Innkastið - Uppgjör með Freysa eftir skyldusigur í Laugardal
Sep 07, 2019
Episode description
Innkastið var tekið upp á Laugardalsvelli strax eftir sigur Íslands gegn Moldóvu í undankeppni EM. Magnús Már, Gunni Birgis og Elvar Geir gerðu upp leikinn.
Freyr Alexandersson aðstoðarlandsliðsþjálfari mætti í spjall.
Meðal umræðuefna: Mark Kolbeins, samkeppnin um markvarðarstöðuna, staða Birkis Más, breyttar aðstæður Arons Einars, frábær frammistaða Ara Freys, óþægilegar fyrstu mínútur leiksins, tóm sæti á Laugardalsvelli, Davíð Snorri í talstöðinni, sundlaugaspjall og komandi leikur gegn Albaníu.
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android
