Þjóðmál - podcast cover

Þjóðmál

Þjóðmálwww.thjodmal.is
Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

#154 – Maraþonþáttur Þjóðmála

Við skellum í fjögurra klukkustunda þátt fyrir þá sem hlaupa maraþon – og alla hina sem vilja alvöru umræðu um þjóðfélagsmál. Fjölmargir gestir líta við og bjóða hér upp á úrvalsefni sem enginn má láta framhjá sér fara.

Aug 18, 20234 hr 4 minSeason 1Ep. 154

#153 – Stjórnkerfið í sumarfríi – Orkuskipti með orku sem má ekki framleiða

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um hugmyndir framsóknarmanna um bankaskatt, losunarheimildir í skipaflutningum og viðhorf stjórnvalda til atvinnulífsins í því samhengi, um undarleg ummæli orkumálastjóra, kyrrstöðu í frekari orkuöflun og verðmætasköpun í landinu og það hvort að stjórnkerfið sé fullt af fólki sem vill ekki sjá frekari orkuöflun. Í þættinum er einnig rætt um bréf forstjóra Stoða til hluthafa félagsins og gagnrýni hans á rekstur Kviku banka, um það hvort að Þorsteinn ...

Aug 15, 20231 hr 23 minSeason 1Ep. 153

#152 – Stríð og friður – Brothætt staða Samfylkingarinnar – Björn Bjarnason fer yfir stöðuna

Björn Bjarnason ræðir um stöðuna í stjórnmálunum, bæði hér á landi og erlendis. Rætt er um kvikmyndina um Oppenheimer og það hvaða áhrif framleiðsla á kjarnorkuvopnum hefur haft á valdajafnvægi í heiminum, stöðuna í Úkraínu og hvað kann að vera framundan á þeim vígstöðvum, um það hvort við séum að meta alþjóðastjórnmál í baksýnisspeglinum eða hvort við getum metið framtíðina af atburðum nútímans og margt fleira. Þá er einnig rætt um stöðuna í stjórnmálum hér á landi, ágreining innan ríkisstjórna...

Aug 07, 202350 minSeason 1Ep. 152

#151 – Brekkusöngurinn með Herði og Stefáni Einari – Gjaldeyrir flýgur um á þyrlum

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fara léttir inn í verslunarmannahelgina. Í nýjum þætti er rætt um stöðu ferðaþjónustunnar og hvernig ferðamenn við viljum helst fá til landsins, um hagnað bankanna og traust almennings til bankakerfisins, um nýja stjórn Íslandsbanka og það hvernig kjör hennar fór fram, um þingmann Pírata sem vill efla lögregluna og margt fleira.

Aug 02, 20231 hr 9 minSeason 1Ep. 151

#150 – Verðbólga eða gróðabólga? – Eru margir á Þór Saari vagninum? – Ekki láta hávaðann ráð för

Þórður Gunnarsson og Örn Arnarson fara yfir málefni líðandi stundar á helgarvakt hlaðvarps Þjóðmála. Rætt er um tiltrú á aðgerðir Seðlabankans og stjórnvalda í baráttu við verðbólgu og hvort að það sé rétt að tala um verðbólgu sem gróðabólgu, hvort það sé góð hugmynd að stofna þjóðarsjóð, það hvernig stjórnvöld nota Samkeppniseftirlitið eins og svissneskan vasahníf, um hluthafafund í Íslandsbanka, hvort að ferðaþjónustan sé að draga niður kaupmátt heimilanna og það hvort að heimurinn sé að stikn...

Jul 30, 202356 minSeason 1Ep. 150

#149 – Heimsókn í Friðheima – Skál fyrir Guðmundi í Brim – Fasteignastefna Framsóknar

Hlaðvarp Þjóðmála kíkir í heimsókn á Friðheima og þáttur dagsins er tekinn upp í nýrri vínstofu þar á bæ. Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um mikilvæga atvinnuuppbyggingu í tómataframleiðslu og ferðaþjónustu og hvaða þýðingu það hefur þegar fólk tekur áhættu og leggur sig fram við að ná árangri. Þá er rætt um minnkandi verðbólgu og hvort ástæða sé fyrir bjartsýni í þeim málum, um veiðiferð Samkeppniseftirlitsins á sjávarútveginn, viðtal við Þorstein Víglundsson sem birtist í Viðski...

