Suðurhluti Evrópu er að skrælna í hitabylgju og hitamet hafa fallið á Spáni og í Portúgal. Um fimmtíu þúsund manns hafa flúið að heiman undan eldum í Izmir héraði í Tyrklandi. Í El Granado, nærri landamærum Spánar og Portúgals, fór hitinn í 46 stig á laugardaginn og hefur aldrei mælst hærri í júní og enn heitara varð í Mora í Portúgal. Hálendisvakt Landsbjargar hófst í gær þegar Björgunarfélag Árborgar hélt á fyrstu vakt sumarsins inn í Landmannalaugar. Margar hálendisleiðir eru enn lokaðar en v...
Jun 30, 2025•10 min•Ep. 578
Steingrímur J. Sigfússon sat um áratugaskeið á þingi fyrir Alþýðubandalagið og svo VG. ; ósjaldan ræðukóngur og var forseti Alþingis á árunum 2016 til 21. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem brestur á með löngum umræður undir þinglok og hnikar þeim til. Steingrímur telur að vandann megi rekja til breytinga sem gerðar voru 2007. Vatnsskorturinn á Gaza er kominn á lífshættulegt stig, þar sem einungis 40 prósent drykkjarvatnspósta virka og stór hluti vatnsveitunnar að hruni kominn vegna skorts á eldsne...
Jun 27, 2025•20 min•Ep. 577
Aðildarríki Atlantshafsbandalagsins, NATO, skuldbinda sig til að verja fimm prósentum af vergri landsframleiðslu til varnar- og öryggismála á ári hverju frá og með 2035 eða fyrr. Yfirlýsing þessa efnis var samþykkt á leiðtogafundi bandalagsins í den Haag í Hollandi 25. júní. Leiðtogar NATO-landanna fagna þessu, aðrir eru gagnrýnni - en allir virðast sammála um að fundurinn og niðurstaða hans marki tímamót. Ævar Örn Jósepsson segir frá. Miklu fleiri konur er karlar hafa lokið háskólamenntun hér o...
Jun 25, 2025•20 min•Ep. 575
Leiðtogafundur Nato í Haag hefst með formlegum hætti á morgun en í kvöld snæða leiðtogarnir saman kvöldverð. Björn Malmquist er í Haag og hefur fylgst með því sem þar hefur gerst og ræddi líka við forsætisráðherra. Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á manndrápsmálinu á Edition - hótelinu fyrir tíu dögum er flókin og mörgum mikilvægum spurningum er enn ósvarað. Maðurinn sem var myrtur ásamt dóttur sinni glímdi við alvarlega nýrnabilun og var illa farinn sökum veikinda sinna. Umdeilt þynni...
Jun 24, 2025•20 min•Ep. 574
Utanríkisráðherra segir fara verði að alþjóðalögum og hugnast ekki að fyrirferðarmeiri ríki gangi ekki af virðingu og varlega um þau. Sjálf hefði hún kosið aðra leið en að ráðast á Íran þótt ekki megi gleyma hver rótin sé. Íran er sagt eiga 400 kíló af 60% auðguðu úrani og hve mikil hætta stafar af því þegar kjarnorkustöðvar eru skotmark loftárása. Ekki hafa komið fram merki um aukna geislun eftir árásirnar en Alþjóðakjarnorkumálastofnunin krefst þess að vopnaviðskiptum linni svo eftirlitsmenn g...
Jun 23, 2025•20 min•Ep. 573
Leiðtogar ríkja í Atlantshafsbandalaginu koma saman á fundi í Haag í Hollandi í næstu viku. Við blasa erfið verkefni; stríðið í Úkraínu hefur geisað í þrjú ár og ógnin frá Rússlandi er mikil. Innan bandalagsins hefur verið tekist á um framlög ríkja til varnarmála og Donald Trump forseti Bandaríkjanna verið óspar á gagnrýni á önnur aðildarríki sem verði að leggja meira til öryggis- og varnarmála. Sóknaráætlun landshluta er eitthvað sem við heyrum oft í fréttum en færri vita sennilega hvað er. Sam...
