Spegillinn - podcast cover

Spegillinn

RÚVwww.ruv.is
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Hælisleitendur, vextir, umönnunarstéttir, Ecowas, losun og skógeyðing

Spegillinn 17. ágúst 2023 Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kormákur Marðarson Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Reykjavíkurborg vísar réttindalausum hælisleitendum frá neyðarskýlum borgarinnar, þar sem sveitarfélögin telja sér óheimilt að veita þeim aðstoð. Valur Grettisson ræðir við Einar Þorsteinsson. Fyrrverandi fulltrúi í peningastefnunefnd Seðlabankans segir ólíklegt að bankinn sé hættur að hækka vexti. Ýmislegt hafi þróast í rétta átt, en það dugi ekki til því en...

Aug 17, 202330 minEp. 123

Landris við Torfajökul og aukin tíðni skorpulifrar.

Spegillinn 16. ágúst 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir. Það er brýnt að bæta tækjakost og mælingar við Torfajökul að dómi Kristínar Jónsdóttur, deildarstjóra eldvirkni á Veðurstofunni. Líklegra sé að gjósi fyrr í Öskju en Torfajökli. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir tók saman. Kórónuveirusmitum hefur fjölgað síðustu vikur. Guðrún Aspelund, sóttvarnalæknir segir að aftur verði tekið til við örvunarbólusetningar gegn c...

Aug 16, 202330 minEp. 122

Loftslagsbreytingar ógna lýðheilsu og uppvakningadóp í Bandaríkjunum

Staðan í umhverfismálum hér á landi er sótsvört og aðgerðir stjórnvalda eru grænþvottur sem fær falleinkunn. Þetta segir Hjalti Már Björnsson formaður Samtaka lækna gegn umhverfisvá sem segir að lýðheilsu sé ógnað. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir talaði við hann. Ekkert símasamband er við Öskju og því gæti verði erfitt að koma boðum og viðvörunum til fólks sem er þar á ferð ef byrjar að gjósa. Lilja Alfreðsdóttir, menningarmálaráðherra segir að lengi hafi staðið til að stofna þjóðaróperu því eigi ek...

Aug 15, 202330 minEp. 121

Brennisteinsfnyk leggur af Öskju, hælisleitendamál

Samband íslenskra sveitarfélaga mótmælir því að þau séu gerð ábyrgð fyrir málefnum hælisleitenda. Það sé málaflokkur sem heyri undir ríkið. Hatursorðræða, hróp og gelt eru ólíðandi, segir formaður Samtakanna 78. Ákveðinn hópur fólks sýni hinsegin fólki oft slíka framkomu. Helmingslíkur eru á að árið í ár verði það heitasta frá upphafi mælinga. Þetta er mat Haf- og loftslagsrannsóknastofnunar Bandaríkjanna. Forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri segir að aukinn fjöldi ferðamanna hafi mikil áhrif á st...

Aug 14, 202310 minEp. 120

Framhald hvalveiða, þyrlusveit úti á landi, útlendingalögin

Spegillinn 11. ágúst 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Svandís Svavarsdóttir segir ákvörðun um framhald hvalveiða liggja fyrir síðar í þessum mánuði. Haukur Holm ræddi við hana. Landhelgisgæslan ætlar að hafa bakvakt þyrlusveitarinnar víðar en í Reykjavík um helgar þegar ferðamannastraumurinn er sem mestur. Ari Páll Karlsson ræddi málið við Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúa stofnunarinnar. Drífa Snædal, talskona Stígam...

Aug 11, 202310 minEp. 119

Ríkissjóður, hamfarir, málefni barna, sorphirða og ferðaþjónusta

Spegillinn 10.08. 2023 Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Yfir fjögur þúsund manns hafa verið flutt brott frá flóðasvæðunum í Noregi. Miklar rýmingar standa yfir í bænum Hönefoss þar sem yfirborð árinnar Storelva hækkar hratt. Rætt er við Huldu Björk Jóhannsdóttur kennara í Hönefoss Havaí-eyjar hafa verið lýstar hamfarasvæði eftir að miklir gróðureldar blossuðu þar upp í gær. Tugir eru látnir og margra er saknað. Fjármálaráðh...

