Þjóðmál - podcast cover

Þjóðmál

Þjóðmálwww.thjodmal.is
Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

#124 – Rekstur Reykjavíkur í ruglinu og „rútínubréf“ í ruslinu – Þriðja vaktin fer yfir málin

Þórður Gunnarsson hagfræðingur og Örn Arnarson , ritstjórnarfulltrúi á Viðskiptablaðinu, fjalla um fjárhagsvandræði Reykjavíkurborgar og annarra sveitarfélaga, útskýringar – eða útúrsnúninga –borgarstjóra á vandanum, óðavöxt stjórnsýslunnar í borginni og hvort að hægt sé að snúa við þessu olíuskipi sem siglir í strand. Þá er fjallað um skýrslu starfshóps um endurskoðun þjónustuhandbókar um vetrarþjónustu og þá snilldartillögu að miða snjómokstur við snjókomu. Loks er fjallað um það þá ákvörðun r...

Apr 13, 202343 minSeason 1Ep. 124

#123 – Páskauppgjörið með Herði og Stefáni Einari

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson mæta í páskaskapi. Fjallað er um ársfund Seðlabankans og ráðningu aktívista í nýja stöðu innan bankans, breytingar á forystu Samtaka atvinnulífsins, leigubílstjóra sem líta á snjallsímavæðingu sem „verkfæri Satans“, orð forsætisráðherra um að atvinnulífið skuldi ríkinu pening, „táknræna“ skattahækkun, um gildi Gildis og margt fleira í gamansömum þætti með alvarlegu ívafi.

Apr 05, 20231 hr 14 minSeason 1Ep. 123

#122 – Ríkisstjórn í hagkvæmnishjónabandi – Dracula í blóðbankanum

Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, og Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, mæta í Þjóðmálastofuna eftir viðburðarríka viku. Rætt er um endalok Fréttablaðsins og stöðu fjölmiðla, misheppnaða vantrauststillögu á dómsmálaráðherra og kostnaðarsamt ríkisstjórnarsamstarf, fjármálaáætlun sem enginn fagnar og það hvort að við séum búin að missa tökin á ríkisútgjöldum.

Mar 31, 20231 hr 14 minSeason 1Ep. 122

#121 – Hið ósýnilega stríð Seðlabankans – Kjósendur VG ávarpaðir úr Saga Class sæti

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson mæta í sínu besta formi í afmælisþátt hlaðvarps Þjóðmála. Rætt um er hækkandi stýrivexti, vandann sem felst í því að takast á við verðbólgu, um stjórnmálamenn sem fljúga á fyrsta farrými og vilja auka tekjur ríkisins frekar en að lækka útgjöld þess og margt annað áhugavert. Þá er sérstaklega rætt um valdabaráttu um og innan Seðlabankans, sem kann að hafa áhrif á það hvað bankinn segir og gerir.

Mar 23, 20231 hr 13 minSeason 1Ep. 121

#120 – Þórður Pálsson fer yfir stöðuna – Niðursveifla er lækning, ekki sjúkdómur

Þórður Pálsson fer yfir stöðu mála í alþjóðlega fjármálakerfinu sem titrar aðeins þessa dagana – og ástæður þess að titringurinn er til staðar, um aukna skuldasöfnun ríkja, um efnahagshorfurnar framundan og ástæðuna fyrir því að hann telur að Seðlabankinn þurfi að hækka vexti enn frekar. Þá er rætt um hagnað og arðgreiðslur fyrirtækja, en hvoru tveggja er mikilvægt til að hagkerfin haldi áfram að vaxa.

Mar 17, 202352 minSeason 1Ep. 120

#119 – Breytt heimsmynd – Þörf á alvöru umræðu um öryggis- og varnarmál

Björn Bjarnason, fv. ráðherra, ræðir um stöðu mála í Úkraínu, hvaða áhrif stríðið þar hefur haft á samstarf vestrænna ríkja, hverjir mögulegir eftirmálar stríðsins geta orðið og annað þessu tengt. Þá er rætt um öryggis- og varnarmál hér á landi, skort á umræðu um þessa þætti á vettvangi stjórnmála, hugmyndir sem komið hafa fram um íslenskan her og fleira. Þá er einnig fjallað um sumt af því helsta á vettvangi stjórnmála hér á landi um þessar mundir, endurteknar mýtur um Evrópusambandið, stöðu fj...

