Spegillinn - podcast cover

Spegillinn

RÚVwww.ruv.is
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Eldgos á Reykjanesskaga, heitavatnslaust á Suðurnesjum

8. febrúar 2024 Eldgos hófst skammt frá Svartsengi klukkan sex að morgni 8. febrúar. Sex tímum síðar hafði hraun runnið yfir heitavatnslögnina, Njarðvíkuræðina, frá Svartsengi til þéttbýlisins á Suðurnesjum og eyðilagt hana, með þeim afleiðingum að um 30.000 manns eru eða verða fljótlega án húshitunar og heits vatns og vegna þessa var lýst yfir neyðarstigi á öllum Suðurnesjum. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir ræðir stöðuna við Víði Reynisson, sviðsstjóra hjá Almannavörnum. Strax um hádegisbil var...

Feb 08, 202420 minEp. 245

Stríð í fjóra mánuði, loftslagsráð og ESB bregst við mótmælum bænda

7. febrúar 2024 Stríð Ísraels og Hamas hefur geisað í fjóra mánuði. Fjölmargir ísraelskir gíslar eru enn í haldi Hamas og tugþúsundir Palestínumanna hafa fallið á Gaza. Umhverfisverndarsamtök segja hvorki gætt að sjálfstæði né sérfræðiþekkingu loftslagsráðs í boðaðri reglugerð um ráðið. Víðtæk og fjölmenn mótmæli evrópskra bænda undanfarna daga og vikur virðast hafa náð eyrum leiðtoga og ráðamanna innan Evrópusambandsins, sem tilkynntu í gær um breytingar á tillögum sem miða að því að draga úr l...

Feb 07, 202420 minEp. 244

Verðmætum bjargað úr Einhamri, djúp og löng sprunga undir gervigrasi

Forsvarsmenn fyrirtækja fengu að fara inn í Grindavík í dag að bjarga verðmætum. Meðal þeirra var Stefán Kristjánsson eigandi fiskvinnslunnar Einhamars, sem er reyndar staðráðinn í að halda áfram sínum rekstri í bænum um leið og færi gefst. Arnar Björnsson fréttamaður hitti hann í aðgerðinum í dag, þegar var verið að bjarga 150 tonnum af beitu. Tækin ætlar hann ekki að fara með úr bænum. Bragi Valgeirsson myndatökumaður segir frá því þegar hann fór inn í Grindavík í dag og myndaði meðal annars þ...

Feb 06, 202420 minEp. 243

Óðaverðbólga í Argentínu, endurnýting á textíl og forsetakosningar í Finnlandi

5. febrúar 2024 Því er spáð að verðbólgan í Argentínu fari yfir 250 prósent í ár. Lífskjör landsmanna versna stöðugt. Meira en fjórir af hverjum tíu eru undir fátæktarmörkum. Verslun með notuð föt hefur aukist hér á landi undanfarin ár og verslunum með notaðan fatnað fjölgað mikið. Þetta er breyting í anda hringrásarhagkerfisins segir sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun. Hins vegar er engu minna hent af textíl. Flutt hafa verið út um 2500 tonn af textíl á ári undanfarin sjö ár og virðist það ekki ...

Feb 05, 202420 minEp. 242

Jarðhræringar og ferðaþjónusta, sameining háskóla og óveður í Noregi

2. febrúar 2024 Jarðskjálftahrinur og tíð eldsumbrot hafa einkennt síðustu fjögur ár á Reykjanesskaganum. Halda mætti að þetta hefði veruleg áhrif á þá kviku og mikilvægu atvinnugrein sem ferðaþjónustan er. Engu að síður stefnir í metár í farþegafjölda segir Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri, sem reiknar með 2.4 milljónum erlendra gesta til landsins. Formlegar viðræður um sameiningu Háskólans á Bifröst og Háskólans á Akureyri hefjast í næstu viku. Í viðtali við Selmu Margréti Sverrisdóttur segi...