Aug 10, 202330 minEp. 118

Óveðurslægðin Hans veldur usla og þolmörk ferðaþjónustunnar

Spegillinn, 9. ágúst 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir. Stífla virkjunar norðaustur af Osló í Noregi er brostin og óttast er að járnbrautarbrú í Ringebu gefi sig. Óveðrið Hans hefur valdið miklu eignatjóni. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir sagði frá. Kristín Eysteynsdóttir, rektor Listaháskólans segir það stóran áfanga að búið sé að fjármagna samkeppni um breytingar á framtíðarheimili skólans í Tollhúsinu í Reykjavík. Sigurðu...

Aug 09, 202330 minEp. 117

Mengunarkvótar á sjóflutninga og hvalrekaskattur á ítalska banka

Spegillinn 8. ágúst 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Markús Hjaltason. Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra segir að Ísland verði að standa við skuldbindingar sínar í loftslagsmálum. Mengunarkvótar í skipaflutningum séu hluti af heildarmyndinni og komi ekki á óvart. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við hana. Ítalskir bankar þurfa að greiða 40 prósenta hvalrekaskatt og hlutabréf í þeim hafa hríðfallið eftir að ríki...

Aug 08, 202330 minEp. 116

Suðurnesjalína samþykkt, börnum á flótta fjölgar, skógareldar í Kanada

Spegillinn 30. júní 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Kári Guðmundsson Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Fulltrúar Landsnets og Sveitarfélagsins Voga skrifuðu í dag undir samkomulag um lagningu Suðurnesjalínu 2, eftir rúmlega tíu ára harðvítugar deilur, sem margoft rötuðu fyrir dómstóla. Arnhildur Hálfdánardóttir ræddi við Gunnar Axel Axelsson, bæjarstjóra í Vogum og Guðmund Inga Ásmundsson, forstjóra Landsnets. Reykjavíkurborg gerir ráð fyrir að yfir 400 börn á flótt...

Jun 30, 202330 minEp. 115

Íslandsbanki, fasteignamarkaður, Sorpa, ofbeldi ungmenna o.fl.

Spegillinn 29. júní 2023. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir. Jón Guðni Ómarsson, nýr bankastjóri Íslandsbanka segist kominn til að vera og vill endurheimta traust. Hann hafi sjálfur ekki komið að sölunni á fimmtungshlut í bankanum, að öðru leyti en því að hafa kynnt bankann fyrir fjárfestum. Pétur Magnússon ræðir við Jón Guðna. Kvikubanki hefur slitið samrunaviðræðum við Íslandsbanka. Stjórn Kviku telur að ekki séu forsendur t...

Jun 29, 202330 minEp. 114

Bankasýslan um Íslandsbanka og umboðsmaður skuldara um nauðungaruppboð

Spegillinn 28. júní 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir. Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Bankasýslu ríksins ítrekar þá skoðun sína að útboðið á hlut ríkisins í Íslandsbanka í fyrra hafi verið eitt farsælasta hlutafjárútboð Íslandssögunnar. Hvorki skýrsla Fjármálaeftirlitsins né Ríkisendurskoðunar breyti því. Pétur Magnússon ræddi við hann . Orkuveita Reykjavíkur vill kanna kosti þess að reisa allt að 400 megavatta vindo...

Jun 28, 202330 minEp. 113

Ábyrgð stjórnenda Íslandsbanka og traust til kerfisins

Spegillinn 27. júní 2023. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra telur ekki að stjórnvöld hafi verið of bláeyg með því að treysta stjórnendum Íslandsbanka fyrir sölu á hlut í bankanum. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir að fólk sem ítrekað brjóti lög, blekki vísvitandi og ljúgi, njóti ekki trausts og þurfi að íhuga stöðu sína. Útleiga hoppukastala er ekki leyfisskyld starfsemi og ekkert formlegt eftirlit er með leigunni. Elva Rakel Jónsdóttir, staðgengill forstjóra umhverfisstofnunnar...

