Spegillinn - podcast cover

Spegillinn

RÚVwww.ruv.is
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Dánaraðstoð og vaxandi losun gróðurhúsalofttegunda

Umræðu um dánaraðstoð skýtur reglulega upp kollinum hér á landi, þingsályktunartillögur, frumvörp og skýrslur hafa litið dagsins ljós og í fréttaskýringaþættinum Kveik í gærkvöld var fjallað um Jón Grímsson sem sótti um dánaraðstoð í Washington-ríki í Bandaríkjunum. Steinunn Þórðardóttir, formaður læknafélagsins, segir að það verði ekki aftur snúið verði þetta skref tekið. Reynsla frá þeim löndum þar sem þetta hefur verið leyft sýni líka að mörkin verði sífellt óljósari. Þá megi ekki gleyma því ...

Oct 30, 202420 minEp. 425

Löggjöf Ísraelsþings fordæmd, E.coli-hópsýking og skoðanakannanir

Lög sem ísraelska þingið í samþykkti í gær gætu orðið til þess að starfsemi Palestínuflóttamannahjálparinnar, UNRWA, leggist af á Gaza. Ef það gerist getur allt hjálparstarf á Gaza fallið um sjálft sig. Þetta segir Gréta Gunnarsdóttir skrifstofustjóri UNRWA í New York, Ólöf Ragnarsdóttir ræddi við hana. Á fimmta tug barna hefur veikst eftir E.coli hópsýkingu á leikskóla í Reykjavík í síðustu viku. Tíu börn eru á spítala og þar af eru fimm alvarlega veik á gjörgæslu. Rúmlega tuttugu börn eru undi...

Oct 29, 202420 minEp. 424

Norðurlandaráðsþing, Úkraína og Rússland

Þátturinn er helgaður Norðurlöndunum og Úkraínu, því þing Norðurlandaráðs verður formlega sett í Reykjavík á þriðjudag og Úkraínuforseti er þar heiðursgestur. Zelensky fundaði með Bjarna Benediktssyni, starfandi forsætisráðherra, og forsætisráðherrum hinna Norðurlandanna á Þingvöllum og við heyrum í Birtu Björnsdóttur sem er á vettvangi. Yfirskrift þings Norðurlandaráðs í ár er Friður og öryggi á norðurslóðum, en eftir innrás Rússa í Úkraínu hafa öryggis og varnarmál orðið æ fyrirferðarmeiri í N...

Oct 28, 202420 minEp. 423

Þrælahald Breta og mikilvægar kosningar í Georgíu

Kosningarnar í Georgíu á morgun gætu orðið þær afdrifaríkustu síðan þetta fyrrum Sovétlýðveldi lýsti yfir sjálfstæði fyrir meira en þrjátíu árum. Framtíð landsins er í húfi, segir Salome Zourabichvili forseti Georgíu. Bretar státa sig gjarnan af því að eiginlegt þrælahald hafi aldrei tíðkast á Bretlandi. Þeir tala minna um það, að þegar mest lét voru þeir allra þjóða umsvifamestir í þrælakaupmennsku, í skjóli yfirburðastöðu sinnar á heimshöfunum. Og í þættinum verður rætt við tvo unga frambjóðen...

Oct 25, 202420 minEp. 422

Alvarleg ecoli-hópsýking, læknisþjónusta á landsbyggðinni, væringar innan norsku ríkisstjórnarinnar

27 börn hafa greinst með eiturmyndandi Ecoli í hópsýkingu á leikskólanum Mánagarði í Reykjavík. Verið er að rannsaka hvernig börnin veiktust en grunurinn hefur einna helst beinst að nautahakki. Þetta er alvarlegasta hópsýking af þessu tagi frá því fyrir fimm árum, og þá sem nú voru það börn sem veiktust. Freyr Gígja Gunnarsson kynnti sér málið og ræddi við Vigdísi Tryggvadóttur sérgreinadýralækni hjá Matvælastofnun. Starf eða embætti héraðslæknis er ekki jafn eftirsótt og það eitt sinn var. Í vi...

Oct 24, 202420 minEp. 421

100 umsagnir um fjárlagafrumvarpið og misvægi atkvæða

Helsta verkefni þingsins er að afgreiða fjárlögin og yfir hundrað stofnanir, félaga- og íþróttasamtök og einstaklingar hafa sent fjárlaganefnd umsögn við fjárlagafrumvarp næsta árs. Í þeim eru gerðar margvíslegar athugasemdir við frumvarpið og bent á að það vanti fé í þetta og það vanti fjármagn í hitt. Formaður fjárlaganefndar segir geta reynst erfitt að bregðast við þessum óskum í ljósi þess að enginn meirihluti er starfandi á þingi og þar með ekki í fjárlaganefndinni. Eitt þingsæti færist mil...

