Verðmætum bjargað úr Einhamri, djúp og löng sprunga undir gervigrasi - podcast episode cover

Verðmætum bjargað úr Einhamri, djúp og löng sprunga undir gervigrasi

Feb 06, 202420 minEp. 243
--:--
--:--
Download Metacast podcast app
Listen to this episode in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episode description

Forsvarsmenn fyrirtækja fengu að fara inn í Grindavík í dag að bjarga verðmætum. Meðal þeirra var Stefán Kristjánsson eigandi fiskvinnslunnar Einhamars, sem er reyndar staðráðinn í að halda áfram sínum rekstri í bænum um leið og færi gefst. Arnar Björnsson fréttamaður hitti hann í aðgerðinum í dag, þegar var verið að bjarga 150 tonnum af beitu. Tækin ætlar hann ekki að fara með úr bænum. Bragi Valgeirsson myndatökumaður segir frá því þegar hann fór inn í Grindavík í dag og myndaði meðal annars þegar gervigrasi var flett af gólfinu í íþróttahúsinu. Þar blasti við löng og að því er talið 10 metra djúp sprunga sem sást ekki á meðan gervigrasið lá þar yfir. Ljóst er að áhugi á áfangastaðnum Íslandi er enn mikill og fyrirspurnir erlendra fjölmiðla orðnar meira í takt við það sem var áður en umbrotin við Grindavík hófust, segir Lína Petra Þórarinsdóttir fagstjóri ferðaþjónustu á Íslandsstofu. Leiðtogi sértrúarsafnaðar í Kenía og hátt í þrjátíu samverkamenn hans voru í dag ákærðir fyrir að hafa orðið tæplega tvö hundruð börnum að bana. Á fimmta hundrað lík hafa fundist nálægt höfuðstöðvum safnaðarins.
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android