Lokaþáttur Evrópu-Innkastsins þetta tímabilið! Sportbarinn Ölver í Glæsibæ býður þér upp á þáttinn! Elvar og Daníel ræddu málin eftir að Chelsea rúllaði yfir Arsenal í úrslitaleik Evrópudeildarinnar. Daníel var sár og svekktur. Hitað var upp fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Hvernig yrði sameiginlegt lið Liverpool og Tottenham? Stjóramálin, Balotelli og Atalanta koma einnig við sögu í Evrópu-yfirferðinni.
May 29, 2019
Það er komið að Innkastinu eftir 6. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Elvar Geir, Gunni Birgis, Magnús Már og Tómas Þór ræða málin. Meðal efnis: Hvaða þjálfarasæti eru farin að hitna í deildinni? Valsvandræðin, Íslandsmeistaravonir Skagamanna, ummæli Rúnars Kristins um Bjögga Stef, enginn átti að fá stig í Kórnum, Gunni giskar og Inkasso hornið.
May 26, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Kristján Atli Ragnarsson, stuðningsmaður Liverpool og sérfræðingur þáttarins um enska boltann, mætti við enska hringborðið með Elvari og Tómasi. Hann gerði upp tímabilið á Englandi, valdi besta leikmanninn og mestu vonbrigðin. Rætt var um meistarana í Manchester City, vonbrigðin hjá grönnum þeirra og hitað upp fyrir komandi úrslitaleiki í Evrópukeppnunum. Chelsea og Arsenal eigast við í úrslitaleik Evrópudeildarinnar á mivikudag og næsta laugardag eigast v...
May 25, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um komandi landsleiki gegn Albaníu og Tyrklandi sem verða á Laugardalsvelli 8. og 11. júní. Leikirnir eru í undankeppni EM og Ísland þarf helst að sækja sex stig úr þessum tveimur leikjum. Tómas hefur kynnt sér stöðuna á hópnum nú þegar tvær vikur eru í stuðið.
May 25, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór hituðu upp fyrir 6. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Tvö helstu fréttamál vikunnar í deildinni voru til umræðu. Gary Martin hefur gert starfslokasamning við Val og Björgvin Stefánsson, sóknarmaður KR, á yfir höfði sér fimm leikja bann eftir rasísk ummæli í lýsingu á leik í Inkasso-deildinni.
May 25, 2019
Fótbolti.net fjallar vel um Inkasso-deild karla og í samvinnu við Inkasso bjóðum við upp á hlaðvarpsþætti um deildina í sumar. Arnar Daði Arnarsson er umsjónarmaður þáttarins. Í þessum fyrsta þætti ræðir hann við tvo sérfræðinga um byrjun deildarinnar en þrjár umferðir eru að baki. Baldvin Már Borgarsson, fréttaritari Fótbolta.net, og Úlfur Blandon, þjálfari Þróttar í Vogum, skoðuðu öll liðin og spáðu í komandi leiki.
May 21, 2019
Fólk talar um að Pepsi Max-deildin sé besta deildin. Miðað við dramatíkina í 5. umferð er erfitt að mótmæla því. Elvar Geir, Gunni Birgis, Tómas Þór og Magnús Már eru mættir með Innkast umferðarinnar. Óli Kristjáns með lykilinn að Nangijala, Víkingavonbrigði, góð Garðabæjarferð hjá KA, hræðsla Blika, mikil trú á ÍA, leitin að Gary Martin, rússíbanamínútur á Meistaravöllum, töfrar Túfa og fleira til umræðu.
May 20, 2019
Inkasso-deildin er í aðalhlutverki í nýjasta þætti Heimavallarins. Annarri umferð Inkasso deildarinnar lauk í gær og það er nóg að ræða strax í upphafi móts. Við rýnum í alla leikina. Það voru óvænt úrslit, það eru spennandi félagaskipti og við ræðum skemmtileg tilþrif svo eitthvað sé nefnt. Við förum yfir allt það helsta auk þess sem við veljum leikmenn úr hverju liði sem gætu staðið sig vel í Pepsi Max deildinni.
May 20, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Kristján Guðmundsson heimsótti Elvar og Tómas og fór yfir byrjunina á Pepsi Max-deildinni. Skoðaðir voru komandi leikir og skemmtileg byrjun deildarinnar.
May 18, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór boðuðu til fréttamannafundar! Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, og Ágúst Gylfason, þjálfari Breiðabliks, voru í spjalli í tilefni af því að Blikar taka á móti Skagamönnum í stórleik í Pepsi Max-deildinni á sunnudagskvöld. Við leyfum Eurovision-innslagi að fylgja með í þessari klippu...
May 18, 2019
Tómas Þór Þórðarson er mættur inn í teymi Innkastsins og var með í að kryfja fjórðu umferð deildarinnar. Elvar Geir, Gunni Birgis og Magnús Már voru á sínum stað en þeir fjórir fóru yfir alla leikina. Í tilefni af komu Tómasar var þátturinn í lengra lagi að þessu sinni! Rætt var um Gary Martin, agavesen FH-inga, óvænt tap KR í Grindavík, sífelldar breytingar Pedro, búðarferðir leikmanna, tifandi tímasprengju í liði Fram og ýmislegt fleira. Getur ÍA orðið Íslandsmeistari?
