Spegillinn - podcast cover

Spegillinn

RÚVwww.ruv.is
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Stjórnarandstaðan beinir spjóti sínu að ríkisstjórninni

Þingflokksformenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks segja máli Ásthildar Lóu Þórsdóttur, barna-og menntamálaráðherra, ekki lokið og forsætisráðherra eigi eftir að skýra mál sitt betur. Fjölmörgum spurningum sé áfram ósvarað. Síðar í þættinum heyrum við af því, hvernig spænskum hægrimönnum tókst að tryggja skotleyfi á spænska úlfa í nafni baráttunnar gegn matarsóun

Mar 21, 202520 minEp. 515

Barnamálaráðherra í vanda, landgrunn Íslands

Ásthildur Lóa Þórsdóttir barnamálaráðherra eignaðist barn 23 ára, með sextán ára pilti, sem heldur því fram að sambandið hafi hafist þegar hann var fimmtán ára. Hann segir hana hafa leitt trúarlegt unglingastarf, sem hann tók þátt í. Fyrir viku fékk forsætisráðuneytið erindi á sitt borð, þar sem forsætisráðherra er upplýstur um málavexti. Sendandi þess segist hafa fengið á sama tíma upplýsingar um að öll erindi væru trúnaðarmál. Ásthildur Lóa fékk hins vegar upplýsingar um inntak þess og hver þa...

Mar 20, 202520 minEp. 514

Málefni barna í vanda, Ísraelar rjúfa vopnahlé og grásleppukvóti

Spegillinn fjallaði í gær ítarlega um meðferðarheimili fyrir börn sem til stóð að reisa í Garðabæ. Þar kom meðal annars fram að Barna- og fjölskyldustofa hefði gefist upp á biðinni og viljað að húsið yrði reist í Mosfellsbæ. Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, sem hefur mikla reynslu af þessum málum, segir umfjöllunina í gær hafa eiginlega staðfest tilfinningu sem hún hafi haft lengi. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við hana. „Stríðið 'um frið fyrir Netanyahu' er byrjað,“ sagði Tamir Pa...

Mar 19, 202520 minEp. 513

Ísraelar rjúfa vopnahlé á Gaza, utanríkisráðherra fordæmir árásirnar og meðferðarheimilið sem aldrei reis í Garðabæ

Utanríkisráðherra fordæmir loftárásir Ísraelshers á Gaza í nótt sem bundu enda á tveggja mánaða vopnahlé. Hún tekur undir með Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna, að stríðsrekstur Ísraela á Gaza beri öll einkenni þjóðarmorðs. Nærri þrjú hundruð blaðsíður af gögnum varpa ljósi á hvers vegna nýtt meðferðarheimili fyrir börn hefur enn ekki risið í Garðabæ. Bygging heimilisins virðist hafa verið svæfð þegar Barnaverndarstofa var lögð niður.

Mar 18, 202520 minEp. 512

Rannsókn á andláti og sögusagnir, Afríkuríki býður Bandaríkjunum aðgang að auðlindum fyrir aðstoð

Lögreglan á Suðurlandi rannsakar andlát manns sem var saknað í Þorlákshöfn fyrir viku og fannst þungt haldinn í Reykjavík morguninn eftir. Grunur eru um manndráp, fjárkúgun og frelsissviptingu. Sex eru í gæsluvarðhaldi. Prófessor í afbrotafræði segir málið um margt óvenjulegt ekki síst sá miklu fjöldi sem tengist því. Krafa Bandaríkjaforseta um aðgengi að auðlindum Úkraínu í skiptum fyrir hernaðaraðstoð hefur verið gagnrýnd víða um heim, en Bandaríkjunum hefur verið boðið að fjárfesta í ríkulegu...

Mar 17, 202520 minEp. 511

Nær ómögulegt fyrir ráðherra að skilja persónu sína frá embættinu, ofbeldi í skólum og rángeitungar

Það er mjög erfitt, allt að því ómögulegt fyrir ráðherra að aðskilja sig og sína persónu frá embættinu segir Kári Hólmar Ragnarsson dósent við lagadeild HÍ. Rætt við hann um orð mennta-og barnamálaráðherra sem sagðist ekki gera ráð fyrir réttlæti hjá dómstólum. Þó að ráðherra hafi beðist afsökunar á þessu er ekki víst að það dugi til. Ofbeldi meðal barna er ekki nýtilkomið en tilfelli koma upp hjá sífellt yngri börnum, segir Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambands Íslands. Einn asískur ránge...