Feb 02, 202420 minEp. 241

Palestína, stuðningur ESB við Úkraínu og yfirmaður Úkraínuhers

1. febrúar 2024 Sögulegar og pólitískar ástæður fyrir því að palestínska flóttamannahjálpin er að mestu fjármögnuð af nokkrum öflugum Vesturlöndum. Það gildir líka um ástæður þess að hin vellauðugu olíuríki við Persaflóann skuli ekki einfaldlega taka við keflinu undir þeim aðstæðum sem nú eru uppi, og líka því, að Egyptar vilja ekki opna landamærin að Gaza og taka á móti þeim milljónum Palestínumanna sem þar búa við sárustu neyð. Magnús Þorkell Bernharðsson heldur áfram að skýra nokkrar helstu f...

Feb 01, 202420 minEp. 240

Gaza, Palestína og Persaflóaríki, raforka á Vestfjörðum

31. janúar 2024 Meira en helmingur bygginga á Gaza hafa skemmst eða verið jafnaðar við jörðu frá því að stríðið milli Ísraelsmanna og Hamas braust út í haust. Nákvæmur samanburður á gervihnattarmyndum af landshlutanum 12. október til 29. janúar leiðir þetta í ljós, að því er breska ríkisútvarpið BBC greinir frá á fréttavef sínum. Ásgeir Tómasson tók saman. Algjört þrot blasir við UNRWA, flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna í Palestínu, ef nokkur lykilríki á Vesturlöndum frysta framlög sín til sto...

Jan 31, 202420 minEp. 239

Íslenskur hjúkrunarfræðingur á Gaza, Imran Khan dæmdur í fangelsi á ný

Fjölmargir þeirra sem leita á sjúkrahús í Rafah missa útlim, að sögn Elínar Oddsdóttur skurðhjúkrunarfræðings sem er nýkomin frá Gaza. Hún hefur starfað þar á vegum Alþjóðaráðs Rauða krossins. Alvarleg brunasár eru algeng. Allir sjúkrahúsgangar eru fullir af fólki sem hreinlega býr þar því það hefur á engan stað að fara, segir hún. Rætt er við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og Bjarna Benediktssonar utanríkisráðherra um ákvörðun Bjarna um að frysta greiðslur til UNRAW á meðan rannsakað er ...

Jan 30, 202420 minEp. 238

Gaza, Miðausturlönd og héraðslækningar

29. janúar 2024 Daginn eftir að Alþjóðadómstóllinn í Haag ákvað að taka til efnislegrar meðferðar kæru Suður-Afríku á hendur Ísraelsríki fyrir brot á alþjóðalögum um þjóðarmorð sökuðu Ísraelsmenn tólf af um það bil 30.000 starfsmönnum Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna við Palestínu um aðild að hryðjuverkaárás Hamas á Ísrael 7. október síðastliðinn. Í kjölfarið ákváðu nokkur ríki, þar á meðal Ísland, að frysta greiðslur til stofnunarinnar. Rætt er við Svein Rúnar Hauksson, lækni og stjórnarma...

Jan 29, 202420 minEp. 237

Ísrael og Alþjóðadómstóllinn í Haag, næringarástand botnfiska við Ísland, menningarsamningur Akureyrar og ríkis

Alþjóðadómstóllinn í Haag féllst í dag á að rannsaka hvort Ísraelsmenn hafi framið þjóðarmorð á Gaza. Hann krafðist þess ekki að hernaðaraðgerðum yrði hætt, heldur að Ísraelsmenn gripu til allra ráðstafana til að koma í veg fyrir þjóðarmorð og tryggja að mannúðaraðstoð berist íbúunum. Ásgeir Tómasson sagði frá. Hafrannsóknastofnun birti á dögunum skýrslu um niðurstöður viðamikillar langtímarannsóknar á næringu botnfiska við Íslandsstrendur. Í rannsókninni var skoðað í maga nær 600.000 fiska af 3...

