Þjóðmál - podcast cover

Þjóðmál

Þjóðmálwww.thjodmal.is
Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

#94 – Ungliðadeildin rýnir í heitustu málin

Brynjar Níelsson og Óli Björn Kárason ræða um félagafrelsi á vinnumarkaði og mikilvægi þess að fólk geti valið hvort það standi innan eða utan stéttarfélaga og um þá stöðu sem hefur skapast í málefnum útlendingar og hvort – og þá hvernig – stjórnmálin ætla að bregðast við. Þá er rætt um ríkisstjórnarsamstarfið, samskipti þeirra flokka sem eru í meirihluta á þinginu og hvort hægt sé að réttlæta samstarfið með þeim rökum að það sé skásti kosturinn.

Oct 20, 20221 hr 9 minSeason 1Ep. 94

#93 – Hver vann (skrípa)leikinn á ASÍ þinginu?

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða nýafstaðið ASÍ þing þar sem allt fór í háaloft, verkalýðsbaráttu sem snýst um allt mögulegt nema launþegana sjálfa, hvað má og má ekki segja í þjóðfélagsumræðunni, hvort að ríkisstjórnin hafi burði til að takast á við þau flóknu málefni sem hún stendur frammi fyrir og margt fleira.

Oct 14, 20221 hr 26 minSeason 1Ep. 93

#92 – Að heyja stríð með úreltum búnaði – Farið yfir stöðuna í Úkraínu

Kristján Johannessen, fréttastjóri á Morgunblaðinu, ræðir um innrás Rússa inn í Úkraínu, hvað veldur því hvernig átökin hafa dregist á langinn, um hernaðartaktík sem ýmist hefur brugðist eða verið illa undirbúin, um strákana frá Síberíu sem fóru á heræfingu en snúa aldrei aftur, hvaða þýðingu það hafði að sökkva flaggskipi Svartahafsflota Rússa, hvernig tækni er notuð til að verjast innrásinni, hvers vænta má á næstu vikum og margt fleira.

Oct 09, 202256 minSeason 1Ep. 92

#91 – Að kaupa undir vopnaglamri og selja undir lúðrablæstri – Rauðglóandi markaðir en pantanabókin í lagi

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða stöðuna á hlutabréfamarkaði, aukin ríkisútgjöld, það hvort að það sé hollt að upplifa verðbólgu eða ekki, stöðu Marels og traust fjárfesta í garð félagsins, komandi hluthafafund í Sýn, rannsókn á sölu Íslandsbanka, komandi kjaraviðræður, horfurnar í efnahagslífinu og mikilvægi þess að félagsmenn í stéttarfélögunum láti ekki fámenna klíku í forystu félaganna leiða sig út í skurð.

Sep 30, 202253 minSeason 1Ep. 91

#90 – Peningar og pólitík krúnunnar

Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóra Greiningar Íslandsbanka, og Davíð Þorláksson, lögfræðingur og framkvæmdastjóri, fjalla um arfleið Elísabetar II. Bretlandsdrottningar, veraldleg verðmæti krúnunnar, pólitíkina í kringum breska konungsdæmið, framtíð þess og sögulegt samhengi og fleira markvert á þeim merkilegu tímamótum sem nú eiga sér stað í Bretlandi og samveldinu.

Sep 20, 202249 minSeason 1Ep. 90

#89 – Lífsgæðin í dag fengin að láni – Innantóm umræða um hækkun skatta – Flókin staða lífeyrissjóða

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um útgjaldaaukningu í fjárlögum og það hvort að ríkisstjórnin hafi misst tökin á fjármálum ríkisins, hvar fjármagni er sóað, hvort að núverandi lífsgæði sé fengin að láni, hvort hægt sé að loka gatinu í hallarrekstri og fleira. Þá er rætt um sölu Símans á Mílu og það tjón sem Samkeppniseftirlitið hefur valdið lífeyrissjóðum sem eru stórir hluthafar Símans, um ákvarðanir lífeyrissjóða við stjórnarkjör í Festi og í Sýn, hvort að tilnefndinganefndir sk...

