Föstudagur 10. nóvember 2023 Aðstæður á Gaza eru hryllilegar og eiga eftir að versna áður en þær skána, segir Jan Egeland framkvæmdastjóri norska flóttamannaráðsins. Egeland, sem eitt sinn stýrði hjálparstarfi Sameinuðu þjóðanna, gagnrýnir íslensk stjórnvöld fyrir að tíma ekki að aðstoða fólk í neyð. Dagný Hulda Erlendsdóttir talaði við hann. Ragnhildur Thorlacius tók saman. Er þriggja ára framhaldsskólanám skilvirkara til stúdentsprófs? Hver er reynsla háskólanema og kennara af styttingu námstí...
Nov 10, 2023•20 min•Ep. 184
Reglulegar hnífstungur, bensínsprengjur og skotárásir. Á undanförnum misserum hefur alvarlegum ofbeldisverkum fjölgað hérlendis. Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir að upp undir 15 skipulögð glæpasamtök starfi hér á landi Hún vill ekki tala um gengi eða gengjastríð í sambandi við skotárásina í Úlfársárdal á dögunum, heldur að hópar séu í átökum og svo stigmagnist átökin og hefndaraðgerðir. Slæm málfræði, málvillur og ambögur hvers konar geta framkallað líkamleg streituviðbrögð...
Nov 09, 2023•20 min•Ep. 183
Miðvikudagur 8. nóvember 2023 Úkraína og Moldóva gætu orðið næstu aðildarríki Evrópusambandsins, samkvæmt tillögum sem framkvæmdastjórn ESB lagði fram í dag. Björn Malmquist sagði frá. Hægt væri að taka á móti dýraleifum af öllu landinu til förgunar í líforkuveri sem fyrirhugað er að byggja norður í Eyjafirði. Kristín Helga Schiöth, talsmaður verkefnisins, segir að á Íslandi skorti innviði til að takast á við förgun dýraleifa á löglegan og ábyrgan hátt. Ágúst Ólafsson ræddi við hana. Rafah landa...
Nov 08, 2023•20 min•Ep. 182
7.nóvember 2023 Ef það fer að gjósa við orkuverið í Svartsengi stefnir HS Orka að því að sprauta niðurdælingarvatni á hraunjaðra til að hægja á hraunrennsli og nýta efni úr hól í næsta nágrenni í bráðavarnargarð. Það er að segja ef hraun ógnar orkuverinu. Kristinn Harðarson framkvæmdastjóri framleiðslu telur æskilegt að reistur verði varanlegur varnargarður við virkjunina. Á sama tíma og hernaðaraðgerðir Ísraelsmanna á Gazasvæðinu eru látlausar færist ofbeldi ísraelskra landtökumanna gegn íbúum ...
Nov 07, 2023•20 min•Ep. 181
6. nóvember 2023 Ef gera á allt sem hægt er - til að verja orkuverið í Svartsengi og þar með Grindavíkurbæ þarf að reisa háa og áberandi varnargarða, segir Víðir Reynisson sviðsstjóri Almannavarna hjá ríkislögreglustjóra. Hann segir að nú þurfi að ákveða hvort ráðast eigi í það verkefni og vill að það verði skoðað alvarlega að reisa varnargarða við orkuverið í Svartsengi. Ragnhildur Thorlacius ræddi við hann eftir fund almannavarna. Volodymyr Zelenzky, forseti Úkraínu mótmælir fullyrðingum um að...
Nov 06, 2023•20 min•Ep. 180
3. nóvember 2023 Antony Blinken, utanríkmisráðherra Bandaríkjanna, lagði að ráðamönnum Í Ísrael að fylgja alþjóðlegum mannúðarlögum í stríði þeirra við Hamas hryðjuverkasamtökin og heimila neyðaraðstoð til íbúa Gazasvæðisins. Ásgeir Tómasson sagði frá. Fjallað var um áhrif þeirrar miklu hlýnunar sem orðin er á norðurslóðum á íslenskan jarðveg. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Bjarna Diðrik Sigurðsson skógvistfræðing og prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands. Þjóðtrú er enn rík í sumum Íslendingum;...