Mar 13, 20231 hr 4 minSeason 1Ep. 119

#118 – Sjáumst í næsta stríði – Miðlunartillaga og minnipokamenn

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fara yfir stöðuna á vinnumarkaði og hvað nú tekur við eftir að miðlunartillaga var samþykkt, rætt er um fjarlægan möguleika á þjóðarsátt gegn verðbólgu, um meint ofurlaun forstjóra og það hvaða hlutverki lífeyrissjóðir gegna við mótum starfskjarastefnu skráðra fyrirtækja, afsökunarbeiðni Aftenposten og fleira.

Mar 08, 202356 minSeason 1Ep. 118

#117 – Verðbólga og vargöld á vinnumarkaði – Vinnumálaráðherra í felum

Karítas Ríkharðsdóttir og Þórður Gunnarsson ræða um hækkandi verðbólgu, deilu Eflingar á vinnumarkaði og fleira. Rætt er um það hvort og þá hvernig stjórnmálin eigi að bregðast við og hvaða áhrif núverandi staða kann að hafa á stjórnarsamstarfið. Þá eru ræddar vangaveltur um það hvort að Alþingi megi sín mikils gagnvart ráðuneytum og ríkisstofnunum þar sem þau síðarnefndu hafa talsvert svigrúm til að setja reglur og viðmið um daglegt líf borgaranna.

Feb 27, 202354 minEp. 117

#116 – Rútuslys á vinnumarkaði en Efling fær kaffi með forsætisráðherra

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um nýjustu vendingar í vinnudeilu Eflingar við Samtök atvinnulífsins, boð um verkbann, hvort tilefni sé fyrir stjórnvöld til að grípa inn í málið, stöðu (og mistök) ríkissáttasemjara, orðræðunni um þá sem ekki lúta boðum Eflingar og margt fleira. Þá er rætt um fyrirhugaðan samruna VÍS og Fossa í samanburði við samruna Kviku og Íslandsbanka.

Feb 20, 20231 hr 2 minSeason 1Ep. 116

#115 – Réttlátt réttarfar – Jón Steinar fer yfir málin

Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður og fv. hæstaréttardómari, ræðir um þá gagnrýni sem hann hefur lagt fram á íslenska dómskerfið, það hvernig dómarar starfa og hvernig þeir eru skipaðir, hvaða afleiðingar það getur haft að gefa afslátt af grundvallarreglum réttarríkisins, fjallað er um dómara sem dæmdu bankamenn í fangelsi eftir að hafa sjálfir tapað töluverðum upphæðum og margt fleira.

Feb 13, 20231 hr 4 minSeason 1Ep. 115

#113 –Djúpgreining SKE á majónesmarkaði – Upplestur

Hlaðvarp Þjóðmála er upplýsandi hlaðvarp. Við fengum því góðan vin þáttarins til að lesa upp hluta af úrskurði Samkeppniseftirlitsins þar sem samruni Kaupfélags Skagfirðinga og Gunnars ehf. var ógildur. Eftir að hafa skoðað málið í heila níu mánuði er það mat Samkeppniseftirlitsins samruninn hefði haft alvarlegar afleiðingar fyrir samkeppni, viðskiptavinum og neytendum til tjóns, eins og það var orðað í tilkynningu á vef eftirlitsins. Hér er majónesmarkaðurinn greindur í þaula og mikilvægt að þj...

Feb 03, 202343 minEp. 113

#112 – Hrun Framsóknar í Reykjavík – Hversu lengi skín stjarna Kristrúnar? – Þarf Gísli Marteinn Hummer?

Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson fara yfir það helsta í stjórnmálunum í dag – og það sem er ekki að eiga sér stað sem stundum er ekki síður mikilvægt. Rætt er um fylgisaukningu Samfylkingarinnar, hvernig hún kemur til og hvort hún sé komin til vera, um það hvort forystuskipti verði í íslenskum stjórnmálum á næstu árum, umræðu um málefni útlendinga sem nú fer fram á Alþingi, hvaða áhrif staðan í efnahagsmálum kann að hafa á stjórnmálin, hrun Framsóknar í borginni og margt fleira.