Jun 27, 202330 minEp. 112

Íslandsbanki í fókus: Villandi upplýsingar og brostið traust

Bankasýslu ríkisins voru veittar villandi upplýsingar um flokkun þátttakenda í útboðinu í fyrra, samkvæmt skýrslu fjármálaeftirlits Seðlabankans. Dæmi eru um að starfsmenn bankans hafi átt frumkvæði að því að selja almennum fjárfestum bréf, þó útboðið væri aðeins ætlað fagfjárfestum. Lárus Blöndal, formaður Bankasýslunnar segir alvarlegt ef salan á bankanum rýri traust almennings til fjármálakerfisins. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir stjórn Íslandsbanka hafa brugðist trausti sínu. Ský...

Jun 26, 202310 minEp. 111

Íslandsbankasalan, hvalveiðibann, uppgjör Loftslagsráðs

Spegillinn 23. Júní 2023 Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Ágúst Bjarni Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokks, segir Íslandsbanka viðurkenna lögbrot með samningi um sáttagreiðslu við fjármálaeftirlitið. Arndís Anna. K. Gunnarsdóttir, varamaður Pírata í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis, segir að velta verði við hverjum steini vegna bankasölunnar. Arnhildur Hálfdánardóttir talaði við þau og Benedi...

Jun 23, 202310 minEp. 110

Sokkinn kafbátur, uppsagnir á Hólmavík, loftslagsmál og flóttafólk

Spegillinn 22. júní 2023 Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn fréttaútsendingar: Sandra Silfá Ragnarsdóttir Brak fannst í dag úr kafbátnum Titan, sem leitað hefur verið síðan á sunnudag. Hallgrímur Indriðason greinir leitinni. Fimmtungur félaga í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga missir vinnuna eftir uppsagnir í rækjuvinnslunni Hólmadrangi á Hólmavík. Urður Örlygsdóttir ræddi við Finnboga Sveinbjörnsson, formann félagsins, sem segir þetta mikið högg fyrir samfélagi...

Jun 22, 202330 minEp. 109

Dómar mildaðir í Rauðagerðismáli, öfgar í sjávarhita og lóðaskortur

Hæstiréttur mildaði í dag dóma yfir sakborningum í Rauðagerðismálinu. Þar á meðal var dómur yfir konu styttur um ellefu ár. Valur Grettisson tók saman og talaði við Karl Georg Sigurbjörnsson, verjanda konunnar. Útlit er fyrir að aldrei hafi meira af jarðefnaeldsneyti verið brennt á vegum landsins en í ár. Loftslagsráð telur að stjórnsýsla loftslagsmála þurfi að fara á neyðarstig. Óskhyggja dugir ekki til segir Halldór Þorgeirsson, formaður ráðsins. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir talaði við hann. Há...

Jun 21, 20239 minEp. 108

Hvalveiðar, átök í ríkisstjórn og næringarráðleggingar

Fyrirvaralaust og ámælisvert, segir Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, um stöðvun hvalveiða út sumarið. Ríkið gæti verið bótaskylt standi ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra sem segir spurningu hvort atvinnugrein þar sem ekki sé hægt að tryggja velferð dýra eigi sér framtíð. Óskiljanleg ákvörðun segir Árni Sverrisson, formaður skipstjórnarmanna. Nú er rétti tíminn fyrir ríkið til að koma inn í húsnæðismarkaðinn að dómi Sigurðar Inga Jóhan...

Jun 20, 202330 minEp. 107

Hættulegar hitabylgjur, gagnsókn Úkraínu, heyrnarskertir bíða lengi

16.000 Evrópubúar létust vegna mikils hita í fyrra. Íbúar álfunnar þurfa búa sig undir fleiri hættulegar hitabylgjur. Þetta kemur fram í nýrri loftslagsskýrslu. Anna Hulda Ólafsdóttir, skrifstofustjóri loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofu Íslands, segir stjórnvöld víða um heim ekki gera nóg. Karitas M. Bjarkadóttir sagði frá og ræddi við Önnu Huldu. Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis- orku og loftslagsráðherra segir ekki hafa komið til tals að hann skipti um ráðuneyti. Jóhanna Vigdís Hja...