Nov 03, 2023•20 min•Ep. 179
2. nóvember 2023 Skotárás var gerð í Úlfarsárdal í Reykjavík og maður skotinn en útkrifaður af sjúkrahúsi síðdegis, nokkrum skotum var hleypt af og eitt fór í íbúð fólks sem tengdist málinu ekkert. Lögregla talar um átök milli hópa en hefur lítið látið uppi frekar. Viðbúnaður lögreglu var aukinn á meðan leit var gerð að árásarmanni. Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur segir skiljanlegt að slíkar frettir veki fólki óhug. Auka þurfi sýnileika lögreglu en líka ná til ungra karla sem fóti sig i...
Nov 02, 2023•20 min•Ep. 178
1. nóvember 2023 Tímamót urðu í dag í stríðinu fyrir botni Miðjarðarhafs þegar Rafah landamærastöðin milli Egyptalands og Gaza var opnuð um tíma. Yfir eitt hundrað létu lífið þegar Ísraelsher gerði árás á Jabalia flóttamannabúðirnar í gær. Önnur árás var gerð í dag. Þegar skrifað var undir samninga í fyrra var mikið rætt um óvissu í efnahagsmálum, verðbólga og vextir voru á uppleið; samið til skamms tíma svo hægt væri að koma aftur að samningaborði þegar um hægðist. Fulltrúar Samtaka atvinnulífs...
Nov 01, 2023•20 min•Ep. 177
Jarðskjálftahrina norðan við Grindavík í dag er merki um kvikuhlaup. Engin merki eru um gosóróa. Kristín Jónsdóttir jarðeðlisfræðingur segir allt benda til þess að virknin sé á 3-4 km dýpi. HS orka fer yfir viðbragðsáætlanir og Fannar Jónasson bæjarstjóri segir að íbúafundur verður haldinn í Grindavík á fimmtudag klukkan 17:30. Gaza er orðinn grafreitur þúsunda barna og hætta er á að fleiri börn látist úr ofþornun. Þetta segir talsmaður Unicef í yfirlýsingu í dag. Öryggismál og stríðsátök í heim...
Oct 31, 2023•30 min•Ep. 176
Síðasta sólarhring hefur Ísraelsher gert árásir á 600 skotmörk á Gaza. Forsætisráðherra Ísraels sagði í dag að árangur væri að nást gegn Hamas. Forsætisráðherra Íslands vissi ekki að Ísland myndi sitja hjá við atkvæðagreiðslu um tillögu um vopnahlé á Gaza fyrr en eftir að fundur um hana hófst. Tölvupóstur þess efnis var sendur starfsmanni forsætisráðuneytisins ellefu mínútum áður en fundurinn hófst. Stjórnarandstaðan vill að boðað verði til þingfundar hið fyrsta. Enn rís land á Reykjanesskaga no...
Oct 30, 2023•10 min•Ep. 175
27. október 2023 Landsvirkjun stefnir enn að því að byggja Hvammsvirkjun þótt framkvæmdaleyfi fyrir henni hafi verið ógilt, segir Hörður Arnarson, forstjóri fyrirtækisins. Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra hefur boðað til sín alla hlutaðeigandi til að fara yfir verklag vegna lögregluaðgerðar í Grafarvogi í fyrrakvöld í tengslum við forsjármál. Nánast allt netsamband hefur verið rofið á Gazasvæðinu. Af þrjátíu og sjö dómum sem kveðnir voru upp í Héraðsdómi Norðurlands vestra í fyrra, voru a...
Oct 27, 2023•10 min•Ep. 174
26. október 2023. Kvikuinnskot gæti verið að myndast undir Fagradalsfjalli og mikil jarðskjálftavirkni er þar enn. Formaður Neytendasamtakanna gagnrýnir harðlega að ekki liggi fyrir hvað taki við, þegar ívilnanir vegna kaupa á rafbílum falla niður um áramót. Á meðan taki fólk dýr bílalán á hærri vöxtum en dráttarvextir voru fyrir fáum misserum Viðskiptabankarnir þrír högnuðust um samtals 60 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Ófremdarástand ríkir í borginni Acapulco í Mexíkó þar sem fel...
