Meginregla er að réttarhöld eru opin en venjan hér í kynferðisbrotamálum er að þau séu lokuð til að verja persónulega hagsmuni. Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari segir sterk rök fyrir því að opna slík réttarhöld, vilji brotaþoli senda þau skilaboð að hann hafi ekkert til að skammast sín fyrir, líkt og hin franska Giselle Pélicot gerði. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Kolbrúnu. Alþjóðlegu mannréttindasamtökin Human rights watch, eða Mannréttindavaktin, sem eru með höfuðstöðvar í Bandaríkjunum,...
Dec 19, 2024•20 min•Ep. 455
Búseti fór þess á leit við byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar um miðjan nóvember að framkvæmdir við vöruhúsið sem nú rís við Álfabakka yrðu stöðvaðar. Þetta kemur fram í gögnum sem Spegillinn fékk afhent í dag. Vöruhúsið byrgir íbúum fjölbýlishúss við Árskóga sjö sýn, blokk sem Búseti byggði. Í bréfi Búseta frá í nóvember kom meðal annars fram að á lóðinni væri verið að reisa fjögurra hæða hús, tólf metra háa byggingu, sem ætti sér enga stoð í útgefnu byggingarleyfi eða svörum skipulagsfulltrúa...
Dec 18, 2024•20 min•Ep. 454
Það er hægt að gera breytingar á græna vöruhúsinu sem byrgir íbúum fjölbýlishúss við Árskóga sjö í Reykjavík sýn. Þetta segir annar af hönnuðum hússins. En það er borgarinnar að greiða fyrir það. Ólöf Örvarsdóttir sviðsstjóri skipulagssviðs Reykjavíkur segist engu geta lofað öðru en samtali. Það hefur mikið verið rætt um taktískar kosningar í ár, fyrst í forsetakosningunum og svo í Alþingiskosningunum um daginn og nú er búið að rannsaka hvernig fólk kaus taktíkst í forsetakosningunum og hve marg...
Dec 17, 2024•20 min•Ep. 453
Eðlilegt hefði verið að borgin kynnti næstu grönnum vöruhúss í Breiðholti þegar lagi þess var breytt segir Ásdís Hlökk Theódórsdóttir, aðjúnkt og fyrrverandi forstjóri Skipulagsstofnunar. Nágrannar skemmunnar eru mjög ásáttir við skemmuna sem byrgir þeim birtu og útsýni. Orkumálaráðherra hefur kynnt tillögur um breytingar á lögum um Rammaáætlun meðal annars að stytta þann tímafresti og takmarka áhrif sveitarfélaga til að fresta virkjanaframkvæmdum og halda þeim í gíslingu. Ása Valdís Árnadóttir,...
Dec 16, 2024•20 min•Ep. 452
Francois Bayrou nýr forsætisráðherra Frakklands tók formlega við keflinu nú síðdegis. Hans bíður það vandasama verkefni að koma saman ríkisstjórn og afgreiða fjárlög franska ríkisins - að ekki sé nú minnst á að standa af sér mögulega tillögu um vantraust á franska þinginu. Fátt ef nokkuð virðist geta komið í veg fyrir að ríkisstjórn Samfylkingarinnar,Viðreisnar og Flokks fólksins verði mynduð, það á að byrja að skrifa stjórnarsáttmála eftir helgi og það virðist ekki útilokað að ný ríkisstjórn lí...
Dec 13, 2024•20 min•Ep. 451
Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra og fyrrverandi formaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs mætti í viðtal í dag, reyndar bæði á RÚV og stöð2. Fyrstu viðtölin að segja má frá því í forsetakosningunum í vor. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við hana fyrr í dag. Það hefur ekki heyrst mikið í Katrínu síðustu mánuði en það er ekki vegna þess að ekki hafi verið eftir því falast. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman. Bashar al-Assad Sýrlandsforseti flúði land á sunnudaginn, þegar ...
