27. desember 2023 93 þrjár björgunarsveitir eru starfandi á Íslandi. Samtals taka um 4.500 sjálfboðaliðar virkan þátt í starfi sveitanna og eru tilbúin að svara kallinu þegar þörf er á. En þótt björgunarsveitarfólk sé í sjálfboðavinnu þá kostar það sitt að reka sveitirnar, nánar til tekið um tvo milljarða króna á ári, segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar; landssamtaka björgunarsveita og slysavarnadeilda á Íslandi. Ævar Örn Jósepsson ræðir við hann um fjá...
Dec 27, 2023•20 min•Ep. 215
22. desember 2023 Það er ekki ódýrt að kaupa í matinn á Íslandi og sjaldan dýrara en í aðdraganda jóla. Verðlagseftirlit ASÍ fylgist grannt með verðlagningu helstu matvöruverslana allan ársins hring, eg gerir líka sérstaka jólakörfuverðkönnun í desember ár hvert, þar sem sérvaldar og jólalegar vörur eru tíndar saman. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Benjamín Julian, sviðsstjóra verðlagseftirlits ASÍ, um jólaverðið, verðlagskannanir og nýtt verðkönnunar-app fyrir neytendur, sem gerir fólki mögulegt a...
Dec 22, 2023•20 min•Ep. 214
Um áramót verður hætt að veita kaupendum vistvænna bíla afslátt af virðisaukaskatti og frá nýjársdegi verða teknir upp beinir styrkir af vistvænum bílum, þó aðeins svokölluðum hreinorkubílum. Orkusjóður, sem heyrir undir Orkustofnun, fékk það verkefni í fangið að smíða kerfi utan um styrkina. Ríkið ætlar styrkja kaupendur hreinorkubíla um 30 milljarða króna á næstu fimm árum, til að stuðla að orkuskiptum, mest fyrstu tvö árin. Mörgþúsund Argentínumenn mótmæltu í gærkvöld stjórnarháttum nýkjörins...
Dec 21, 2023•20 min•Ep. 213
20. desember 2023 Grindvíkingar eiga margir enn í húsnæðisvanda og margt þarf að gera áður en þeir geta snúið aftur til síns heima eftir að gosi lýkur, hvenær sem það verður. Fannar Jónasson bæjarstjóri hvetur fólk til að flýta sér hægt og ætlar sjálfur líklega að bíða til vors áður en hann snýr aftur til Grindavíkur. Því þangað ætlar hann, þrátt fyrir allt sem á undan er gengið. Ævar Örn Jósepsson talaði við Fannar. Ríki í Suður-Evrópu fagna nýsamþykktri stefnu Evrópusambandsins í málefnum flót...
Dec 20, 2023•20 min•Ep. 212
Ýmislegt bendir til þess að kvikugeymir sé undir Svartsengi og nágrenni, allt frá Eldvörpum að Sundhnúksgígum, segir Halldór Geirsson dósent í jarðeðlisfræði. Í nótt var rætt um að fara með stórvirkar vinnuvélar til Grindavíkur og hefja undirbúning varnargarðs. Horfið var frá því þegar ljóst var að bærinn var ekki í bráðri hættu frá hraunrennsli. Rætt er við Ara Guðmundsson verkfræðing sem leiðir hóp um varnir innviða fyrir almannavarnir. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Hljóð...
Dec 19, 2023•20 min•Ep. 211
18, desember 2023 Í nýútkominni skýrslu um Menntasjóð námsmanna kemur fram að lög sem sett voru um sjóðinn fyrir þremur árum hafi falið í sér umtalsverðar breytingar á námslánkerfinu. Sumar þeirra hafi komið námsmönnum vel, en aðrar síður, og nauðsynlegt að breyta lögunum til að markmið þeirra um að jafna tækifæri fólks til náms náist. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Rakel Önnu Coulter, forseta Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Ekkert er vitað með vissu um hvort símanotkun, samskiptamiðlar, eða breytt ...
