29.09.2023 Útlendingastofnun mátti synja Venesúelabúum um alþjóðlega vernd, að mati kærunefndar útlendingamála. Á annað þúsund manns frá Venesúela geta búist við að vera send úr landi á næstunni. Ari Páll Karlsson sagði frá. Sænska hernum verður falið að aðstoða lögregluna við að ráða niðurlögum glæpagengja sem hafa orðið ellefu manns að bana í þessum mánuði. Vísbendingar eru um tengsl íslenskra glæpahópa við sænsk glæpasamtök sem staðið hafa í grimmilegum hjaðningavígum síðustu misseri. Ævar Ör...
Sep 29, 2023•30 min•Ep. 154
28. september 2023. 32 ára karlmaður var handtekinn í Rotterdam í Hollandi síðdegis eftir banvænar skotárásir í íbúð og á sjúkrahúsi. Félags- og vinnumarkaðsráðherra segir lokuð búsetuúrræði ekki geta leyst vanda sem upp sé kominn vegna fólks sem fengið hafi endanlega synjun um alþjóðlega vernd. Dómsmálaráðherra er ósátt við nýjan samning ríkisins við Rauða krossinn um neyðaraðstoð fyrir þennan hóp. Verðbólga mælist átta prósent og hefur hækkað lítils háttar frá fyrri mánuði. Verðbólgan fór mest...
Sep 28, 2023•30 min•Ep. 153
Samskip krefjast bóta frá Eimskipi fyrir að hafa borið á félagið rangar sakargiftir í tengslum við sátt sem Eimskip gerði við Samkeppniseftirlitið. Ráðist var á ráðstefnugest sem bar hinsegin tákn í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöld. Lögregla rannsakar hvort árásin hafi verið hatursglæpur. Fimmtíu þúsund hafa flúið Nagorno-Karabakh í vikunni. Hafrannsóknastofnun ætlar að endurskoða áhættumat erfðablöndunar laxa. Í ágúst sluppu um 3500 laxar úr einni kví Arctic Fish í Patreksfirði. Storytel hyggst not...
Sep 27, 2023•30 min•Ep. 152
Það getur verið dýrkeypt að gera ekki samaburð á þeim kjörum sem bjóðast við endurfjármögnun á húsnæðislánum, segir Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi. Fólk þarf að vera meðvitað um hve ódýrt það er að endurfjármaga lánin. Of hár blóðþrýstingur er vangreindur og vanmeðhöndlaður sjúkdómur sem getur leitt til nýrna-, hjarta- og heilasjúkdómum, segir Emil Lárus Sigurðsson prófessor við Háskóla Íslands. Mikill munur er á áhrifum kláms á ungmenni eftir því hvort þau leita að því sjálf eða ekki, s...
Sep 26, 2023•30 min•Ep. 151
Kona hefur verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til miðvikudags, vegna rannsóknar á andláti karls í Reykjavík á laugardag. Skipulagsmál hjá borginni urðu til þess að bygging hjúkrunarheimilis í Grafarvogi hefur tafist um tvö ár. Borgin segist tilbúin. Enn bætir í straum flóttamanna frá Nagorno-Karabakh til Armeníu. 54 gefa skýrslu í réttarhöldunum sem kennd eru við Bankastræti Club og hófust í dag. 40% eldri borgara segjast ekki finna til einmanaleika, en 6% segjast vera gífurlega einmana. Þetta eru ...
Sep 25, 2023•30 min•Ep. 150
Flestir strokulaxarnir sem Hafrannsóknarstofnun hefur greint, voru kynþroska. Þetta er óvenjulegt, en í laxeldi er kynþroska laxa seinkað til þess að auka gæði fiskanna. Valur Grettisson ræddi við Guðna Guðbergsson, sviðsstjóra hjá Hafrannsóknastofnun. Héraðssaksóknari hefur ákært þrjá danska karlmenn í tengslum við umfangsmikið smygl á hundrað fimmtíu og sjö kílóum af hassi. Þeir voru handteknir í umfangsmiklum aðgerðum lögreglu úti fyrir Garðskaga í lok júní. Málaflokkur fatlaðra hefur verið v...