Oct 26, 2023•30 min•Ep. 173
25. október 2023 Um 1.400 jarðskjálftar hafa mælst í jarðskjálftahrinu sem hófst norðan við Grindavík í nótt. Ekki er að sjá merki um gosóróa en um margt minnir hrinan á aðdraganda fyrri gosa. Bæjarstjóri í Grindavík segir að bæjarbúar hafi fundið vel fyrir skjálfta upp á 4,5 í morgun en séu öllu vanir. Bændasamtök Íslands telja neyðarástand ríkja í íslenskum landbúnaði, afkomubrestur sé í flestum greinum og bændur geti ekki greitt sér lágmarkslaun. Stýrivaxtahækkanir ofan í aðrar hækkanir hafi ...
Oct 25, 2023•30 min•Ep. 172
24. október 2023 Samstöðufundir vegna kvennaverkfallsins voru á dagskrá um allt land í dag. Fjölmennasti viðburðurinn var á Arnarhóli í Reykjavík, þar sem lögregla áætlar að á milli sjötíu til hundrað þúsund karlar, konur og kvár hafi komið saman. Heyrðist í Freyju Steingrímsdóttur, Ingu Straumland, Sigfríði Þorsteinsdóttur, Rögnu S. Óskarsdóttur, Örnu Sif Bjarnadóttur, Guðbjörgu Pálsdóttur, Sylwiu Zajkowsku, Gerði Steinþórsdóttur og Birni Kristjánssyni. Þingfundur var stuttur á Alþingi í dag ve...
Oct 24, 2023•30 min•Ep. 171
23. október 2023 Fjármálaráðuneytið vanmat breytingar sem fylgdu heildarsamningi við Microsoft fyrir fimm árum, og væntingar um hátt í sex milljarða króna árlegan sparnað gengu ekki eftir. Þetta er meðal niðurstaðna í úttekt Ríkisendurskoðunar. Héraðsdómur verður að dómi Landsréttar að taka hryðjuverkamálið til efnislegrar umfjöllunar þó að ákæru hafi verið vísað frá í tvígang. Gengi bréfa í Marel hækkaði mjög þegar spurðist út að erlendir fjárfestar vildu taka það yfir. Von er á miklum fjölda í...
Oct 23, 2023•30 min•Ep. 170
20. október 2023 Skortur er farinn að sverfa að á Gaza og enn hefur flutningabílum sem bíða með hjálpargögn við landamæri Egyptalands ekki verið hleypt í gegn. Hamas sagðist hafa sleppt tveimur bandarískum gíslum af mannúðarástæðum síðdegis. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók í morgun við undirskriftum meira en tvö þúsund manns sem hvetja stjórnvöld til að fordæma stríðsglæpi Ísraelshers og fjöldamorð á Gaza. Heilbrigðisráðherra segir brýnt að auka forvarnir og fræðslu um skaðsemi ljósabek...
Oct 20, 2023•30 min•Ep. 169
19. október 2023 Miklar hörmungar vofa yfir íbúum Gaza fáist ekki neyðaraðstoð sem enn situr föst við landamærin. Rafmagnslaust er á mörgum sjúkrahúsum og erfitt eða ómögulegt að sinna særðum.Bandaríkjastjórn biður Bandaríkjamenn um allan heim að vera á varðbergi vegna andúðar í garð Bandaríkjanna. Útreikningar benda til að breytingar á hafstraumum við Norðaustur-Grænland gætu orðið allmiklar innan tíu ára. Þeim gætu fylgt miklar breytingar á göngu loðnu. Úkraínska hernum miðar hægt í sókn gegn ...
Oct 19, 2023•30 min•Ep. 168
18. október 2023 Sextíu tonn af hjálpargögnum eru á leið á Gaza eftir að Ísraelar tilkynntu að þeir stæðu ekki í vegi fyrir að aðstoð kæmist þangað í dag. Utanríkisráðherra fordæmir árás á spítala í gær. Eiginkona og dóttir mannsins, sem var myrtur í Drangahrauni í Hafnarfirði í sumar, fundu blóðugan hníf við tiltekt í íbúðinni í fyrradag. Vopnið hafði ekki fundist í rannsókn lögreglu. Stíflueyði var kastað á dreng á skólalóð í Reykjavík á sunnudag. Enn er óvíst hvort stúlkan sem fékk stíflueyði...