Dec 12, 2024•20 min•Ep. 450
Síðustu daga og vikur hafa birst óhugnanlega fréttir um ofbeldi karla gegn konum. Kynbundið ofbeldi gegn konum er ekkert nýtt en stundum verða frásagnirnar yfirþyrmandi, eins og þessar fréttir bera vitni um. Samkvæmt embætti ríkislögreglustjóra var í fyrra óskað eftir 97 nálgunarbönnum, í langflestum tilvikum eru þetta konur að verja sig gegn körlum sem hóta þeim líkamlegu og andlegu ofbeldi. Það þarf ekki annað en að fletta upp á vef Landsréttar og slá upp orðinu nálgunarbann til að sjá hversu ...
Dec 11, 2024•20 min•Ep. 449
Uppgangur öfgaafla og daður evrópskra stjórnmálaforingja við samsæriskenningar um yfirtöku Íslam má að miklu leyti rekja til styrjaldarinnar Sýrlandi og flóttamannakrísunnar í Evrópu sem náði hámarki árið 2015. Rætt er við Eirík Bergmann Einarsson prófessor í stjórnmálafræði. Leiðtogar flokkanna sem eiga í stjórnarmyndunarviðræðum stefna að því að fækka ráðuneytum. En það er stutt síðan skipan ráðuneyta var breytt, þeim var fjölgað og verkefni flutt til með tilheyrandi uppstokkun og umstangi. Ræ...
Dec 10, 2024•20 min•Ep. 448
Flótta Bashars al-Assads Sýrlandsforseta og fjölskyldu hans til Rússlands um helgina bar brátt að. Assad og faðir hans höfðu ríkt þar í hátt í hálfa öld og á tíu dögum tókst liðsmönnum Ayat Tahrir al-Sham að losa landið undan oki þeirra. En er friðvænlegt í Sýrlandi eftir nærri fjórtán ára borgarastyrjöld. Sýrlendingar fagna falli Assads og mikilvægt er að tími fáist til að halda þar kosningar og feta í frelsisátt.
Dec 09, 2024•20 min•Ep. 447
Þær tvær atvinnugreinar sem oftast eru nefndar þegar það þarf að ná pening inn í ríkiskassann eru sjávarútvegurinn og ferðaþjónustuna. Á síðasta ári sköpuðu þessar tvær atvinnugreinar meira en helming útflutningsverðmæta landsins. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri samtaka ferðaþjónustunnar, og Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, komu í hljóðver til að ræða stöðu þessara tveggja atvinnugreina. Alþjóðlegu mannréttindasamtökin Amnesty International...
Dec 06, 2024•20 min•Ep. 446
Alþjóðlegu mannréttindasamtökin Amnesty International saka Ísraelsmenn um að fremja hópmorð, eða það sem í daglegu tali er kallað þjóðarmorð, í hefndarstríðinu sem þeir hófu á Gasa í kjölfar hryðjuverkaárásar Hamas í Ísrael 7. október í fyrra. Þetta er afrakstur viðamikillar rannsóknar samtakanna á framgöngu Ísraelshers og ísraelskra yfirvalda frá fyrsta degi og fram í júlíbyrjun, og rennir stoðum undir málatilbúnað Suður-Afríku fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag og mál Alþjóðlega glæpadómstólsins g...
Dec 05, 2024•20 min•Ep. 445
Þrjár þingkonur stjórnarandstöðunnar segja það ekki hafa komið á óvart að Samfylkingin, Viðreisn og Flokkur fólksins skyldu hefja samtal um myndun ríkisstjórnar. Þingkona Framsóknarflokksins vonar að þeim takist ætlunarverkið en þingkonur Miðflokks og Sjálfstæðisflokks telja aðra möguleika í stöðunni. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Ingibjörgu Isaksen, Diljá Mist Einarsdóttur og Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur. Yoon Suk-yeol, forseti Suður-Kóreu, lýsti yfir herlögum í landinu seint á þriðjudagsk...
