Spegillinn - podcast cover

Spegillinn

RÚVwww.ruv.is
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Fyrstu umræðu um veiðigjaldið lýkur á laugardegi

Þingfundur stóð fram til klukkan eitt í nótt þegar fyrstu umræðu um veiðigjaldsfrumvarp atvinnuvegaráðherra var haldið áfram. Það var gert hlé á þessari umræðu á miðvikudag til að samþykkja sölu á hlutabréfum í Íslandsbanka en hafist var handa við að kryfja þetta eldfima málefni klukkan hálf eitt á hádegi í gær - og umræðan stóð fram yfir miðnætti. Reynt var að finna lausn á því hvenær ætti að ljúka fyrstu umræðu, bæði í forsætisnefnd og með formönnum þingflokka, að endingu var ákveðið að klára ...

May 09, 202520 minEp. 545

Stórhuga ferðaþjónusta og laskaður kanslari

Norðurland getur orðið eitt af mest vaxandi ferðaþjónustusvæðum í Norður-Evrópu ef rétt er á málum haldið. Þetta fullyrðir talsmaður ferðaþjónustunnar fyrir norðan og segir þau uppskera núna eftir margra ára undirbúning. Aukin fjárfesting og beint millilandaflug hafi skapað fjölda nýrra tækifæra. Friedrich Merz, nýr kanslari Þýskalands hitti forseta Frakklands í dag í París, á sínum fyrsta fundi sem þjóðarleiðtogi. Á vettvangi evrópskra stjórnmála hefur verið litið til Merz sem nýs og öflugs lei...

May 07, 202520 minEp. 543

Bæjarstjóri spáir í veiðigjöld, Norðmenn fylgjast með dómsmáli afreksfjölskyldu, hagsmunaskráning og dagbækur ráðherra

Fyrsta umræða um frumvarp um veiðigjöld hófst í gær og stendur enn. Bæjarstjórinn í Snæfellsbæ fagnar því að ráðherra hafi hlustað á varnaðarorð sveitarfélaga sem reiða sig á lítil og meðalstór sjávarútvegsfyrirtæki. Glæpir geta leitt til réttarhalda og dóma. En hvað ef meintur glæpur snýst um metnað og hörku við að gera syni sína að heimsfrægum afreksmönnum. Um þetta fjalla frægustu réttarhöld í Noregi á síðari tímum. Bræðurnir Ingebrigtsen bera Gjert, föður sinn og þjálfara, þungum sökum. Fors...

May 06, 202520 minEp. 542

Utanríkisráðherra um Gaza og veiðigjaldið

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir mikilvægt að Ísland noti rödd sína á alþjóðavettvangi og knýi fram aðgerðir vegna ástandsins þar. Hún segir ljóst að aðrir hagmsunir vegi meira hjá mörgum stórþjóðum, sem láti þar af leiðandi lítið til sín taka. Ísrael sé að fremja stríðsglæpi á Gaza. Atvinnuvegaráðherra mælti í dag fyrir frumvarpi sínu um breytingar á veiðigjaldi á Alþingi í dag - þetta er það frumvarp sem hörðustu deilurnar verða líklega um á þessu vorþingi og það er ekki ...

May 05, 202520 minEp. 541

Besta eða versta borgin?

Ársreikningur Reykjavíkurborgar var kynntur í dag, þar kom fram að borgin var rekin með rúmlega tíu milljarða króna afgangi, þremur milljörðum krónum betri niðurstaða en áætlanir gerðu ráð fyrir - þetta er nokkuð sérstakur ársreikningur, hann er frá tíð meirihlutans sem sprakk með eftirminnilegum hætti í byrjun árs. Nú er komin nýr borgarstjóri og nýr meirihluti og honum fylgja væntanlegar nýjar áherslur; En er ársreikningurinn staðfesting þess að rekstur borgarinnar sé á réttri leið, óttast min...

May 02, 202520 minEp. 540

Njósnir í viðskiptalífinu og traust til lögreglu

Fyrirtæki sem taka að sér að afla upplýsinga um keppinauta eða andstæðinga í viðskiptalífinu þekkjast víða og hafa sum teygt anga sína hingað. Njósnir á vegum viðskiptamanna voru umfjöllunarefni Kveiks, hvaða áhrif hefur þáttur lögreglu í þessu á traust til hennar, hvernig er fylgst með störfum lögreglu og hvaða skorður eru við aukavinnu lögreglu. Rætt við þingmennina Vilhjálm Árnason (D) og Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur (S) og Fjölni Sæmundsson formann landssambands lögreglumanna.

