Í þættinum er íslenska landsliðið í aðalhlutverki og við gerum upp þennan 4-2 tapleik gegn Albaníu í gær. Skoðum m.a. frammistöðu einstakra leikmann og möguleika okkar í riðlinum. Elvar Geir, Magnús Már og Tómas Þór eru í Innkasti dagsins. Meðal umræðuefna: Vonin enn góð þrátt fyrir úrslitin, Albanía betra lið en margir virðast halda, samfélagsmiðlar grimmir, Hjörtur fær að heyra það, Birkir Már í kuldanum, innkoma Kolbeins, meiðsli Kára, aldur liðsins, frammistaða Willums með U21 landsliðinu og...
Sep 11, 2019
Innkastið var tekið upp á Laugardalsvelli strax eftir sigur Íslands gegn Moldóvu í undankeppni EM. Magnús Már, Gunni Birgis og Elvar Geir gerðu upp leikinn. Freyr Alexandersson aðstoðarlandsliðsþjálfari mætti í spjall. Meðal umræðuefna: Mark Kolbeins, samkeppnin um markvarðarstöðuna, staða Birkis Más, breyttar aðstæður Arons Einars, frábær frammistaða Ara Freys, óþægilegar fyrstu mínútur leiksins, tóm sæti á Laugardalsvelli, Davíð Snorri í talstöðinni, sundlaugaspjall og komandi leikur gegn Alba...
Sep 07, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Guðmundur Benediktsson kom í heimsókn í þáttinn og ræddi um helstu fótboltamálin við Elvar Geir og Benedikt Bóas. Minning Atla Eðvaldssonar var heiðruð en Guðmundur þekkti hann vel. Þá var hitað upp fyrir landsliðið. Pepsi Max-deildin og enski boltinn koma einnig við sögu.
Sep 07, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Kristinn Björgúlfsson frá Leikmannasamtökunum kom í þáttinn og ræddi meðal annars um aðalfund samtakanna sem var haldinn á dögunum. Einnig sagði hann frá endurvakningu á lokahófi eftir tímabilið. Í upptökunni fylgir einnig umfjöllun um leitina að vítaskyttu Íslands og þá var Benedikt Bóas Hinriksson í beinni frá Ölveri.
Sep 07, 2019
Það er heldur betur komin tími á að gera fyrstu tvo landsleiki Íslands í Undankeppni EM 2021 upp. Leiðin til Englands er hafin og komu 6 stig í hús. Hulda Mýrdal þáttastjórnandi Heimavallarins fær til sín Báru Kristbjörgu og Anítu Lísu og þær fara yfir landsleikina frá a-ö. Að sjálfsögðu kíkjum við líka á íslensku deildirnar. Þetta og allt annað sem skiptir máli á Heimavellinum í dag.
Sep 07, 2019
Elvar og Daníel fóru yfir málin í Evrópu-Innkastinu þar sem 4. umferð ensku úrvalsdeildarinnar var gerð upp. Meðal efnis: Arsenal og Tottenham afhjúpuðu kosti sína og galla, Mane missti stjórn á skapi sínu, Laporte meiddist, Pogba reyndi, Chelsea er brothætt, Stig flautað af Aston Villa, Vardy rosalegur, Yarmolenko minnti á sig, Gylfi í stuði. Evrópudrátturinn, óvænt úrslit í Þýskalandi og gluggatíðindi.
Sep 02, 2019
Gylfi er kominn á 2. stig sorgarferlisins á meðan Aron hefur enn trú þrátt fyrir brösugt gengi. Lúxusleikmenn halda áfram að gera þeim erfitt fyrir, komið mynstur á hreinu lökin og ákveðnir leikmenn minntu á sig fyrir komandi umferðir. Nóg er að hugsa um í þessu landsleikjahléi en strákarnir þakka fyrir að komast í frí frá hörmungunum - í bili.
Sep 02, 2019
Tómas Þór, Gunni Birgis og Elvar Geir gera upp 19. umferð Pepsi Max-deildarinnar í Innkastinu. Meðal efnis: Fyrstu þrennurnar, furðulegur leikur í Kópavogi, hliðarheimur Gary Martin, Hannes og landsliðið, tveir sem koma til greina sem leikmaður ársins, brunaboð í Kórnum, Grindavík á ekki möguleika, landsliðið, kjúklingahlaup í Inkasso og ýmislegt fleira.
Sep 01, 2019
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í þættinum: Í byrjun: Landsliðsval Erik Hamren fyrir komandi landsleiki gegn Moldóvu og Albaníu í undankeppni EM. 19:45 Pepsi Max-deildin. Val hlustenda á bestu leikmönnum deildarinnar. 48:20 Kristján Atli Ragnarsson ræðir um enska boltann.