Dec 04, 2024•20 min•Ep. 444
Kristrún Frostadóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Inga Sæland eða Valkyrjurnar eins og sú síðastnefnda kallar þær hefja stjórnarmyndunarviðræður af fullum krafti á morgun. 33 nýir þingmenn setjast á þing eftir kosningarnar, af þeim hafa sex áður setið á þingi. Þetta er mesti fjöldi nýrra alþingismanna og þeir fá kynningu á þingstörfum fyrir jól. 33 þingmenn fara á biðlaun, þar með taldir fyrrverandi ráðherrar Framsóknarflokksins. Löngu tímabært er að þróa fræðilegar kennsluaðferðir til að...
Dec 03, 2024•20 min•Ep. 443
Viðreisn og Flokkur fólksins eru lykilstöðu þegar kemur að myndun næstu ríkisstjórnar eftir sögulegar þingkosningar á laugardag. Flokkarnir tveir eru næstum jafngamlir, voru stofnaðir með mánaðarmillibili vorið 2016 og skarta báðir ótvíræðum leiðtogum sem eru samofnir sögu þeirra en þeir eru ólíkir um margt. Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði ræðir stöðu þeirra þegar kemur að stjórnarmyndun. Kosningarnar á laugardag voru um margt sögulegar. Sviptingar í fylgi flokka, tveir hurfu af þin...
Dec 02, 2024•20 min•Ep. 442
Lokaspretturinn fór fram í kvöld fyrir kosningarnar á laugardag þegar forystufólk flokkanna mættist í sjónarpssal. Ný könnun Gallup bendir til spennandi kosninga. Stefán EInar Stefánsson, umsjónarmaður spursmála á mbl.is, og Eva H. Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði, rýna í stöðuna í Speglinum.
Nov 29, 2024•20 min•Ep. 441
Hvað þarf kjósandi að hafa með sér á kjörstað í Alþingiskosningum og hvað ber að forðast ef ekki á að ógilda kjörseðilinn. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Ástríði Jóhannesdóttur framkvæmdastjóra Landskjörstjórnar. Víst þykir að Rússar hafi numið tæplega 20.000 úkraínsk börn á brott síðan þeir réðust inn í Úkraínu og rökstuddur grunur er um að þau séu mun fleiri. Tetiana Fedosiuk er úkraínskur sérfræðingur hjá rannsóknarsetri í utanríkis- öryggis- og varnarmálum í Tallin í Eistlandi segir að fjö...
Nov 28, 2024•20 min•Ep. 440
Flestir settu heilbrigðismál í efsta sæti þegar Félagsvísindastofnun kannaði í síðustu viku hvað skipti fólk mestu fyrir kosningarnar á laugardaginn - og er það svo í öllum sex kjördæmum. Áherslur fólks í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur og Suðvesturkjördæmi, það er höfuðborgarsvæðinu eru nánast alveg eins, en samgöngur eru kjósendum í Norðvesturkjördæmi hugstæðar. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Rúnar Vilhjálmsson prófessor. Alcoa Fjarðaál setur spurningarmerki við stórt vindorkuorkuver sem Fja...
Nov 27, 2024•20 min•Ep. 439
Hinir tröllslegu varnargarðar sem umlykja orkuverið í Svartsengi og Bláa lónið hafa vafalítið komið í veg fyrir að ekki varð heitavatnslaust á Reykjanesskaganum í eldsumbrotunum núna. Og það verður allt kapp lagt á að verja orkuverið, segir Ari Guðmundsson verkfræðingur sem leiðir innviðahóp Almannavarna. Kosingabaráttan í ár hefur verið stutt, snörp og um margt neikvæðari en þegar kosið var 2021 segir lektor í fjölmiðlafræði, segja megi að óreiða og ofgnótt marki slaginn.