Apr 30, 202520 minEp. 539

Veiðigjaldið og fyrstu hundrað dagar Donalds Trumps

Donald Trump forseti Bandaríkjanna hefur skrifað undir rúmlega 140 forsetatilskipanir á fyrstu 100 dögum sínum í embætti. Enn er þó ekki víst að allar tilskipanir TRumps gangi eftir og tekist er á um fjölda þeirra fyrir dómstólum. En við byrjum fyrst á umdeildasta málinu á þessu vorþingi - veiðigjaldinu. Það var afgreitt úr ríkisstjórn í morgun og á því hafa orðið nokkrar breytingar. Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, er gestur Spegilsins.

Apr 29, 202520 minEp. 538

Umdeildar þjálfunaraðferðir, kosið í Kanada og íslenska birkið

Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs fer hörðum orðum um aðferðir sem körfuboltaþjálfarinn Brynjar Karl Sigurðsson hefur beitt í sinni þjálfun. Brynjar segir álitið vera eina af ástæðum þess að hann er í forsetaframboði hjá ÍSÍ, og kallar það nornaveiðar. Milljónir Kanadamanna kjósa í kosningum sem eru sagðar þær mikilvægustu í sögu landsins - en snúast ekki aðeins um ástandið í Kanada heldur um yfirlýsingar grannans í suðri. Íslenska birkið vex hægt og er ræktun þess ekki endilega besta...

Apr 28, 202520 minEp. 537

Meira um leigubíla, vanskil eldri borgara og vistrækt

Samgönguráðherra vill breyta lögum um leigubílaakstur en gerir það líklega í tveimur skrefum. Starfshópur um endurskoðun laganna átti að skila tillögum í byrjun þessa mánaðar en gerir það ekki heldur verður að störfum fram á haust. Einmanaleiki, tilgangsleysi og skömm ýta eldra fólki í að taka dýr skyndilán sem það á í erfiðleikum með að greiða til baka. Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar, segir fleiri í þessum hópi leita eftir aðstoð en áður. Vistrækt eða vistmennin...

Apr 25, 202520 minEp. 536

Telur ástandið á leigubílamarkaði óviðunandi og hvernig verða 48 daga strandveiðar?

Tæp 28 þúsund tonn af þorski þyrfti til að stunda 48 daga standveiðar í sumar miðað við sama fjölda báta og gerðir voru út í fyrra. Þetta kemur fram í minnisblaði til stjórnarflokkanna við stjórnarmyndun fyrr í vetur. Talið er ólíklegt að hægt væri að sækja þessar veiðiheimildir án þess að skerða kvóta annarra útgerða. Talsmaður smábátaeigenda segir þetta fráleitar tölur. Reynslan sýni allt önnur og minni afköst strandveiðiflotans. Kristín Sigurðardóttir fór nýverið og kynnti sér þær miklu breyt...

Apr 23, 202520 minEp. 535

Dramatík á leigubílamarkaði og hver verður næsti páfi

Átök eru í heimi leigubílstjóra þar sem ásakanir um sviksamlega há gjöld fyrir akstur annars vegar og kynþáttafordóma hins vegar, ganga á víxl. Kristín Sigurðardóttir brá sér í bæinn aðfaranótt laugardags fyrir páska. Þegar útför Frans páfa lýkur á laugardag hefur Giovanni Battista Re, djákni kardínálaráðsins, allt að tuttugu daga til að kalla til Rómar þá 135 kardínála sem kosið geta næsta páfa. Þá ræðst hvort páfatíð Frans verður frjálslynt frávik og hin íhaldssömu öfl nái aftur völdum eða hvo...

Apr 22, 202520 minEp. 534

Dómsmálaráðherra um skipulagða brotastarfsemi og garðyrkjubóndi og himinhátt rafmagnsverð

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir stjórnvöld getað gripið til margra aðgerða í baráttu sinni gegn skipulagðri brotastarfsemi; fjölga lögreglumönnum, efla fræðslu og auka heimildir lögreglu. Hún viðurkennir að staðan í fangelsismálum sé mjög slæm og það séu eins röng skilaboð og hugsast getur þegar maður hlýtur dóm en þarf aldrei að sitja hann af sér. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við hana. Ef ekki verður gripið inn í sífelldar hækkanir á rafmagni er viðbúið að margir garðyr...