Jun 20, 2025•20 min•Ep. 572
Það stefnir í tvennar kosningar um sameiningu sveitarfélaga í ár. Sú fyrri er ákveðin í Skorradalshreppi og Borgarbyggð og þá er stefnt að kosningum um sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra. Offituaðgerðum hefur snarfækkað á síðustu árum með tilkomu þyngdarstjórnunarlyfja. 2021 voru 1.000 slíkar aðgerðir gerðar en í ár stefnir í að þær verið 150 til 200. Írönsk kona sem búsett er á Íslandi segir Írana þrá frið, mikilvægt sé að gerður sé greinarmunur á fólkinu í landinu og klerkastjórninni s...
Jun 19, 2025•20 min•Ep. 571
Önnur umræða um veiðigjaldsfrumvarp atvinnuvegaráðherra hófst á Alþingi klukkan þrjú í dag. Þetta er langstærsta málið sem eftir er á þessu þingi og framhald þingstarfa ræðst að miklu leyti af því hvort formenn nái samkomulagi um hvernig það verður afgreitt. Þingflokksformaður Flokks fólksins býst allt eins við að önnur umræða standi í heila viku. Evrópusambandið stefnir að því að skrúfa alveg fyrir gas og olíu sem flutt er frá Rússlandi til aðildarríkja sambandsins - og það stendur ekki til að ...
Jun 18, 2025•20 min•Ep. 570
Rannsókn lögreglu á fjölskylduharmleik á fimm stjörnu lúxushóteli við Austurbakka í Reykjavík teygir sig bæði til Frakklands og Írlands. Henni miðar vel en er á byrjunarstigi. Ekki er útilokað að frönsk yfirvöld sendi hingað lögreglumenn til að fylgjast með rannsókn málsins. Flokkshollusta virðist ekki lengur hafa áhrif á val kjósenda eins og hún gerði, um helmingur kjósenda kaus ekki sama flokk í fyrra og hann gerði í alþingiskosningum 2021. Dettifoss komst nýlega í fréttirnar þegar skriða féll...
Jun 16, 2025•20 min•Ep. 569
Í vikunni hefur gustað um flugfélagið Play, forstjórinn ásamt öðrum vill yfirtaka það, skrá það af markaði og skila inn íslensku flugrekstrarleyfi, svo fátt eitt sé nefnt. Efasemdir hafa heyrst um áform yfirtökuhópsins og starfsmennirnir eru uggandi. Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play, hefur trú á verkefninu en viðurkennir að eins og staðan sé í dag sé ljóst að hluthafar í Play, meðal annars lífeyrissjóðir og hann sjálfur, tapi peningum gangi yfirtakan eftir. Sögufrægt hótel í miðborg Stokkhólms...
Jun 13, 2025•20 min•Ep. 568
Vörumerkið Stöð 2 heyrir sögunni til, því hefur verið skipt út fyrir Sýn sem verður yfir og allt um kring í rekstri félagsins. Djörf ákvörðun - voru fyrstu viðbrögð hjá doktor í vörumerkjastjórnun. Helmingur allra lóa í heiminum og um þriðjungur spóa verpir á Íslandi og þeim hefur fækkað síðustu ár. Ísland ber ábyrgð á því að vernda þessa stofna og uppbygging þrengir að varplöndum þeirra segir fuglafræðingur. Það herðist á skrúfunnni og tóninum í umræðum hjá þingmönnum á síðustu metrunum, hvað u...
Jun 12, 2025•20 min•Ep. 567
Eldhúsdagsumræður eru á Alþingi í kvöld og marka alla jafna þinglok - en þau eru ekki í augsýn Fjöldi mála er enní nefnd eftir fyrstu umræðu. Þórarinn Ingi Pétursson, Framsóknarflokki og Lilja Rafney Magnúsdóttir Flokki fólksins eru þó bæði á því að samkomulag náist um þingstörfin það geri það alltaf. Þeim sýnist þó sitt hvoru um eitt stærsta mál þingsins, veiðigjaldið. Víðtækar refsiaðgerðir gegn Rússum, sem vestræn ríki og Evrópusambandið hafa staðið fyrir undanfarin ár, virðast ekki hafa haft...
