Fantabrögð 8 - Besti Fantasy spilari landsins kíkir í heimsókn
Oct 06, 2019
Episode description
Þetta tímabil í Fantasy Premier League hefur heldur betur verið erfitt og því miður varð engin breyting á því í 8. umferðinni. Því var brugðið á það ráð að fá besta Fantasy spilara landsins - Theodór Inga Pálmason í heimsókn, fara yfir sögu hans og strategíu í Fantasy sem og auðvitað yfirstandandi tímabil.
Helstu fyrirliðar klikkuðu og var þar helst um að kenna City mönnum eins og Sterling og Aguero. Sadio Mane skilaði stigum sem og Chelsea strákarnir Abraham og Mount. Patrick Van Aanholt hornið var á sínum stað og menn spurðu sig að því hvort Pukki partýið væri búið.
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android