Jan 26, 202420 minEp. 236

Skipulegga hvernig hluti Grindvíkinga getur sótt eigur, ósáttir franskir bændur

Hættan af sprungum í Grindavík er viðvarandi og verður næstu misseri og ár, segir Benedikt Ófeigsson jarðeðlisfræðingur á Veðurstofunni. Hættan í bænum er heilt yfir talin minni, en samt mjög mikil hvað sprungur varðar. Víðir Reynisson sviðsstjóri almannavarna vonast til að geta kynnt á morgun skipulag um hvernig Grindvíkingar, sem búa vestan Víkurbrautar, geta komist að vitja eigna sinna. Hann segir að nýjar sprungur hafi komið í ljós í dag austan megin í bænum og að það sé lengra í að íbúar ko...

Jan 25, 202420 minEp. 235

Þorskur, tjónaskrá í Úkraínu og sendiráð í Sierra Leone

24. janúar 2024 Íslenski þorskstofninn er nokkuð sterkur og hefur verið um alllanga hríð, öfugt við flesta þorskstofna aðra í Norður-Atlantshafi. Nýleg rannsókn Hafrannsóknastofnunar leiddi í ljós að honum má skipta gróflega í minnst tvær stofneiningar. Í erlendri rannsókn sem birt var í fyrra kemur fram að þorskstofnar í Norður-Atlantshafi séu um 20 talsins og að af þeim séu aðeins tveir í nógu góðu formi til að óhætt sé talið að veiða úr þeim svo nokkru nemi; sá íslenski og svo stofninn í Bare...

Jan 24, 202420 minEp. 234

Hvert flytja Grindvíkingar? Hver er Nikki Haley og á hún séns? Enn einn ráðherraskandallinn í Noregi

Um eða yfir 1.200 heimili í Grindavík voru rýmd 10. nóvember og fyrir liggur að fólk fær ekki að flytja þangað aftur í bráð. En gangi áætlanir stjórnvalda eftir má gera ráð fyrir að fjöldi Grindvíkinga vilji koma sér fyrir í eigin húsnæði á næstunni, en hvar? Spegillinn ræddi við Grindvíkinginn Sverri Auðunsson. Hann er í bæjarstjórn Grindavíkur og er nýtekinn við formennsku í Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum. Kosið verður til forseta í Bandaríkjunum 5. nóvember og í dag fara fram forkosning...

Jan 23, 202419 minEp. 233

Grindavík, staða og horfur

Fulltrúar ríkisstjórnarinnar hétu því í dag að eyða þeirri óvissu sem Grindvíkingar hafa búið við síðustu vikur og mánuði og gera þeim kleift að tryggja sér húsnæði til framtíðar – skemmri, millilangrar eða varanlegrar framtíðar, eins og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármálaráðherra orðaði það. Hvernig það verður gert liggur ekki endanlega fyrir, en stefnt er að því að leggja fram lagafrumvarp þar að lútandi í næsta mánuði og brúa bilið þangað til með því að bæta í þau bráðabirgða- eða s...

Jan 22, 202420 minEp. 232

Nauðsyn D-vítamíns í skammdeginu, Sjávarútvegsfrumvarpið og smábátasjómenn, tunglferðir í ár.

Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda segir að í nýju sjávarútvegsfrumvarpi matvælaráðherra sé rækilega skautað framhjá flestöllu sem eflt gæti útgerð smábáta. Þvert á móti blasi við að veiðiheimildir verði skertar - þvert á þær væntingar sem smábátaeigendur hafi gert sér. Þá líti út fyrir að þessi flokkur útgerðar þurfi í enn meiri mæli að sækja hluta sinna veiðiheimilda á uppboðsmarkaði og kljást þá við stórútgerðina um kvóta. Ágúst Ólafsson talaði við Örn. D-vítamín er ei...