Sep 22, 2023•9 min•Ep. 149
Spegillinn 21. september 2023 Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason Stjórn fréttaútsendingar: Júlía Margrét Ingimarsdóttir Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins í uppnámi eftir yfirlýsingar fjármálaráðherra í morgun um að útilokað sé að fjármagna hann í núverandi mynd. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræðir við Heiðu Björg Hilmisdóttur. Fulltrúaráð launamanna Birtu lífeyrissjóðs skorar á Pálmar Óla Magnússon, fyrrverandi stjórnanda hjá...
Sep 21, 2023•9 min•Ep. 148
Hægari sala fasteigna hefur valdið því að skuldir byggingageirans við bankana hafa aukist um 68 milljarða króna síðustu tólf mánuði. Það er ekki áhyggjuefni enn sem komið er, segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Volodymyr Zelenskí forseti Úkraínu vill að Rússar verði sviptir neitunarvaldi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Þeir hafi gert ráðið gagnslaust með beitingu neitunarvaldsins. Barnahús metur öll tilvik sem barnaverndarnefndir senda til hennar vegna mögulegra kynferðisbrota barna, segir ...
Sep 20, 2023•10 min•Ep. 147
Appelsínugul veðurviðvörun vegna rigningar á Austfjörðum og rýming á Seyðisfirði er enn í gildi. Hringveginum hefur verið lokað frá Skaftafelli að Jökulsárlóni vegna veðurs. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra segir að áform um sameiningu framhaldsskóla á Akureyri breytist fáist meira fé. Karlmaður á fimmtugsaldri var í Héraðsdómi Reykjaness í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn dóttur sinni. Gísli Rafn Ólafsson, þingmaður Pírata, segir að skýra þurfi...
Sep 19, 2023•30 min•Ep. 146
Gripið hefur verið til rýmingar á Seyðisfirði vegna mikillar úrkomu á Austurlandi. Appelsínugul veðurviðvörun tekur gildi á Austfjörðum á miðnætti og hættustig er í gildi vegna hættu á skriðuföllum. Rætt var við Dagnýju Erlu Ómarsdóttur fulltrúi sveitarstjóra á Seyðisfirði Sífellt fleiri fara í efnaskiptaaðgerðir á eigin vegum á einkastofum hér á landi eða erlendis þar sem skilyrði til að mega gangast undir aðgerð á borð við magaermi eða hjáveitu eru færri en á Landspítalanum. Undirbúningi og ef...
Sep 18, 2023•30 min•Ep. 145
Spegillinn 15.09.2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn fréttaútsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir Skólameistari í fjölbrautaskóla Garðabæjar telur ekki rétt að reka kennara þrátt fyrir að umdeildar bloggfærslur hans geti valdið nemendum vanlíðan. Kennarar við skólann eru margir ósáttir. Ásta Hlín Magnúsdóttir talaði við Kristin Þorsteinsson skólameistara og Petrúnu Björgu Jónsdóttur, kennara og hinseginfulltrúa skólans. Karl Frímannsson, skólameistari Mennt...
Sep 15, 2023•30 min•Ep. 144
Hvalveiðiskipið Hvalur átta hefur verið kyrrsett eftir að veiðimönnum mistókst að aflífa langreyð í fyrsta skoti. Samkvæmt verulega hertum reglum matvælaráðherra þarf að skjóta hval tafarlaust aftur ef fyrsta skot geigar. Forstjóri Matvælastofnunar, Hrönn Ólína Jörundsdóttir segir að töluvert hafi liðið á milli skota. Bæjarráð Akureyrar er mótfallið sameiningu Menntaskólans og Verkmenntaskólans í bænum. Seðlabanki Evrópu hækkaði í dag stýrivexti á evrusvæðinu í tíunda skipti í röð. Bjarni Felixs...
