Innan við tvær vikur eru í það að Besta deild karla rúlli af stað og upphitun okkar er komin á fullt. ÍBV er spáð áttunda sæti deildarinnar. Til þess að ræða ÍBV þá mætti Páll Magnússon, fyrrum alþingismaður og fyrrum útvarpsstjóri, á skrifstofu Fótbolta.net. Páll er mikill stuðningsmaður ÍBV og hefur verið það alla tíð. Hann reynir að mæta á alla leiki og styðja sitt lið. Hann er bjartsýnn fyrir tímabilinu. Þá hringdi Sæbjörn Þór Steinke til Vestmannaeyja og spjallaði við Eið Aron Sigurbjörnsso...
Mar 31, 2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpi þessa vikuna. Elvar Geir og Tómas Þór stýra þættinum en sérstakur sérfræðingur er Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar og fyrrum ritstjóri á .Net. Rætt er um stórfrétt vikunnar en Arnar Þór Viðarsson var rekinn sem landsliðsþjálfari í gær. Hver tekur við? Þá er rýnt í liðin fyrir Bestu deildina í sumar. Liðunum er skipt upp í þrjá flokka í kerfinu 4-4-4; toppbaráttuna, miðjuliðin og fallbaráttuna.
Mar 31, 2023
Ólafur Ingi Skúlason ræddi um U19 ára landsliðið sem tryggði sér sæti í lokakeppni EM í vikunni. Ólafur er þjálfari liðsins og fór yfir milliriðilinn, umgjörðina, uppleggið, hárlitinn og allt mögulegt í kringum afrekið magnaða. „Ég held að enginn fyrir fram hafi búist við því að við stæðum uppi sem sigurvegarar í riðlinum. Þetta er miklu stærra en margir átta sig á," sagði Ólafur m.a. í þættinum. Til þess að komast í lokakeppnina þurfti að enda í efsta sæti í riðlinum sem haldinn var á Englandi....
Mar 31, 2023
Innkastið hitar upp fyrir Bestu deildina með hlaðvarpsviðtölum við þjálfara þeirra þriggja liða sem spáð er efstu sætum Bestu deildarinnar, Í þætti tvö er Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Íslandsmeistara Breiðabliks, gestur og fer yfir undirbúning Kópavogsliðsins og samkeppnina sem liðið fær í sumar Í spjallinu er einnig rætt um Evrópudrauma, markmið Óskars í þjálfun, árangur U19 liðsins og fleira. Umsjónarmaður: Elvar Geir Magnússon.
Mar 30, 2023
Frömurum er spáð 9. sæti í Bestu deildinni í ár, þremur sætum ofar en í fyrra. Til þess að ræða um málefni Fram kom sagnfræðingurinn Stefán Pálsson í spjall. Hann fór yfir síðustu ár hjá Fram, þjálfarann Jón Sveinsson og ýmislegt annað skemmtilegt. Hann er á því að 5. sætið sé fínasti árangur ef Framarar taka bikarinn. Seinni hluti þáttarins er svo símaviðtal við sautján marka manninn Guðmund Magnússon sem átti frábært tímabil í fyrra.
Mar 30, 2023
Innkastið hitar upp fyrir Bestu deildina með hlaðvarpsviðtölum við þjálfara þeirra þriggja liða sem spáð er efstu sætum Bestu deildarinnar, Í fyrsta upphitunarþættinum er Arnar Gunnlaugsson, þjálfari bikarmeistara Víkings, gestur og ræðir um komandi tímabil og undirbúning sinna manna. Í spjallinu er einnig rætt um auglýsingu Bestu deildarinnar, landsliðið, Burnley og fleira. Umsjónarmaður: Elvar Geir Magnússon.
Mar 29, 2023
Tólf dagar eru í Íslandsmót og var Keflavík dag spáð 10. sætinu í sumar. Til þess að ræða málefni Keflavíkur voru þeir Frans Elvarsson, reynslumesti leikmaður liðsins og stuðningsmaðurinn Joey Drummer. Leikmanna- og stuðningsmannavinkilinn tekinn, breytingarnar á hópnum, markmiðin í sumar, væntingarnar og ýmislegt annað. Frans flutti á menntaskólaaldri til Njarðvíkur frá Hornafirði á sínum tíma. Hann segir frá því og ákvörðuninni að fara í Keflavík í kjölfarið.