Feb 02, 20231 hr 5 minSeason 1Ep. 112

#111 – Úkraínumenn fá betri vopn og búnað – Hvað er framundan í stríðinu?

Kristján Johannessen, fréttastjóri á Morgunblaðinu, mætir aftur til að ræða um stöðu mála í Úkraínu, hvernig stríðið hefur breyst úr því að vera varnarstríð yfir í að vera átök um landvinninga, hvort að sá búnaður sem Vesturlönd eru að senda Úkraínumönnum muni gagnast og hvernig, hvað kunni mögulega að vera framundan í átökunum, hvort og þá hvernig átökin geta stigmagnast, hvaða áhrif átökin hafa á umræðu hér á landi um öryggis- og varnarmál, hvort að stríðið sé einnig stríð um upplýsingaflæði o...

Jan 30, 202348 minSeason 1Ep. 111

#110 – Ríkissáttasemjari ýtir á rauða hnappinn – Meðalgóður dansari stígur út á sviðið og skyggir á ballerínuna

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fjalla um nýjustu vendingar í kjaramálum eftir að ríkissáttasemjari lagði fram miðlunartillögu sem knýr félagsmenn í Eflingu til að kjósa um þann kjarasamning sem lagður hefur verið fram og samþykktur af öðrum félögum. Rætt er um hvort það sé ábyrg ákvörðun eða ótímabær. Þá er rætt um stöðu ÍL sjóðs, hvort að fyrrverandi umboðsmaður Alþingis hafi eitthvað raunverulegt fram að færa um sölu ríkisins í Íslandsbanka, um uppkaup á gjaldeyrismarkaði og hversu ...

Jan 26, 20231 hr 1 minSeason 1Ep. 110

#109 – Heiðar Guðjóns fjallar um hringrásarhagkerfi vondra hugmynda frá vinstri

Heiðar Guðjónsson fjárfestir ræðir um hvaða áhrif – og afleiðingar – það hefur þegar ríkisvaldið verður of stórt og ósjálfbært, hvort að Ísland sé að stefna í þá átt, hvernig hagkerfi heimsins koma til með að breytast á næstu áratugum í samanburði við liðin ár, hvernig stjórnmálamenn tala ítrekað um sjálfbærni en reka ósjálfbæran ríkissjóð, fortíðarþrá vinstri manna og hringrásarhagkerfi vondra hugmynda. Þá er rætt um yfirvofandi orkukreppu, ónýtt tækifæri Íslands í notkun orkuauðlinda og þann e...

Jan 20, 202356 minSeason 1Ep. 109

#108 – Þegar fíflunum fjölgar – starfsmaður á plani í egótrippi – ríkisbankinn sópar upp gjaldeyri

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um stöðuna á vinnumarkaði og þann skaða sem Efling kann að valda með fyrirhuguðum aðgerðum, lélegt val RÚV á álitsgjöfum um viðskipti og efnahagsmál, hvaða þýðingu það hefur að gera sátt við yfirvöld, um skrýtinn fréttaflutning af mengun í Reykjavík, uppsagnir forstjóra og loks stöðuna á gjaldeyrismarkaði. Það er því komið víða við í þætti dagsins .

Jan 13, 20231 hr 29 minSeason 1Ep. 108

#107 – Fjárfestingar og fjármálalæsi með Fortuna Invest

Aníta Rut Hilmarsdóttir, viðskiptastjóri í eignastýringu hjá Fossum fjárfestingabanka, og Rósa Kristinsdóttir, sérfræðingur í fjárfestingum hjá sjóðastýringarfélaginu Vex, stofnuðu samstarfsvettvanginn Fortuna Invest ásamt Kristínu Hildi Ragnarsdóttur. Tilgangur Fortuna er að stuðla að auknu fjármálalæsi og auka fjölbreytta þátttöku á fjármálamarkaði. Í þættinum ræða þær Aníta og Rósa um ræða um fjárfestingar, sparnað, fjármálalæsi, kynjahlutföll á markaði og margt annað – auk þess sem þær velta...