Sep 01, 2019
Einungis fjórar umferðir eru eftir í sumar í 2 og 3. deild karla og spennan fer að magnast. Í 2. deildinni er baráttan hörð um sæti í Inkasso-deildinni að ári og fallbaráttan er ekki ennþá ljós. Í 3. deild eru Kórdrengir og KF komin með annan fótinn upp um deild en þessi lið mætast í stórleik um helgina. Ennþá er hart barist á botninum þar.
Aug 29, 2019
Stútfull dagskrá í dag. Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir fá til sín Þróttarana Álfhildi Rósu og Lindu Líf sem flugu upp í Pepsi Max deildina á dögunum. Knattspyrnusérfræðingurinn Daði Rafnsson spáir í landsleikina sem framundan eru og farið verður yfir allt það helsta í Pepsi Max og Inkasso deildunum.
Aug 28, 2019
Úrslitakeppnin í 4. deild karla hefst á föstudaginn þegar fyrri leikirnir í 8-liða úrslitum er á dagskrá. Ótrúleg dramatík var í B-riðlinum í lok riðlakeppninar og spennan er mikil fyrir úrslitakeppnina.
Aug 27, 2019
Fótbolti.net fjallar vel um Inkasso-deild karla og í samvinnu við Inkasso bjóðum við upp á hlaðvarpsþætti um deildina í sumar. Arnar Daði Arnarsson er umsjónarmaður þáttarins. Í þessum þætti er farið yfir stöðuna á toppi og botni deildarinnar þar sem spennan er mikil. Farið er yfir síðustu leiki liðanna og spáð í spilin fyrir síðustu fjórar umferðirnar. Þá fengu sérfræðingarnir það verkefni að spá fyrir um síðustu umferðirnar sem framundan eru. Sérfræðingarnir eru þeir Baldvin Már Borgarson, fré...
Aug 27, 2019
18. umferð Pepsi Max-deildarinnar var ótrúlega fjörug, nóg af mörkum, umdeild atvik og dramatík. Fullmannaður þáttur í Innkastinu að þessu sinni, Elvar Geir, Tómas Þór, Gunnar Birgis og Magnús Már fóru yfir hlutina. Meðal efnis: Eitt af atvikum tímabilsins á Hlíðarenda, lögreglan kölluð til, viðsnúningur Blika í Krikanum, Gústi Gylfa og sögusagnirnar, lið færast úr fallbaráttu yfir í Evróṕubaráttu, hvernig ætlar Grindavík að skora?, steindautt á Akureyri, rautt og læti í Árbænum, flösku kastað í...
Aug 26, 2019
Evrópu-Innkastið eftir þriðju umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Elvar Geir og Magnús Már halda um stjórnartaumana að þessu sinni en gestur er Runólfur Trausti, stuðningsmaður Manchester United. Runólfur sagði meðal annars sína skoðun á byrjun United í deildinni. Miðað við nýliðna umferð er ekkert lið að fara að ógna Liverpool og Manchester City. Það var nóg af óvæntum úrslitum og umdeildum VAR atvikum!
Aug 26, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Yfirmaður knattspyrnumála KSÍ í ítarlegu viðtali um framtíð íslenska boltans allt frá innköstum í 7. flokki upp í bestu leikmenn þjóðarinnar. Arnar Þór Viðarsson talaði hreint út við Tómas Þór og Benedikt Bóas.
Aug 25, 2019
Mönnum var heitt í hamsi þegar þriðja umferð enska boltans var gerð upp af Fantabrögðum. Pukki heldur áfram að refsa, Salah þakkaði traustið en Kane gerði Aroni og Gylfa lífið leitt. Óvænt úrslit gerðu spilurum erfitt fyrir og aftur héldu fá lið hreinu.
Aug 25, 2019
Björn Már Ólafsson, sérfræðingur um ítölsku A-deildina, hitar upp fyrir tímabilið í þessum sérstaka upphitunarþætti. Boltinn byrjar að rúlla á Ítalíu um helgina. Elvar Geir ræddi við Björn um það hvernig landið liggur í ítalska boltanum. Áhugaverðar þjálfarabreytingar, stór nöfn mætt í deildina, koma Balotelli, sumarið hjá Napoli og Inter, óvænt sala á Moise Kean, Sarri hjá Juventus og baráttan um gullskóinn eru meðal umræðuefna. Björn fer yfir spá sína fyrir deildina.
Aug 22, 2019
Það er mikið um dýrðir á Heimavellinum að þessu sinni. Þáttastýrurnar Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir fá til sín nýkrýnda bikarmeistara, þær Önnu Maríu Friðgeirsdóttur og Þóru Jónsdóttur.