Mar 14, 202520 minEp. 510

Morðmál, ÍL-sjóður og tollastríð

Fjórir eru í haldi lögreglunnar á Suðurlandi, þar af þrjú í gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn á manndrápi, fjárkúgun og frelsissviptingu. Sá fjórði var handtkeinn í dag; þau sem eru í gæsluvarðhaldi eru landsþekktur ofbeldismaður, kona á fertugsaldri og piltur um tvítugt. Málið hefur vakið óhug en maðurinn, sem er á sjötugsaldri, var skilinn eftir á göngustíg í Gufunesi. Hann var fluttur á sjúkrahús en lést skömmu síðar. Tollastríð Bandaríkjastjórnar við Evrópusambandið er skollið á fyrir a...

Mar 13, 202520 minEp. 509

Hungri beitt sem vopni og kosningaúrslit á Grænlandi

Engir trukkar fá að fara með lífsnauðsynlega mannúðaraðstoð til stríðshrjáðra og hungraðra Gazabúa, engan mat, engin sjúkragögn eða lyf, ekkert eldsneyti, ekkert drykkjarvatn, engin hjálpargögn af neinu tagi. Forstjóri UNRWA sagði í vikunni að verið væri að vopnvæða mannúðaraðstoð. Miklar sviptingar urðu í grænlenskum stjórnmálum í gær. Stjórnin féll og frjálsyndur hægri flokkur varð stærstur í fyrsta sinn. Fjölmiðlar heimsin hafa sýnt kosningunum meiri áhuga en nokkru sinni en þó að sjálfstæði ...

Mar 12, 202520 minEp. 508

Erum við of háð Bandaríkjunum? Bjarga aukar strandveiðar blæðandi byggðum?

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra segir ekkert í varnarsamningi leyfa Bandaríkjunum að koma hingað með tuttugu þúsund manna her án þess að spyrja kóng né prest. Önnur Evrópulönd spyrji sig sömu spurningar og Ísland; erum við of háð Bandaríkjunum? Ný ríkisstjórn ætlar að tryggja fleiri daga á strandveiðum í sumar. Inga Sæland, formaður flokks fólksins sem er félags- og húsnæðismálaráðherra segir að með því sé komið til móts við blæðandi sjávarbyggðir landsins. Ha...

Mar 11, 202520 minEp. 507

Vegakerfi Íslands og vígbúnaður Evrópu

Þetta er langhlaup, segir Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, um ástandið í vegakerfinu. Komið sé að krossgötum en vandinn verði ekki leystur með einu pennastriki heldur þurfi fimm til tíu ára átak. Samgönguráðherra hefur bent ríkisstjórninni á að núverandi ástand feli í sér alvarlegan veikleika fyrir íslenskt samfélag. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Bergþóru. Ráðamenn í Evrópu standa frammi fyrir gjörbreyttum veruleika í ljósi stefnubreytingar Bandaríkjastjórnar í Úkraínustríði...

Mar 10, 202520 minEp. 506

Lokakaflinn hafin á Sundhnúksgígaröðinni og hernaðarandstæðingur um óróann í Evrópu

Lokakaflinn á Sundhnúksgígaröðinni er líklega hafinn, segir Benedikt Ófeigsson, jarðeðlisfræðingur og fagstjóri aflögunarmælinga hjá Veðurstofu Íslands. Sennilega er innistæða fyrir einu eldgosi í viðbót, hvenær það verður er erfiðara að spá fyrir um. Og hvað gerist svo næst og hvenær? Í jarðfræðinni eru hundrað ár eins og eitt augnblik, segir Benedikt. Það er óhætt að fullyrða að allir - eða í það minnsta nokkurn veginn allir - sem láta sig heiminn og meðbræður sína og systur einhverju varða yf...

Mar 07, 202520 minEp. 505

Kópavogur vill hagræða en önnur sveitarfélög bíða og hvað er málið með Grænland?

Í þættinum verður fjallað um kosningar á Grænlandi, sem sjaldan hafa vakið jafnmikla athygli út fyrir landsteinana og nú, vegna fjölmargra frétta sem borist hafa um allan heim, um viðvarandi ásælni Donalds Trumps, Bandaríkjaforseta, í landið og auðlindir þess. Yfirlýsingar forsetans hafa hleypt illu blóði í ráðamenn á Grænlandi, í Danmörku og víðar á Vesturlöndum, en líka nýjum og auknum krafti í sjálfstæðisbaráttu Grænlands, þar sem stjórnvöld leggja áherslu á að Grænlendingar ráði sér sjálfir ...

