Óútfærðar, óábyrgar og ævintýralega óraunhæfar hugmyndir sem almennt væri auðvelt að afgreiða sem hverja aðra óra, er ekki alveg jafn einfalt þegar þær eru settar fram af valdamesta manni heims. Ævar Örn Jósepsson ræði við Bjarna Má Magnússon, prófessor og deildarstjóra lagadeildar háskólans á Bifröst. Hvert leita ráðherrar þegar þeir eru á höttunum eftir aðstoðarmönnum? Líklega ekki langt yfir skammt. Þótt starfið sé vel launað er starfsöryggið ekki mikið; fjúki ráðherra, fýkur aðstoðarmaðurinn...
Feb 07, 2025•20 min•Ep. 485
Runólfur Þórhallsson, sviðsstjóri almannavarnarsviðs ríkislögreglustjóra, reiknar með að eignatjónið verði meira en menn geri sér grein fyrir eftir óveðrið sem gekk yfir landið í gær og í dag. Hann telur viðvaranakerfi Veðurstofu Íslands og Almannavarna hafa gert sitt gagn. Seðlabankinn lækkaði í gær stýrivexti um 0,5 prósentustig og eru meginvextir hans 8,0%. Í yfirlýsingu peningastefnunefndar kemur fram að allir nefndarmenn studdu ákvörðun um lækkun. Verðbólgan var 4,6% í síðustu mælingu og út...
Feb 06, 2025•20 min•Ep. 484
Aftakaveður gengur yfir allt Ísland. Veðurstofa Íslands hefur gefið út rauða viðvörun sem nær yfir allt landið nema hluta Vestfjarða, þar sem appelsínugul viðvörun er í gildi. Veðrið gengur heldur niður seint í kvöld og nótt, en magnast svo aftur með morgninum og verður enn verra á fimmtudag, gangi spár eftir. Mikil úrkoma fylgir óveðrinu, sem eykur hættu á skriðuföllum. Björgunarsveitir höfðu þegar farið í tugi útkalla þegar þátturinn var sendur út en ekkert meiriháttar tjón hafði þá orðið á ma...
Feb 05, 2025•20 min•Ep. 483
Karlmaður á fertugsaldri skaut minnst níu til bana í skóla í Örebro í Svíþjóð í dag. Ódæðismaðurinn er sá tíundi sem dó, en það hefur ekki verið staðfest hvernig hann lést. Guðmundur Arnarsson hefur verið bústtur í borginni frá 2014 og er frændi Svanfríðar Birgisdóttur sem er einn skólastjóranna í Risbergska skólanum, sem er nokkurs konar símenntunarmiðstöð fyrir fullorðna. Spegillinn ræddi við Guðmund undir kvöld. Íslensk iðnfyrirtæki flytja langmest út til Evrópu en tollastríð milli Bandaríkja...
Feb 04, 2025•20 min•Ep. 482
Yfir hundrað mál eru á þingmálalista ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins sem kynntur var í dag. Lögum um strandveiðar og veiðigjöld verður breytt, herða á eftirlit með skammtímaleigu húsnæðis, stofna sérstakan sjóð sem fer með hlutdeildarlán, og innleiða bókun þrjátíu og fimm við EES-samninginn að fullu. Það bar til tíðinda suður í Ameríku í síðustu viku, að forsetastóllinn í Níkaragva var tvöfaldaður, í samræmi við nýsamþykktar „umbætur" á stjórnarskrá landsins. Sú sem áðu...
Feb 03, 2025•20 min•Ep. 481
Guðmundur Ari Sigurjónsson og Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformenn Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins - tókust á um hvað er framundan. Það má kannski segja að forsmekkurinn að þingvetrinum hafi fengist í gær þegar deilt var um hver ætti að fá hvaða herbergi í þinghúsinu; skrifstofustjóri Alþingis er búinn að kveða upp sinn dóm, Sjálfstæðisflokkurinn heldur sínu herbergi en málinu virðist hvergi nærri lokið. Undanfarið hafa dunið sprengingar í Svíþjóð nær daglega. Í janúarmánuði einum h...