Aug 21, 2019
Fantabrögð gerðu upp aðra umferðina í Fantasy Premier League. Fá lið héldu hreinu, Teemu Pukki gerði þrennu og Aron og Gylfi ræddu breytingar fyrir næstu umferð. Er of snemmt að taka Wildcard?
Aug 21, 2019
17. umferð Pepsi Max-deildarinnar er gerð upp í Innkastinu. Elvar Geir, Magnús Már og Gunnar Birgis standa vaktina. Meðal efnis: Valsmenn kasta aftur frá sér forystu, Brynjólfur Darri vs Mikkelsen, KR kæfði Víkinga, Skagamenn sjá ekki til sólar, Smalinn í miðverðinum, svekktir Fylkismenn, Brandur Olsen á flugi, Zeba fær aftur á sig víti, Halldór Páll á trúnó, rándýrt vítaklúður og rosaleg Inkasso-umferð.
Aug 19, 2019
Boðið var upp á nett Manchester United þema í Evrópu-Innkastinu að þessu sinni er Einar Kristinn Kárason var gestur í stofu Daníels Geirs Moritz.
Aug 19, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræða um undanúrslitaleikina í Mjólkurbikarnum, komandi umferð í Pepsi Max-deildinni og spjalla við Davíð Þór Viðarsson, fyrirliða FH. Meðal efnis: Hvað var Óli Kristjáns að meina í viðtali vikunnar? Víkingar voru í vígahug gegn Blikum, Óskar Hrafn og Heimir Guðjóns orðaðir við starfið hjá Gústa Gylfa, yfirvofandi leikbann Elfars, engar kröfur á grasvelli landsins og fleira.
Aug 17, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Fótbolti.net fjallar vel um Inkasso-deild karla í samvinnu við Inkasso. Óliver Dagur Thorlacius og Arnar Þór Helgason, leikmenn Gróttu, eru gestir þáttarins. Það er æsileg spenna í baráttunni um að komast upp en aðeins fimm umferðir eru eftir af Inkasso-deildinni.
Aug 17, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Rætt um Evrópuboltann og Tómas Þór Þórðarson segir frá heimsókn sinni á opnunarleik ensku úrvalsdeildarinnar þegar Liverpool og Norwich áttust við fyrir rúmri viku. Tómas fór á leikinn ásamt Eiði Smára Guðjohnsen fyrir hönd sjónvarps Símans.
Aug 17, 2019
Það er veisla á Heimavellinum að þessu sinni. Hulda Mýrdal fær þau Anítu Lísu Svansdóttur og Guðmund Guðjónsson til sín og fer yfir allt það sem skiptir máli. Þau fara yfir landsliðshópinn sem var tilkynntur á dögunum, Pepsi Max deildina, Inkasso deildina, þær bestu í umferðum 7-12, leiðina á Laugardalsvöll og miklu miklu meira.
Aug 14, 2019
Enska hófst með látum á föstudaginn. Gylfi Tryggvason og Engilbert Aron Kristjánsson gerðu upp fyrstu umferðina í Fantasy en mörg stór nöfn skiluðu fullt af stigum um helgina. Hægt er að taka þátt í umræðunni með því að fylgja Fantabrögðum á samfélagsmiðlum.
Aug 13, 2019
Evrópu-Innkastið er mætt á nýju tímabili! Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fóru yfir fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Manchester City heldur áfram að trompa Liverpool, Lampard steinlá á Old Trafford, Eriksen breytti öllu hjá Tottenham, krakkarnir fengu tækifæri hjá Arsenal, óvænt Balotelli horn, nýjar stjörnur og ýmislegt fleira.
Aug 12, 2019
Fimm af sex leikjum 16. umferðar Pepsi Max-deildarinnar fóru fram í dag og voru úrslitin það áhugaverð að ekki var annað hægt en að blása samstundis í upptöku á Innkastinu. Elvar Geir, Gunni Birgis og Magnús Már sátu við hljóðnemana. Meðal efnis: Erfitt að fara inn í Kórinn, Brynjar Björn þjálfari ársins, vítaspyrnukeppni á Hlíðarenda, FH-ingar sýna karakter, Euro-Vikes, Miðjumaðurinn Kári, Eyjamenn mæta af skyldurækni í leiki, Skagamenn nálgast fallsæti, Jói Kalli viðurkennir mistök, Gústi finn...
Aug 11, 2019
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 10. ágúst. Elvar Geir og Benedikt Bóas sáu um þátt dagsins. Í upphafi þáttar var fjallað um Inkasso-deildina. Baldvin Már Borgarsson var á línunni. Eftir það var rætt um enska boltann og félagaskiptagluggann við Daníel Geir Moritz. Að lokum var komandi umferð í Pepsi Max-deildinni skoðuð með Magnúsi Má Einarssyni.
Aug 10, 2019