Jun 19, 202330 minEp. 106

Hvammsvirkjun, Stígamót kæra, Reiðhjólahvíslarinn reiður, Searchers

Spegillinn 16. júní 2023 Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson Stjórn fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir Eggert Valur Guðmundsson, oddviti í Rangárþingi ytra, segir að framkvæmdaleyfi verði ekki veitt fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá fyrr en gilt virkjanaleyfi liggur fyrir. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir ræddi við hann og Harald Þór Jónsson, oddvita Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Stígamót hafa lagt fram tvær kærur síðustu daga vegna ofbeldis sem beinist gegn starfsfólki. Karitas M. Bjarkadóttir ræddi...

Jun 16, 202330 minEp. 105

Virkjanaleyfi Hvammsvirkjunar fellt úr gildi, Boris Johnson snupraður

Spegillinn 15. júní 2023. Virkjanaleyfi vegna Hvammsvirkjunar hefur verið fellt úr gildi. Ógilding leyfisins kemur Landsvirkjun á óvart. Freyr Gígja Gunnarsson sagði frá. Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra vill harðari löggjöf og skilvirkari vinnubrögð í málefnum fólks sem hér sækir um alþjóðlega vernd. Hann lætur væntanlega af embætti á mánudag en hefði viljað sitja lengur. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við hann. Sendiherra Íslands í Moskvu tekur við stöðu sendiherra í Kaupmannahöfn í sumar og...

Jun 15, 202330 minEp. 104

Úkraínumenn sækja fram, kaupmáttarrýrnun og El Niño

Hagnaður fyrirtækja í hitt í fyrra skýrist ekki af verðlagshækkunum þeirra. Í vetur verður að semja þannig að verðbólga hjaðni segir Anna Hrefna Ingimundardóttir aðstoðarframkvæmdastjóri SA. Rækjuvinnslu verður hætt um næstu mánaðamót hjá Hólmadrangi á Hólmavík og um tuttugu starfsmönnum sagt upp. Um fimmtán þúsund umsóknir hafa borist um háskólanám næsta haust í stærstu háskólum landsins. Aldrei hafa fleiri viljað í Háskólann í Reykjavík. Amanda Guðrún Bjarnadóttir tók saman og talaði við Ragnh...

Jun 14, 202330 minEp. 103

Netárásir, Úkraína, bensínverð, samgönguáætlun og málaferli dómara

Spegillinn 13. júní 2023 Umsjónarmaður: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kormákur Marðarson Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Guðmundur Arnar Sigmundsson, forstjóri netöryggissveitarinnar Certis telur líklegt að lokun sendiráðs Íslands í Moskvu sé ein ástæða þess að netárásir voru gerðar á opinbera stjórnsýslu og Alþingi í dag. Rætt við Guðmund og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur innviðaráðherra. Sólveig Klara Ragnarsdóttir tók saman. Utanríkisráðherra Dana segir mikilvægt að lo...

Jun 13, 202310 minEp. 102

Hryðjuverkamál, Davíð minnist Berlusconi, veggjalús tekur sér bólfestu

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik kemur ítrekað fyrir í samskiptum mannanna tveggja sem grunaðir eru um að skipuleggja hryðjuverk hér á landi. Áður óbirt samskipti mannanna koma fram í nýrri ákæru sem var tekin fyrir í héraðsdómi í morgun. Tvímenningarnir neita sök. Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður annars mannsins gagnrýndi fyrri ákæru fyrir að vera óskýra og þótt þessi sé skýrari finnst honum enn vanta upp á. Alexander Kristjánsson sagði frá. Formaður borgarráðs, Einar Þorsteinsson...

Jun 12, 20239 minEp. 101

Þorskstofninn vex hægt, MS hissa á brenndum fernum, Trump ákærður

Spegillinn 9. Júní 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Stjórn fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir Nýliðun er slök í mjög mörgum sjávarnyjategundum, segir Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar. Þorskstofninn er þó hægt vaxandi og ýsustofninn stendur vel. Benedikt Sigurðsson talaði við hann. Margrét Gísladóttir, talsmaður Mjólkursamsölunnar, segir að fréttir af óendurunnum fernum hafa komið sér á óvart. Fyrirtækið harmi mjög hvernig fór og að þau hafi treyst verkferlum. Sveitarstjó...