Sep 14, 2023•10 min•Ep. 143
Samtök atvinnulífsins hefðu viljað verja óvæntum tekjuauka ríkissjóðs til að greiða niður skuldir fremur en að auka útgjöld. Anna Hrefna Ingimundardóttir aðstoðarframkvæmdastjóri SA telur að í fjárlagafrumvarpinu sé ekki nógu mikil áhersla lögð á aðgerðir til að draga úr verðbólgu og lækka vexti. Sjávarútvegurinn hefur dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda um allt að helming síðasta aldarfjórðung. Daði Már Kristófersson hagfræðiprófessor telur að fiskveiðistjórnunarkerfið hafi skipt þar sköpum; ...
Sep 13, 2023•30 min•Ep. 142
Fátt óvænt, eyðsla ekki aðhald, forystuleysi og ólíklegt að það vinni á verðbólgu, er meðal þess sem stjórnarandstaðan segir um fjárlagafrumvarpið. Þingveturinn litast væntanlega af kjarasamningum sem eru lausir í byrjun næsta árs, að dómi Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra; það sé þó fyrst og fremst vinnuveitenda og launþega að ná saman um kaup og kjör. Auka þarf fjölbreytileika í atvinnulífi á Seyðisfirði og finna framtíðarlausnir, segir Björn Ingimarsson, sveitarstjórinn í Múlaþingi. Upps...
Sep 12, 2023•30 min•Ep. 141
Björgunarsveitum í Marokkó gengur seint að koma til aðstoðar fólki sem missti allt í jarðskjálftanum á föstudagskvöld. Hátt í 2.700 hafa fundist látin. Höfuðkúpubein úr manni fundust í fyrri viku undir gólffjölum í risi Ráðherrabústaðarins við Tjarnargötu, þar sem endurbætur standa yfir. Margrét Hallgrímsdóttir, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu og fyrrverandi Þjóðminjavörður, gerir ráð fyrir að beinunum hafi verið komið fyrir í húsinu eftir að það var flutt frá Önundarfirði, þ...
Sep 11, 2023•30 min•Ep. 140
Spegillinn 8. September 2023 Umsjón: Ásgeir T Ómasson Tæknimður: Mark Eldred Stórn fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir Áformað er að hýsa sextíu til sjötíu umsækjendur um alþjóðlega vernd á Hótel Glymi í Hvalfjarðarsveit í haust. Pétur Magnússon sagði frá og talaði við Gísla Davíð Karlsson. Aðeins þrjú af tíu stærstu sveitarfélögum landsins svöruðu spurningalista sem mennta- og barnamálaráðuneytið sendi til að afla upplýsinga um raka- og mygluskemmdir í grunn- og leikskólum. Eftirfylgni o...
Sep 08, 2023•30 min•Ep. 139
Fyrstu langreyðar vertíðarinnar hafa verið veiddar. Hvalveiðiskip eru á leiðinni með dýrin til hafnar í Hvalfirði. Óvíst er hvað verður gert með skýrslu um aðbúnað og meðferð á fullorðnu fólki með þroskahömlum og geðrænan vanda. Skýrslan var kláruð í fyrra og ekkert hefur verið aðhafst. Það á að selja Perluna til að reyna að stoppa í skuldir borgarinnar. Stjórnlagadómstóll í Frakkland hefur úrskurðað að stjórnvöldum sé heimilt að banna skólastúlkum að klæðast abaya-kjólum, sem tíðkast hjá múslim...
Sep 07, 2023•10 min•Ep. 138
Spegillinn 6. september 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir. Þrír eru grunaðir um að hafa kveikt í bíl lögreglukonu um miðjan ágúst. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu voru sex handteknir í tengslum við rannsókn málsins og var einn þeirra úrskurðaður í nokkurra daga gæsluvarðhald. Lilja Alfreðsdóttir, viðskipta- og neytendamálaráðherra útilokar ekki að lækka arðsemiskröfu á Landsbankann, sem er í eigu ríkisins, og með því kost...