Mar 06, 202520 minEp. 504

Ólga í alþjóðastjórnmálum og stjórnarandstæðingar um hagræðingartillögur

Donald Trump fór mikinn í stefnuræðu sinni á Bandaríkjaþingi í gær, þar sem hann talaði lengur en nokkur annar Bandaríkjaforseti hefur gert við slíkt tækifæri, hartnær 100 mínútur. Um alþjóðamál talaði forsetinn tiltölulega lítið. Hann minntist þó á mikilvægi þess að Bandaríkin fengju full yfirráð yfir Grænlandi og Úkraínustríðið nefndi hann nánast í framhjáhlaupi. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur fyrrverandi utanríkisráðherra og starfsmann Sameinuðu þjóðanna um ólgu á...

Mar 05, 202520 minEp. 503

Milljarða sparnaður, sjúklingar í gáma og stóra te hneykslið

Tillögur um tugmilljarða sparnað í ríkisrekstri upp úr ábendingum almennings voru kynntar í dag. Sameiningra stofnana, niðurlagning sjóða, breytingar á lögum um opinbera starfsmenn og jafnlaunavottun eru á meðal tillagnanna. Í byrjun þessa árs lágu fimmtíu og fimm sjúklingar á bráðamóttökunni sem hefðu átt að vera farnir annað. Spítalinn hefur fengið grænt ljós á að reisa gámastæðu þar sem verða tuttugu rúm og þótt hún leysi ekki vandann er forstöðuhjúkrunarfræðingur bjartsýnn á að hún hjálpi ti...

Mar 04, 202520 minEp. 502

Varnir Íslands í breyttum heimi

Það má eiginlega segja að vísir að nýrri heimsmynd blasi við þennan mánudag eftir að forseti og varaforseti Bandaríkjanna húðskömmuðu forseta Úkraínu fyrir allra augum í Hvíta húsinu á föstudagskvöld, sökuðu hann um vanvirðingu og vanþakklæti og sögðu hann vera að leika sér að eldinum með því að verjast innrás Rússa. Við ætlum að ræða þetta við utanríkisráðherra eftir nokkrar mínútur; hvar stendur Ísland í þessum óróa og óvíssu, ríkir áfram traust til Bandríkjanna og hvað með varnarsamninginn?

Mar 03, 202520 minEp. 501

Bjarni kveður og stjórnarmyndun í Þýskalandi

Bjarni Benediktsson kveður stjórnmálasviðið um helgina þegar hann hættir sem formaður Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins í Laugardalshöll. Hver verður næsti formaður og hvað ætlar Bjarni að gera? Þá til Þýskalands, þar sem viðræður um myndun nýrrar ríkisstjórnar hófust í dag með fundi fulltrúa frá Kristilegum Demókrötum og Sósíaldemókrötum. Friedrich Merz, leiðtogi Kristilegra demókrata vill ljúka þessum viðræðum fyrir páska; það liggur á, segir hann, að styrk stjórn taki við völdum, ek...

Feb 28, 202520 minEp. 500

Auðlindir Úkraínu og Skessukaup Hafnarfjarðar

Það vakti furðu og reiði þegar Donald Trump Bandaríkjaforseti setti fram kröfu um að Úkraínumenn greiddu - eða endurgreiddu - Bandaríkjunum veitta og framtíðar hernaðar- og efnahagsaðstoð með aðgangi að auðlindum landsins að andvirði 500 milljarða dollara, jafnvirði um 70.000 milljarða króna, að öðrum kosti yrði allri aðstoð hætt. Þessi upphæð er miklum mun hærri en verðmæti þeirra úkraínsku auðlinda sem Bandaríkjastjórn gerði kröfu til í samningsdrögum sem þau sendu stjórnvöldum í Kænugarði, og...

Feb 27, 202520 minEp. 499

Kennarasamningar, áhrif og viðbrögð

Kennarar skrifuðu í gær undir nýjan kjarasamning við ríki og sveitarfélög, samningurinn á að gilda til ársins 2028. Þessi kjaradeila hefur verið löng og ströng, það hefur ríkt vantraust, en nú hefur samist um 24% hækkun. Það er áhyggjuefni að mati Unu Jónsdóttur, aðalhagfræðings Landsbankans að hækkunin sé meiri en í stöðugleikasamningunum í fyrra. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB fagnar samningnum en Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar er ekki sátt við að samið hafi verið um meiri h...

