Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Þann 14. nóvember mætast Tyrkland og Ísland í undankeppni EM í Istanbúl. Eins og allir vita voru mikil læti í kringum viðureign þessara liða á Laugardalsvelli fyrr á árinu og Íslendingar urðu fyrir netárásum. Nú standa Tyrkir í hernaði í Sýrlandi og leikmenn landsliðsins fögnuðu að hermannasið í liðnum landsleikjaglugga þó talað sé um að ekki eigi að blanda pólitík og fótbolta saman. Þessi hegðun er til skoðunar hjá UEFA. Rætt var við Víði Reynisson, örygg...
Oct 19, 2019
Það var ýmislegt hægt að ræða í sérstökum aukaþætti af Fantabrögðum. Landsleikjahlé afstaðið, Vardygate hneykslið og Alisson mættur aftur. Aron og Gylfi fóru í samkvæmisleik þar sem þeir prófuðu að stilla upp liðum ef þeir væru að taka Wildcard núna og ræddu um komandi umferð. Hverjir eru að snúa til baka eftir meiðsli? Hvern á að setja sem fyrirliða? Á að spila Lundstram?
Oct 16, 2019
Það er nóg um að vera á Heimavellinum í dag. Unglingalandsliðskonurnar Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir kíkja í heimsókn og fara yfir undanriðilinn hjá U19 og næstu verkefni, sigurleikur A-landsliðsins í Lettlandi er ræddur og hitað upp fyrir risastóra Meistaradeildarslaginn á morgun þegar Breiðablik tekur á móti stórliði PSG. Það er svo ekki hægt að sleppa því að fara aðeins yfir háværustu slúðursögurnar af þjálfara- og leikmannamálum.
Oct 15, 2019
Landsliðs-Innkast beint úr Laugardalnum. Elvar Geir, Tómas Þór, Gunni Birgis og Magnús Már fóru yfir stöðu mála eftir sigurinn gegn Andorra. Farið var yfir leikinn og þýðingu hans. Í þættinum var einnig rætt um nýjustu þjálfaratíðindin í íslenska boltanum.
Oct 14, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 12. október. Kristinn Kjærnested kom í heimsókn og ræddi við Elvar Geir og Tómas Þór. Kristinn tilkynnti í vikunni að hann ætlar ekki að gefa kost á sér til áframhaldandi formennsku hjá KR. Hann hefur verið í stjórn félagsins síðan 1999 og formaður síðan 2008. Margir titlarnir hafa skilað sér í hús á þessum tíma en það hafa líka komið strembin tímabil og erfiðar ákvarðanir. Óhætt er að mæla með þessu áhugaverða viðtali.
Oct 12, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 12. október. Rætt var um þjálfaramálin í íslenska boltanum og þá var sérstakt landsliðshringborð þar sem tapleikurinn gegn Frakklandi var gerður upp. Möguleikarnir voru skoðaðir og rýnt í frammistöðu leikmanna íslenska liðsins. Þá var hitað upp fyrir leikinn gegn Andorra sem verður á mánudagskvöld. Landsliðsumræðan hefst eftir 17:50 í þessari upptöku.
Oct 12, 2019
Magnús Már Einarsson ræðir við landsliðsmanninn unga Arnór Sigurðsson, leikmann CSKA Moskvu, í sérstakri landsliðsútgáfu af Miðjunni þessa vikuna. Arnór skaust almennilega fram á sjónarsviðið í fyrra en hann hefur verið að gera góða hluti með CSKA Moskvu í Rússlandi. Eftir viðtalið spjalla Magnús og Elvar um komandi landsleik gegn Frökkum.
Oct 10, 2019
Það var fjörug umræða í Evrópu-Innkastinu í þessari viku og góðir gestir mættu í heimsókn. Tottenham stuðningsmenn vilja gleyma síðustu viku sem fyrst en liðið tapaði 7-2 gegn Bayern Munchen og 3-0 gegn Brighton. Þeir Hjálmar Örn Jóhannsson, Jóhann Alfreð Kristinsson og Ingimar Helgi Finnsson létu sig þó hafa það að mæta í Innkastið og ræða þessa hrikalegu viku hjá sínum mönnum í Tottenham. Liverpool er með átta stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir dramatískan sigur á Leicester o...
Oct 07, 2019
Þetta tímabil í Fantasy Premier League hefur heldur betur verið erfitt og því miður varð engin breyting á því í 8. umferðinni. Því var brugðið á það ráð að fá besta Fantasy spilara landsins - Theodór Inga Pálmason í heimsókn, fara yfir sögu hans og strategíu í Fantasy sem og auðvitað yfirstandandi tímabil. Helstu fyrirliðar klikkuðu og var þar helst um að kenna City mönnum eins og Sterling og Aguero. Sadio Mane skilaði stigum sem og Chelsea strákarnir Abraham og Mount. Patrick Van Aanholt hornið...
