Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Ástríðan í neðri deildunum - Staðan skoðuð í 3 og 4. deildinni

Níu umferðum er lokið í 3. deild karla í sumar og riðlakeppni er hálfnuð í 4. deildinni. Magnús Már Einarsson fékk þá Magnús Val Böðvarsson og Ingimar Helga Finnsson til að fara yfir gang mála í þessum deildum. Magnús Valur er harðasti aðdáandi 4. deildarinnar og heldur úti aðganginum "passionleague" á Snapchat. Ingimar Helgi er leikmaður Árborgar í 4. deildinni.

Jul 03, 2019

Innkastið - KR stuð og verðlaun umferða 1-11

Brottrekstur, risakaup og toppslagur. Í Innkastinu í kvöld var meðal annars opinberað úrvalslið og bestu menn umferða 1-11 í Pepsi Max-deildinni. Fullmannað Innkast að þessu sinni. Elvar Geir, Gunni Birgis, Magnús Már og Tómas Þór. Farið var yfir 11. umferðina, sigur KR gegn Breiðabliki í stórleiknum, bikardráttinn, Inkaso-hornið, Gunni giskar og allt eins og það á að vera.

Jul 01, 2019

Pepsi Max hringborð - Hitað upp með Henry Birgi

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hitað var upp fyrir áhugaverða 11. umferð Pepsi Max-deildarinnar þar sem meðal annars má finna stórleik milli toppliðanna, KR og Breiðabliks. Henry Birgir Gunnarsson ræddi við Elvar Geir Magnússon og Benedikt Bóas Hinriksson. Farið var yfir helstu fréttamola deildarinnar, spáð í spilin og rýnt í mögulegar gluggahræringar.

Jun 29, 2019

Vill að VAR verði tekið upp í Pepsi Max-deildinni

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Þóroddur Hjaltalín, formaður dómaranefndar KSÍ, vill að Ísland taki upp VAR myndbandsdómgæsluna eins fljótt og mögulegt er. UEFA hefur þróað VAR-tækni þar sem lágmark þarf fjórar myndavélar en í stórum útsendingum á Stöð 2 Sport eru vanalega fimm myndavélar. Þóroddur ræddi við Elvar Geir og Benedikt Bóas.

Jun 29, 2019

Inkasso-hornið - Ási Arnars um Fjölni, brottreksturinn frá Fram og Gústa Gylfa

Fótbolti.net fjallar vel um Inkasso-deild karla og í samvinnu við Inkasso bjóðum við upp á hlaðvarpsþætti um deildina í sumar. Arnar Daði Arnarsson er umsjónarmaður þáttarins. Í þessum þætti ræðir hann við Ásmund Arnarsson þjálfara Fjölnis sem situr í 2. sæti deildarinnar með jafn mörg stig og topplið Þórs. Liðið mætast í toppbaráttuslag á laugardaginn. Í þættinum ræddi hann til að mynda brottrekstur sinn frá Fram, tímabundið starf sitt hjá ÍBV og þá var einnig rætt um Ágúst Gylfason þjálfara Br...

Jun 26, 2019

Innkastið - Einvígi um titilinn, bras FH og krakkamiðja Víkings

Innkastið eftir 10. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Elvar Geir, Tómas Þór og Magnús Már gera upp umferðina. Deildin er að þróast í tveggja hesta einvígi KR og Breiðabliks um Íslandsmeistaratitilinn. Í þætti kvöldsins: Einvígi FH og Breiðabliks um titilinn, er Gísli Eyjólfs að koma heim?, Andri bjargaði Val, ekkert getur bjargað ÍBV, HK-ingar fá hrós, gleðin farin hjá Skagamönnum, gleðin komin hjá Stjörnumönnum, magalending Fylkis, krakkamiðja Víkings, bikarinn og Gunni giskar.

Jun 23, 2019

Beitir Ólafs og ótrúleg leið hans til KR

Beitir Ólafsson, markvörður KR, mætti sem gestur í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977. Beitur hefur verið virkilega öflugur það sem af er tímabili en áður en hann gekk í raðir KR 2017 voru hanskarnir komnir á hilluna og hugurinn farinn frá fótboltanum. Hlustaðu á viðtalið við þennan skemmtilega karakter í spilaranum hér að ofan.

Jun 22, 2019

Copa America og Inkasso-hornið

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu aðeins um Copa America áður en þeir tóku snúning og fjölluðu um Inkasso-deildina. Úlfur Blandon, sérfræðingur um Inkasso-deildina, var á línunni.

Jun 22, 2019

Pepsi Max umræða - Hvað eiga félögin að gera í glugganum?

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fjölluðu um Pepsi Max-deildina. Tíunda umferðin var skoðuð en Leifur Garðarsson, lýsandi á Stöð 2 Sport, skoðaði liðin og leikina. Þá var fjallað um komandi félagaskiptaglugga en glugginn opnar 1. júlí. Hvað eiga félögin í Pepsi Max-deildinni að gera?