Jan 31, 2025•20 min•Ep. 480
Forsetaskrifstofan veitti óskýr svör við fyrirspurnum um hvar Halla Tómasdóttir, forseti íslands, hefði verið þegar minningarathöfn um helförina í Auschwitz fór fram á mánudag. Freyr Gígja Gunnarsson fann svarið í Stjórnartíðindum. „Þetta er ekki niðurstaðan sem ég hefði óskað mér,“ sagði Jónas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, á fréttafundi eftir að ljóst var að stjórn hans var sprungin. Hann sagði samvinnu og vináttu flokkanna sem að henni stóðu - og þeirra Trygve Slagsvold Vedum, formanns ...
Jan 30, 2025•20 min•Ep. 479
Síðan 2024 hefur verið heimild í lögum til að skipa raflínunefndir sem eiga að einfalda skipulagsmál í tengslum við flutningskerfi rafmagns. Nú vill Landsnet að fyrsta nefndin af þessu tagi verði skipuð um Holtavörðuheiðarlínu eitt. Þrjú af fjórum sveitarfélögum sem línan á að liggja um leggjast gegn skipun nefndarinnar. Gréta Sigríður Einarsdóttir kynnti sér málið. Þær fréttir bárust á dögunum að nýtt gervigreindarforrit, DeepSeek, frá Kína, væri að setja gervigreindarheiminn á annan endann. Þv...
Jan 29, 2025•20 min•Ep. 478
Fjármálaráðuneytið kannaði ekki hvort þeir flokkar sem áttu rétt á framlagi úr ríkissjóði væru skráðir á stjórnmálaskrá ríkisskattstjóra. Ráðuneytið kallar þetta misbrest á verklagi sem bætt hafi verið úr. Ríkisendurskoðandi hvetur til þess að lögin verði tekin til endurskoðunar. Forsætisráðherra Danmerkur fór víða um Evrópu í dag til að treysta samstöðu með bandamönnum sínum og fáum duldist að það væri vegna togstreitu við Bandaríkjaforseta vegna Grænlands. Vestnorræna ráðið ályktaði nýlega um ...
Jan 28, 2025•20 min•Ep. 477
Er það frétt ef amma hringir í framhaldsskóla og grennslast fyrir um skó barnabarns síns? Já, ef amman er ráðherra og vísar til þess í samtalinu. En getur ráðherra einhvern tímann kastað af sér skikkju valdsins og orðið bara amma í leit að týndum skóm? Það er mánuður í landsfund Sjálfstæðisflokksins og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir varð í gær fyrst til að lýsa því yfir að hún vildi verða formaður, hverjar yrðu hennar áherslur verði hún formaður. Norska ríkisstjórnin féll ekki í dag. Það er kom m...
Jan 27, 2025•20 min•Ep. 476
Nærri fjögur þúsund tillögur bárust um hvernig hægt væri að hagræða í ríkisrekstrinum. Gylfi Ólafsson, sem á sæti í hagræðingarhópnum, fer yfir vinnu hópsins og í hljóðver ræða þau Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Ólafur Stephensen, formaður FA, um þetta útspil forsætisráðherra og hvaða vonir sé hægt að gera sér um það. Síðar í Speglinum verður fjallað um sérstakt skilnaðarmál sem kom til kasta Mannréttindadómstóls Evrópu en eiginmaðurinn hélt því fram að kynlífsleysi v...
Jan 24, 2025•20 min•Ep. 475
4. orkupakkinn er við það að sprengja norsku stjórnina og það hriktir í stjórnarsamstarfi Verkamannaflokksins og Miðflokksins; Verkföll kennara vofa yfir um mánaðamótin og ekkert miðar áfram í deilunni., Mikil samskipti voru milli þeirra sem byggðu græna, stóra vöruhúsið við Álfabakka og starfsmanna borgarinnar í aðdraganda framkvæmdarinnar. Þau samskipti snerust þó að mjög litlu leyti um útlit og stærð hússins eða hugsanleg áhrif þess á íbúa við Árskóga 7, heldur fyrst og fremst hvort stórfyrir...