Jan 19, 202420 minEp. 231

Grindavík, fjarskiptaöryggi við umheiminn, Hútar og ökklabönd á ofsækjendur kvenna

Grindavík er hættulegur staður og verður það áfram næstu mánuði og líklega ár. Um þetta eru flestir jarðvísindamenn landsins sammála. Viðvarandi skjálftavirkni og hætta á fyrirvaralitlum eldgosum, gamlar sprungur sem hafa gliðnað og dýpkað og nýjar sprungur sem eru jafnvel ósýnilegar þar til einhverjum verður á að stíga fæti á örþunnt jarðlagið sem hylur þær gera bæinn í raun óbyggilegan eins og er, og illmögulegt er að spá fyrir um það, hvenær þetta breytist til hins betra. Ákall Grindvíkinga e...

Jan 18, 202420 minEp. 230

Grindavík - byggilegur bær?, Vindorkugarður á Klausturseli, Traðkað á mannréttindum í landinu helga

Grindavík er ekki staður sem fjölskyldur geta búið á eins og staðan er núna og líklegra að einhver ár líði frekar en mánuðir áður en það breytist, segir Magnús Tumi Guðmundsson jarðvísindamaður í viðtali við Ævar Örn Jósepsson. Fyrirtækið Zephyr áætlar að byggja upp allt að 500 megavatta vindorkugarð í landi Klaustursels á Jökuldal í Múlaþingi. Ásta Hlín Magnúsdóttir ræddi við Jónínu Brynjólfsdóttur, forseta sveitarstjórnar Múlaþings og Gunnar Guðna Tómasson, framkvæmdastjóra vatnsafls hjá Lands...

Jan 17, 202420 minEp. 229

Ávarp forsætisráðherra á íbúafundi, nýr sigdalur í Grindavík, Náttúruhamfaratrygging, Trump vann í Iowa

Öryggi íbúa hefur verið forgangsmál stjórnvalda, sagði Katrín Jakobsdóttir á íbúafundi Grindvíkinga í Laugardalshöll. 70 íbúðir verða keyptar í næstu viku. Húsnæðisstyrkir verða endurmetnir. Á lokametrunum er frumvarp sem breytir regluverki í skammtímaleigu, meðal annars í atvinnuhúsnæði. Brot úr ávarpi Katrínar er spilað í Speglinum. Kristín Jónsdóttir jarðeðlisfræðingur segir frá sigdal sem myndaðist í Grindavík í jarðhræringunum um helgina og fjallar um framtíðarhorfur. Eldgosið um helgina va...

Jan 16, 202420 minEp. 228

Gæti gosið reglulega, hiti og rafmagn í Grindavík, varnargarðar og hraun, andleg líðan

Spegillinn er tileinkaður Grindavík. Halldór Geirsson dósent í jarðeðlisfræði segir að enn streymi kvika inn í Svartsengi og það geti gosið reglulega á þeim slóðum. Heitavatnslögnin til Grindavíkur skemmdist í gosinu, heitavatnslaust er í bænum, en rafmagn er komið á í vesturhluta bæjarins, í bili að minnsta kosti. Það á að skoða hvort hækka þurfi varnargarðana við bæinn, því hraun rann upp að þeim og meðfram. Ef hraun rennur á ný þarf því minna til að það komist yfir garðana. Inga Guðlaug Helga...

Jan 15, 202420 minEp. 227

Landris við Svartsengi, samningafundur, dauðaslys í umferðinni í Noregi, Ísrael sakað um þjóðarmorð.

Áfram mælist landris við Svartsengi vegna kvikusöfnunar sem getur leitt til eldgoss. Veðurstofa metur aukna hættu á að sprungur opnist í Grindavík. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Benedikt Ófeigsson jarðeðlisfræðing og fagstjóra aflögunnarmælinga. Fulltrúar Samninganefndar samtaka Atinnulífisins og fylkingar stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði hittust á samningafundi hjá ríkissáttasemjara í dag. Ekki dró til tíðinda, en boðað var til annars fundar daginn eftir. Pétur Magnússon ræddi við Sigríð...