Jun 22, 2019

Heimavöllurinn - Óvænt ráðning og ætlar til Englands

Gestur dagsins á Heimavellinum er landsliðsþjálfarinn Jón Þór Hauksson. Nú eru rúmir tveir mánuðir þar til landsliðið okkar hefur leik í undankeppni Evrópumótsins og því við hæfi að ræða við Jón Þór um hans fyrstu mánuði í starfi og verkefnið stóra sem framundan er.

Jun 20, 2019

Innkastið - Viðtal ársins og vandræði Vals og Stjörnunnar

Í ljósi þess hve mikið er í gangi í Pepsi Max-deildinni var ekki annað hægt en að hlaða í nýtt Innkast. Elvar Geir, Tómas Þór og Gunni Birgis ræddu helstu umræðuefnin á kaffistofum fótboltaáhugamanna. Meðal efnis: Magnþrungið viðtal við Hannes og meintar verkfallsaðgerðir FH-inga. Sigur Breiðabliks gegn Stjörnunni, endurkoma KR-inga og áframhaldandi vandræðagangur Valsmanna. Evrópumöguleikar íslensku liðanna.

Jun 19, 2019

Útvarpsþátturinn - Brúðkaup ársins, Pepsi Max og landsliðið

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu helstu fótboltamálin. Í byrjun: Brúðkaup Gylfa 13:30 Pepsi Max-deildin 50:00 Ólafur Ingi Skúlason í viðtali 1:02:55 Landsliðið og Laugardalsvöllur 1:21:00 Inkasso-deildin

Jun 15, 2019

Inkasso-hornið - Farið yfir stöðuna í deildinni og spáð í spilin

Fótbolti.net fjallar vel um Inkasso-deild karla og í samvinnu við Inkasso bjóðum við upp á hlaðvarpsþætti um deildina í sumar. Arnar Daði Arnarsson er umsjónarmaður þáttarins. Í þessum þætti ræðir hann við tvo sérfræðinga um stöðuna í deildinni, fer yfir hvaða lið eru líklegust til að fara upp og falla niður um deild. Í lokþáttar velja sérfræðingarnir síðan það lið sem hefur valdið hvað mestu vonbrigðum og hvaða lið hefur komið mest á óvart í deildinni það sem af er. Sérfræðingarnir eru þeir Bal...

Jun 14, 2019

Ástríðan í neðri deildunum - Farið yfir gang mála í 2. deildinni

Það eru sex umferðir búnar í 2. deildinni og línur farnar að skýrast. Selfoss og Víðir eru á toppi deildarinnar með 13 stig á meðan Tindastóll er á botni deildarinnar ennþá án stig. Atli Jónasson og Óskar Smári Haraldsson eru sérfræðingar í 2. deildinni og settust niður með Arnari Daða Arnarssyni og fóru yfir öll liðin og stöðuna í 2. deildinni. Auk þess var farið yfir næstu umferð í deildinni sem fram fer um helgina.

Jun 14, 2019

Miðjan - Böddi löpp um erfiða tíma hjá fjölskyldunni, sigrana og vonbrigðin

Böðvar Böðvarsson ólst upp í Hafnarfirði, nánar tiltekið í Kinnunum og lék upp yngri flokkana með FH. Hann er fæddur árið 1995 og lék sinn fyrsta leik í efstu deild sumarið 2013 með uppeldisfélagi sínu FH. Í dag leikur hann með pólska úrvalsdeildarfélaginu, Jagiellonia Bialystok. Böddi löpp, eins og hann er kallaður er gestur Miðjunnar að þessu sinni. Þar fer hann yfir unglingsárin í FH, fyrstu leikina með meistaraflokki, Íslandsmeistaratitlana tvö sem hann hefur unnið, vonbrigðin á ferlinum, tí...

Jun 12, 2019

Innkastið - Þvottaburst gegn bálreiðum Tyrkjum

Það er komið nýtt landsliðs-Innkast! Beint frá Laugardalsvelli. Elvar Geir, Tómas Þór og Magnús Már horfðu á Ísland vinna gríðarlega mikilvægan sigur gegn Tyrklandi. Rætt er um stórfurðulegan aðdraganda að leiknum, pirringinn í gestum okkar, frammistöðu liðsins, hvaða þýðingu þetta hefur fyrir Erik Hamren og íslensku þjóðina!

Jun 11, 2019

Ítalski boltinn - Uppgjör tímabilsins

Björn Már Ólafsson, helsti sérfræðingur Íslendinga um ítalska boltann, gerir upp tímabilið í ítölsku A-deildinni. Í þessum þætti ræðir Elvar Geir við Björn Má um tímabilið og þjálfarakapalinn sem er í gangi. Hvar er mesta gleðin og hvar eru vonbrigðin? Liðin eru skoðuð og úrvalslið tímabilsins valið.