Jan 23, 2025•20 min•Ep. 474
Donald Trump Bandaríkjaforseti kallar eftir stóraukinni framleiðslu og útflutningi á bandarísku jarðefnaeldsneyti. Með þessu ætlar hann að lækka verð á eldsneyti, draga úr verðbólgu og gera Bandaríkin að auðugri þjóð að nýju. Umdeilt er hversu líklegt er að þessi stefna skili tilætluðum árangri. Ævar Örn Jósepsson rýnir í þetta. Alls kyns kúrar og kenningar um æskilega næringu skjóta reglulega upp kollinum hér á landi sem annars staðar. Jóhanna Eyrún Torfadóttir, verkefnisstjóri næringar hjá Lan...
Jan 22, 2025•20 min•Ep. 473
Hvernig stóðu aðildarviðræður við Evrópusambandið, þegar þær voru settar á ís margt fyrir löngu. Freyr Gígja kannaði það. Ævar Örn kynnti sér forsetatilskipanir sem Trump forseti undirritaði á fyrsta degi í embætti á sínu seinna kjörtímabili. Tilskipanirnar eru jafn ólíkar og þær eru margar og áhrif þeirra og afleiðingar mismiklar fyrir Bandaríkjamenn, Bandaríkin, og heimsbyggðina alla. Og það er misauðvelt að koma þeim í framkvæmd.
Jan 21, 2025•20 min•Ep. 472
Grípa þurfti til umfangsmikilla rýminga á Austfjörðum vegna snjóflóðahættu í því óveðri og ofankomu sem gengið hefur yfir landshlutann síðasta sólarhringinn eða svo. Rafmagnsbilanir kom upp þegar loftlínur slitnuðu eftir að ís hlóðst utan á þær og rafmagnsstaurar brotnuðu. Hjón i Neskaupstað kusu frekar að sinna hrossum en gista hjá dóttur sinni. Donald Trump segir gullöld Bandaríkjanna hafna, nú þegar hann er tekinn við embætti forseta. Hann kom víða við í innsetningarávarpi sínu, ætlar að lýsa...
Jan 20, 2025•20 min•Ep. 471
Ísland er ekki eina ríkið í Evrópu þar sem ætlunin er að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um tengsl við Evrópusambandið á næstu árum . Það sama mun gerast í Sviss - mögulega um svipað leyti og hér á landi - eftir að stjórnvöld þar samþykktu nýjan heildarsamning um samskipti og viðskipti Sviss og Evrópusambandsins. Ekki eru allar kenningar um upptök eldana í Los Angeles jafn vel rökstuddar og á samfélagsmiðlum hefur fjöldi samsæriskenninga þar að lútandi litið dagsins ljós. Ein sú útbreiddasta, er ken...
Jan 17, 2025•20 min•Ep. 470
Þegar Þorsteinn Magnússon, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, felldi í gær úr gildi virkjanaleyfi Hvammsvirkjunar má segja að nýr kafli í nærri þriggja áratuga sögu þessarar framkvæmdar hafi verið skrifaður. Þetta var í fyrsta skipti sem virkjanaleyfi var fellt úr gildi með dómi og í fyrsta skipti þar sem látið var reyna á lög um stjórn vatnamála fyrir dómi. Og prófessor í umhverfisrétti við Háskóla Íslands telur að full þörf sé á að endurskoða lög um stjórn vatnamála, þau hafi gilt frá 2011 en o...
Jan 16, 2025•20 min•Ep. 469
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir jákvætt að Evrópusambandið líti þannig á að aðildarumsókn Íslands frá 2009 sé enn virk. Talsmaður framkvæmdastjórnar ESB staðfesti þetta í dag - en Þorgerður átti síðdegis fund með Maros Sefcovic, einum af framkvæmdastjórum ESB, sem fer með viðskiptamál og samskiptin við EES ríkin, Ísland, Noreg og Lichtenstein. Þorgerður hitti einnig Kaju Kallas, utanríkismálastjóra Evrópusambandsins. Björn Malmquist fréttamaður hitti Þorgerði síðdegis. Frá...