Mar 29, 2023
Innan við tvær vikur eru í það að Besta deild karla rúlli af stað og upphitun okkar er komin á fullt. Fylki er spáð ellefta sæti deildarinnar. Fylkismenn eru í æfingaferð og því var tekið á það ráð að fá stuðningsmann í sett til þess að ræða um Fylkisliðið. Kristján Gylfi Guðmundsson, yngri flokka þjálfari og stuðningsmaður, mætti á skrifstofu Fótbolta.net og fór yfir málin. Þá var hringt í Ragnar Braga Sveinsson og staðan tekin á liðinu í æfingaferðinni. Óhætt er að segja að fyrirliði þeirra Fy...
Mar 28, 2023
Aldrei hefur íslenskur þjálfari verið í eins stóru starfi og Milos Milojevic er í núna. Milos, sem er með íslenskan ríkisborgararétt, kom fyrst til Íslands árið 2006 til að spila með Hamri. Hann spilaði svo með Ægi og Víkingi Reykjavík. Síðar meir varð hann aðstoðarþjálfari Ólafs Þórðarsonar hjá Víkingi og svo aðalþjálfari. Hann stýrði Breiðabliki áður en hann fluttist búferlum til Svíþjóðar. Hann hefur unnið sig hratt upp stigann og stýrði Malmö, sigursælasta félagi Svíþjóðar, áður en hann tók ...
Mar 28, 2023
Íþróttafréttamaðurinn Andri Már Eggertsson, betur þekktur sem Nablinn, var í yfirvinnu á skrifstofu Fótbolta.net í dag. Hann ræddi ekki bara um HK því hann tók líka landsliðsumræðu með Guðmundi Aðalsteini og Sæbirni Steinke. Íslenska karlalandsliðið var að klára sinn fyrsta glugga í undankeppni EM 2024. Liðið vann í gær stærsta sigur sinn í keppnisleik frá uppahafi er liðið vann 7-0 sigur á Liechtenstein. Þrátt fyrir það fær glugginn falleinkunn þar sem liðið féll harkalega á stóra prófinu gegn ...
Mar 27, 2023
Tvær vikur í Íslandsmót og tími til kominn að hita almennilega upp fyrir Bestu deildina. HK er spáð 12. sætinu í sumar og til þess að ræða málefni HK voru stuðningsmennirnir Andri Már Eggertsson og Árni Þórður Randversson. Einhverjir kannast við Andra (@nablinn) frá Stöð 2 Sport þar sem hann tekur reglulega viðtöl í kringum íþróttakappleiki. Árni er svo einn af þáttarstjórnendum Punkts og basta þáttarins - hlaðvarpsþáttur sem fjallar um ítalska boltann. Leifur Andri Leifsson, fyrirliði HK, var þ...
Mar 27, 2023
Srdjan Tufegdzic er þjálfari sænska liðsins Öster sem spilar í B-deildinni. Liðið hefur verið lengi í næstefstu deild en setur stefnuna á efstu deild. Á síðasta tímabili fór liðið í umspilið um sæti í efstu deild en tapaði þar. Stefnan er sett á sæti í Allsvenskan á komandi tímabili. Túfa, eins og hann er alltaf kallaður, er Serbi sem kom fyrst til Íslands árið 2006 og lék með KA. Hann lagði skóna á hilluna tímabilið 2012 og var þá farinn að þjálfa hjá KA. Hann var aðstoðarmaður Bjarna Jóhannsso...
Mar 26, 2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Tómas Þór og Benedikt Bóas sigla flaggskipinu þessa vikuna og með þeim er Baldur Sigurðsson. Farið er yfir landsleikinn, nýja þáttinn hjá Baldri og Bestu deildina sem er handan við hornið.
Mar 25, 2023
Ísland fór ekki vel af stað í undankeppni EM 2024 í gær þar sem liðið tapaði 3-0 fyrir Bosníu í Senica. Leikurinn var ekki góður hjá íslenska liðinu, bara alls ekki. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke hringdu til Svíþjóðar í dag og spjölluðu við Einar Guðnason, fyrrum aðstoðarþjálfara Víkings, um vonbrigðin í gær. Farið var yfir uppstillinguna á liðinu, frammistöðu liðsins í leiknum og framtíð Arnars Þórs Viðarssonar sem landsliðsþjálfara ásamt mörgu fleiru. Þetta var einn af úrslitalei...
Mar 24, 2023
Heimavöllurinn er hokinn af reynslu að þessu sinni og teiknar upp ótímabæra Lengjudeildarspá þegar 40 dagar eru í mót. Fyrrum landsliðskonurnar og þjálfararnir Guðrún Jóna Kristjánsdóttir og Rakel Logadóttir eru gestir þáttarins að þessu sinni og fara yfir spánna ásamt Mist Rúnarsdóttur.