Feb 26, 202520 minEp. 498

Biðlaun verkalýðsforkólfa, varnir Evrópu í breyttum heimi, minnisblað um Reykjavíkurflugvöll

Spegillinn fjallar um varnir Evrópu í breyttum heimi en líka um þrætueplið eilífa - Reykjavíkurflugvöll. Isavia sendi Samgöngustofu minnisblað í byrjun september þar sem var lagt til að austur/vestur-flugbrautinni yrði lokað í október. Minnisblaðið var rætt í innviðaráðuneytinu en enginn hjá borginni vissi af tilvist þess fyrr en í byrjun janúar. Stjórn VR hefur ákveðið að setja inn skilyrði um að hætti formenn í verkalýðsfélaginu og fari í annað starf, fái þeir ekki greidd biðlaun. Núverandi fo...

Feb 25, 202520 minEp. 497

Þrjú ár frá innrás Rússa í Úkraínu, kosningar í Þýskalandi

Þrjú ár eru í dag frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu. Þótt ógerlegt sé að fá áreiðanlegar upplýsingar um mannfall í þessu stríði er ljóst að tugir og að líkindum hundruð þúsunda rússneskra og úkraínskra hermanna hafa fallið á þessum þremur árum og enn fleiri særst, auk þess sem á annan tug þúsunda almennra borgara hið minnsta hafa verið drepin í árásum Rússa á borgaraleg skotmörk í Úkraínu. Eyðileggingin er gríðarleg, átta milljónir karla kvenna og barna eru á hrakningi í eigin landi og jafn...

Feb 24, 202520 minEp. 496

Nýr meirihluti og sameining bankanna

Nýr fimm flokka meirihluti í Reykjavík leit dagsins ljós í dag. Heiða Björg Hilmisdóttir fékk borgarstjórastólinn í afmælisgjöf en líka mótmæli frá kennurum. Það er ekkert nýtt að banka sjái hagræði í því að sameinast. Það er hins vegar ólíklegt að yfirvöld líti á það sem hagræðingu fyrir neytendur. Og rýnt verður í þýsku kosningarnar sem verða sunnudag. Útlit er fyrir að úrslitin verði söguleg og stjórnarmyndun getur orðið flókin ef þrjá flokka þarf til að mynda meirihluta.

Feb 21, 202520 minEp. 495

Skattsvik, reikningaverksmiðjur og landsfundur Flokks fólksins

Skatturinn og héraðssaksóknari réðust um miðjan síðasta mánuð í umfangsmiklar aðgerðir í tengslum við rannsókn á þaulskipulögðum skattsvikum - sem kölluð hafa verið reikningaverksmiðjur. Flokkur fólksins heldur landsfund sinn á laugardaginn. Flokkur sem bauð fyrst fram fyrir níu árum tók sæti á þingi fyrst 2017. sæti í ríkisstjórn fyrir áramót og allt útlit fyrir að sé líka kominn í borgarstjórn. Það hefur gustað um formanninn og stofnandann Ingu Sæland sem segir augljóst að flokkurinn sé stjórn...

Feb 20, 202520 minEp. 494

Rammaáætlun, sparnaðarhugmyndir ráðuneyta, kosningar í Þýskalandi

Í síðustu viku var sérstök umræða á þingi um alvarlega stöðu í orkumálum, flestir tóku undir að staðan væri það sannarlega og viku líka að rammaáætlun og viðruðu um hana efasemdir. Mikilvægt væri að sameinast um næstu skref en þau yrðu ekki tekin á grundvelli rammaáætlunar sagði málshefjandinn. Orkumálaráðherra sagði að núverandi stjórn ætlaði að rjúfa kyrrstöðu sem ríkt hefði. Rammaáætlun hefur oft verið þrætuepli og átök um virkjanir hverfast gjarnan um hana - en í raun er ekki hægt að búast v...

Feb 19, 202520 minEp. 493

Lýðræði vestra í hættu, Quang Le vildi komast í brúðkaup

Í Bandaríkjunum situr nú forseti sem lætur sér ekkert óviðkomandi, hvort sem það eru örnefni, fjöldi kynja eða stjórn og dagskrá einnar helstu menningarstofnunar landsins. Spegillinn ræðir málið við Silju Báru Ómarasdóttur prófessor í stjórnmálafræði. Quang Le sem handtekinn var í umfangsmiklum aðgerðum í mars í fyrra freistaði þess síðasta sumar að fá leyfi hjá yfirvöldum til að fara í brúðkaup dóttur sinnar. Hann bauðst til að leggja fram tryggingu og sagðist ekki hafa nein tengsl við Víetnam ...