May 16, 2019
Þriðja umferð Pepsi Max-deildarinnar er að baki. Deildin fer fáránlega skemmtilega af stað! Elvar Geir og Gunnar Birgisson eru í Innkastinu í kvöld en Egill Sigfússon, fréttaritari Fótbolta.net, leysir Magnús Má af í þætti kvöldsins. Við skoðum alla leikina, skúbbum eitthvað, kíkjum aðeins niður í Inkasso og Gunni giskar á næstu umferð. Meðal efnis: ÍA vinnur að því að fá miðjumann, Rikki Gje gagnrýnir þjálfara Vals, óánægja í stúkunni á Hlíðarenda, ÞÞÞ lagar net, enginn bjóst við neinu frá Kolb...
May 12, 2019
Það er verðlaunahátíð í Innkastinu! Manchester City varð í dag fyrsta liðið í áratug sem nær að verja enska meistaratitilinn. Það var boðið upp á spennandi lokaumferð en þrátt fyrir magnað tímabil þarf Liverpool að sætta sig við annað sætið. Elvar og Daníel skoðuðu lokaumferðina í Evrópu-Innkastinu og þá voru ýmis verðlaun veitt í ýmsum flokkum. Lið ársins hjá Innkastinu var opinberað og margt fleira á boðstólnum. Ölver býður upp á Evrópu-Innkastið.
May 12, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Í Inkasso-horninu er augljóslega fjallað um Inkasso-deildina. Að þessu sinni fóru Elvar og Tómas lauslega yfir byrjunina á mótinu og ræddu við Hlyn Atla Magnússon, fyrirliða Fram. Framarar unnu óvæntan sigur gegn Fjölni í gær.
May 11, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór skoðuðu fyrstu þrjá umferðir þriðju umferðar Pepsi Max-deildarinnar. Glæsimark Hilmars Árna Halldórssonar tryggði Stjörnunni sigur gegn HK, Blikar voru betri en Víkingar og FH vann 3-2 sigur gegn KA í stórskemmtilegum leik. Halldór Orri Björnsson fer verulega vel af stað í deildinni en hann skoraði tvö gegn KA. Halldór var á línunni í þættinum.
May 11, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar fer fram á morgun sunnudag. Allt snýst um titilbaráttuna en Liverpool heldur í vonina um að Manchester City misstígi sig gegn Brighton. Liverpool leikur á móti Wolves en liðið er einu stigi á eftir City. Magnús Þór Jónsson, skólastjóri og stuðningsmaður Liverpool, ræddi um spennandi dag sem er framundan. Hann mun hefja daginn í Liverpoolmessu áður en flautað verður til leiks í lokaumferðinni!
May 11, 2019
Í nýjasta þætti Heimavallarins er farið yfir 2. umferðina í Pepsi Max-deildinni. Leikirnir eru gerðir upp og verðlaun veitt fyrir allskonar frammistöður. Við berum saman Breiðablik og Val, ræðum unga leikmenn og spáum í spilin fyrir næstu umferð í Inkasso og Pepsi Max deildinni. Gestir þáttarins eru þær Harpa Karen Antonsdóttir og Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir en auk þess heyra Heimavallarstýrur í Örnu Sif Ásgrímsdóttir fyrirliða Þór/KA og Agnesi Þóru Árnadóttir sem tók upp hanskana að nýju og st...
May 11, 2019
Þau voru stór lýsingarorðin sem notuð voru í Evrópu-Innkastinu að þessu sinni. Elvar og Daníel skoðuðu stórkostlega undanúrslitaleiki Meistaradeildarinnar. Einnig var rætt um ensku úrvalsdeildina, ekki augljósa lið tímabilsins og þá völdu þeir bestu sóknarmennina frá upphafi. Ofboðslega er fótbolti skemmtilegur! Innkastið er í boði Ölvers í Glæsibæ.
May 08, 2019
Ekkert lið er með fullt hús þegar tvær umferðir eru að baki í Pepsi-Max deildinni. Skemmtileg byrjun á mótinu. Íslenska Innkastið er fullskipað að þessu sinni. Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og svo er mættur, í boði skattgreiðenda, Gunnar Birgisson. 2. umferð Pepsi Max-deildarinnar er gerð upp. Færeyskt fíaskó í Laugardal, dramatík og dómaramistök í Árbæ, vond frammistaða Íslandsmeistara á Akureyri, furðuleg ummæli þjálfara ÍBV halda áfram, ósannfærandi Stjörnumenn, HK-ingar eru komn...
May 06, 2019
Í nýjasta þætti Heimavallarins er farið yfir fyrstu umferðina í Pepsi Max-deild kvenna þetta árið. Leikirnir fimm eru reifaðir og áhugaverð atvik rædd. Gestir þáttarins eru þær Anna Þorsteinsdóttir og Brynja Dögg Sigurpálsdóttir en auk þess heyra Heimavallarstýrur í Daníel Geir Moritz sem var á vellinum í opnunarleiknum í Eyjum.