Dec 18, 2023•20 min•Ep. 210
Höfuðkúpubrot sem fundust í Ráðherrabústaðnum í september eru af líklega af danskri konu sem ekki virðist eiga afkomendur og skyldmenni hér á landi. Erfðaefni úr íslenskum karlmanni eða karlmönnum fundust líka á höfuðkúpubeinunum. Yfir 80 þúsund manns voru á loftslagsráðstefnu sameinuðu þjóðanna í Dubai, tvöfalt fleiri en í Eygptalandi í fyrra. Margir furða sig á umfanginu. Theódóra Matthíasdóttirsérfræðingur á sviði loftslagsþjónustu og aðlögunar á Veðurstofu Íslands, var í þeim hópi. Hún segir...
Dec 15, 2023•20 min•Ep. 209
Leiðtogaráð Evrópusambandsins ákvað undir kvöld að bjóða Úkraínu og Moldóvu að hefja viðræður um aðild að sambandinu. Þetta var tilkynnt á fundi leiðtoganna sem nú stendur yfir í Brussel. Fyrirfram hafði verið búist við að Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands myndi standa í vegi fyrir þessari ákvörðun. Rætt var við Björn Malmquist sem hefur fylgst með fundinum. Danska lögreglan telur sig hafa komið í veg fyrir hryðjuverkaárás með umfangsmiklum aðgerðum víða um landið í rauðabítið í morgu...
Dec 14, 2023•20 min•Ep. 208
Vladimir Zelensky Úkraínuforseti átti á miðvikudag fund með öllum forsætisráðherrum Norðurlandanna. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sat fundinn fyrir Íslands hönd og átti einnig einkafund með forsetanum. Gísli Kristjánsson, útsendari Spegilsins, var á staðnum og ræddi við Katrínu. Nær 200 aðildarríki Sameinuðu þjóðanna náðu í morgun samkomulagi á 28. loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP 28, sem haldin var í olíuríkinu Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, undir lok heitasta árs í ...
Dec 13, 2023•20 min•Ep. 207
Rússar voru í fyrra útilokaðir frá þátttöku í Eurovision að áeggjan nokkurra sjónvarpsstöðva sem aðild eiga að EBU Evrópusamtökum útvarpsstöðva. Norrænu ríkisstöðvarnar, þar á meðal RÚV, fóru þar fremstar í flokki undir forystu Finna. Að lokum lét EBU undan, meinaði Rússum þátttöku og rak úr samtökunum. Nú eru uppi háværar raddir um að útiloka skuli Ísrael frá þátttöku í Eurovision vegna þeirra stríðsglæpa sem ljóst þykir að Ísraelsher hafi framið í stríðsrekstri sínum á Gaza. Er þetta sambærile...
Dec 12, 2023•20 min•Ep. 206
11. desember 2023 Meirihluti þingmanna á pólska þinginu greiddi í dag atkvæði gegn nýrri minnihlutastjórn hægriflokksins Laga og réttlætis. Búist hafði verið við þeirri niðurstöðu. Neðri deildin þarf því að velja nýtt forsætisráðherraefni sem að öllum líkindum verður Donald Tusk, leiðtogi stjórnarandstöðunnar. Ásgeir Tómasson segir frá. Yfir 20.000 manns hafa farist í blóðugustu stríðsátökum Ísraela og Palestínumanna um áratugaskeið, langflest þeirra almennir borgarar. Þessar miklu blóðsúthellin...
Dec 11, 2023•20 min•Ep. 205
8. desember 2023 Utanríkismálastjóri Evrópusambandsins gagnrýnir harðlega framferði Ísraelshers á Gaza. Sprengjuherferðin sé orðin með hinum umfangsmestu í sögunni og eyðileggingin í borgum á svæðinu sambærileg ef ekki meiri en í Þýskalandi í síðari heimsstyrjöldinni. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna greiðir í dag atkvæði um tafarlaust vopnahlé á Gaza. Bandaríkjamenn ætla ekki að styðja það. Ásgeir Tómasson sagði frá. Ísland er eina Norðurlandaþjóðin án opinberrar stefnu í málefnum fanga og fangels...
