Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Enska upphitunin - Lokað á skrifstofu Liverpool

Innkastið hitar upp fyrir komandi tímabil í enska boltanum. Í þessum þætti er fjallað um Liverpool. Sigursteinn Brynjólfsson og skólastjórinn Magnús Þór Jónsson af kop.is ræddu við Elvar Geir Magnússon um komandi tímabil hjá Evrópumeisturunum og fleira! Meðal umfjöllunar: Rólegur gluggi hjá Liverpool, álagið á sóknarmönnum liðsins, Van Dijk og gullknötturinn, endurkoma Uxans, Firmino gleymist, besta byrjunarliðið, samkeppnin frá Man City, Everton blæs í herlúðra, spáin á kop.is.

Aug 08, 2019

Enska upphitunin - Spennandi sumargluggi hjá Arsenal

Innkastið hitar upp fyrir komandi tímabil í enska boltanum. Í þessum þætti er fjallað um Arsenal. Sumarglugginn er að enda fjörlega hjá Arsenal og þeir Einar Guðnason og Jón Kaldal fóru yfir stöðuna hjá Skyttunum.

Aug 08, 2019

Innkastið - Brekka eftir brekkusöng

15. umferð Pepsi Max-deildarinnar er að baki en Innkastið fer yfir umferðina og skoðar gang mála. Elvar Geir, Gunni Birgis, Tómas Þór og Magnús Már eru allir á sínum stað. Í þættinum eru meðal annars tilnefndir þeir fjórir leikmenn sem geta orðið besti leikmaður annars þriðjungs, Inkasso-horn og Gunni giskar.

Aug 07, 2019

Fantabrögð - Góð ráð fyrir Fantasy tímabilið

Fantabrögð er nýr hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem farið er yfir Fantasy deildina í ensku úrvalsdeildinni. Þáttastjórnendur eru þeir Gylfi Tryggvason og Engilbert Aron Kristjánsson. Enska úrvalsdeildin hefst á föstudaginn en stefnan er sett á að vera með hlaðvarpsþáttinn reglulega í kringum tímabilið.

Aug 07, 2019

Enska upphitunin - Gluggafjör og uppeldi hjá Tottenham

Innkastið hitar upp fyrir komandi tímabil í enska boltanum. Í þessum þætti er fjallað um Tottenham. Tottenham hefur verið mikið í umræðunni við gluggalok og þeir Hjálmar Örn Jóhannsson, Jóhann Alfreð Kristinsson og Ingimar Helgi Finnsson fóru yfir stöðuna hjá Spurs.

Aug 07, 2019

Enska upphitunin - Breyttur leikstíll Manchester United

Innkastið hitar upp fyrir komandi tímabil í enska boltanum. Í þessum þætti er fjallað um Manchester United. Í þættinum komu þeir Halldór Marteinsson og Björn Friðgeir Björnsson frá raududjoflarnir.is í spjall.

Aug 06, 2019

Þórir Hákonar um könnunina hjá Leikmannasamtökunum

Fótboltapólitík úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Þórir Hákonarson mætti í þáttinn og ræddi við Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas um könnun sem gerð var meðal leikmanna Pepsi Max-deildarinnar. Launamál, hagræðing úrslita, áhorfendamæting, sannleiksgildi könnunarinnar, nýr framkvæmdastjóri ÍTF og fleira kom til tals.

Aug 03, 2019

Gluggadómar og Eyjafjör í Maxaranum

Sumarglugganum var lokað núna um mánaðamótin en Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas skoðuðuð þær hræringar sem urðu á leikmannamálum í Pepsi Max-deildinni í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Skemmtanastjórinn Arnar Daði var einnig í beinni frá Vestmannaeyjum og kom með nýjustu tíðindi úr brekkunni.

Aug 03, 2019

Heimir Guðjóns í beinni frá Færeyjum

Heimir Guðjónsson, þjálfari HB í Færeyjum, var á línunni í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. HB er eitt af fimm liðum sem eru í harðri toppbaráttu í færeysku Betri-deildinni og er auk þess komið í úrslitaleik bikarsins. Samningur Heimis við HB rennur út eftir tímabilið og segir hann óvíst hvort hann verði áfram að tímabilinu loknu.

Aug 03, 2019

Inkasso-hornið - Farið yfir bæði topp- og botnbaráttuna

Fótbolti.net fjallar vel um Inkasso-deild karla og í samvinnu við Inkasso bjóðum við upp á hlaðvarpsþætti um deildina í sumar. Arnar Daði Arnarsson er umsjónarmaður þáttarins. Í þessum þætti er farið yfir stöðuna í deildinni og bæði topp og botnbaráttan skoðuð og spáð í framhaldið. Línur eru farnar að skýrast í deildinni. Fimm lið eru í baráttu um sæti í Pepsi Max-deildinni og fjögur lið í harðri fallbaráttu. Sérfræðingarnir eru þeir Baldvin Már Borgarson, fréttaritari Fótbolta.net og Úlfur Blan...