Apr 16, 202520 minEp. 533

Trumpstjórnin setur háskólum stólinn fyrir dyrnar og borgarstyrjöld í Súdan

Stjórnvöld í Bandaríkjunum krefjast þess að háskólar vestra geri breytingar sem háskólamenn segja ganga út yfir rannsókna- og tjáningarfrelsi. Valdabarátta tveggja herforingja í Súdan hefur hrakið milljónir sveltandi landsmanna á flótta í eigin landi og lítið hefur verið gert til að binda enda á blóðuga borgarastyrjöld sem hefur staðið þar í tvö ár. Á Akureyri undirbúa menn gerð samfélagssáttamála um samfélagsmiðlanotkun barna

Apr 15, 202520 minEp. 532

Breytingar á endurgreiðslum og hringferð bænda og ráðherra

Fyrirhugað er að gera breytingar á því hvernig endurgreiðslum fyrir kvikmynda-og sjónvarpsverkefni verður háttað. Markmiðið á að vera að draga úr ófyrirséðum útgjaldavexti. Ef líkum lætur verður nýtt met slegið á þessu ári í endurgreiðslum; áætlað er að þær nemi sex milljörðum Afkoma bændastéttarinnar, nýliðun, tollvernd og stuðningur við íslenskan landbúnað, var það sem helst brann á bændum í hringferð Bændasamtakanna og atvinnuvegaráðherra í síðustu viku. Formaður Bændasamtakanna segir bændur ...

Apr 14, 202520 minEp. 531

Óttast nýja kvótastétt og gamlar byggingar

Forstjóri Landsvirkjunar óttast að til verði ný kvótastétt ef áherslum verður breytt varðandi greiðslur fyrir vatnsréttindi vegna virkjanaframkvæmda og landsréttindi vegna fyrirhugaðra raforkuvera. Sérstaða íslenskrar byggingarsögu er að stærstur hluti bygginga er frá tuttugustu öld segir Pétur H. Ármannsson, arkitekt og sviðsstjóri húsverndarsviðs á Minjastofnun Íslands. Til stendur að aflétta umsagnarskyldu vegna viðhalds og breytinga á húsum sem byggð voru á árunum 1924 til 40 til að létta ál...

Apr 11, 202520 minEp. 530

Veiðigjald og Trump bakkar

Sérfræðingar í atvinnuvegaráðuneytinu töldu strax í desember að sú breyting að miða verð á uppsjávarfiski við verð á uppboðsmörkuðum í Noregi væri einföld í útfærslu, lagatæknilega séð. Ef vel væri haldið á spilunum væri hægt að koma fram með frumvarp strax á vorþingi. Þeir lögðu líka áherslu á mikilvægi samráðs og að hafa þyrfti í huga að fyrirkomulag veiða og vinnslu í Noregi væri ólíkt því sem tíðkaðist hér á landi. Gerræðisleg vinnubrögð Donalds Trumps og yfirlýsingar um tollheimtu eru ekki ...

Apr 10, 202520 minEp. 529

Forsætisráðherra ræðir um tollaskjól og skipulögð brotastarfsemi

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ræddi í dag við forystu Evrópusambandsins um tollamál og hvernig Ísland gæti komist hjá því að lenda á milli í tollastríði Evrópu og Bandaríkjanna. Hún segir að sín skilaboð hafi komist skýrt og milliliðalaust til skila. Kristrún hefur áhyggjur af áhrifum þess á íslenskan útflutning ef ESB bregst hart við því ef vörur sem ekki eigi greiða leið inn á Bandaríkjamarkað flæði inn á þann Evrópska. Skipulögð glæpastarfsemi hefur náð að festa hér rætur og birtist ...

Apr 09, 202520 minEp. 528

Fjármálaráðherra um tollastríðið og Kennedy ráðleggur bólusetningar

Tollastríðið sem skollið er á hefur ekki farið framhjá neinum sem fylgst hefur með fjölmiðlum síðustu daga, Bandaríkjaforseti hleypti öllu í bál og brand með verndartollum sem hann lagt á byggð og óbyggð ból; Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, sagði í Morgunútvarpinu í morgun að tollastefna Bandaríkjastjórnar myndi áfram koma illa við hagkerfi heimsins og það væri ákveðin hætta á heimskreppu. Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, ræðir stöðuna Mislingar hafa breiðst út á heimsvísu undanfarin ...