Dec 08, 2023•20 min•Ep. 204
Verulega hefur dregið úr fjárstuðningi vestrænna þjóða við Úkraínu upp á síðkastið. Repúblikanar í öldungadeild Bandaríkjanna komu í gær í veg fyrir 106 milljarða dollara neyðaraðstoð, sem Bandaríkjaforseti hugðist skipta milli Ísraels og Úkraínu. Brotamenn undir átján ára aldri fara ekki í fangelsi nema í algjörum undantekningartilfellum en þeim hefur farið fjölgandi upp á síðkastið, kornungu karlmönnunum sem grunaðir eru um og jafnvel staðnir að alvarlegum ofbeldisbrotum og eru dregnir fyrir d...
Dec 07, 2023•20 min•Ep. 203
6. desember 2023. Staða kvenna í fangelsum landsins er á meðal þess sem alvarlegustu athugasemdirnar eru gerðar við í nýrri úttekt Ríkisendurskoðunar á Fangelsismálastofnun. Þær athugasemdir bætast við alvarlegar athugasemdir sem umboðsmaður Alþingis gerði við aðbúnað kvenfanga í íslenskum fangelsum fyrr á árinu. Það liggur sem sagt alveg skýrt fyrir, að aðstaða kvenfanga hér á landi er óboðleg í dag - eins og hún hefur löngum verið. Ævar Örn Jósepsson fjallar um málið og ræðir við Pál Winkel fa...
Dec 06, 2023•20 min•Ep. 202
Íbúar á Gaza nærast aðallega á vatni og brauði, segir Gréta Gunnarsdóttir yfirmaður sendiskrifstofu Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna - UNWRA í New York. Horfur eru á UNWRA geti héðan í frá aðeins dreift einum lítra af vatni til hvers flóttamanns á Gaza. 80 prósent íbúanna eru á vergangi. Í úttekt Ríkisendurskoðunar um Fangelsismálastofnun voru gerðar alvarlegar athugasemdir við illa farinn og heilsuspillandi húsakost á Litla-Hrauni, ónóga mönnun til að tryggja öryggi fanga og fang...
Dec 05, 2023•20 min•Ep. 201
Ísraelsher herti í dag sókn sína gegn Hamas í suðurhluta Gazasvæðisins, en þangað hefur fólk verið hvatt til að fara til að forðast árásir Ísraela á norðurhlutann. Íbúum nokkurra hverfa í borginni Khan Yunis hefur verið skipað að flýja suður á bóginn. Ásgeir Tómasson segir frá. Margar brotalamir eru í rekstri fangelsa landsins og sumar þeirra býsna alvarlegar, samkvæmt stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á Fangelsismálastofnun. Alvarlegustu athugasemdirnar lúta að óboðlegu ástandi húsnæðis á Li...
Dec 04, 2023•20 min•Ep. 200
1. desember 2023 Á annað hundrað Palestínumenn hafa látið lífið frá því að vopnahlé Ísraelshers og Hamas samtakanna rann út í sandinn í morgun. Reynt er að fá stríðandi fylkingar til að fallast á að leggja niður vopn af mannúðarástæðum. Ásgeir Tómasson tók saman. Það stefnir í metár hjá laxeldismönnum i Noregi. Verð er í hæstum hæðum og fleiri laxar í kvíunum en nokkru sinni fyrr. En eldisfyrirtækin sæta meiri gagnrýni en áður og innanlandsmarkaður í Noregi er fallandi. Landsmenn fúlsa við eigin...
Dec 01, 2023•20 min•Ep. 199
30. nóvember 2023 Drög að sjávarútvegsstefnu og frumvarpi að lögum um sjávarútveg hafa verið birt og hægt að senda inn umsagnir til 22. desember. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra segir stefnt að jafnvægi og samfélagssátt um greinina - ekki endilega sátt við alla í henni. Jón Björn Hákonarson formaður Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga telur að kominn sé tími á breytingar á almennum byggðakvóta, slíkt er lagt til í drögunum. Þjóðarleiðtogar um allan heim hafa minnst Henrys Kissingers, fyrrver...