Jan 10, 202342 minSeason 1Ep. 107

#106 – Þriðja vaktin með Þórði og Erni

Þórður Gunnarsson frá Innherja og Örn Arnarson frá Viðskiptablaðinu taka þriðju vaktina þessa helgi. Lifandi þáttur þar sem rætt er um mikilvægi styttingu vinnuviku opinberra starfsmanna, hringrásaverðmæti verðmætanna sem meðal annars leggja grunn að ríkisreknum fjölmiðli, það hvort að matvöruverslanir þurfi að gefa eftir af arðsemiskröfu sinni og margt annað skemmtilegt.

Jan 06, 202353 minSeason 1Ep. 106

#105 – Áramótasprengjan með Herði og Stefáni Einari

Hörður Ægisson, ritstjóri Innherja, og Stefán Einar Stefánsson, dagskrárgerðarmaður á Morgunblaðinu, fara yfir árið sem nú er að líða. Fjallað er um áhrif af verðbólgunni sem fáum nú að kynnast í fyrsta sinn af einhverri alvöru í tæp 40 ár, aukin ríkisútgjöld, kjánaskap verkalýðshreyfingarinnar, stjórnleysið í Reykjavík, undarlega umræðu í kringum söluna á Íslandsbanka og skrýtna skýrslu Ríkisendurskoðunar, söluna á Mílu, aðra jákvæða þætti í viðskiptalífinu og margt fleira.

Dec 29, 20221 hr 9 minSeason 1Ep. 105

#104 – Geir H. Haarde ræðir um landsdómsmálið og ferilinn í stjórnmálum

Geir H. Haarde, fv. forsætisráðherra, ræðir um nýútkomna bók Hannesar H. Gissurarsonar stjórnmálafræðiprófessors um landsdómsmálið, sem líklega er svartasti blettur á íslenskri stjórnmálasögu. Beita þurfti pólitískum klækjum til að velta málinu af stað og dómarar í málinu teygðu sumir lagabókstafinn nokkuð langt til að komast að þeirri niðurstöðu. Þá ræðir Geir jafnframt um feril sinn í stjórnmálum, árangurinn sem hann náði og hvað tók við eftir að ferlinum lauk.

Dec 23, 202251 minSeason 1Ep. 104

#103 – Hægri hjörtun hugguð fyrir jólin

Óli Björn Kárason, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, fer yfir helstu málin í pólitíkinni og það hvort að Sjálfstæðisflokkurinn sé að fylgja þeirri hugmyndafræði sem hann öllu jafna segist standa fyrir.

Dec 19, 202251 minSeason 1Ep. 103

#102 – Uppgjör bankamanns með Lárusi Welding

Lárus Welding, fv. forstjóri Glitnis, segir frá nýútkominni bók sinni, Uppgjör bankamanns. Í þættinum ræðir hann um tíma sinn hjá Glitni og 12 ára baráttu í réttarkerfinu, lærdóminn sem draga má af því ferli, um mýturnar sem sköpuðust í kringum starfsemi bankanna fyrir hrun og fleira þessu tengt. Þá ræðir hann einnig um stöðuna í íslensku efnahagslífi – sem og því breska þar sem hann starfar hluta af ári.

Dec 11, 202250 minSeason 1Ep. 102

#101 – Allt sem þú vilt vita um Kóreustríðið og hvaða áhrif það hafði á heiminn

Út er komin bókin Kóreustríðið eftir breska sagnfræðinginn Max Hastings, í þýðingu Magnúsar Þórs Hafsteinssonar. Magnús Þór er gestur í hlaðvarpi Þjóðmála þar sem hann fjallar um bókina, pólitíkina á bakvið stríðið, af hverju það er stundum talað um Kóreustríðið sem týnda stríðið, af hverju því lauk í raun aldrei, hvaða afleiðingar það hefur enn í dag, hvaða áhrif stríðið hafði á Ísland og marga aðra vinkla sem þessu tengjast.