Apr 08, 202520 minEp. 527

Tollastríðið magnast, Landsvirkjun og ríkið takast á og stjórnarmenn af landsbyggðinni vantar

Bandaríkjaforseti linnir ekki yfirlýsingum um frekari tollheimtu. Hann ætlar að leggja 50% viðbótartolla á kínverskar vörur ef Kínverjar leggja refsitolla á bandarískar vörur. Verð á hlutabréfamörkuðum féllu um allan heim, líka þeim bandaríska eftir nokkrar sveiflur á deginum. Landsvirkjun og ríkið hafa ekki náð saman um hvernig eigi að greiða fyrir vatnsréttindi Hvammsvirkjunar og landsréttindi vegna vindorkuversins í Vaðöldu. Báðum þessum deilum hefur verið vísað til gerðardóms. Miklir hagsmun...

Apr 07, 202520 minEp. 526

Nýtt húsnæði geðdeildar ekki á fjármálaáætlun og Carbfix daðrar við Húsavík

við heyrum í Húsvíkingum eftir íbúafund með Carbfix, verkefni sem Hafnfirðingar vildu ekki sjá í bakgarðinum hjá sér, heyrum af atburðum í Úkraínu og á Gaza síðasta sólarhringinn en byrjum á geðheilbrigðismálum - Ekki er fyllilega ljóst hvar ný bygging undir geðþjónustu Landspítala verður og hennar er hvergi getið í þeirri fjármálaáætlun sem kynnt var í vikunni.. Kostnaður við að reisa bygginguna og kaupa þann búnað sem þarf er áætlaður um 24 milljarðar og framkvæmdatíminn um fimm ár og á meðan ...

Apr 04, 202520 minEp. 525

Tollheimta Trumps og óviss áhrif á íslenskan iðnað og magnleysi alþjóðastofnana gagnvart stríðsglæpum

Tilkynningar Donalds Trumps um tolla á innfluttar vörur til Bandaríkjanna var beðið nokkuð lengi. Bandaríkin eru mikilvægur markaður fyrir íslenskar vörur þó að mestur vöruútflutningur héðan sé til Evrópu. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir enn erfitt að átta sig á hver áhrif tollheimtunnar verða, þó sé jákvætt að dregið hafi úr óvissu og að íslenskar vörur lendi í lægsta tollþrepi 10%. Frá því að Ísraelar rufu vopnahléð við Hamas 18. mars hafa þeir drepið á annað þúsu...

Apr 03, 202520 minEp. 524

Öryggismál og hafið umhverfis Ísland, áhrif veiðigjalds í sjávarbyggðum, tollastefna Bandaríkjaforseta

Íslendingar hafa sýnt af sér ákveðna værukærð hvað varðar eftirlit með hafinu og auðlindum þess. Þótt ekki sé hægt að segja að við höfum trassað ábyrgð okkar í varnarmálum þurfa menn að stíga upp og tryggja við séum verðugir bandamenn í alþjóðlegu samstarfi, segir Auðunn Kristinsson, aðgerðastjóri Landhelgisgæslunnar, í samtali við Önnu Kristínu Jónsdóttur. Fyrirhugaðar breytingar á veiðigjaldi gætu haft mikil áhrif í sjávarbyggðum víða um land. Vífill Karlsson, prófessor í hagfræði, telur að ef...

Apr 02, 202520 minEp. 523

Hvað er að gerast í iðrum jarðar

113 dagar voru liðnir frá síðasta gosi á Sundhnúksgígaröðinni þegar byrjaði að gjósa á tíunda tímanum í morgun. Það virðist hafa verið stutt og laggott af , einhverjir vilja meina að þetta sé stysta gosið og þá vakna spurningar; var þetta stóra gosið sem allir voru að bíða eftir eða forleikur að einhverju meira? Og hvað með Grindvíkinga; það sjáust áþreifanleg merki þess í morgun að þeir íbúar sem hafast við bænum eru langþreyttir á stöðu mála, margir hverjir ósáttir við framgöngu stjórnvalda og...