Oct 18, 2023•30 min•Ep. 167
17. október 2023 Palestínumenn segja um 500 manns hafa fallið í loftárás á sjúkrahús á Gaza. Betur fór en á horfðist þegar stíflueyðisdufti var kastað í andlit tólf ára stúlku. Yfirmaður öryggismála hjá sænska knattspyrnusambandinu varar stuðningsfólk landsliðsins við því að klæðast treyjum liðsins erlendis. Harkalegu ofbeldi er æ oftar beitt í kynlífi þannig að leiði til ákæru. Hjúkrunarrýmum í Seljahlíð í Breiðholti verður lokað 1. febrúar. Ekki á að fækka hjúkrunarrýmum heldur verða þau færð ...
Oct 17, 2023•11 min•Ep. 166
16. október 2023 Vígasveitir Hamas-samtakanna hafa varpað fjölda eldflauga á Tel Aviv og Jerúsalem síðustu klukkustundir. Samtökin segja árásirnar svar þeirra við árásum Ísraela á saklausa borgara. Þó nokkrir bjuggu í iðnaðarhúsnæði í Reykjavík sem kviknaði í síðdegis. Einn var fluttur á sjúkrahús. Maður sem bjó í húsinu hljóp út þegar hann heyrði í brunabjöllu. Úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar segir Agnesi M. Sigurðardóttur ekki hafa verið með umboð til að víkja Gunnari Sigurjónssyni úr embætti só...
Oct 16, 2023•10 min•Ep. 165
13. október 2023 Samstaða var með stjórnarflokkunum á sameiginlegum vinnufundi þeirra á Þingvöllum í dag, segja Katrín Jakobsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson og Bjarni Benediktsson, forystumenn flokkanna. Kvikugangur er að myndast undir Fagradalsfjalli að mati vísindamanna Veðurstofunnar. Það sýnir hröðun á landrisi undanfarið. Fyrirskipun Ísraelshers um að 1,1 milljón íbúa Gazaborgar komi sér suður á bóginn fyrir miðnætti hefur vakið undrun og óhug víða um heim. Búist er við að landherinn ráðis...
Oct 13, 2023•30 min•Ep. 164
12. október 2023 Utanríkisráðherra Bandaríkjanna kom til Ísraels í dag og ítrekaði skilyrðislausan stuðning Bandaríkjastjórnar við ísraelsku þjóðina. Hlýrra loftslag og hopun jökla hefur aukið framleiðslugetu Landsvirkjunar umtalsvert á undanförnum tíu árum. Nýjum samráðsvettvangi lögreglu, sveitarfélaga, heilbrigðistofnana, skóla og fleiri er ætlað að vaka yfir samfélaginu og skipuleggja átaksverkefni gegn ofbeldi og áhættuhegðun. Stofnað verður til slíks samráðs í öllum landshlutum og er það þ...
Oct 12, 2023•30 min•Ep. 163
11. október 2023 Afsögn fjármálaráðherra var lítið rædd í þingsal Alþingis en þeim mun meira á göngum þess. Magnús geir Eyjólfsson þingfréttamaður segir frá stemmningunni á þingi og Linda H. Blöndal ræðir við stjórnarandstöðuþingmennina Guðmund Inga Kristinsson, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og Jóhann Pál Jóhannsson. Fimm sjálfboðaliðar frá Rauða hálfmánanum hafa verið myrtir í stríðinu milli Hamas og Ísraels. Þar af létust fjórir bráðaliðar þegar ráðist var á þau við hjálparstörf í morgun. Val...
Oct 11, 2023•30 min•Ep. 162
10. október 2023 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að afsögn fjármálaráðherra sé virðingarverð. Hún hafi óhjákvæmilega áhrif á ríkisstjórnina en milli þeirra ríki traust. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur lýsir ánægju með að fjármálaráðherra hafi ekki látið reyna á hæfi sitt í embætti fyrir dómstólum heldur frekar vikið. Ráðherrar sem yfirmenn framkvæmdavaldsins þurfi að fylgja flóknu regluverki í sínum verkefnu og megi ekki hygla einni atvinnugrein eða frændfólki. Hólmganga Vinstr...