Jan 15, 2025•20 min•Ep. 468
Búið er að ryðja öllum helstu hindrunum úr vegi og minna ber í milli nú en nokkru sinni fyrr. Þetta segir Majad al-Ansari, talsmaður utanríkisráðuneytisins í Katar og lykilmaður í viðræðum þar sem reynt hefur verið mánuðum saman - og árangurslaust - að fá fulltrúa Ísraelsstjórnar og Hamas til að koma sér saman um vopnahlé. Freysteinn Sigmundsson segir að ekki sé hægt að anda léttar þó að hætt sé að skjálfa í Bárðarbungu í bili. Rétt sé að búa sig undir að það gjósi. Hrinan í dag minni um margt á...
Jan 14, 2025•20 min•Ep. 467
Það er ekki hægt að framselja samþykki sitt, segir Brynhildur Flóvenz fyrrverandi dósent við lagadeild Háskóla Íslands. Hún undrast að saksóknari skuli ekki hafa látið á það reyna að ákæra fleiri í umtöluðu kynferðisbrotamáli. Öryggis- og varnarmál á norðurslóðum hafa mikið verið rædd upp á síðkastið, ekki síst eftir að Donald Trump verðandi Bandaríkjaforseti viðraði aftur hugmyndir um kaup Bandaríkjanna á Grænlandi, orðfæri hans glannalegt og menn ekki á einu máli um hvernig ber að túlka ummæli...
Jan 13, 2025•20 min•Ep. 466
Í Los Angeles eru heilu hverfin rjúkandi rústir og önnur standa enn í björtu báli í ógnarmiklum skógar- og gróðureldum sem færast enn í aukana. Minnst tíu hafa látið lífið í eldunum, tugir þúsunda hafa misst heimili sín, hátt í tvö hundruð þúsund manns hefur verið gert að yfirgefa heimili sín og hundruð þúsunda hafa fengið tilmæli um að búa sig undir að þurfa að flýja með litlum fyrirvara. Ævar Örn Jósepsson tekur við og ræðir við Birtu Líf Kristinsdóttur veðurfræðing. Talsvert hefur verið fjall...
Jan 10, 2025•20 min•Ep. 465
Tveir dómkvaddir matsmenn telja að læknisfræðileg rannsókn vegna andláts ungrar konu eftir handtöku lögreglu hafi verið ófullkomin. Lögmaður fjölskyldu hennar segir ríkið verða að bera hallann af því. Andlát hennar megi að líkindum rekja til samspils tveggja þátta; ástands ungu konunnar og aðgerða lögreglu - en ómögulegt sé að segja til um umfang áhrifa hvors orsakaþáttar fyrir sig. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá. Orkuframleiðsla og orkunýting standa á krossgötum. Orkuframleiðendur anna ekki e...
Jan 09, 2025•20 min•Ep. 464
Í gær átti Donald Trump yngri stutt stopp í Nuuk á Grænlandi. Þessi litla heimsókn hefur aðallega vakið athygli vegna yfirlýsinga föðurins, Donalds Trumps verðandi Bandaríkjaforseta fyrir nokkrum vikum um að það væri alveg nauðsynlegt fyrir öryggi Bandaríkjanna og frið í heiminum að Grænland tilheyrði Bandaríkjunum. Slíkar hugmyndir hafði Trump viðrað áður 2019 og ekki voru undirtektir jákvæðar í Danmörku þá frekar en nú. Hinn verðandi forseti sagðist í gær tilbúinn að beita afli gegn Dönum ef þ...
Jan 08, 2025•20 min•Ep. 463
Borgarstjórn samþykkti á fundi sínum í dag tillögu Sjálfstæðisflokks og Flokks fólksins um að fram fari stjórnsýsluúttekt á skipulagsferlinu í kringum græna vöruhúsið við Álfabakka 2 sem byrgir íbúum við Árskóga sjö sýn. Forstjóri Haga er bjartsýnn á að málið leysist. Daglega berast fréttir af því að Rússar hafi sölsað undir sig fleiri þorp, fleiri bæi og meira land í austanverðri Úkraínu, eyðilagt þar orkuinnviði og varpað sprengjum á hinar ýmsu úkraínsku borgir og bæi fjarri víglínunni, þar á ...