Sep 16, 20221 hr 22 minSeason 1Ep. 89

#88 – Fjármál Reykjavíkur í járnum og hagkerfið í línudansi

Guðný Halldórsdóttir, blaðamaður á Viðskiptablaðinu, og Þórður Gunnarsson, hagfræðingur og varaborgarfulltrúi, ræða um fjármál Reykjavíkurborgar, stöðuna í hagkerfinu, það hvernig við nálgumst umræðu um skatta, ofurlaun og margt fleira.

Sep 09, 202245 minEp. 88

#87 – Það sem ekki má ræða og verkefnin sem stjórnmálin ráða ekki við – Þarf að fara fram covid-uppgjör?

Andrés Magnússon og Sigríður Á. Andersen fara yfir allt það helsta, hvort tilefni sé til að hefja umræðu um svonefnd Evrópumál, hvaða áhrif stríðið í Úkraínu mun hafa hér heima sem erlendis, hvort að viðskiptaþvinganir eigi rétt á sér, um hvaða burði við höfum til að taka á móti flóttamönnum og hvort að stjórnmálamenn ráði við flókin verkefni. Þá er rætt um það hvort að rétt sé að skoða og gera upp aðgerðir stjórnvalda í covid-faraldrinum og hvaða áhrif slíkt uppgjör á að hafa.

Sep 02, 20221 hr 7 minSeason 1Ep. 87

#86 – Hvað gerir Evrópa þegar henni verður kalt? – Björn Bjarnason fyrir yfir stöðu mála erlendis og hér heima

Björn Bjarnason , fv. ráðherra, ræðir um stöðu mála í Úkraínu, hvaða afleiðingar átökin þar geta haft á stjórnmál í Evrópu og víðar, hvort að ríki vesturlanda séu að standa með úkraínsku þjóðinni í raun og veru, um viðskipti vestrænna ríkja við Rússland og fleira. Þá er rætt um vandræðagang meirihlutans í Reykjavík, skort á erlendum fjárfestingum á Íslandi og tilgangslausar ríkisstofnanir.

Aug 26, 20221 hr 3 minSeason 1Ep. 86

#85 – Krýning Kristrúnar – Er pláss fyrir pólitík í stjórnmálum? – Einar tekur boltann en ekki hitann

Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson ræða um framboð Kristrúnar Frostadóttur til formanns Samfylkingarinnar, stöðu flokksins og hvar hann ætlar að staðsetja sig í íslenskum stjórnmálum. Einnig er einnig rætt um stöðu annarra flokka og hvort að það séu leiðtogakrísur framundan, klúður meirihlutans í Reykjavík við úthlutun leikskólaplássa, það hvort að borgarstjóri sé búinn að missa salinn og hlutverk Einars Þorsteinssonar. Loks er rætt um styrjaldarástandið sem ríkir innan verkalýðshreyfingar...

Aug 19, 20221 hr 34 minSeason 1Ep. 85

#84 – Kampavín og kjarasamningar – Skemmdarverk Samkeppniseftirlitsins – Hver ræður hverju innan Seðlabankans?

Stefán Einar Stefánsson og Hörður Ægisson ræða um brotthvarf forseta ASÍ og átök innan verkalýðshreyfingarinnar, áhrif þess á komandi kjaraviðræður, áhrif byltingarinnar á liðsmenn hennar og fleira þessu tengt. Þá er rætt um sölu Símans á Mílu og þann skaða sem Samkeppniseftirlitið hefur valdið í því máli. Loks er rætt um möguleika Seðlabankans til að takast á við verðbólgu og efnahagsaðstæður – en ekki síst um stöðu Ásgeirs Jónssonar innan Seðlabankans, þann mannskap sem hann hefur sér til aðst...

Aug 10, 20221 hr 20 minSeason 1Ep. 84

#83 – Titringur á samfélagsmiðlum með Brynjari Níelssyni

Brynjar Níelsson, varaþingmaður og aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, ræðir um það helsta í pólitískri umræðu í dag, af hverju hann nennir að pirra vinstrið með pistlum sínum á samfélagsmiðlum, hvort og þá hvaða árangur það hefur og margt fleira.