Oct 10, 2023•30 min•Ep. 161
9. október 2023 Á annað þúsund hafa fallið frá því að stríð braust út á laugardag milli stjórnarhersins í Ísrael og palestínskra vígamanna Hamas frá Gaza-svæðinu. Ísraelsher skaut helmingi fleiri flugskeytum yfir til Gaza í dag en um helgina. Kona frá Palestínu sem búið hefur á Íslandi lengi segir að Hamas-samtökin séu frelsishreyfing. Ræðismaður Íslands í Ísrael segir hins vegar að þau þrífist á hatri. Vinna hófst í gær við höfnina í Þorlákshöfn án þess að búið væri að veita leyfi fyrir framkvæ...
Oct 09, 2023•30 min•Ep. 160
06.10.2023 Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir að stjórnvöld geri margt til að bregðast við ópíóíðafaraldrinum en mættu gera betur. Fjölga þurfi plássum í afeitrun til að stytta biðtíma sem nú er á sjöunda mánuð. Urður Örlygsdóttir ræddi við hann. Umhverfisáðherra hefur staðfest að veiðitímabil rjúpu verði frá 20. október til 21. nóvember í ár. Heimilt verður að stunda veiðarnar allan daginn frá föstudegi til þriðjudags. Ásta Hlín Magnúsdóttir talaði við Áka Ármann Jónsson, formann Skot...
Oct 06, 2023•30 min•Ep. 159
Hvítir veggir, hvítir sloppar og börn í hvítum rúmum; þau skorti örvun og umhyggju á vöggustofum Reykjavíkur. Foreldrarnir fengu ekki að snerta þau og varla að heimsækja þau. Þetta hafði oft varanleg áhrif á líf og heilsu barnanna. Þau sættu illri meðferð að dómi nefndar sem hefur rannsakað starfsemina. Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkur hefur aflýst fundi með tyrkneska körfuboltamanninum Enes Kanter Freedom sem hefur barist fyrir mannréttindum í heimalandi sínu en einnig gagnrýnt trans fólk. Fo...
Oct 05, 2023•30 min•Ep. 158
Hafrannsóknastofnun leggur til að engar loðnuveiðar verði leyfðar á næsta fiskveiðiári. Framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar segir fréttirnar ekki koma á óvart. Villti laxastofninn á að njóta vafans gagnvart eldislöxum samkvæmt drögum að stefnu um lagareldi. Heimildir til sjókvíaeldis gætu orðið að engu, hafi reglulegt strok úr kvíum mikil áhrif á villta laxinn. Matvælaráðherra segir stefnt á að hækka auðlindagjöld í sjókvíaeldi nær því sem tíðkast í nágrannalöndunum Noregi og Færeyjum. Formaður to...
Oct 04, 2023•10 min•Ep. 157
Maður á sextugsaldri sem fannst látinn í heimahúsi í Bátavogi í austurborg Reykjavíkur á laugardagskvöld fyrir einni og hálfri viku var myrtur. Fimm flokka þyrfti til að mynda ríkisstjórn án Samfylkingarinnar miðað við niðurstöður Þjóðarpúls. Kaupmáttur dróst saman í fyrra, en jókst ekki eins og Hagstofa hafði áður greint frá. Búist er við að Seðlabankinn tilkynni á morgun um fimmtándu stýrivaxtahækkunina í röð. Nýtt bóluefni gegn HPV-veirunni veitir góða vörn gegn kynfæravörtum og krabbameini. ...
Oct 03, 2023•10 min•Ep. 156
2. október 2023 Ákærum um undirbúning hryðjuverka var í dag öðru sinni vísað frá í Héraðsdómi Reykjavíkur. Verjandi segir rannsókn hryðjuverkamálsins hafa miðað að því að sanna kenningar sem lögregla setti fram á blaðamannafundi. Nærri fimmtíu ungmenni hafa fallið í átökum glæpagengja í Svíþjóð undanfarin ár, yfir þrjú hundruð hafa verið myrtir á sjö árum. Samfylkingin boðar breytingar á skattkerfinu til að fjármagna tveggja kjörtímabila áætlun um forgangsröðun flokksins í heilbrigðis- og öldrun...
Oct 02, 2023•30 min•Ep. 155