Apr 01, 202520 minEp. 522

100 daga ríkisstjórn og eftirlitslaus ungmenni á netinu

Gengið hefur á ýmsu fyrstu 100 daga ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins en engan bilbug var að finna á formönnunum þegar blásið var til fundar. Fjármálaráðherra kynnti í morgun 5 ára fjármálaáætlun og þar boðuð aukin útgjöld til öryggis- og varnarmála og framkvæmda í vegamálum tekjur á meðal annars að sækja með veiðigjaldi, kílómetragjaldi og gjaldtöku af ferðamönnum. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir stjórninga þegar hafa gert margt og þannig verði haldið áfram....

Mar 31, 202520 minEp. 521

Rándýrar viðgerðir á sumarbústað forsætisráðherra og borgarstefna

Framkvæmdir og viðgerðir á forsætisráðherrabústaðnum á Þingvöllum kostuðu 609 milljónir. Þegar framkvæmdir hófust haustið 2021 áttu þær aðeins að standa í nokkra mánuði - en þeim lauk ekki fyrr en síðasta sumar. Tillögur um Borgarstefnu Íslands hafa færst verulega frá þeirri upphaflegu framtíðarsýn að Akureyri verði svæðisborg. Þetta er álit lektors við Háskólann á Akureyri. Engin þörf sé fyrir höfuðborgarstuðning til Reykjavíkur sem útlistaður sé í nýrri þingsályktunartillögu. Nær væri að búa t...

Mar 28, 202520 minEp. 520

Samkeppnislagabrot sem fyrnast, gagnrýni á strandveiðar og umdeildir gestir á ísraelskri ráðstefnu um gyðingahatur

Rannsókn héraðssaksóknara á samkeppnislagabrotum fjögurra starfsmanna Samskipa og Eimskips var hætt í desember þar sem of langt hlé hafði verið gert á rannsókninni og hún taldist því fyrnd. Fjórir voru með réttarstöðu sakbornings í nærri sjö ár. Héraðssaksóknari og Samkeppniseftirlitið ætla að ræða stöðuna við dómsmálaráðherra. Formaður Neytendasamtakana segir samkeppnislagabrot hafa lítinn fælingarmátt ef engin sætir ábyrgð. Freyr Gígja Gunnarsson rýndi í málið og ræddi við Ólaf Þór Hauksson og...

Mar 27, 202520 minEp. 519

Sjómenn og veiðigjöld, mótmæli í Tyrklandi, aðstæður úkraínskra barna

Fiskverð skiptir sjómenn öllu, segir Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambandsins. Ef verð á uppsjávarfiski hefur verið vanmetið árum saman eiga sjómenn inni hjá útgerðinni og hljóta að sækja það aftur í tímann - þó ekki sé enn ljóst hvernig. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Valmund. Mótmæli brutust út í Istanbúl og fleiri borgum Tyrklands í liðinni viku, þegar út spurðist að borgarstjórinn Ekrem Imamoglu hefði verið handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald, sakaður um spillingu og hryð...

Mar 26, 202521 minEp. 518

Hörð viðbrögð SFS um veiðigjaldsfrumvarp atvinnuvegaráðherra

SFS er harðort í garð stjórnvalda eftir að frumvarp um hækkun veiðigjalds var kynnt á blaðamannafundi í dag. Skortur á samráði, segir framkvæmdastjóri SFS. Í þættinum verður líka fjallað um sívaxandi óánægju og reiði Serba í garð stjórnvalda og æ fjölmennari mótmæli í helstu borgum Serbíu undanfarna mánuði.

Mar 25, 202520 minEp. 517

Afsögn barnamálaráðherra rædd á þingi, heimsókn bandarískra ráðamanna til Grænlands og umsáturseinelti

Forsætisráðherra heyrði af orðrómi skömmu fyrir fund leiðtoga ríkisstjórnarinnar á fimmtudag að fyrrverandi menntamálaráðherra hefði bæði hringt og heimsótt konu í Kópavogi sem sagði ráðherra hafa eignast barn með unglingspilti fyrir rúmum þremur áratugum. Mennta- og barnamálaráðherra gekkst við þessari hegðun á krísufundi með formönnunum skömmu síðar. Þetta staðfestir forsætisráðuneytið. Ágangi bandarískra stjórnvalda gagnvart Grænlandi linnir ekki, þrátt fyrir samstöðu Grænlendinga, þrátt fyri...

Mar 24, 202520 minEp. 516
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android