Dec 05, 202257 minSeason 1Ep. 101

#100 – Eru Tenerife-ferðir flatskjáir nútímans? – Borgarlína toppar ÍL-sjóð – Velmegunarvandi Landverndar

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson fara, í hundraðasta þættinum í hlaðvarpi Þjóðmála, yfir það helsta sem er að eiga sér stað þessa dagana. Þar má nefna kjaraviðræður og óstöðuga leiðtoga verkalýðshreyfingarinnar, hvort að þjóðin sé að hlusta á varnarorð seðlabankastjóra, hvort og hvenær velmegun leiðir okkur út í skurð og hverjir það eru sem skapa raunveruleg verðmæti. Þá er rætt um atburði sem eru að eiga sér stað í Kína og Íran þar sem ungt fólk er að rísa upp gegn stjórnlyndi.

Nov 29, 20221 hr 15 minSeason 1Ep. 100

#99 – Lækkun skatta er ákvörðun – Hægt að gera betur í rekstri sveitarfélaga

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi, kom eins og stormsveipur inn íslensk stjórnmál fyrr á þessu ári. Hún ræðir hér um rekstur Kópavogsbæjar, um loforðalistann sem hún lagði fram fyrir kosningar, mikilvægi þess að halda sköttum og gjöldum í lágmarki, hvernig skattar eru að lækka í Kópavogi á meðan þeir eru að hækka í Reykjavík, hvort að sveitarfélögin séu að sinna óþarfa verkefnum, hvort það sé gott fyrir skattgreiðendur að mynduð sé pólitísk sátt um útgjöld hins opinbera og margt flei...

Nov 25, 202246 minSeason 1Ep. 99

#98 – Verðmætin í hafinu verða ekki til af sjálfu sér

Agnes Guðmundsdóttir, markaðsstjóri hjá Icelandic-Asia, og Margrét Kristín Pétursdóttir, forstöðumaður gæðamála hjá Vísi, ræða um Félag kvenna í sjávarútvegi og stöðu kvenna í karllægum geira, um stöðu sjávarútvegsins, nýsköpun í greininni, sjálfbærni og umhverfismál, um framtíðina í íslenskum sjávarútvegi, breytta neytendahegðun og auknar kröfur neytenda og margt fleira.

Nov 21, 202245 minSeason 1Ep. 98

#97 – Blind stjórnarandstaða leiðir halta fjölmiðla - Allt sem þú þarft að vita um sölu á ríkisbanka

Viðskiptablaðamennirnir Hörður Ægisson og Örn Arnarson ræða um viðbrögðin við skýrslu Ríkisendurskoðunar um söluna á Íslandsbanka, þá þætti sem stjórnmálamenn kjósa að líta framhjá eða misskilja, hvort ríkið hefði getað fengið meira fyrir bankann en raun bara vitni og hvort það hefði verið æskilegt markmið, umfjöllun fjölmiðla og margt annað sem tengist þessu máli sem er á allra vörum um þessar mundir.

Nov 15, 202247 minSeason 1Ep. 97

#96 – Líf eftir landsfund – Einn fyrir alla og allir fyrir alla

Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson fara yfir landsfund og formannskjör Sjálfstæðisflokksins, stöðu þeirra sem þar buðu sig fram eftir fundinn, stöðu flokksins og áhrifin á stjórnmálin. Þá er einnig rætt um stöðu Samfylkingarinnar sem nýlega kaus sér nýjan formann, það hvort að flokkurinn hafi tekið upp nýja stefnu, stöðu annarra flokka sem vilja verða stórir og það hvernig flokkum sem vilja ná höfða til allra gengur í pólitík.

Nov 08, 202253 minSeason 1Ep. 96

#95 – Formannsslagur í Sjálfstæðisflokknum og umbúðaskipti á Samfylkingu

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða um væntanlegan formannsslag í Sjálfstæðisflokknum, viðhorf flokksmanna gagnvart ríkisstjórnarsamstarfinu, hvað getur haft áhrif á formannskjör, hvaða erindi Guðlaugur Þór Þórðarson eigi í embætti, hvort að Bjarni Benediktsson og stuðningsmenn hans hafi sofið á verðinum og margt fleira. Þá er rætt stuttlega um nýja forystu og nýjar umbúðir Samfylkingarinnar.

Oct 30, 20221 hr 5 minSeason 1Ep. 95
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android