Nov 26, 2024•20 min•Ep. 438
Fimm dagar eru þar til kjörstaðir verða opnaðir um allt land. Þótt einhverjir kjósi utan kjörfundar eru langflestir sem fara í sína kjördeild til að greiða atkvæði - þær loka klukkan tíu um kvöldið og þá fyrst má byrja að telja. Allt bendir til að kosninganóttin verði spennandi en fólk ætti líka að vera undir það búið að hún dragist langt fram á sunnudagsmorgun - sérstaklega ef verstu spár um veður ganga eftir. Freyr Gígja Gunnarsson fjallar um þetta. Framkvæmd loftslagsaðgerða er afar veik hér ...
Nov 25, 2024•20 min•Ep. 437
Þótt eldgos verði seint hversdagsleg hafa eflaust einhverjir yppt öxlum þegar byrjaði að gjósa á Sundhnúksgígaröðinni á miðvikudagskvöld. Gosstrókarnir voru vissulega tilkomumiklir í vetrarmyrkrinu en þetta var nú einu sinni sjöunda gosið þarna, það sjötta bara á þessu ári. Íslandsstofa vinnur að því að segja við erlenda ferðamenn og ferðaþjónustufyrirtæki að eldgos séu bara hluti af hinu daglega lífi á Íslandi. COP 29, 29. loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem haldin er í Bakú í Aserbaísja...
Nov 22, 2024•21 min•Ep. 436
Biden Bandaríkjaforseti gaf Úkraínumönnum um helgina grænt ljós á að nota langdrægar bandarískar eldflaugar - flaugar sem hægt er að senda nokkuð langt yfir landamærinn og inn til Rússalands. Og svo slitnuðu sæstrengir á milli Finnlands og Þýslalands. Og á milli Svíþjóðar og Litáen. Er þetta tilviljun? Eða eru þetta skemmdarverk Rússa. Það er ekki komið í ljós. Það tekur einfaldlega tíma að finna út úr því segir Guðmundur Arnar Sigmundsson, forstöðumaður netöryggissveitarinnar CERTIS. Fjallað er...
Nov 19, 2024•20 min•Ep. 435
Gömul bloggskrif Þórðar Snæs Júlíussonar, frambjóðanda Samfylkingarinnar, sem birtust undir dulnefni á bloggsíðu fyrir rúmlega tuttugu árum hafa vakið upp umræðu um hvort nauðsynlegt sé að gera upp það tímabil þegar nafnlaus skrif viðgengust í athugasemdakerfum fjölmiðla og bloggheimum. Skrif sem oft beindust að nafntoguðum konum og þeir sem þannig skrifuðu þurftu fæstir að bera á þeim ábyrgð. Þar til kannski nú. Full þörf er á að samræma vinnulöggjöf á almennum og opinberum markaði segir prófes...
Nov 15, 2024•20 min•Ep. 434
Freyr Gígja reifar reifarakennda málið sem hverfist um Jón Gunnarsson, hvalveiðar og ísraelska einkaspæjarafyrirtækið Black Cube. Ragný Þóra Guðjohnssen segir Ragnhildi Thorlacius frá niðurstöðum Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar. Þær benda til þess að líðan grunnskólabarna fari batnandi, þó að ýmislegt megi bæta. Nýsjálenski forsætisráðherrann hefur beðist afsökunar á illri meðferð á fólki á vistheimilum, sjúkra- og meðferðarstofnunum frá því um miðja síðustu öld. Ævar Örn segir frá því.
Nov 12, 2024•20 min•Ep. 433
Donald Trump hefur sagst ætla að loka landamærunum í suðri og moka út fleiri ólöglegum innflytjendum en dæmi eru um - og hann ætlar ekki bara að reisa áþreifanlegar landamæragirðingar og -múra, heldur líka tollmúra, enn hærri en hann innleiddi í fyrri forsetatíð sinni, og þá allra helst til að hamla gegn kínverskum innflutningi. Í Slóvakíu sáust greinileg merki þess þegar óvinveitt ríki reyndu að hafa áhrif á úrslit kosninga. Og hjá Evrópusambandinu hafa menn viðrað áhyggjur sínar af vörnum gegn...