Jul 24, 20231 hr 27 minSeason 1Ep. 149

#148 – Pólitíkin þarf ekki að vera sammála um allt – Bjarni Benediktsson í ítarlegu viðtali

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, kemur víða við í ítarlegum þætti. Rætt er um samstarfið í ríkisstjórninni og það hvort að samstarfið hangi á bláþræði, þann pólitíska vilja sem skortir til að taka á málefnum hælisleitenda, helstu áskoranirnar sem eru framundan á vettvangi stjórnmálann, hvort að til greina komi að selja fleiri ríkisfyrirtæki, hvort að við séum búin að missa tökin á ríkisfjármálum, hvort til greina komi að lækka skatta enn frekar, hvort að em...

Jul 20, 20231 hr 28 minSeason 1Ep. 148

#147 – Sumargleði Þjóðmála heldur áfram – Katrín dyggasti stuðningsmaður Nato – Hrópræði hrekur skynsemina á brott

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða um þau mál sem hæst bera í góða veðrinu, hvernig þjóðfélagsumræðan fær að þróast og hverjir móta hana, hvort að hrópræði nái yfirtökum á umræðu á vettvangi stjórnmála, flókna stöðu forsætisráðherra sem segist vera á móti Atlantshafsbandalaginu en missir helst ekki af fundi þar, einkennilega áráttu opinberra starfsmanna til að banna allt mögulegt, og margt margt fleira.

Jul 17, 20231 hr 1 minSeason 1Ep. 147

#146 – Ríkið hér og ríkið þar, ríkið alls staðar

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, og Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, ræða um viðskiptafrelsi, samkeppnishæfni, samkeppni einkaaðila við ríkið, hvernig ríkið setur reglur sem reynast þröskuldar fyrir atvinnulífið, hvort einhver hafi beðið um ríkisrekstur í bögglasendingum og margt annað sem tengist útþenslu hins opinbera og það hvernig einkageirinn líður fyrir vikið.

Jul 13, 20231 hr 8 minSeason 1Ep. 146

#145 – Kerecis færir milljarða inn í landið - Þingmaðurinn sem enginn vissi að væri á þingi – Ríkisendurskoðandi lítill í sér

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fjalla um söluna á Kerecis, hversu ánægjulegt það er að auðmönnum skuli fjölga hér á landi, það mikilvæga hlutverk sem félagið gegnir og hvaða áhrif salan kanna að hafa í för með sér. Þá er fjallað um undarleg ummæli framsóknarþingmanns í umræðuþætti ríkisradíósins, ríkisendurskoðanda sem er lítill í sér og vantar athygli, fasteignafélögin sem allt í einu er vert að ræða um og margt, margt annað. Það er engin júlíútsala í hlaðvarpi Þjóðmála.

Jul 07, 20231 hr 2 minSeason 1Ep. 145

#144 – Jörðin skelfur og ríkisstjórnin titrar – Hvort rofnar fyrst?

Andrés Magnússon og Karítas Ríkharðsdóttir ræða um stöðuna í ástlausu hjónabandi ríkisstjórnarinnar, erjurnar sem hafa komið upp á stjórnarheimilinu og hvaða afleiðingar þær kunna að hafa, grein Óla Björns Kárasonar þar sem hann næstum því kallar eftir stjórnarslitum, hvernig næstu vikur og mánuðir kunna að vera og annað skemmtilegt úr stjórnmálum dagsins.

Jul 05, 202344 minSeason 1Ep. 144

#142 – Sáttin sem fól í sér sprengju – Hvað gerist næst í Íslandsbankamálinu? – Már setur sig í heimsklassa

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um rannsókn Fjármálaeftirlits Seðlabankans á starfsháttum Íslandsbanka, hvaða áhrif hún kunni að hafa, hvaða viðbrögð hún ætti að kalla fram og annað sem tengist málinu. Þá er fjallað stuttlega um ævintýralegt viðtal þar sem fyrrverandi seðlabankastjóri reynir, með undraverðum hætti, að endurskrifa söguna sér í hag.

Jun 27, 20231 hr 20 minSeason 1Ep. 142

#141 – Skyndilausnir skila ekki viðunandi árangri – Frelsismálin draga línur í sandinn – Áslaug Arna í viðtali

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla- iðnaðar og nýsköpunarráðherra, ræðir um það af hverju það skiptir máli í efnahagslegu tillitil að fá stráka til að hefja háskólanám, hvernig við berum okkur saman við önnur ríki og hvað við gætum mögulega lært af öðrum þjóðum. Þá gagnrýnir hún stjórnmálamenn sem líta á skattgreiðendur sem hlaðborð sem hægt sé að velja úr og ræðir um það hvernig stjórnmálin eiga það til að finna skyndilausnir án þess að leysa áskoranir til lengri tíma. Loks er rætt um hin s...