Oct 06, 2019
Það er pakkaður þáttur á Heimavellinum í dag. Við förum yfir sambandsslit HK/Víkings, frábæran árangur U19, næsta A-landsliðsverkefni, Evrópu-ævintýri Blika og allar heitustu fréttirnir hér heima. Hvað verður um HK/Víkings leikmennina? Hvaða lið velur Sveindís? Hvaða þjálfarar eru á lausu? Hvað gerir U19 liðið okkar á móti svakalegu liði Spánverja? Geta Blikar strítt Formigu og félögum? Hvaða liði stillir Jón Þór upp á móti Lettum?
Oct 06, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 5. október. Fjórði hluti. Tómas Þór og Benedikt Bóas skoðuðu nokkra áhugaverða tölfræðipunkta úr liðnu tímabili í Pepsi Max-deildinni.
Oct 05, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 5. október. Þriðji hluti. Tómas Þór og Benedikt Bóas ræddu við Tryggva Pál Tryggvason, fréttamann og stuðningsmann Manchester United. Rætt var um hrunið sem hefur orðið innan vallar hjá félaginu undanfarin ár.
Oct 05, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 5. október. Annar hluti. Nýr landsliðshópur var opinberaður á föstudaginn en framundan eru heimaleikir gegn Frakklandi og Andorra í undankeppni EM. Tómas Þór og Benedikt Bóas ræddu um fréttamannafund Erik Hamren og hópinn sem valinn var.
Oct 05, 2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 5. október. Fyrsti hluti. Tómas Þór og Benedikt Bóas spjölluðu við Óskar Hrafn Þorvaldsson, örstuttu eftir að hann hafði verið tilkynntur sem nýr þjálfari Breiðabliks. Óskar segir frá aðdragandanum og talar um nýtt verkefni í Kópavoginum en hann hefur gert magnaða hluti í þjálfun á stuttum tíma og náði að lyfta Gróttu upp um tvær deildir á tveimur árum.
Oct 05, 2019
Evrópu-Innkastið er komið í loftið þessa vikuna. Það var frí í síðustu viku í Evrópu-Innkastinu en Elvar og Daníel eru mættir aftur. Rætt var um Meistaradeildarleiki vikunnar, afhroð Tottenham, gæðaleysið í stórleiknum á Old Trafford og ýmislegt fleira tengt ensku úrvalsdeildinni.
Oct 02, 2019
Gylfi Tryggvason snýr aftur eftir vel heppnaða ferð til Bandaríkjanna og nær að rífa sig aðeins upp meðan Aron átti erfiða umferð. Aubameyang heldur áfram að skora, sóknarmenn Liverpool klikkuðu á meðan einhverjir nældu sér í heimskuleg rauð spjöld. Þáttastjórnendur gerðu mikið af breytingum og munu sennilega halda því áfram.
Sep 30, 2019
Lokaþáttur Innkastsins í beinni frá Dúllubar í Garðabæ! Góðir gestir og mikið stuð í lokaþætti Innkastsins þetta árið. Magnús Már og Gunni Birgis fengu til sín gullskóhafann Gary Martin, Josip Zeba varnarmann Grindavíkur og Harald Björnsson markvörð Stjörnunnar. Þá komu Benedikt Bóas og Tómas Þór í lokauppgjör.
Sep 28, 2019
Það var öðruvísi uppgjörsþáttur á X977. Pepsi Max-deildin gerð upp og spjallað við góða menn. Tómas Þór, Benedikt Bóas, Magnús Már og Elvar Geir voru í hljóðveri. Góða skemmtun!
Sep 28, 2019
Rúnar Kristinsson stýrði KR-ingum örugglega til sigurs í Pepsi Max-deildinni í sumar og varð um leið í þriðja skipti Íslandsmeistari sem þjálfari liðsins. Rúnar er gestur vikunnar í Miðjunni þar sem hann fer yfir tímabilið og stóru málin tengd því. Meðal efnis: Lykillinn að titlinum, ummælin um Beiti, aldursumræðan, bakvörðurinn Kennie Chopart, leikbann Björgvins Stefáns, besti liðsandinn, skemmtilegar sögur í byrjunarliðinu, óvænt leikmannakaup, skellurinn gegn Molde, breytt mótafyrirkomulag, g...
Sep 26, 2019
Gylfi Tryggva var enn fjarverandi svo Aron fékk góða gesti í hús til að fara yfir sjöttu umferðina í Fantasy. Hjálmar Örn skemmtikraftur og Vignir Már Eiðsson, harðasti Arsenal maður landsins, kíktu í hús. Hins vegar var lesin upp yfirlýsing frá Gylfa vegna gengi hans í síðustu umferð. Umferðin markaðist að stærstu leyti til af fjarveru vinsælasta fyrirliðans, Raheem Sterling, með tilheyrandi varafyrirliðabombum. Liverpool hélt áfram að vinna án þess að halda hreinu og City skoraði 8 (einni umfe...