Jun 11, 2025•20 min•Ep. 566
Í minnisblaði setts lögreglustjóra á Suðurnesjum um stöðuna á landamærunum og baráttuna gegn skipulagðri glæpastarfsemi er dregin upp býsna skýr mynd af stöðunni; það vantar menntaða lögreglumenn þar sem embættið hefur að sumu leyti lent undir í samkeppninni við önnur lögregluembætti; Við fjöllum líka um þá ákvörðun Donalds Trump forseta Bandaríkjanna sem sendi þjóðvarðalið og landgönguliða til að kveða niður mótmæli í Los Angels, ákvörðun sem á sér fá fordæmi
Jun 10, 2025•20 min•Ep. 565
Það er vandséð hvernig á að ljúka þingstörfum og nánast hægt að fullyrða að þinglok verða ekki á föstudag í næstu viku; það er ekki búið að afgreiða stærsta málið á yfirstandandi þingi úr nefnd; veiðigjaldið og í dag var sett á dagskrá bókun 35 við litla hrifningu sumra þingmanna stjórnarandstöðunnar. Þegar menn voru að setja sig í stellingar bárust svo tíðindi af nýrri ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar sem olli nokkru uppnámi. Þau Arna Lára Jónsdóttur, varaformaður þingflokks Samfylkingarinnar og ...
Jun 06, 2025•20 min•Ep. 564
Gaza er verra en helvíti á jörðu - segir forseti alþjóðaráðs Rauða krossins og það sem þar gerist er í trássi við öll viðmið alþjóðalaga, mannúðar og siðferðis. Það þarf mikið til að Rauði krossinn taki svo djúpt í árinni segir framkvæmdastjóri RKÍ og það sýnir hve brýnt er að brugðist verði við. Milljónir stríðshrjáðra íbúa sveltur á Gaza. Þingmenn stjórnarandstöðu gagnrýndu framgang formanns allsherjar- og menntamálanefndar vegna kólumbísks drengs sem vísa átti úr landi. Lögmaður fjölmargra se...
Jun 04, 2025•20 min•Ep. 562
Forstjóri Útlendingastofnunar taldi sig þurfa skýr svör frá formanni allsherjar- og menntamálanefndar um hvort Alþingi ætlaði sér að veita sautján ára kólumbískum dreng íslenskan ríkisborgararétt. Til að gæta jafnræðis yrði annars að fresta brottflutningi átján annarra umsækjenda sem hafa sótt um ríkisborgararétt en á að flytja úr landi. Formaður nefndarinnar var í samskiptum við ríkislögreglustjóra um málið sem áframsendi tölvupóst frá honum til forstjóra Útlendingastofnunar Íbúar á Norður- og ...
Jun 03, 2025•20 min•Ep. 561
Norðanóveður er í spánni. Óvissustigi hefur verið lýst yfir á Austurlandi, Austfjörðum og Suðuarusturlandi og gildir langt fram á morgundaginn. Katrín Agla Tómasdóttir, veðurfræðingur tekur undir að þetta sé ekki einsdæmi snemmsumars en mjög óvenjulegt á þessum tíma. Hret á þessum árstíma getur bitnað illa á bændum, þeir þurfa að vera fljótir að stökkva til og koma kindum og nýfæddum lömbum í skjól og huga að gróðri sem kominn er mun lengra kominn en oftast áður. Sigurgeir Hreinsson, framkvæmdas...
Jun 02, 2025•20 min•Ep. 560
Síðustu dagarnir á Alþingi eru oftar en ekki spretthlaup þar sem mörg mál eru afgreidd á skömmum tíma. Í sumar gæti þetta orðið langhlaup eða jafnvel utanvegahlaup því vísir að einhvers konar samkomulagi um þinglok virðist ekki innan seilingar.