Jan 12, 202419 minEp. 226

Bara tveir í fjölskipuðu loftslagsráði, löggjöf um gervigreind, kínversk stjórnvöld vara við sjálfstæðissinna

Í lögum um loftslagsmál segir að starfrækja skuli loftslagsráð, sem hafi það meginhlutverk að veita stjórnvöldum aðhald og ráðgjöf um stefnumarkandi ákvarðanir og markmið Íslands sem tengjast loftslagsmálum. Loftslagsráð hefur verið giska duglegt að ráðleggja stjórnvöldum á þeim fimm árum sem það hefur starfað. En þótt formaður og varaformaður nýs loftslagsráðs hafi verið skipaðir í september síðastliðnum hefur eiginlegt, fjölskipað loftslagsráð ekki verið starfandi frá því að skipunartími síðas...

Jan 11, 202420 minEp. 225

Eldsumbrot á Reykjanesskaga, vargöld í Ekvador og þróunarsamvinna Íslands og Malaví

Jarðeðlisfræðingar Veðurstofunnar telja líklegt að kvika hlaupi úr Svartsengi á næstu dögum. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Kristínu Jónsdóttur deildarstjóra á Veðurstofunni oum stöðuna þar syðra, viðvarandi landris frá síðasta gosi, 18. desember, kvikuhólf, kvikugang og kvikuflæði, myndun sigdals og ris lands meðfram börmum hans, aðferðir við mælingar á kviku og mat á goslíkum og fleira. Neyðarástand er í Ekvador og her landsins hefur verið fyrirskipað að ráðast gegn glæpahópum sem ógna öryggi...

Jan 10, 202420 minEp. 224

Óttast intifada, Breivik vill pennavin, Ása og dvergvetrarbrautirnar

Bandarísk stjórnvöld halda áfram að þrýsta á ráðamenn í Ísrael að koma í veg fyrir frekara mannfall almennra borgara á Gaza. Umleitanir þeirra hafa verið eins og að stökkva vatni á gæs. Stjórnvöld í Ísrael hafa verið vöruð við að uppreisn eða intifada kunni að vera að brjótast út á Vesturbakkanum. Hryðjuverkamaðurinn og fjöldamorðinginn Anders Bering Breivík er einmana í einangrunarvist sinni. Hann hefur kært norska ríkið og vill eignast pennavin og komast á Tinder. Ása Skúladóttir, stjarneðlisf...

Jan 09, 202420 minEp. 223

Staða matvælaráðherra, staða Netanyahu og vandi fólks með offitu

Umboðsmaður alþingis birti á föstudag álit á reglugerð matvælaráðherra, Svandísar Svavarsdóttur, um frestun á hvalveiðum síðasta sumar, þar sem hann segir þessa reglugerð ekki hafa átt sér nægilega skýra stoð í lögum og að ekki hafi verið gætt að kröfum stjórnsýsluréttar um að gæta meðalhófs, þegar hún var innleidd nánast daginn áður en veiðar áttu að hefjast. Umboðsmaður bendir í sínu áliti á að ráðherra hafi verið með dýravelferarsjónarmið í huga en lögin snúist ekki um dýravelferð - heldur ve...

Jan 08, 202420 minEp. 222

Svandís í beinni, (Ó)jöfnuður á stór-höfuðborgarsvæðinu

Umboðsmaður Alþingis sendi í dag frá sér það álit að frestun hvalveiða síðasta sumar hafi ekki verið í samræmi við lög um hvalveiðar. Rætt var við Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra í beinni útsendingu í Speglinum. Ójöfnuður í ráðstöfunartekjum jókst talsvert í Reykjavík á útrásaráraunum en dróst svo snarlega saman strax í kjölfar hrunsins. Hann jókst svo lítillega aftur milli áranna 2010 og 2022, en þó minna en ætla mætti af þjóðfélagsumræðunni. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri ...