Mar 22, 2023
Það var skemmtileg helgi í fótboltanum á Englandi að klárast í gær, en Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Steinke fara yfir hana í hlaðvarpinu Enski boltinn. Hörður Ágústsson, stuðningsmaður Tottenham, kíkti á skrifstofu Fótbolta.net í dag og greindi eldræðu Antonio Conte á fréttamannafundi um liðna helgi. Conte var brjálaður eftir 3-3 jafntefli gegn Southampton í ensku úrvalsdeildinni, en Tottenham hefur verið mikið upp og niður upp á síðkastið og hefur verið áhugavert að ræða stöðu félagsins. Ein...
Mar 20, 2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 18. mars. Umsjón Elvar Geir og Tómas Þór. Rætt um Albertsmálið sem hefur tröllriðið öllu og landsliðsvalið fyrir fyrstu leikina í undankeppni EM. Það er áfall að Sverrir Ingi Ingason verður ekki með. Jóhannes Karl Guðjónsson aðstoðarlandsliðsþjálfari er í viðtali. Hitað upp fyrir Bestu deildina. Hallgrímur Jónasson þjálfari KA er kokhraustur fyrir sumrinu og ætlar að reyna að vinna mótið.
Mar 18, 2023
Magnús Geir Eyjólfsson, fréttamaður á RÚV, er gestur í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag. Hann settist niður með Gumma og Steinke og fór yfir stöðuna. Magnús Geir er stuðningsmaður Everton en það er ekki auðvelt í dag og hefur ekki verið síðustu árin. Það ríkir mikið stefnuleysi hjá félaginu og því er illa stjórnað. Í þættinum í dag var farið yfir stöðuna hjá Everton og þá var farið yfir leiki vikunnar í Evrópukeppnum og í ensku úrvalsdeildinni. Arsenal, topplið ensku úrvalsdeildarinnar, féll úr l...
Mar 17, 2023
Sævar Atli Magnússon fékk að vita á mánudaginn að hann yrði í landsliðshópnum fyrir komandi landsleiki í undankeppni EM. Þetta er í fyrsta sinn sem Sævar er í A-landsliðshóp þegar um keppnisleiki er að ræða, en hann spilaði sína fyrstu landsleiki í janúar. Hann var þá kallaður inn í hópinn eftir að upprunalegi hópurinn hafði verið tilkynntur. Hann hefur að undanförnu spilað vel í Danmörku, skoraði tvö mörk í sigri Lyngby gegn Midtjylland um liðna helgi. Lyngby rær lífróður í baráttunni um að hal...
Mar 15, 2023
Það eru 6 vikur í að flautað verði til leiks í Bestu deild kvenna og komið að því að opinbera ótímabæra spá Heimavallarins þetta árið. Þau Jón Stefán Jónsson og Lilja Dögg Valþórsdóttir mæta og fara yfir spánna ásamt Mist Rúnarsdóttur.
Mar 14, 2023
Í næstu viku hefur Ísland leik í undankeppni EM þegar leikið verður gegn Bosníu/Hersegóvínu í borginni Zenica. Ejub Purisevic er frá Bosníu og er sérstakur gestur í Innkastinu. Hann ræðir við Elvar Geir og Sæbjörn Steinke um komandi leik. Íslenska liðið og það bosníska eru til umræðu og rýnt í möguleikana. Auk þessara liða eru Portúgal, Slóvakía, Liechtenstein og Lúxemborg í riðlinum en tvö efstu liðin tryggja sér sæti í lokakeppni EM í Þýskalandi 2024. Möguleikar Íslands eru því nokkuð góðir en...
Mar 14, 2023
Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke hringdu símtal á Suðurlandið til Ingimars Helga Finnssonar, litlu flugvélarinnar, til þess að ræða leiki helgarinnar í enska boltanum. Litla flugvélin er að glíma við veiruna skæðu og náði því að fylgjast vel með boltanum um helgina. Tottenham-menn fögnuðu óvæntu tapi Liverpool, Arsenal rann svo sannarlega ekki á bananahýði og Manchester United olli vonbrigðum aðra helgina í röð. Þetta er á meðal þess sem rætt er um í þættinum í dag. Þá er einnig spjal...