Sep 22, 2019
Tómas Þór, Magnús Már og Elvar Geir í Innkastinu. Fjallað um íslenska boltann, Pepsi Max-deildina og Inkasso-deildina. Úrvalslið tímabilsins var opinberað, besti þjálfarinn, besti leikmaðurinn, besti ungi leikmaðurinn, besti dómarinn og allur pakkinn.
Sep 22, 2019
Íslandsmótinu eru lokið og það eru Valskonur sem standa uppi sem Íslandsmeistarar. Þær Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir fara yfir deildina í sumar, opinbera úrvalslið Heimavallarins og velja besta og efnilegasta leikmann mótsins. Þær fá svo til sín góða gesti úr nýbökuðu Íslandsmeistaraliði Vals, þær Elínu Mettu Jensen og Hlín Eiríksdóttur.
Sep 22, 2019
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 21. september. Elvar Geir og Tómas Þór fengu til sín góða gesti. Miðvarðapar Íslandsmeistara KR mætti í hljóðver X977. Finnur Tómas Pálmason og Arnór Sveinn Aðalsteinsson eru ólíkir en skemmtilegir karakterar. Þeir gáfu vel af sér í þættinum. Í upptökunni má einnig heyra viðtal við Júlíus Magnússon, leikmann Víkings, en hann var maður leiksins í bikarúrslitaleiknum.
Sep 22, 2019
Fótbolti.net fjallar vel um Inkasso-deild karla og í samvinnu við Inkasso bjóðum við upp á hlaðvarpsþætti um deildina í sumar. Arnar Daði Arnarsson er umsjónarmaður þáttarins. Í þessum lokaþætti er farið yfir stöðuna á toppi og botni deildarinnar þar sem spennan er mikil fyrir lokaumferðina sem fram fer á laugardaginn klukkan 14:00. Fjölnismenn eru búnir að tryggja sér sæti í Pepsi Max-deildinni en það kemur í ljós á laugardaginn hvort nýliðar Gróttu eða Leiknis fylgja þeim upp í Pepsi Max-deild...
Sep 19, 2019
KR-ingar eru orðnir Íslandsmeistarar og Víkingar bikarmeistarar. Það vantar bara (Staðfest) á að Grindvíkingar fari niður með Eyjamönnum. Elvar Geir, Tómas Þór, Magnús Már og Gunnar Birgis fara yfir íslenska boltann í Innkastinu. Úrslitaleikur bikarsins, Pepsi Max-deildin, þjálfaraslúður, Inkasso-hornið og ýmislegt fleira!
Sep 16, 2019
Víkingur R. vann sinn fyrsta stóra titil í 28 ár þegar liðið lagði FH 1-0 í úrslitum Mjólkurbikarsins á laugardaginn.
Sep 16, 2019
Evrópu-Innkastið þessa vikuna er mætt í hús! Elvar og Daníel fóru yfir það helsta sem gerðist í ensku úrvalsdeildinni um helgina og skoðuðu einnig aðrar Evrópudeildir. Það er verið að hóta spennu víða! Gæti Liverpool rúllað yfir ensku deildina á þessu tímabili?
Sep 15, 2019
Þrátt fyrir að einn leikur væri eftir í umferðinni ákváðu Fantabrögð að henda í uppgjör á sunnudagskvöldi. Gylfi Tryggva ákvað að draga sig í hlé frá þættinum þar sem hann var of reiður til að mæta. Þess í stað ákvað Aron að fá til liðs við sig góðan gest og það var heldur betur ýmislegt til að tala um. Ein óvæntustu úrslit enska boltans frá upphafi, KDB byrjaði á bekknum, Son komst í gang og liðin hata að halda hreinu.
Sep 15, 2019
Það eru jólin á Heimavellinum um helgina. Stórleikur ársins er á Kópavogsvelli á morgun þegar Breiðablik tekur á móti Val. Tvö bestu liðin. Val dugir jafntefli. Breiðablik verður að vinna. Það er ekki seinna vænna að rýna í leikinn. Daði Rafnsson mætir á Heimavöllinn og rýnir með okkur í leikinn og Pepsi Max deildina. 2.deild er lokið og Völsungur eru meistarar. Við heyrum í fyrirliða Húsavíkurliðsins Hörpu Ásgeirsdóttur. Við förum yfir sumarið með henni, óvænta uppsögn John Andrews og allt anna...
Sep 14, 2019
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 14. september. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu um íslenska boltann og hituðu upp fyrir bikarúrslitaleik Víkings og FH. Púlsinn var tekinn á aðstoðarþjálfurunum Guðlaugi Baldurssyni hjá FH og Einari Guðnasyni hjá Víkingi.
Sep 14, 2019