Jun 24, 202359 minSeason 1Ep. 141

#140 – Twitter stjórnsýsla Svandísar – Gildi og Hampiðjan – Forræðishyggjan á Þjóðminjasafnið

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um bann við hvalveiðum, skrýtna umræðu um orkumál, stöðuna í súru ríkisstjórnarsamstarfi og annað það helsta í pólitíkinni. Þá tökum við stöðuna á sameiningu VÍS og Fossa, fjöllum um útboð Hampiðjunnar og af hverju Gildi er ekki á lista yfir hluthafa, bílastæðamál við Leifsstöð, stöðuna í áfengissölu og margt fleira.

Jun 21, 20231 hr 12 minSeason 1Ep. 140

#139 – Ráðherrabreytingar og ráðherrapirringur – Framsókn dregur fram Jónas frá Hriflu

Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson ræða um aðdraganda, áhrif og afleiðingar ráðherraskipta í ríkisstjórn, þau áhrif sem Jón Gunnarsson hefur haft og hvaða áhrif Guðrún Hafsteinsdóttir kann að hafa, það hvort að umræða um málefni útlendinga hafi breyst og þá hvernig, hvernig þingheimur tekst á við breytingar á áfengismálum, það hvort að stjórnmálin séu eftirsóttur starfsvettvangur og hvaða atvinnumöguleika fyrrverandi stjórnmálamenn eiga og margt, margt annað í stútfullum þætti.

Jun 19, 20231 hr 16 minSeason 1Ep. 139

#138 – Stífla í orkuframleiðslu og íbúðauppbyggingu – Sigurður Hannesson fer yfir heitu málin

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, ræðir um orkumál og það hvort að stjórnvöld hafi sett sér óraunhæf markmið í loftslagsmálum, um uppbyggingu á íbúðamarkaði og mat á því hvaða áhrif þessi tvö atriði hafa á lífsgæði hér á landi. Þá er rætt um stöðuna á fjármálamarkaði og fyrirhugaðar sameiningar fjármálafyrirtækja, samkeppnishæfi landsins og margt annað.

Jun 16, 202347 minSeason 1Ep. 138

#136 – Ásgeir varpar sprengjum – Mýtan um elítusamfélagið

Þórður Gunnarsson og Örn Arnarson ræða um ummæli seðlabankastjóra um ríkissáttasemjara og verkalýðshreyfinguna, rætt er um verkfall BSRB, mýtuna um elíusamfélög, hverjir það eru sem greiða skatta í raun og veru og margt fleira gagnlegt.

Jun 08, 202355 minSeason 1Ep. 136

#134 – Í beinni frá Svíþjóð – Heimsókn á Karolinska – Reykbombur Viðreisnar um gjaldmiðlamál

Við leggjum land undir fót og kíkjum til Stokkhólms. Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um heimsókn hlaðvarpsins til Björns Zoëga, forstjóra Karolinska sjúkrahússins í Svíþjóð og það hvort – og þá hvað – megi læra af rekstri þessa stóra spítala. Þá er einnig rætt um brotthvarf ríkissáttasemjara úr starfi, undarlegum málflutningi Viðreisnar um gjaldeyrismál og margt fleira.

Jun 02, 20231 hr 2 minSeason 1Ep. 134

#133 – Óumdeildir stjórnmálamenn eru gagnslausir – „Nýja vinstrið“ festir woke-isma í lög

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fv. forsætisráðherra, ræðir um aðdragandann að myndun ríkisstjórnar árið 2013, um mistökin við að verja minnihlutastjórn falli árið 2009 og mörg af þeim pólitísku álitamálum sem við erum að eiga við í dag. Rætt er um óumdeilda stjórnmálamenn sem Sigmundur Davíð segir gagnslausa, átök við embættismenn og það hvernig stjórnmálamenn hafa afsalað sér völdum til embættismanna, galnar hugmyndir um lög um tjáningarfrelsi og margt fleira.

May 30, 20231 hr 28 minSeason 1Ep. 133

#132 – Einmana Seðlabanki í stríði við verðbólgu

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans, sem virðist standa einn í baráttu við verðbólguna. Rætt er um hlutverk vinnumarkaðarins og ríkisins sem virðast stikkfrí af allri ábyrgð á núverandi stöðu. Þá er rætt um stöðu bankanna og möguleika þeirra á erlendri fjármögnun, nýlegt viðtal við formann Samfylkingarinnar og margt fleira.