Aug 03, 202251 minSeason 1Ep. 83

#82 – Brekkusöngur kapítalismans með Hannesi Hólmsteini

Hannes Hólmsteinn Gissurarson stjórnmálafræðiprófessor mætir í gott spjall í aðdraganda verslunarmannahelgarinnar. Í þættinum er meðal annars rætt um það hvort að hið frjálsa markaðshagkerfi hafi í raun sigrað eftir að ráðstjórnarríkin hrundu og hvort kapítalisminn sé ríkjandi sigurvegari. Þá er rætt um það hvort að hugsuðir og hugmyndafræðingar séu enn til, um baráttu hugmynda, popúlisma, slaufunarmenningu og vælugang, afleiðingar af of háum sköttum og margt fleira.

Jul 28, 20221 hr 5 minSeason 1Ep. 82

#81 – Undir ægivaldi Samkeppniseftirlitsins – Eru tilnefninganefndir óþarfar?

Viðskiptablaðamennirnir Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fara yfir allt það helsta sem er að gerast í viðskiptalífinu; kaup Ardian á Mílu, tafir Samkeppniseftirlitsins á því máli og fleirum, valdabaráttu í Festi og hlutverk tilnefninganefnda, nýjar skráningar á markaði, verðbólguhorfur, það hvort að aðgerðir Seðlabankans séu að virka eða ekki og margt fleira.

Jul 12, 20221 hr 29 minSeason 1Ep. 81

#80 – Tjáningarfrelsið sett á bálköstinn?

Arnar Þór Jónsson, lögmaður og varaþingmaður, fjallar um tjáningarfrelsi og þjóðfélagsumræðu, hver má segja hvað, hvenær og hvernig – og hver ekki. Þá er rætt um hvaða afleiðingar það hefur ef að dómstóll götunnar tekur sér aukið vald á kostnað réttarríkisins, hvort að opinberar stofnanir og embættismenn hafi gengið of langt gagnvart almenningi og fyrirtækjum og hvort það samfélaginu sé stjórnað af lýðræðislega kjörnum fulltrúum eða öðrum kerfisþáttum.

Jun 30, 20221 hr 8 minSeason 1Ep. 80

#79 – Hver er Jordan Peterson og hvað hefur hann að segja?

Gunnlaugur Jónsson fjallar um kanadíska sálfræðinginn Jordan Peterson, sem kemur í annað sinn til Íslands og flytur fyrirlestur í Háskólabíó á laugardaginn. Peterson hefur vakið athygli víða um heim og bækur hans hafa verið metsölubækur. En hver er þessi maður, hvað hefur hann að segja og af hverju sækja svo margir, þá sérstaklega karlmenn, í það að hlusta á hann? Þessum spurningum og fleiri til er svarað í þættinum, einnig er farið fyrir muninn á eitraðri karlmennsku og því að sýna krafta sína,...

Jun 22, 202253 minSeason 1Ep. 79

#78 – Hvað er að gerast í hagkerfinu? – Þegar Kína hnerrar fær Evrópa kvef

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um stöðu mála í hagkerfinu, af hverju hlutabréfaverð er að lækka, hvað sé að valda aukinni verðbólgu, áhrif stríðsins í Úkraínu á hagkerfi bæði hér heima og erlendis, hvort við séum að fara inn í kreppuástand og fleira til. Þá er einnig rætt um nýlegt útboð Ölgerðarinnar og Nova og það hvernig mismunandi aðferðir við útboðin geta haft áhrif á trúverðugleika hlutabréfamarkaðarins.

Jun 16, 202256 minSeason 1Ep. 78

#77 – Ekki pláss fyrir tvær drottningar í sömu höll – Er Einar Þorsteinsson íslenska útgáfan af Obama?

Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson ræða um myndun nýs meirihluta í Reykjavík, það hvort að Dagur B. Eggertsson hafi snúið sér út úr erfiðri stöðu og hvort hann eigi erindi í formannsstól Samfylkingarinnar, hvort að Einar Þorsteinsson sé íslenska útgáfan af Obama og hversu lengi nýjabrumið varir, hvort að komið sé fordæmi fyrir því að útiloka Sjálfstæðisflokkinn frá ríkisstjórnarsamstarfi og margt fleira sem helst ber á góma í pólitískri umræðu í dag.