Jul 31, 2019

Heimavöllurinn - Úrvalslið Inkasso og súpersystur

Það er mikið um dýrðir á Heimavellinum að þessu sinni. Þáttastýrurnar Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir opinbera úrvalslið fyrri hluta Inkasso-deildarinnar, velja besta leikmanninn og heyra í henni hljóðið. Þá fara þær yfir helstu fréttir vikunnar og taka púlsinn á félagaskiptum rétt fyrir gluggalok. Heimavöllurinn fékk svo hjálp á samfélagsmiðlum við að velja eftirlætissystur efstu deildar undanfarinn áratug.

Jul 31, 2019

Innkastið - Samstillt átak um að KR verði meistari

Elvar Geir, Tómas Þór, Gunni Birgis og Magnús Már gera upp 14. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Ljóst er að KR verður meistari en í þætti dagsins er farið yfir alla leikina, rætt um slúðursögur, vandræðagang FH, slæmt gengi Breiðabliks, markasúpuna í Grindavík, Evrópukeppnina, Inkasso-hornið, Gunni giskar og fleira og fleira.

Jul 29, 2019

Magnús Agnar: Hroki í garð íslensku deildarinnar

Magnús Agnar Magnússon umboðsmaður var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net þar sem hann ræddi aðeins um bransann og leikmannamarkaðinn á Íslandi. Hann segir að árangur íslenska landsliðsins hafi ekki haft þau áhrif á áhuga erlendra félaga á íslenskum leikmönnum sem spáð var.

Jul 27, 2019

Lið fólksins á flugi - Leifur og Arnar í viðtali

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Leifur Andri Leifsson fyrirliði HK og markvörðurinn Arnar Freyr Ólafsson voru gestir þáttarins. Nýliðar HK hafa verið á flugi í Pepsi Max-deildinni og eru búnir að vinna þrjá sigra í röð.

Jul 27, 2019

Inkasso, ÞÞÞ og komandi umferð í Pepsi Max

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um Inkasso-deildina og fóru yfir komandi umferð í Pepsi Max-deildinni. Þórður Þorsteinn Þórðarson, leikmaður FH, var á línunni en hann gekk í raðir Fimleikafélagsins frá ÍA í vikunni.

Jul 27, 2019

Heimavöllurinn - Bikardrama og markaregn eftir markaþurrð

Knattspyrnuþjálfararnir Baldvin Már Borgarsson og Steinunn Sigurjónsdóttir eru gestir Heimavallarins að þessu sinni og ræða við Mist Rúnarsdóttur um gang mála í Pepsi Max-deildinni og helstu boltafréttir nýliðinnar viku.

Jul 25, 2019

Ástríðan í neðri deildunum - Æsispennandi barátta í 2. deild

Keppni í 2. deild karla er æsispennandi en þegar tólf umferðir eru búnar eru einungis sex stig sem skilja að topplið Selfyssinga og Völsung í 9. sætinu. Atli Jónasson og Óskar Smári Haraldsson eru sérfræðingar í 2. deildinni en þeir eiga báðir mörg tímabil að baki í deildinni. Þeir kíktu á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru vel yfir hvert einasta lið í deildinni og völdu einnig lið fyrri umferðar. Spennand heldur áfram annað kvöld en þá hefst 13. umferðin. Í þeirri umferð heimsækir topplið Se...

Jul 24, 2019

Innkastið - Topp táningar og volæði í FH

Elvar Geir, Tómas Þór, Magnús Már og Gunni Birgis fara yfir 13. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Hverjir eru bestu táningarnir í deildinni? Tom valdi topp fimm! Meðal efnis í þættinum: Brynjar Björn með frábæra uppskeru, volæði hjá FH, Björn Daníel mestu vonbrigðin, formaðurinn á lyklaborðinu, allt í núlli hjá Grindavík, Big Bó skorar, Kristján Flóki á leiðinni, Glenn ömurlegur á vinstri kantinum, Inkasso-hornið, Kenwyne Jones í Kórdrengi, Gunni giskar.

Jul 22, 2019

Útvarpsþátturinn - Aron Jó og boltaspjall

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson stýrðu skútunni og tóku meðal annars mjög áhugavert viðtal við Aron Jóhannsson. Aron gekk í raðir Hammarby frá Werder Bremen fyrr í þessum mánuði en hann hefur gengið í gegnum erfiða tíma á ferlinum vegna meiðsla. Annars ræddu þeir Tómas og Benni um boltann og heyrðu meðal annars í Elvari sem var á leið til Grenivíkur.