Feb 18, 202520 minEp. 492

Brestir í Atlantshafsbandalagi og hávaxin og hápólitísk tré

Áberandi brestir eru komnir í samstöðu Bandaríkjanna og Evrópuríkja sem eru þó helstu stoðir Atlantshafsbandalagsins. Á öryggisráðstefnu í Þýskalandi um helgina var endanlega staðfest að bandarísk stjórnvöld hygðust semja beint við Rússa um lok Úkraínustríðsins, án svo mikið sem sýndarsamráðs við bandamenn sína í Evrópu og NATO, og án aðkomu Úkraínu að auki. Nærri sex hundruð dagar liðu frá því að Isavia bað borgina um að bregðast við trjágróðri í Öskjuhlíð og þar til einhvers konar samkomulag n...

Feb 17, 202520 minEp. 491

Kristrún í München og Guðrún segist ekki vera í fylkingu

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir kom í Spegilinn þegar hún tilkynnti um sitt formannsframboð og í þættinum verður rætt við hinn formannsframbjóðandann, Guðrúnu Hafsteinsdóttur. Sjálfstæðisflokkurinn er á stað sem hann er ekki vanur að vera á og það hefur verið talað um átök milli fylkinga. Við spyrjum Guðrúnu út í það. Við byrjum á öryggisráðstefnunni í München þar sem margir helstu ráðamenn eru samankomnir til að fjalla um ástand heimsmála, í þeim hópi er Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra. Æ...

Feb 14, 202520 minEp. 490

Trump, Úkraína, Evrópa og Nató, mögulegar hagræðingaraðgerðir á Landspítalanum og í heilbrigðiskerfinu öllu

„Við áttum gott símtal, yfir klukkutíma langt, og ég átti líka gott símtal við Zelensky eftir það,“ sagði Donald Trump á fréttafundi í gær, aðspurður um símtal þeirra Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta. Þetta símtal og yfirlýsingar Trumps og varnarmálaráðherra hans um friðarviðræður við Rússa, útlokun á NATO-aðild Úkraínu og fleira, vöktu mikil viðbrögð meðal bandamanna Bandaríkjanna í NATO. Ævar Örn Jósepsson fer yfir helstu ágreiningsmál og Björn Malmquist ræðir við Þorgerði Katrínu Gunnarsdótt...

Feb 13, 202520 minEp. 489

Meirhlutaviðræður í Reykjavík, óvissa um vopnahlé á Gaza, sérstök umræða á Alþingi um orkumál

Fimm flokkar hafa ákveðið að hefja viðræður um nýjan meirihluta í Reykjavík. Þetta er líklega eini meirihlutinn sem kemur til greina en það er ekkert í sveitastjórnarlögunum sem kveður á um það þurfi að vera meiri- og minnihluti. Og tíminn er naumur fyrir nýjan meirihluta, því kjósa þarf til borgarstjórnar innan fimmtán mánaða. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir þessa stöðu við Evu Marín Hlynsdóttur, prófessor í stjórnmálafræði. Vopnahlé Ísraels og Hamas hangir á bláþræði og almenningur á Gaza óttast ...

Feb 12, 202520 minEp. 488

Ísland og Noregur leggja áherslu á sérstöðu og sameining sveitarfélaga

Íslenskir og norskir embættismenn, sendiherrar og ráðherrar leggjast þessa dagana á eitt og minna Evrópusambandið á sérstöðu ríkjanna tveggja og að þau séu órjúfanlegur hluti af Evrópska efnahagssvæðinu. Óttinn er að Ísland og Noregur lendi á einhvern hátt í skotlínunni, þegar og ef til þess kemur að viðskiptastríð brjótist út fyrir alvöru milli Evrópusambandsins og Bandaríkjanna. Ljóst þykir að framkvæmdastjórn ESB lítur á Ísland og Noreg sem eina heild í þessu samhengi. Fjöldi sveitarfélaga st...

Feb 11, 202520 minEp. 487

Aðdragandi slita meirihlutans í borgarstjórn og verkföll kennara dæmd ólögmæt

Það liðu 17 dagar frá því að Dagur B. Eggertsson var kvaddur og talað um þau góðu verk sem unnist hefðu í borginni þar til arftaki hans í borgarstjórastólnum var búinn að slíta meirihlutasamstarfinu, ákvörðun sem virtist hafa legið í loftinu síðustu dag en kom samt flestum öðrum í meirihlutanum á óvart. Nýr meirihluti, sem enn er ekki búið að mynda fær ekki langan tíma til að setja mark sitt á borgina, það eru 371 dagur í sveitarstjórnarkosningar. Það þarf að samræma vinnulöggjöf á almennum og o...

Feb 10, 202520 minEp. 486
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android