Sep 06, 2023•30 min•Ep. 137
Spegillinn 5. september 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir. Alvarlegt slys varð í Borgarfirði í dag þegar tveir bílar rákust saman. Fjórir voru í þeim og slösuðust allir alvarlega. Garðar Axelsson varðstjóri hjá lögreglunni á Vesturlandi sagði mikinn viðbúnað á vettvangi. Rúmlega þrjátíu klukkutíma mótmælum tveggja kvenna gegn hvalveiðum lauk síðdegis þegar þær klifruðu niður úr möstrum hvalveiðiskipa í Reykjaví...
Sep 05, 2023•30 min•Ep. 136
Enn er mótmælt í möstrum hvalveiðibáta við Reykjavíkurhöfn. Lögmaður reyndi síðdegis að koma mat og drykk til mótmælenda. Karlmaður hlaut í dag einn þyngsta dóm sem kveðinn hefur verið upp í heimilisofbeldismáli. Hann var dæmdur í átta ára fangelsisvist í héraðsdómi Reykjaness. Börn með erlendan bakgrunn eru miklu líklegri til að vera lögð í einelti en börn af íslenskum uppruna. Rússlandsforseti segir rússneskt korn á leið til sex Afríkuríkja á næstu vikum. Kornútflutningur um Svartahaf hefur le...
Sep 04, 2023•30 min•Ep. 135
Spegillinn 1. september 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kári Guðmundsson. Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir. Páll Rúnar Mikael Kristjánsson, hæstaréttarlögmaður segir að fyrirtæki sem urðu fyrir tjóni af samráði Eimskips og Samskipa séu farin að stíga fyrstu skrefin til að sækja rétt sinn. Viðbúnaður er í Grindavíkurhöfn vegna stórstreymis og vonskuveðurs. Sigurður Arnar Kristmundsson hafnarstjóri segir að búist sé við að ölduhæð nái átta metrum þar annað kvöld og hæ...
Sep 01, 2023•30 min•Ep. 134
Spegillinn 31. ágúst 2023. Umsjón: Alexander Kristjánsson. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdótttir. Hvalveiðar verða heimilar á ný frá og með morgundeginum. Hert reglugerð um veiðarnar var gefin út síðdegis. Andri Yrkill Valsson sagði frá. Samkeppniseftirlitið hefur sektað Samskip um 4,2 milljarða króna vegna ólöglegs samráðs við Eimskip sem hafði áður gengist við brotunum. Faraldur SMS-svikaskilaboða gefur geisað í sumar. Sérfræðingur í regluvörslu hjá Lands...
Aug 31, 2023•30 min•Ep. 133
Spegillinn 30. ágúst 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Júlía Margrét Ingimarsdóttir Óvenju mikið er af laxi við Ósá í Patreksfirði þar sem göt fundust á eldiskví í síðustu viku. Hvorki er þó hægt að fullyrða hve margir fiskar sluppu né hvort fiskar sem veiðst hafa í ám á norðvesturhorninu eru úr kvínni. Lögreglunni bárust tilkynningar um 79 nauðganir fyrstu sex mánuði ársins. Börn voru næstum helmingur þolenda kynferðisbrota á tímabilinu. ...
Aug 30, 2023•30 min•Ep. 132
Rennsli eykst enn í Skaftá, en hægt hefur á aukningunni. Búið er að loka Hólaskjóli - hálendismiðstöðinni. Enn er óljóst úr hvorum Skaftárkatli hleypur. Rætt var við Áróru Bryndísi Ásgeirsdóttir sem starfar í Hólaskjóli og Þorstein Þorsteinsson, sérfræðing í jöklarannsóknum á Veðurstofunni. Vaxtamunur hefur ekki minnkað þrátt fyrir bætta afkomu og minni rekstrarkostnað bankanna. Gjaldskrár eru óskýrar og oft óljóst fyrir hvað fólk er að borga. Skógareldarnir í Grikklandi eru þeir mestu innan Evr...