Jun 08, 202254 minSeason 1Ep. 77

#76 – Sjálfstæðisflokkurinn þarf að vakna

Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans og fv. borgarfulltrúi, ræðir um endurmyndun vinstri meirihluta í Reykjavík, stöðu Sjálfstæðisflokksins og áform vinstri aflanna að setja flokkinn út í horn í landsmálunum. Þá er rætt um dyggðarstjórnarmál, hneykslunarbylgjur og bergmálshella í stjórnmálaumræðu sem nær litlum framförum.

Jun 02, 202253 minSeason 1Ep. 76

#75 – Hvort sem þú býrð á Seyðisfirði eða í Seattle

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, fjallar um það af hverju rúmlega 500 manns höfðu áhuga á því að hlýða á fyrirlestur þar sem hún fjallaði um áherslur sínar í nýju ráðuneyti, hvort að stjórnvöld hafi raunverulegan áhuga því að efla nýsköpun og útflutningstekjur, hvort að íslenskir háskólar séu nógu góðir til að takast á við framtíðina og hvort að hægt sé að gera betur við að efla atvinnulífið til lengri tíma. Þá er fjallað um samskipti atvinnulífsins og hin...

May 23, 20221 hrSeason 1Ep. 75

#74 – Kosningarnar krufnar – Hversu lengi endist Framsóknarbylgjan?

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða um niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna, hvað það var sem vakti athygli og hvað kom á óvart. Rætt er um Framsóknarbylgjuna sem tröllríður stjórnálunum, hvað er að baki henni og hversu lengi það dugir, veika stöðu Viðreisnar, varnarbaráttu Sjálfstæðisflokksins, það hvort að bankasala hafi haft áhrif á niðurstöður kosninganna og margt fleira.

May 15, 20221 hr 6 minSeason 1Ep. 74

#73 – Pólitíkin þarf að tala minna og gera meira til að einfalda líf fólks og fyrirtækja

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, fer yfir stöðuna nú þegar lokasprettur kosningabaráttunnar er hafinn í borginni. Í þættinum er fjallað um menntamál og lausnir á biðlistum í leikskóla, atvinnumál í borginni, hina umdeildu borgarlínu, endurtekið efni vinstri manna úr borgarstjórnarkosningum fyrri ára og margt fleira. Þá svarar Hildur ásökunum um það að hún hafi ekki mætt á borgarstjórnarfundi á liðnum vikum og skýrir hvar hin raunverulega vinna borgarfulltrúa fer fra...

May 09, 202238 minSeason 1Ep. 73

#72 – Samfylkingin búin að hafa 28 ár til að bæta menntamál í Reykjavík

Þórdís Jóna Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri og frambjóðandi Viðreisnar í Reykjavík, ræðir um menntamál og stöðu þeirra hér á landi. Hún segir nóg komið að 28 ára yfirsetu Samfylkingarinnar og forvera hennar á menntamálum í Reykjavík og breytinga sé þörf á þeirri stefnu sem þar ríkir. Rætt er um starfsemi sjálfsætt starfandi skóla og viðhorf yfirvalda gagnvart þeim, þau hugtök og stefnur sem hafa verið innleiddar til að bæta menntun með misjöfnum árangri, stöðu kennara, mikilvægi þess að efla sj...

May 06, 202254 minSeason 1Ep. 72

#71 – Ofhituð umræða um bankasölu

Hörður Ægisson, ritstjóri viðskiptamiðilsins Innherja á visir.is, og Örn Arnarson, ritstjórnarfulltrúi á Viðskiptablaðinu, ræða um söluna á hlut ríkisins í Íslandsbanka, hvað tókst vel og hvað hefði betur mátt fara, undarlegan fréttaflutning af málinu, þekkingarleysi stjórnmálamanna og ýmislegt annað sem snýr að þessu máli sem mikið er í umræðunni þessa dagana.