May 24, 202353 minSeason 1Ep. 132

#131 – Hver á vindinn og hvað gerist þegar ríkið verður of stórt?

Ragnar Árnason hagfræðiprófessor ræðir um auðlindanýtingu og það hvort að réttlætanlegt sé að skattleggja nýtingu auðlinda með öðrum hætti en annað. Einnig er rætt um það hvernig hægt er að takast á við verðbólgu og hvaða afleiðingar verðbólga hefur í nútíð og framtíð, sem og afleiðingar þess þegar ríkisvaldið verður of stórt og umsvifamikið.

May 18, 202345 minSeason 1Ep. 131

#129 – Og þá kom steypiregn og ríkið óx og óx

Óli Björn Kárason, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, ræðir um fjölda ríkisfyrirtækja og hvað mögulega sé hægt að gera með öll þessi fyrirtæki, um ríkisstjórnarsamstarfið, um það hvort að stjórnmálamenn hafi hæfileika og getu til að takast á við alvöru verkefni, hvort að ríkisstjórnin sé búin að missa tökin á ríkisútgjöldum, hvort að Sjálfstæðisflokkurinn sé búinn að missa tengingu við atvinnulífið og margt fleira.

May 11, 202357 minSeason 1Ep. 129

#128 – Velkomin á áfangastaðinn Raunveruleika – Marel í vandræðum – Engin þörf fyrir aukin lífsgæði?

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um öra verðlækkun á Marel sem hefur áhrif á allan hlutabréfamarkaðinn, uppgjör Festi sem er á skjön við umræðu um meintar verðhækkanir matvörurisa, það hvort að bankarnir eiga að lina þjáningar fólks vegna hækkandi vaxta, hlutverk Seðlabankans sem stendur einn í baráttu við verðbólguna, það hvort að við þurfum í raun og veru aukin lífsgæði, hugmyndir um frekari skattahækkanir, nýskipan varaseðlabankastjóra fjármálaeftirlits og margt fleira. Fjölbrey...

May 04, 20231 hr 1 minSeason 1Ep. 128

#127 – Engar rósir á borðum ríkisstjórnarinnar – Vondur díll fyrir Einar í borginni

Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson ræða um rómantíkina sem er horfin úr ríkisstjórnarsamstarfinu, um orkumál og vindmyllur, erfiða fjárhagsstöðu borgarinnar og vonlausa stöðu Einar Þorsteinssonar, aðför að sjávarútvegi og margt fleira. Vönduð umræða í vönduðu hlaðvarpi þar sem fjallað er um stjórnmál, viðskipti og efnahagsmál með fjölbreyttum hætti.

May 01, 20231 hr 43 minSeason 1Ep. 127

#126 – Gagnsókn í Úkraínu – Bjóðum kafbátana velkomna – Hverjir hefja þriðju heimsstyrjöldina?

Kristján Johannessen og Stefán Gunnar Sveinsson frá Morgunblaðinu hafa skrifað og fjallað manna mest um stríði í Úkraínu. Í hlaðvarpi Þjóðmála ræða þeir um stöðuna í stríðinu, áhrif þess á alþjóðastjórnmálin, hvernig næstu vikur geta orðið og það hvort að mögulegt sé að sjá fyrir endi á átökunum. Þá er rétt um komur bandarískra kafbáta til Íslands, möguleikana á þriðju heimsstyrjöldinni sem gæti hafist við Kyrrahaf, þróun í vopnabúnaði og margt fleira.

Apr 27, 202349 minSeason 1Ep. 126

#125 – Andvökunætur Alvotech – Bjagaðar hugmyndir Katrínar um arðgreiðslur

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um þær áskoranir sem Alvotech stendur frammi fyrir, hóflega væntingastjórnun til vaxtafyrirtækja og hvaða afleiðingar rekstur félagsins getur haft á íslenskt efnahagslíf. Þá er rætt um misheppnaða tilraun forsætisráðherra til að tengja saman arðgreiðslur og verðbólgu, aðför matvælaráðherra að sjávarútvegi, stöðuna á samruna VÍS og Fossa og undarlegan skort á vilja yfirvalda til að hækka lánshæfismat landsins. Það er komið víða við í þætti dagsins....

Apr 19, 20231 hr 8 minSeason 1Ep. 125
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android