Mar 13, 2023
Emil Pálsson þurfti að leggja skóna á hilluna í fyrra eftir að hafa farið í hjartastopp á æfingu með FH. Þetta var í annað sinn á stuttum tíma þar sem Emil fór í hjartastopp í fótbolta. Emil mætti í dag á skrifstofu Fótbolta.net, fór yfir feril sinn og hvernig hann endaði. „Þetta fer eftir því hvernig maður horfir á hlutina. Ég þurfti að horfa á þetta þannig að ég væri að velja á milli þess að vera á lífi eða að vera í fótbolta. Það er mjög auðvelt val, ég tek það að vera á lífi," segir Emil í s...
Mar 13, 2023
Elvar Geir, Tómas Þór og Ingó Sig fara yfir síðustu ótímabæru spánna fyrir Bestu deildina. Það styttist í lykilleik gegn Bosníu. Leikmenn Íslands eru heitir í aðdraganda landsleikja, verður Albert valinn? Þá er Lineker málið skoðað og erlendar fréttir. Útvarpsþátturinn 11. mars.
Mar 11, 2023
Ólafur Þór Jóelsson, þáttastjórnandi GameTíví, var á línunni frá Kóngsins Köben í hlaðvarpsþættinum Enski boltinn. Þar ræddi hann um vandamál Tottenham sem núna hrannast upp. Tími Antonio Conte virðist á enda hjá félaginu en hver á þá að taka við stjórnartaumunum? Rætt var við Óla um leikinn gegn AC Milan, frammistöðu Oliver Skipp, viðtalið við Richarlison, framtíð Harry Kane og margt fleira. Annars var rætt um Meistaradeildina, Evrópudeildina - þar sem Man Utd og Arsenal eru bæði í fínum málum ...
Mar 10, 2023
Liverpool vann sögulegan risasigur gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni. Til þess að ræða leikinn og aðra leiki helgarinnar fékk Sæbjörn Steinke Framarana Óskar Smára Haraldsson og Guðmund Magnússon. Af hverju vann Liverpool 7-0? Rætt um varnarmanninn Antony, fyrirliðann Bruno Fernandes, fluggírinn hjá Liverpool og uppgjöf gestanna á Anfield í gær. Daginn áður vann Arsenal frábæran endurkomusigur gegn Bournemouth og er meistarabragur á Skyttunum. Manchester City heldur þó áfram pressu ...
Mar 06, 2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 4. mars. Umsjón: Elvar Geir og Benedikt Bóas. Farið yfir fréttirnar í íslenska boltanum, úrslit vikunnar í Lengjubikarnum og rætt um komandi undankeppni EM hjá íslenska landsliðinu sem mætir Bosníu síðar í þessum mánuði. Heimir Guðjónsson þjálfari FH er gestur og ræðir um komandi tímabil í Bestu deildinni. Þá er hitað upp fyrir Liverpool - Man Utd.
Mar 04, 2023
Það var farið yfir FA-bikarinn, ensku úrvalsdeildina og margt fleira í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag. Sæbjörn Þór Steinke er mættur aftur heim eftir glæsiferð til Englands. Hann sagði ferðasögu í þættinum þar sem hann og Guðmundur Aðalsteinn fóru yfir málin. Rætt var um úrslitin í FA-bikarnum í gær, þar á meðal óvæntan sigur Grimsby gegn Southampton. Markaskorari Grimsby, Gavan Holohan í leiknum hefur einnig spilað fyrir Hull en það eru bæjarnöfn sem eiga óneitanlega stóran sess í fiskveiðisög...
Mar 02, 2023
Fótboltabræðurnir Danijel Dejan og Nikola Dejan Djuric eru gestir í Enski boltinn hlaðvarpinu að þessu sinni. Þeir settust niður með Guðmundi Aðalsteini á þessu mánudagskvöldi og fóru yfir helgina í enska boltanum. Það var nóg að ræða, þá helst úrslitaleikur enska deildabikarsins í gær. Danijel er stuðningsmaður Chelsea en hann er tilbúinn að styðja við bakið á Graham Potter þrátt fyrir slakt gengi að undanförnu. Chelsea tapaði gegn Tottenham um helgina. Nikola er aðallega stuðningsmaður Real Ma...
Feb 27, 2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 25. febrúar. Umsjón Elvar Geir og Tómas Þór. Farið yfir leikina í Lengjubikarnum og burðarefni þáttarins er ótímabær spá fyrir Lengjudeildina. Sigurður Heiðar Höskuldsson, aðstoðarþjálfari Vals, er sérstakur sérfræðingur og skoðar öll lið deildarinnar. Í lok þáttarins er aðeins skoðað hvað er í gangi í enska boltanum um helgina.
Feb 25, 2023