Jun 09, 202330 minEp. 100

NOVIS í vanda, strandveiðar í uppnámi, flóttafólk og hamfarahlýnun

Spegillinn 8. júní 2023 Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Hermannsdóttir Um fimm þúsund og sex hundruð Íslendingar eru með samning við vátryggingafélagið NOVIS í Slóvakíu. Farið verður fram á það fyrir slóvenskum dómstólum að félaginu verði skipuð slitastjórn. Benedikt Sigurðsson segir frá. Kunnugleg staða er komin upp í strandveiðum og útlit fyrir að leyfilegur heildarafli dugi ekki til að ljúka tímabilinu. Ágúst Ólafsson r...

Jun 08, 202330 minEp. 99

Kennurum hótað og seðlabankastjóri um verðbólgu og lán

Spegillinn, 7. júní 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir. Foreldrar ganga oft mjög hart fram gagnvart kennurum ef börn þeirra fá ekki einkunnir sem duga til inngöngu í vinsælustu framhaldsskólana; leita jafnvel til lögfræðinga. Anna Lilja Þórisdótti ræddi við Valdimar Víðisson, skólastjóra í Öldutúnsskóla í Hafnarfiðri. Um áttatíu vörur eru í svokallaðri Verðgátt, sem opnuð var á netinu í dag. Þar getur fó...

Jun 07, 20239 minEp. 98

Milljarðadómur í makrílmáli og eyðilegging Kakhovka-stíflunnar

Spegillinn 6. júní 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kári Guðmundsson. Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir Ríkið var í dag dæmt til að greiða tveimur útgerðarfélögum um hálfan milljarð hvoru í bætur úthlutunar makrílheimilda á árunum 2011 til 18. Freyr Gígja Gunnarsson sagði frá. Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra vill áfrýja dómnum. Ráðamenn víða um heim hafa fordæmt eyðileggingu Kakhovka-stíflunnar í Úkraínu. Ástrós Signýjardóttir tók saman. Heyrist í Volodymyr Zel...

Jun 06, 202330 minEp. 97

Verðbólguaðgerðir stjórnvalda, viðbrögð ASÍ, Háskólabíó fyrir bí

Spegillinn 5. júní 2023 Umsjónarmaður: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir Ríkisstjórnin kynnti í dag aðgerðir sem ætlað er að slá á verðbólguna. Farið er yfir helstu aðgerðirnar. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að samstaða hafi verið í ríkisstjórn um að skerða launahækkun æðstu ráðamanna um næstu mánaðamót. Hún telur aðgerðir ríkisstjórnar skýr skilaboð sem eigi að hafa áhrif til að minnka verðbólgu, en það eigi eftir að koma í...

Jun 05, 202330 minEp. 96

Vopnakaup ríkislögreglustjóra, reiðufé, lestarslys á Indlandi

Spegillinn 2. Júní 2013 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Ríkislögreglustjóri keypti skotvopn og skotfæri fyrir 185 milljónir króna vegna leiðtogafundar Evrópuráðsins. Annar búnaður kostaði 150 milljónir til viðbótar. Benedikt Sigurðsson ræddi við Runólf Þórhallsson aðstoðaryfirlögregluþjón. Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, segir jákvætt að færri noti reiðufé í viðskiptum sínum þó hann vilji ekki að n...

Jun 02, 202330 minEp. 95

Kjaraviðræður, þjóðarpúls, fugladauði, verðbólga og garðyrkjubúskapur

Spegillinn 01.06.2023 Umsjónarmaður: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórnandi fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir Samningafundur í deilu BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga - viðræður ganga vel Margar tilkynningar hafa borist Matvælastofnun um dauða fugla víðs vegar um landið að undanförnu. Niðurstöður greiningar sýna að það var ekki fuglaflensa sem dró þá til dauða, nema í einu tilfelli. Samfylkingin mælist stærst flokka í nýjum þjóðarpúlsi Gallup en fylgi hennar hefur ...

Jun 01, 202310 minEp. 94
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android