Jan 05, 202420 minEp. 221

Umskurður, Úkraína og Gérard Depardieu

4. janúar 2024 Umskurður á drengjum af trúarlegum ástæðum er umdeilt mál hér á landi. Sigurður Kristinsson, prófessor í heimspeki segir mikilvægt að mismunandi lífsskoðanir séu virtar og telur það geta haft skaðaminnkandi áhrif, ef umskurður standi til boða á heilbrigðisstofnunum. Umskurður drengja hafi djúpstæða, táknræna og trúarlega merkingu fyrir lítinn hóp fólks hér á landi, og beri þvi frekar vitni um umhyggju foreldra en vanhæfni. Amanda Guðrún Bjarnadóttir ræddi við SIgurð. Stríðið í Úkr...

Jan 04, 202420 minEp. 220

Kjaraviðræður, Úkraínustríðið og málefni flóttafólks í ESB

3. janúar 2024 Samhljómur og bjartsýni ríkir um gerð kjarasamnings SA og breiðfylkingar landssambanda ASÍ. Ætlunin er að semja til langs tíma og þannig að innistæða sé fyrir því - segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífisins. Arnar Björnsson fréttamaður ræddi við hana og Ragnar Þór Ingólfsson formann VR eftir fundinn í dag. Ragnar segir að stjórnvöld þurfi að fara að gefa út yfirlýsingar um að þau ætli að taka þátt - annars sé vinna samninganefnda ekki til neins. Þ...

Jan 03, 202420 minEp. 219

Stjórnarskrármál í sjálfheldu, varnargarður rís, kjörstærð 20.000

Guðni Th. Jóhannesson forseti segir að að það yrði undarleg niðurstaða að ráðast í breytingar á stjórnarskrá nú en hrófla ekki við kaflanum um þjóðhöfðingjann. Stjórnarskrármál á Íslandi séu í sjálfheldu og kaflinn um forsetann hafi þarfnast endurskoðunar frá stofnun lýðveldis. Anna Lilja Þórisdóttir fréttamaður tók forseta tali í dag í kjölfar þess að hann tilkynnti í nýársávarpi sínu að hann ætlaði ekki að gefa kost á sér í embættið á ný. Framkvæmdir eru hafnar við varnargarð norðan við Grinda...

Jan 02, 202420 minEp. 218

Víðir hefur áhyggjur af íbúum, Elín Björk spáir í loftslagsmýtur

Víðir Reynisson, sviðsstjóri almannavarna segir að lítill tími gefist til að bregðast við ef það fer að gjósa norðan við Grindavík. Hann hefur áhyggjur af fólki sem dvelur í bænum. Hann segir að gist hafi verið í um 30 húsum í nótt og segir búist við að fleiri verði í bænum um áramót. Björgunarsveit er ekki í bænum núna og ef færi að gjósa keyra tveir lögreglubílar um bæinn með vælandi sýrenur til að vekja athygli íbúa á rýmingu, auk þess sem Neyðarlínan sendir út sms á síma í bænum. Elín Björk ...

Dec 29, 202320 minEp. 217

Eignir í Grindavík, loftslagsmýtur og fundur LHS 3154b

Á meðan jörð rís í Svartsengi og Grindvíkingar bíða sjálfsagt með öndina í hálsinum yfir því sem verða vill, standa margir þeirra frammi fyrir flóknum spurningum. Á ég og mitt fólk að búa áfram í bænum okkar og þá hvar? Spegillinn ræddi við Atla Geir Júlíusson sviðsstjóra skipulags og umhverfissviðs Grindavíkurbæjar og spurði hvort það hefðu margir bæjarbúar sett sig í samband við bæinn og sagst vilja losna við húsið sitt og flytja burt. Spegillinn skoðar áfram röksemdir þeirra sem efast um hlýn...

Dec 28, 202320 minEp. 216
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android