Nov 30, 2023•20 min•Ep. 198
29. nóvember 2023 Í vikunni samþykkti Alþingi einróma frumvarp stuðning vegna launa fólks sem starfar í Grindavík. Stuðningurinn getur numið allt að 633 þúsund krónum á mánuði auk framlags í lífeyrissjóð og gildir út febrúar. Hörður Guðbrandsson formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur segir töluvert um að fólk hringi á skrifstofuna í leit að svörum. Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofnunar segir að í næstu viku geti einstaklingar sótt um stuðning og fyrirtæki um miðjan desember. Samningamen...
Nov 29, 2023•20 min•Ep. 197
Leiðtogar og utanríkisráðherrar NATO-ríkjanna hafa kallað eftir að hlé á átökum á Gaza verði framlengt og fleiri gíslar leystir úr haldi. Fundur utanríkisráðherra NATO hófst í Brussel í morgun og óþreyja er meðal marga vegna aðildarumsóknar Svía. Rætt er við Bjarna Benediktsson utanríkisráðherra. Eftirspurn eftir raforku er meiri en framboðið og lagabreytinga er þörf til að tryggja að almenningur fái rafmagn, það er að segja standi jafnfætis stórnotendum. Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri se...
Nov 28, 2023•20 min•Ep. 196
27. nóvember 2023 Í bandaríska blaðinu New York Times birtist um helgina grein um ófrjósemisaðgerðir á fötluðum konum - þar fullyrt að enn væru gerðar slíkar aðgerðir í undantekingartilvikum, meðal annars á Íslandi, þrátt fyrir bann. Réttargæslumönnum fatlaðra berast árlega að jafnaði þrjár til fjórar frásagnir af þvinguðum ófrjósemisaðgerðum fatlaðra kvenna segir Eiríkur Smith réttargæslumaður. Finnar eru reiðubúnir að loka síðustu landamærastöðinni á landamærum Finnlands og Rússlands ef straum...
Nov 27, 2023•20 min•Ep. 195
Stjórnvöld ætla að kaupa allt að 210 íbúðir til að útvega Grindvíkingum húsnæði og styðja þá tímabundið vegna kostnaðar við leigu. Þrátt fyrir að staða á húsnæðismarkaði hafi verið þröng eru þessar íbúðir til og endurmeta verður svo hvort þörf sé á frekari stuðningi. Kári Friðriksson, hagfræðingur hjá Arionbanka, telur að kaupin hafi ekki áhrif á fasteignaverð, að minnsta kosti ekki fyrst um sinn. Haukur Holm ræddi við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra, Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttiu...
Nov 24, 2023•20 min•Ep. 194
Þúsundir stjórnmála- og embættismanna, vísindamanna, fulltrúa hagsmunaaðila, umhverfissamtaka að ógleymdum herskara fjölmiðlafólks flykkjast brátt á 28.loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem hefst í Sameinuðu arabísku furstadæmunum um mánaðamótin. Finnur Ricart Andrason, forseti ungra umhverfissinna segir þetta mikilvægan vettvang en bara eitt tól af mörgum. VR stóð í dag fyrir fundi um leikskólamál út frá ýmsum sjónarhornum. Victor Karl Magnússon sérfræðingur hjá VR fjallaði um tekjuskerðin...
Nov 23, 2023•20 min•Ep. 193
22. nóvember 2023 Samkomulag náðist í nótt milli ísraelskra stjórnvalda og Hamas samtakanna um fjögurra sólarhringa vopnahlé . Það á að ganga í gildi klukkan tíu í fyrramálið að staðartíma. Þrjátíu til þrjátíu og fimm börn, helmingurinn um og undir tíu ára aldri, verða látin laus þegar Hamas samtökin á Gaza sleppa fimmtíu gíslum á morgun og næstu daga. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að mögulega hefði átt að hækka vexti en afleiðingar jarðhræringanna geti aukið þenslu - en líka dregið úr n...