May 30, 2025•20 min•Ep. 559
Aukinn varnarbúnaður á norðurslóðum var meðal þess sem Kristrún Frostadóttir, forsætirráðherra og Mark Rutte, framkvæmdastjóri Nato, ræddu á blaðamannafundi sínum í dag. Í Háskólanum á Akureyri var einnig fjallað um norðurslóðir í dag og þau miklu áhrif sem breytt heimsmynd hefur haft innan Norðurskautsráðsins meðal annars. Þá er spurt hvort ríkisstjórnin eigi að stöðva málþóf sem komið er fram úr hófi. Því vopni hefur ekki verið beitt í sextíu og sex ár.
May 28, 2025•20 min•Ep. 558
Síðustu daga hafa væringar á vinstri vængnum verið áberandi í fréttum. Miklar sviptingar urðu hjá Sósíalistaflokknum um helgina og jafna má til hallarbyltingar. Eva H. Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði, segir erfiðara að vera í litlum en stórum stjórnmálaflokki. Forsætisráðherra hittir á morgun framkvæmdastjóra Nato. Fundurinn er liður í undirbúningi fyrir leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins og þar verður líklega rætt um kröfu Bandaríkjaforseta um að aðildarríki auki útgjöld sín til varna...
May 27, 2025•20 min•Ep. 557
Íslenska ríkið greiddi tæpar 10 milljónir króna í skaðabætur vegna símhlustana sérstaks saksóknara í hrunmálum og fjórar milljónir í lögmannskostnað. Þetta kemur fram í tölum frá ríkislögmanni. Tuttugu og átta kröfðust bóta. Í tuttugu og fjórum tilvikum var samið um bætur. Þrjú mál fóru fyrir dóm, þar sem tveimur lauk með dómsátt og einu með dómi. Einni kröfu var hafnað. Fyrirhuguð hækkun veiðigjalds verður hlutfallslega mest hjá smæstu fiskiskipunum, eða þeim sem veiða innan við 350 tonn á ári....
May 26, 2025•20 min•Ep. 556
Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, kallaði í vikunni eftir hertari aðgerðum gegn Nikótínpúðum. Hlutfall ungmenna sem nota slíka níkótínpúða er hvergi hærra á Norðurlöndum en á Íslandi - Á stóru blaði sem hangir á veggnum á skrifstofunni hjá stækkunarstjóra Evrópusambandsins í í Brussel, eru nöfn níu ríkja sem sótt hafa um aðild að ESB og yfirlit yfir hvernig viðræðurnar ganga - Ísland er á listanum - með rauðu merki - enda er aðildarumsóknin í frosti eins og fram hefur komið....
May 23, 2025•20 min•Ep. 555
Staðan á Gaza og aðgerðir Evrópusambandsins var umræðuefni á ráðherrafundi EES ríkjanna í Brussel í dag, þar sem Kaja Kallas utanríkismálastjóri ESB var meðal þátttakenda. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tók þátt í þessum fundi; hún segir það ánægjulegt að aðildarríki ESB séu að ná samstöðu um harðari aðgerðir gagnvart Ísrael. Viljayfirlýsing um nánara samstarf á sviði utanríkis og öryggismála var einnig staðfest á þessum fundi. Björn Malmquist fréttamaður ræddi við Þorgerði Katrínu í Brussel í d...
May 21, 2025•20 min•Ep. 553
Innviðaráðherra mælti á Alþingi í dag fyrir frumvarpi um breytingar á lögum um leigubílaakstur. Stöðvarskylda verður innleidd á ný og bílstjórum gert að skrá allar ferðir sínar rafrænt. Ráðherra segir að traust almennings til leigubílstjóra hafi algjörlega hrunið og við því verði að bregðast. Nauðsynlegt sé að tryggja betur öryggi farþega. Bandaríkjaforseti heldur áfram þeirri stefnu að draga Bandaríkin út úr alþjóðastofnunum, samningum og sáttmálum. Hvað tekur við? Við ræddum um stöðuna í heims...