Jan 07, 2025•20 min•Ep. 462
Nokkuð óvænt tilkynning Bjarna Benediktssonar um miðjan dag um að hann ætlaði ekki að taka sæti á þingi og gæfi ekki kost á sér í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins verður viðfangsefni þáttarins og rætt verður við þær Evu H. Önnudóttur prófessor og Jóhönnu Vigdís Hjaltadóttur fréttamann. Þingmönnum sjálfstæðisflokksins flokksins var brugðið þegar Bjarni sagði þeim frá ákvörðun sinni í dag, líklega er leitun að stjórnmálamanni sem hefur verið jafn umtalaður síðustu ár og áratugi.
Jan 06, 2025•20 min•Ep. 461
En það vakti nokkra athygli þegar Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, fór þá leið að óska eftir ábendingum frá almenningi um hvernig væri hægt að spara í ríkisrekstrinum. Ekki stóð á viðbrögðunum; nærri fimmtán hundruð athugasemdir hafa verið sendar inn á samráðsgátt stjórnvalda og þar má sjá allskonar hugmyndir; leggja niður RÚV, loka landinu fyrir hælisleitendum, hætta að veita áfengi í veislum og fækka sendiráðum. Fresturinn til að skila inn umsögn rennur út í lok mánaðar og eftir það fe...
Jan 03, 2025•20 min•Ep. 460
Um miðjan dag birtist í samráðsgátt stjórnvalda ósk frá ríkisstjórninni um tillögur frá almenningi um hvernig megi hagræða í ríkisrekstri. Tekið verður á móti ábendingum til 23. janúar og þá verður farið yfir þær allar af starfshópi á vegum forsætisráðuneytisins. Og ekki stóð á viðbrögðum, á nokkrum klukkutímum voru komnar hátt í þrjúhundruð umsagnir. Rætt við Evu Marín Hlynsdóttur, prófessor í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands Er hægt að svara því hvað varð til þess að hæglætismaður fæd...
Jan 02, 2025•20 min•Ep. 459
Árið 2024 verður það heitasta frá upphafi mælinga, enn heitara en 2023 sem rústaði fyrir hitametum sagði Celeste Saulo, framkvæmdastjóri Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar þegar hún kynnti skýrslu um öfgar í veðrurfari í ár. Antonio Guterrez framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna sagði þá að jörðin hefði mátt þola mannskaðahita í áratug. Varla er hægt að tala um mállýskur á Íslandi en staðbundin einkenni í framburði eru vel þekkt eins og norðlenskt harðmæli og röddun, hv- og einhljóðaframburður á Suðu...
Dec 30, 2024•20 min•Ep. 458
Þátturinn í kvöld er að þessu sinni helgaður einu efni, flóðbylgjunni í Suðaustur-asíu fyrir tuttugu árum. Fyrir jól settist umsjónarmaður niður með Pétri Ásgeirssyni, nú sendiherra í Danmörku, sem var á þessum tíma yfir því sem kallað er borgaraþjónustan í dag og Friðriki Sigurbergssyni, lækni, sem fór á vegum íslenskra stjórnvalda ásamt hópi heilbrigðisstarfsfólks, til Taílands að sækja slasaða Svía.
Dec 27, 2024•20 min•Ep. 457
Ný ríkisstjórn verður kynnt á morgun, ríkisráðsfundur verður á Bessastöðum og lyklaskipti á sunnudag. Fáir vita hins vegar hverjir verða ráðherrar nema kannski leiðtogar stjórnarflokkanna þriggja. Andrés Ingi Jónsson og Eva H Önnudóttir stóðust ekki freistinguna og rýndu í ráðherrakapal og hvernig stjórnarsáttmálinn kemur til með að líta út. Og svo er það Lúsían í Finnlandi sem hefur kallað fram það versta en líka það besta í Finnum. Hún heitir Daniela Owusu, á ætti að rekja til Ghana og er dökk...
Dec 20, 2024•20 min•Ep. 456