Jul 21, 2019

Innkastið - Basl hjá KA og breytt staða FH

9. umferðinni í Pepsi Max-deild karla lauk loksins í gærkvöldi, tæpum mánuði eftir að hún byrjaði. Liðin í Evrópukeppni spiluðu í þessari umferð fyrir tæpum mánuði en nú eru öll lið með jafnmarga leiki í deildinni. KR er áfram með þægilegt forskot á toppnum en fallbaráttan harðnar og KA er komið í fallsæti. Arnar Daði Arnarsson, Gunnar Birgisson og Magnús Már Einarsson skoðuðu stöðuna í Innkastinu. Meðal efnis: Slagsmál í Kórnum, KA í fallsæti, HK á flugi, vantar mörk hjá Víkingi, breytt staða F...

Jul 16, 2019

Heimavöllurinn - Inkasso og 2. deildar veisla

Það er komið að því að skoða hvað hefur verið í gangi í neðri deildunum það sem af er sumri. Inkasso-deildin er í aðalhlutverki í nýjasta þætti Heimavallarins en einnig er farið yfir gang mála í 2. deild. Gestur þáttarins að þessu sinni er knattspyrnuþjálfarinn Baldvin Már Borgarsson.

Jul 15, 2019

Inkasso-hornið - Farið yfir fyrri umferðina og úrvalslið valið

Fótbolti.net fjallar vel um Inkasso-deild karla og í samvinnu við Inkasso bjóðum við upp á hlaðvarpsþætti um deildina í sumar. Arnar Daði Arnarsson er umsjónarmaður þáttarins. Í þessum þætti er farið yfir fyrri hluta Inkasso-deildarinnar en 11. umferðin lauk í gær. Sérfræðingarnir fara yfir stöðuna á hverju liði, ræða spútnik lið umferðarinnar, fallbaráttuna og toppbaráttuna. Í seinni hluta þáttar velja sérfræðingarnir síðan úrvalslið fyrri umferðarinnar, besta leikmann og besta þjálfarann. Sérf...

Jul 12, 2019

Heimavöllurinn: Lokahóf fyrri hluta Pepsi Max

Nú er keppni í Pepsi Max deildinni hálfnuð og í þætti dagsins á Heimavellinum gera þáttastýrurnar, Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir, upp fyrri hluta mótsins með gestasérfræðingnum Báru Kristbjörgu Rúnarsdóttur.

Jul 11, 2019

Innkastið - Stigamet við botninn og vonbrigðaval

Nýtt Innkast eftir 12. umferð Pepsi Max-deildarinnar sem var heldur betur dreifð! Elvar Geir, Tómas Þór, Magnús Már og Gunnar Birgis eru allir á sínum stað. Þeir völdu meðal annars einn leikmann úr hverju liði sem kallað er eftir að skili meiru en þeir hafa gert í sumar. Vonbrigðaval. Meðal efnis: Nauðsynlegur sigur fyrir Óla Kristjáns, Víkingar fá hrós en eru í fallsæti, Blikar í brekku, HK-ingar með tröllasigur, dómgæsludrull, kraftmiklir KR-ingar í Eyjum, klásúla í KSÍ-samningi Jeffs, Stefán ...

Jul 08, 2019

Pepsi Max hringborð - Eyjafréttir, Valur á flugi og umdeildir dómar

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Magnús Már fjölluðu ítarlega um Pepsi Max-deildina. - Daníel Geir Moritz var í beinni frá Vestmannaeyjum en það er nóg í gangi í fótboltamálunum þar. Þjálfaraskipti og leikmannabreytingar. - Rætt var um endurkomu Patrick Pedersen og Andri Adolphsson, leikmaður Vals, var á línunni. - Umdeildur dómur í Garðabæ, markaleysi Grindvíkinga, staðan á KA, stuðningsmannalög og fleira til umræðu.

Jul 06, 2019

Gísli Eyjólfs klár í leikinn gegn HK - Grasið ekki grænna hinum megin

Það verður stórleikur í Pepsi Max-deildinni á sunnudagskvöld þegar Breiðablik tekur á móti HK í Kópavogsslag. Gísli Eyjólfsson er kominn aftur heim í deildina eftir stutt stopp hjá Mjallby í Svíþjóð og er klár í slaginn fyrir leikinn. Gísli var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.

Jul 06, 2019

Inkasso-hornið og Tom á Pollamótinu

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir ræddi við Úlf Blandon, sérfræðing um Inkasso-deildina, og var farið yfir 10. umferðina sem nú er í gangi. Mörg áhugaverð úrslit hafa litið dagsins ljós og ungir leikmenn látið að sér kveða. Í klippunni má líka heyra spjall Elvars við Tómas Þór Þórðarson sem er staddur á Pollamótinu á Akureyri.

Jul 06, 2019
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android