May 06, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Kolbeinn Finnsson hefur verið lánaður í uppeldisfélag sitt, Fylki. Lánssamningurinn er til 1. júlí. Hann er kominn með leikheimild fyrir leik liðsins gegn ÍA í 2. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Þessi 19 ára leikmaður lék fyrr á árinu sína fyrstu A-landsleiki en hann heimsótti útvarpsþáttinn Fótbolti.net og ræddi við Elvar og Tómas.
May 04, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu um íslenska boltann og hituðu upp fyrir 2. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Bikarleikirnir úr liðinni viku voru einnig til umfjöllunar.
May 04, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur þáttarins um Liverpool, var á línunni og spjallaði við Elvar og Tómas. Skoðaður var lokasprettur liðsins en Liverpool er í brattri brekku í Meistaradeildinni og í farþegasætinu í úrvalsdeildinni þrátt fyrir frábæra frammistöðu. Þá sagði Tómas frábæra ferðasögu frá Þýskalandi!
May 04, 2019
Er Messi Guð? Gæti Liverpool orðið besta liðið sem ekkert nær að vinna á einu tímabili? Eftir 3-0 sigur Barcelona gegn Liverpool, í furðulegum fótboltaleik, fóru Elvar og Daníel yfir málin í Evrópu-Innkastinu. Eldræða Messi og hatrið á Suarez koma við sögu. Í þættinum er einnig farið yfir sigur Ajax gegn Tottenham, rætt er um ástandið hjá Arsenal, Guardiola fær hæstu einkunn fyrir sigurinn gegn Burnley og einnig er litið til Þýskalands og niður í Championship. Evrópu-Innkastið er í boði Ölvers í...
May 01, 2019
Íslenska Innkastið er mætt á nýju tímabili. Hver umferð í Pepsi Max-deildinni verður gerð upp að henni lokinni. Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson fengu til sín fótboltaþjálfarann Harald Árna Hróðmarsson og fóru yfir alla leikina í 1. umferð. Meðal efnis: Beitir eins og svart og hvítt í Garðabæ, Vel heppnuð frumsýning ÍA, Gústi Gylfa hristir upp í hlutum, Pedro glaður eftir 0-3 tap, FH steig ekki fast á bensíngjöfina, Víkingar koma á óvart, bikarleikir og Halli giskar.
Apr 28, 2019
Það er komið að því að Heimavöllurinn hiti upp fyrir Pepsi Max deild kvenna enda aðeins fjórir dagar í að flautað verði til leiks. Í þætti dagsins birta þáttastýrurnar, Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir, lokaspá sína fyrir deildina, velja leikmenn sem eru líklegir til að skara fram úr á ýmsum sviðum og spá í spilin fyrir fyrstu umferð.
Apr 28, 2019
Inkasso-deild karla fer að fara af stað og Fótbolti.net fékk tvo sérfræðinga til að meta keppnina sem er framundan í sumar. Sigurður Helgason, þjálfari 2. flokks KR, og Jón Þór Hauksson, þjálfari kvennalandsliðsins, sögðu sína skoðun á liðunum tólf. Spáin fyrir deildina var opinberuð. Umsjón: Elvar Geir og Benedikt Bóas.
Apr 27, 2019
Magnaður opnunarleikur Pepsi Max-deildarinnar, 3-3 jafnteflisleikur Vals og Víkings, var til umfjöllunar í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir Magnússon og Benedikt Bóas Hinriksson ræddu um leikinn en Benni var á vellinum og gaf sína skýrslu. Hverjir voru bestir og hverjir stóðu alls ekki undan væntingum? Hinn 18 ára Logi Tómasson skoraði magnað mark í leiknum, klobbaði tvo varnarmenn og smellti boltanum í samskeytin. En hver er þessi nýja stjarna Pepsi Max-deildarinnar? Logi var á l...
Apr 27, 2019
Sumardeginum fyrsta er fagnað í Evrópu-Innkastinu. Elvar og Daníel ræddu um tap Manchester United gegn Manchester City í gær og hversu ótrúlega slakt lið United var. Hverjir eiga að vera áfram á Old Trafford og hverjum á að kasta burt? Er eðlilegt að stuðningsmenn Liverpool hafi haldið með United? Er titillinn kominn í hús hjá City? Af hverju er Pogba í liði ársins? Hvað er í gangi hjá Arsenal? Kemst Leeds upp? Þessum spurningum og fleirum er kastað fram í Evrópu-Innkastinu. Sportbarinn Ölver í ...
Apr 25, 2019
Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon hituðu upp fyrir Pepsi Max-deildina sem fer af stað á föstudaginn. Spáin fyrir deildina var skoðuð og rætt um öll tólf liðin í deildinni. Óli Stefán Flóventsson, þjálfari KA, var á línunni og einnig var rætt við Pétur Viðarsson, varnarmann FH.
Apr 20, 2019