Nov 22, 2023•20 min•Ep. 192
20. nóvember 2023 Atburðurinn í og við Svartsengi er mjög flókinn að sögn Páls Einarssonar jarðeðlisfræðings. Tjónið sé vegna sprungna, ekki jarðskjálfta. Taka þurfi mið af sprungum við mannvirkjagerð og hefði átt að gera af meiri alvöru fyrir löngu. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Pál. Bandaríkjaforseti er vongóður um að senn semjist um að gíslar Hamas samtakanna á Gaza verði látnir lausir. Ásgeir Tómasson sagði frá. Herða verður á í baráttunni við loftslagsvána og á COP 28 ráðstefnunni síðar í...
Nov 20, 2023•20 min•Ep. 190
17. nóvember 2023 Á ríkisstjórnarfundi í dag var samþykkt að leggja fram frumvarp um tímabundnar launagreiðslur til Grindvíkinga. Gert er ráð fyrir að heildargreiðslur geti numið allt frá einum að einum og hálfum milljarði á mánuði. Reiknað er með greiðslunum út febrúar. Linda Blöndal ræddi við Lilju Alfreðsdóttur viðskiptaráðherra, Þórdísi Kolbrúnu Reykjfjörð Gylfadóttur fjármáalráðherra og Guðmund Inga Guðbrandsson félagsmálaráðherra. Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir, stjórnandi þjónustumiðstöðvar ...
Nov 17, 2023•20 min•Ep. 189
16. nóvember 2023 Íslenska er mál málanna á Íslandi í dag eins og alla aðra daga - en alveg sérstaklega í dag, á degi íslenskrar tungu, sem hefur verið haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar síðan 1996. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Sigurrós Eiðsdóttur, formann Félags íslenskukennara, um íslenskukennslu og -áhuga skólabarna og stöðu íslenskunnar. Ljósleiðari er nú líkega í fyrsta sinn nýttur í rauntímamælingum á jarðskjálftum. Kristín Jónsdóttir deildarstjóri á Veðurstofunni ste...
Nov 16, 2023•20 min•Ep. 188
Það eru allar tilfinningar eðlilegar á þessum tímapunkti að sögn Aðalheiðar Jónsdóttir hjá Rauða krossinum. Hún segir að fólk bregðist misjafnlega við áföllum eins og því sem Grindvíkingar ganga í gegnum núna. Sumir verða reiðir, aðrir verða dofnir, svo dæmi séu tekin. Í þjónustumiðstöð fyrir Grindvíkinga, sem var opnuð í gamla Tollhúsinu í Tryggvagötu í Reykjavík í dag, verður bæði hægt að fá sér kaffi og hitta vini og félaga úr bænum og innan tíðar verður hægt að fá sálrænan stuðning. Með tíð ...
Nov 15, 2023•19 min•Ep. 187
Víða má finna sprungur á Reykjanesskaga og á austasta hluta höfuðborgarsvæðisins. Sprungur gætu leynst undir húsum á fleiri stöðum en í Grindavík. Ásta Rut Hjartardóttir jarðeðlisfræðingur hefur kortlagt sprungur. Hún segir að sprungan sem liggur i gegnum Grindavík hafi verið þekkt og telur að gliðnunin geti haldið áfram í nokkrar vikur. Stjórnsýsla Grindavíkur hefur fengið aðstöðu í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þorsteinn Gunnarsson borgaritari starfaði áður og bjó í Grindavík en hann er alinn upp í Ves...
Nov 14, 2023•20 min•Ep. 186
Spegillinn 13. nóvember 2023 Landsmenn - og þá sérstaklega Grindvíkingar auðvitað - hafa fylgst náið með atburðarásinni suður með sjó, þar sem allt hefur leikið á reiðiskjálfi undanfarnar vikur og sjaldan eða aldrei meira en allra síðustu daga, þótt dagurinn í dag hafi verið með rólegria móti.Gos hefur verið talið yfirvofandi á hverri stundu síðan föstudagskvöld og enn eru taldar meiri líkur en minni á gosi í nágrenni Grindavíkur eða jafnvel í Grindavík. Erfitt reynist að segja fyrir um það með ...
Nov 13, 2023•20 min•Ep. 185