Apr 29, 202252 minSeason 1Ep. 71

#70 – Villta tryllta vinstrið í verkalýðshreyfingunni – Rangstæð stjórnarandstaða

Andrea Sigurðardóttir og Þórður Gunnarsson fara yfir undarlega atburðarrás í Eflingu þar sem hreinsanir standa yfir, valdabaráttu innan verkalýðshreyfingarinnar og áhrifin sem þessi farsi kann að hafa á komandi kjaraviðræður. Þá er einnig fjallað um útboðið á hlut ríkisins í Íslandsbanka og það hvort að sú gagnrýni sem fram hefur komið eigi rétt á sér eða ekki, stöðu efnahagsmála og hvenær þolinmæði heimila fyrir hærra vöruverði þrýtur.

Apr 20, 202258 minSeason 1Ep. 70

#69 – Bankasala á Búnaðarþingi – Skál í boðinu

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða um söluna á hlut ríkisins í Íslandsbanka, hvort að hún hafi verið vel heppnuð og leikþátt stjórnmálanna í kringum söluna. Þá er rætt um stöðu formanns Framsóknarflokksins eftir ummæli sem hann lét falla í garð framkvæmdastjóra Bændasamtakanna en einnig um komandi sveitarstjórnarkosningar. Með þættinum var drukkið rauðvín frá Þýskalandi sem gerði umræðuna dýpri og skemmtilegri.

Apr 08, 20221 hr 12 minSeason 1Ep. 69

#68 – Bergmálshellar fjölmiðla – Friður rofinn í Evrópu

Sigurður Már Jónsson blaðamaður ræðir um stöðu og hlutverk fjölmiðla, hver það er sem skráir söguna og út frá hvaða forsendum, hvort að nýir miðlar minnki vægi hefðbundinna fjölmiðla, hvort að fjölmiðlar njóti í dag ritstjórnar og margt fleira sem snýr að fjölmiðlum. Þá er einnig rætt um stjórnmálaumræðu í kringum aðild að NATO og ESB í kjölfar átaka í Úkraínu.

Apr 01, 20221 hr 24 minSeason 1Ep. 68

#67 – Pólitískir leikþættir vekja meiri athygli en alvöru rökræður

Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur stundum lýst sér sem sérlegum varðhundi allra lasta. Hún ræðir hér um það hversu langt ríkisvaldið á að teygja sig í búa til dagmömmuríki til að gæta okkar fyrir okkur sjálfum, hvernig reglur um áfengisverslun og tæknifrjóvgun eru langt á eftir samfélagslegri þróun, hvort að yngri kynslóðir geri óeðlilegar kröfur til hins opinbera og það hvernig umræður á þinginu spinnast stundum upp í pólitísk leikrit eins og gerst hefur þegar rætt er ...

Mar 25, 202259 minSeason 1Ep. 67

#66 – Það vill enginn vera í reiða liðinu - Don't Get High On Your Own Supply

Friðjón Friðjónsson, sem sækist eftir sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningar, og Katrín Atladóttir, sem mun í vor láta af störfum sem borgarfulltrúi, fara yfir málefni Reykjavíkurborgar, hvernig vinstri meirihlutinn er með sömu kosningaglærur og fyrir fjórum árum en með breyttum ártölum, það hvort að borgarlínan sé mál sem þurfi að ræða aftur og aftur og margt annað sem snýr að rekstri og þjónustu borgarinnar og komandi kosningum.

Mar 14, 202247 minSeason 1Ep. 66

#65 – Úrslit í prófkjörum krufin með kampavíni – Bókhaldsbrellur í borginni – Framboð í beinni útsendingu

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson frá Morgunblaðinu fara yfir úrslit úr öllum helstu prófkjörum sem búið er að halda, hver unnu og hver töpuðu, hvaða áhrif niðurstöðurnar hafa, hvers má vænta úr þeim prófkjörum sem eftir eru og undirbúning sveitarstjórnarkosninga í vor. Þá er fjallað um bókhaldsbrellur Reykjavíkurborgar sem eiga að fegra slæman fjárhag borgarinnar, hvort það hafi verið í lagi að tilkynna um framboð í beinni útsendingu í svonefndum skemmtiþætti í sjónvarpi ríkisins og ý...

Mar 08, 20221 hr 12 minSeason 1Ep. 65
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android