Jun 10, 2019

Innkastið - Íslenski neistinn lifir enn

Sérstakur landsliðsþáttur af Innkastinu var tekinn upp á Laugardalsvelli beint eftir 1-0 sigurinn gegn Albaníu. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir leikinn og fengu til sín góðan gest, Frey Alexandersson aðstoðarlandsliðsþjálfara.

Jun 08, 2019

Útvarpsþátturinn - Að duga eða drepast fyrir landsliðið

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er með öðruvísi sniði þessa vikuna og er frumfluttur í hlaðvarpsformi. Ástæðan er sú að leikur Íslands og Albaníu í undankeppni EM verður flautaður á meðan þátturinn er í gangi. Elvar Geir og Tómas Þór hita upp fyrir landsleikina og skoða það sem framundan er í íslenska boltanum.

Jun 07, 2019

Miðjan - Emil ræðir erfitt tímabil á Ítalíu, landsliðið og framtíðina

Íslenska landsliðið leikur á laugardaginn leik gegn Albaníu í undankeppni EM 2020. Hafnfirðingurinn, Emil Hallfreðsson leikmaður Udinese í Serie A á Ítalíu er í hópnum en hann er kominn til baka eftir erfið meiðsli. Emil settist niður með Arnari Daða Arnarssyni og fór yfir landsleikinn á laugardaginn og síðustu mánuði með landsliðinu. Auk þess fóru þeir yfir nýafstaðið tímabil Emils á Ítalíu þar sem hann gekk undir aðgerð í desember og skipti um félag í miðri endurhæfingu. Einnig var rætt um upp...

Jun 06, 2019

Innkastið - Íslandsmeistarar í botnsæti

Sögulínurnar verða bara stærri og merkilegri í Pepsi Max-deildinni! Valsmenn eru í neðsta sæti þegar sjö umferðir eru búnar. ÍBV kom öllum á óvart með því að vinna ÍA og Breiðablik var í miklum ham gegn FH. Elvar Geir, Tómas Þór og Gunni Birgis fóru yfir 7. umferð Pepsi Max-deildarinnar í Innkastinu.

Jun 03, 2019

Umdeilt val á Kolbeini

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Framundan eru landsleikir á Laugardalsvelli, gegn Albaníu næsta laugardag og svo gegn Tyrklandi þremur dögum síðar. Um er að ræða gríðarlega mikilvæga leiki í undankeppni EM. Landsliðshópurinn var opinberaður á fréttamannafundi á föstudaginn og helsta umræðuefnið er valið á Kolbeini Sigþórssyni. Rætt var við Frey Alexandersson í þættinum.

Jun 02, 2019

Almarr ræðir um vítið sem allir eru að tala um

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Almarr Ormarsson, leikmaður KA, var á línunni og ræddi meðal annars um vítspyrnukeppnina gegn Víkingi Reykjavík í Mjólkurbikarnum. Almarr tók spyrnu í keppninni og flestir telja að boltinn hafi verið inni en aðstoðardómarinn dæmdi ekki mark og KA féll úr leik.

Jun 02, 2019

Evrópuboltinn - Jóhann Már um tímabilið hjá Chelsea

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Benedikt Bóas stýrðu þættinum að þessu sinni. Þeir ræddu um úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Hjörvar Hafliðason var í beinni frá Madríd. Þá ræddi Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, um sigur liðsins í Evrópudeildinni. Farið var yfir tímabilið hjá Chelsea og framhaldið.

Jun 02, 2019

Heimavöllurinn - Fulltrúi Pepsi Max á HM og unglingar í A-landsliðið

Það er ýmislegt í umræðunni í nýjasta þætti Heimavallarins en þáttastýrurnar Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir fara yfir helstu atburði síðustu daga með gesti þáttarins, Brynju Dögg Sigurpálsdóttur. Þær fara yfir tvær síðustu umferðir Pepsi Max-deildarinnar, spjalla um neðri deildirnar og heyra í Betsy Hasset, leikmanni KR og Nýja Sjálands, sem er á leið á sitt þriðja Heimsmeistaramót.

May 31, 2019

Inkasso-hornið - Rafn Markús og áhugaverður árangur hans með Njarðvík

Fótbolti.net fjallar vel um Inkasso-deild karla og í samvinnu við Inkasso bjóðum við upp á hlaðvarpsþætti um deildina í sumar. Arnar Daði Arnarsson er umsjónarmaður þáttarins. Í þessum þætti ræðir hann við Rafn Markús Vilbergsson þjálfara Njarðvíkur sem hefur náð áhugaverðum árangri með liðið síðan hann tók við því í mikilli fallbaráttu í 2. deildinni sumarið 2016.

May 30, 2019
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android