Aug 29, 2023•30 min•Ep. 131
Spegillinn 28. ágúst 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir. Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins er stórt verkefni og eðlilegt að hann sé endurskoðaður, en hann er hluti af stærra verkefni samgangna í landinu öllu segir Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra, þar þurfi að finna jafnvægi og leiðir til tekjuöflunar. Pétur Magnússon talaði við hann. Afar lítill munur er á verði á þeim vörum sem eru í verðgátt stjórnvalda og hú...
Aug 28, 2023•10 min•Ep. 130
Spegillinn 25. ágúst 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Helga Þórisdóttir, formaður Félags forstöðumanna ríkisstofnanna, segir að það sé viðvarandi krafa frá almenningi að stofnanir geri sífellt meira og betur. Stefnt er að því að lækka launakostnað ríkisins um fimm milljarða króna. Benedikt Sigurðsson talaði við hana. Formenn þriggja stjórnarandstöðuflokka, þau Sigmundur Davíð Gunnlugsson, Kristrún Frostadóttir og Þorgerðu...
Aug 25, 2023•9 min•Ep. 129
Spegillinn 24. ágúst 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir. Sjávarlóðum í Kópavogi var úthlutað fjárfestum án auglýsingar. Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, fulltrúi Pírata í minnihluta bæjarstjórna segir að alltaf eigi að auglýsa lóðir en Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri segir málið slitið úr samhengi. Sólveig Klara Ragnarsdóttir tók saman. Forsætisráðherra Noregs tilkynnti í dag áform Norðmanna um að afhenda Úkraínu F-16 ...
Aug 24, 2023•9 min•Ep. 128
Spegillinn 23. ágúst 2023 Umsjónarmaður: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir. Fjöldi fólks kom saman á fundi sem á þriðja tug hjálpar- og mannréttindasamtaka boðaði til vegna aðstæðna hælisleitenda sem sviptir hafa verið allri þjónustu. Valur Grettisson fór á fundinn og ræddi við Arndísi Önnu Kristínar-Gunnarsdóttur, þingmann Pírata. Yevgeny Prigozhin, stofnandi og leiðtogi hins svokallaða Wagner-málaliðahóps, var á farþegaskrá flugvé...
Aug 23, 2023•30 min•Ep. 127
Ævar Sigmar Hjartarson Formaður húsfélags í húsi við Hvaleyrarbraut, sem brann í gær, segist sjálfur ítrekað hafa bent bæjaryfirvöldum á að ólögmæt búseta væri í húsinu. Leigusalar virðast fela fyrir nágrönnum sínum að þeir leigi út rými í atvinnuhúsnæði til búsetu. Landmæraverðir í Sádi-Arabíu fremja fjöldamorð á flóttafólki frá Eþíópíu sem reynir að komast inn í landið, samkvæmt nýrri skýrslu Mannréttindavaktarinnar. Um 850 er enn saknað eftir mikla gróðurelda á Havaí. Eldarnir eru þeir mannsk...
Aug 21, 2023•30 min•Ep. 125
Spegillinn 18. ágúst 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Kormákur Marðarson Stj?+orn fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir Öllum 27 starfsmönnum Skagans 3X á Ísafirði hefur verið sagt upp og starfsstöðinni verður lokað. Þungbærar fréttir, segir Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri á Ísafirði, í viðtali við Alexander Kristjánsson Jóhannes Sævar Rúnarsson, forstjóri Strætó, er sannfærður um að innleiða þurfi gjaldtöku fyrir akstur í miðborg Reykjavíkur til að draga úr mengun og jafnvel banna...
Aug 18, 2023•30 min•Ep. 124