Nov 08, 2024•20 min•Ep. 432
Þyngsti dómur yfir konu í heila öld féll í Héraðsdómi Reykjaness í gær, móðir var dæmd í átján ára fangelsi fyrir að verða barni að bana og tilraun til manndráps. Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur segir slíkt afar fátítt. Fjármálaráðherra Þýskalands var látinn taka pokann sinn í gær og kanslarinn sparaði honum ekki kveðjurnar, lítilsigldur og huglaus voru einkunnirnar og við blasir stjórnarkreppa. Allir vilja atkvæði ungra kjósenda en kosningaþátttakan er minni en hjá þeim sem eldri eru. ...
Nov 07, 2024•20 min•Ep. 431
Donald Trump, sem vann sigur í forsetaskosningum í Bandaríkjunum í gær segir það árangur stórkostlegrar stjórnmálahreyfingar og nú taki við að græða Bandaríkin og laga það sem misfarist hafi síðustu ár. Til þess þurfi að sameina Bandaríkjamenn. Kamala Harris frambjóðandi Demókrata ætlar að ávarpa stuðningsfólk sitt í kvöld. Hún hefur enn ekki brugðist við sigri Trumps. Sigur Trumps var ekki beinlínis óvæntur en virðist verða meira afgerandi en kannanir höfðu gefið til kynna. Hafsteinn Birgir Ein...
Nov 06, 2024•20 min•Ep. 430
Formaður kennarasambandsins óttast að dragist kjaradeila kennara við ríki og sveitarfélög enn á langinn segi margir upp, löngu sé tímabært að fjárfesta í kennurum. Rætt verður við hann síðar í Speglinum og líka fjallað um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar - hagræðing eða ekki hagræðing, þar liggur efinn. En fyrst eru það forsetakosningarnar í Bandaríkjunum, Björn Malmquist er staddur í Fíladelfíu, þó ekki við tröppurnar sem Rocky hljóp upp en þó í næsta nágrenni.
Nov 05, 2024•20 min•Ep. 429
Það fer ekki framhjá neinum að á morgun verða haldnar forsetakosningar vestur í Bandaríkjunum. Þar takast þau á, Kamala Harris, frambjóðandi Demókrata, og Donald Trump, frambjóðandi Repúblikana. Nú er innan við sólarhringur þar til fyrstu kjörstaðir verða opnaðir og enn er allt í járnum, varla tölfræðilega marktækur munur á frambjóðendunum, hvorki á landsvísu né í hinum svokölluð sveifluríkjum. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Björn Malmquist fréttamann, sem er í einu þessara ríkja, Pennsylvaníu. Ky...
Nov 04, 2024•20 min•Ep. 428
Framboðslistar stjórnmálaflokkanna liggja fyrir, leiðtogaumræður eru framundan og kosningabaráttan er að hefjast fyrir alvöru. Þórhallur Gunnarsson, fjölmiðlaráðgjafi, og Eva H. Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði, rýna í stöðuna, nýjan þjóðarpúls Gallup og hvað flokkarnir þurfa að gera til að tryggja sér sem flest þingsæti á kosningunum.
Nov 01, 2024•20 min•Ep. 427
Rætt verður við aðstoðaryfirlögregluþjón hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um þau erfiðu morðmál sem hafa komið inn á hennar borð, hvernig slík mál eru rannsökuð og hvaða áhrif þau hafa á rannsókn annarra mála. Við fjöllum líka um hörmungarnar á Spáni, aðallega í Valencia, meira en hundrað og sextíu eru taldir hafa farist í miklum hamfaraflóðum sem gengu yfir á suðaustanverðum Spáni á þriðjudag og miðvikudag. Spegillinn var líka í Hörpu í morgun þegar frestur til að skila inn framboðum rann ú...
Oct 31, 2024•19 min•Ep. 426