, er þjálfari Þór/KA í Bestu deild kvenna. Jói hefur þjálfað rétt tæpa 500 leiki í meistaraflokki hjá tveimur félögum. Við ræddum margt. Húsavík, tæklinguna á Mark Duffield, titilinn með Þór/KA 2012, kvennalandsliðið og feimnir blaðamanna við að spyrja réttu spurninganna á réttum stöðum!
Innkastið - Brakandi blíða og Blikar tróna á toppnum
Innkastið eftir 7. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og sérstakur gestur er Magnús Þórir Matthíasson. Blikar tróna einir á toppnum eftir kvöldið, vandræði ÍA halda áfram, leiðinlegasti leikur sumarsins var í Eyjum, markaregn í Mosó og Lengjudeildarhorn.
Uppbótartíminn - Valur að ganga í gegnum dimman dal
Það er komið að þætti tvö af uppbótartímanum, nýjum hlaðvarpsþætti um kvennaboltann hér á Fótbolta.net. Valur er í mikilli lægð í Bestu deild kvenna þessa stundina en þær töpuðu 4-0 á móti Breiðabliki síðasta föstudag. Valsliðið er aðeins með sjö stig eftir sex leiki og er með -2 í markatölu. Hvað er eiginlega í gangi hjá Hlíðarendafélaginu? Rætt er um það og margt annað í þættinum. Breiðablik og Þróttur eru á toppnum, Víkingur er í fallsæti og það eru áhugaverðir hlutir í gangi. Guðmundur Aðals...
Enski boltinn - Besti dagur lífsins og Sunderland í dauðafæri
Crystal Palace varð bikarmeistari á laugardag eftir sigur á Manchester City. Þetta er fyrsti stóri titillinn í sögu Crystal Palace. Daníel Örn Sólveigarson, stuðningsmaður Crystal Palace, kom í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fór yfir þennan magnaða sigur. Bernharð Antoníusson, stuðningsmaður Sunderland, er með honum í þættinum en félagið er í séns á að komast upp í ensku úrvalsdeildina eftir að hafa gengið í gegnum dimma dali síðustu árin.
Betkastið - Heiðar Helguson & Oliver Heiðarsson
The greatest Barclays Man alive Heiðar Helgusson og synirnir hans Aron og Oliver Heiðarssynir mættu í settið í svokallaðan feðgaþátt! - Ferilinn ræddur - Góðar leikmannasögur - Enska úrvalsdeildin á tþeim tíma - Oliver Heiðars leikmaður ÍBV og markmið hans - Hver er líklegastur? - Yfirheyrsla frá fans
Útvarpsþátturinn - Meistarar slegnir út og Arnór Gauti gestur
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 17. maí. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars fara yfir fótboltavikuna hér á Íslandi; meistarar féllu úr leik í Mjólkurbikarnum, áhugaverðir leikir framundan í Bestu deildinni og Lengjudeildin ætlar að verða galopin. Gestur þáttarins kemur úr röðum Íslandsmeistara Breiðabliks en það er Arnór Gauti Jónsson, miðjumaðurinn sem lék lykilhlutverk í Íslandsmeistaratitlinum í fyrra.
Grasrótin - 2. umferð, Vogarnir í stuði og 4. deild farin af stað
Grasrótin er nýr hlaðvarpsþáttur sem fjallar alfarið um neðri deildirnar á Íslandi.Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 2. umferð í 2. og 3. deild karla og 1. umferð í 4. deild karla. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi.2. deild, 1:00, 3. deild, 32:50, 4. deild, 1:05:20.
Tveggja Turna Tal - Samantha Smith
Samantha Smith afrekaði það að vera valinn besti leikmaður Lengjudeildarinnar og vera valin í lið ársins í Bestu deildinni í fyrra, það er afrek!Samantha kom til mín á Ölhúsið í Hafnarfirði og við ræddum uppvaxtarárin, tímann í Texas, hvernig hún svo endaði á Reyðarfirði og í kjölfarið á Breiðablik. Sammy svarar því svo til hvort hún hafi áhuga á að spila fyrir Íslands hönd ef einhver á þingi mætir í vinnuna og græjar vegabréf fyrir hana. Þátturinn er að sjálfsögðu í boði Budvar, Keilir Golf Clu...
Hugarburðarbolti GW 36 Man Utd og Tottenham í 16 og 17 sæti!
Liverpool og Arsenal gerðu 2-2 jafntefli á Anfield í stórleik helgarinnar. Newcastle upp í 3 sætið eftir sterkan sigur gegn Chelsea. Man City misstigu sig á suðurströndinni gegn Southampton. Ollie Watkins með sigurmark á útivelli gegn Bournemouth. Nottingham Forest gerði einungis jafntefli 2-2 gegn föllnum Leicester liðum. Kevin Schade heldur áfram að spila vel og Eze var kóngurinn á Tottenham Hotspur stadium.
Leiðin úr Lengjunni - Keflvíkingar brjálaðir og Grindvíkingar snúa heim
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Sverrir Örn Einarsson.
Tveggja Turna Tal - John Andrews
John Andrews hefur þjálfað í Mosfellsbæ, á Húsavík, í Indlandi, Bandaríkjunum og nú í hamingjunni í Víkinni. John er fæddur í Cork í Írlandi, er frábær trúbador, stórskemmtilegur náungi og er hluti af Víkingsliðinu sem afrekaði það sem ekkert annað lið hefur afrekað í íslenskum kvennafótbolta - að verða bikarmeistari sem Lengjudeildarlið. Við ræddum þetta, Roy Keane, Matt Le Tissier, Keiko og margt fleira í þessum hlaðvarpsþæti!