May 20, 2025•21 min•Ep. 552
Verð á matvælum hefur hækkað í hverjum einasta mánuði frá áramótum samkvæmt verðlagseftirlit ASÍ. Nautakjöt hefur hækkað mest og í einstaka tilfellum um allt að 20 prósent á ársgrundvelli. Það eru að verða níu ár síðan meirihluti breskra kjósenda samþykkti útgöngu úr Evrópusambandinu - og rúm fimm ár síðan útgangan tók formlega gildi - en á leiðtogafundi sem haldinn var í Lundúnum í morgun var hins vegar samþykkt að taka ákveðin skref til baka - til hagsbóta fyrir breskan almenning segir Keir St...
May 19, 2025•20 min•Ep. 551
Hækkun veiðigjalds getur haft afdrifarík áhrif á einstaka byggðakjarna og breytingin gæti náð langt út fyrir útgerðina, snert samfélög í heild og umhverfi þeirra. Þetta kemur fram í drögum að umsögn samtaka sjávarútvegssveitarfélaga sem þau kynntu fyrir þingmönnum á fundi í morgun. 141 fyrirtæki verður fyrir verulegum áhrifum af hækkun veiðigjaldsins, tuttugu og sex þeirra eru á Vestfjörðum. Húsnæðis og mannvirkjastofnun kynnti á mánudag tillögur að breytingum á eftirliti með byggingaframkvæmdum...
May 16, 2025•20 min•Ep. 550
Brim, Samherji, Síldarvinnslan, Ísfélagið og Fisk-Seafood greiddu meira en þriðjung af heildarupphæð veiðigjalds á síðasta ári, eða 3,7 milljarða. Eignir þessara félaga hlaupa á hundruðum milljarða króna. Ekkert varð af fundi forseta Úkraínu, Rússlands og Bandaríkjanna í Tyrklandi til að ræða um hvernig mætti binda enda á stríðið í Úkraínu en sendinefndir Rússa og Úkraínumanna ræðast við í Istanbúl í kvöld eða á morgun - og það verður í fyrsta sinn þrjú ár sem þær eiga í beinum viðræðum. Ekki rí...
May 15, 2025•20 min•Ep. 549
Ekki er mikill ágreiningur um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka á þingi en menn eru ekki alveg á einu máli um tímasetningu og hvað sé ásættanlegt verð. Verð á laxveiðileyfum vekur á stundum furðu og hneykslan en eftirspurnin er mikil og auðlindin takmörkuð segja þeir sem selja. Fyrir fjórum árum færðust hrygningarstöðvar norsk-íslenska síldarstofnsins skyndilega 800 kílómetra norður með ströndum Noregs. Rannsókn norrænna vísindamanna sýnir að ofveiði á elstu síldinni úr stofninum er ástæðan. Þ...
May 14, 2025•20 min•Ep. 548
Indverskir tölvuhakkarar herjuðu á lögmannsstofu sem sá meðal annars um hópmálsókn gegn Björgólfi Thor. Stór kúnni þessarar lögmannsstofu var það líka og það hvaða einstaklinga helst var herjað á í þeim innbrotstilraunum, varð blaðamönnum Reuters tilefni til að vangaveltna um hvort einhver Íslendingur, þriðji íslenski aðilinn, tengdist málinu; hvort hann hefði ráðið málaliðana indversku til starfa. Orkunotkun í dreifbýli á Íslandi er alltaf dýrust sama hvort kveikja þurfi ljós, hita hús eða dríf...
May 13, 2025•20 min•Ep. 547
Fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag liggur mál um skyldur Ísraels samkvæmt alþjóðalögum til að tryggja íbúum á hernumdum svæðum í Palestínu nauðþurftir, skyldur sem Ísland líkt og meginþorri ríkja sem sendu inn skriflega greinargerð til dómstólsins telja að Ísrael sé brotlegt við. Karl Emil Wernersson, einn umfangsmesti fjárfestir á árunum fyrir hrun, sonur hans og sambýliskona hafa verið ákærð af embætti héraðssaksóknara; Karl fyrir skilasvik en sonurinn og sambýliskonan fyrir peningaþvætti. Málið t...
May 12, 2025•20 min•Ep. 546