Oct 23, 202420 minEp. 420

Spennan magnast vestanhafs og af hverju True Detective kom til Íslands

Kosningabaráttan fyrir forsetakjör í Bandaríkjunum eftir tvær vikur harðnar. Litlu munar á frambjóðendum Demókrata og Repúblikana og þeir keppast við að ná hópum á kjörstað sem gætu ráðið úrslitum. Umdeild mál eins og þungunarrof setja mark sitt á kosningabaráttuna en efnahagsmálin eru þó það sem flestir kjósendur segja að ráði vali sínu. Anna Kristin Jónsdóttir ræðir við Silju Báru Ómarsdóttur. Þá verður sagt frá því hvað gerðist þegar ráðamenn fengu upplýsingar um að Ísland kæmi til greina sem...

Oct 22, 202420 minEp. 419

Félagsskiptin í stjórnmálunum og er eftirsóknarvert að vera þingmaður?

Ennþá hafa framboðslistar ekki tekið á sig lokamyndina en áberandi tal um nýtt fólk á listum og að þó nokkrum sitjandi þingmönnum hafnað í uppstillingu segir prófessor í stjórnmálafræði. Það geti verið glænýjum stjórnmálamönnum áskorun að fóta sig bæði á þingi og í innra starfi flokkanna. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Evu H. Önnudóttur. Síðustu dagar hafa sýnt að það er enginn hörgull á fólki sem telur sig eiga erindi á Alþingi. En hvernig er þetta starf; að sitja á Alþingi Íslendinga. Er þe...

Oct 21, 202420 minEp. 418

Æfing hjá neyðarstjórn, tetrakerfið og Tom Hagen

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar kom saman á dögunum til æfingar. Búið var til raunhæft verkefni fyrir embættismenn borgarinnar til að æfa, kvikuhlaup og eldgos í nágrenni borgarinnar, þannig að rýma þurfti heimili 6000 manna í efri byggðum. Ragnhildur Thorlacius forvitnaðist um æfinguna, sem er innblásin af veruleika Grindvíkinga. Forsvarsmenn Neyðarlínunnar telja TETRA-talstöðvakerfið, sem viðbragðsaðilar við Eyjafjörð misstu samband við á dögunum, vera örugga fjarskiptaleið. Þeir stefna þó að ú...

Oct 18, 202421 minEp. 417

Kosningabaráttan hafin, mikil þingmannavelta fyrr og nú, örbirgð og átök í heiminum

Þingmenn mættu til starfa á Alþingi í morgun í fyrsta skipti frá því að ríkisstjórnin sprakk. Eitt mál var á dagskrá - umræða um þingrofstillögu forsætisráðherra. Eftir ræðuhöldin fóru kjörnir fulltrúar hver til síns heima, flestir til að undirbúa sig fyrir komandi átök og koma sér á framfæri við flokksapparötin í þeirri von að fá ásættanlegt sæti á framboðslista. Ræður þeirra sem tóku til máls báru þess glöggt merki að kosningabaráttan er hafin. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá. Í síðustu kosni...

Oct 17, 202420 minEp. 416

Þingstörf á óvissutímum, brestur í almannavarnakerfinu og málefni flóttafólks í Evrópu.

Þingflokksformenn Framsóknar og Viðreisnar eru nokkuð bjartsýnar á að þingið afgreiði fjárlagafrumvarpið. Þær segja að ekkert verði hefðbundið við þingstörf næstu daga. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við þær Ingibjörgu Isaksen og Hönnu Katrínu Friðrikson. Fjarskiptakerfi á norðan- og austanverðu landinu lágu niðri í um tuttugu mínútur um miðjan dag í gær. Netið fór, það var ekki hægt að hringja og tetrakerfi sem viðbragðsaðilar reiða sig á brást líka. Öll þessi kerfi voru hýst á sama stað hjá Mílu...

Oct 16, 202420 minEp. 415

Hægt að bjóða fram til 30.október. Harris reynir að sækja atkvæði til svartra karla. Líffræðilegur fjölbreytileiki hnignar.

Það verður kosið 30. nóvember eftir að forseti Íslands féllst á beiðni forsætisráðherra um þingrof. Þetta er sú tímalína sem Landskjörstjórn hefur unnið með og þetta þýðir að flokkarnir hafa tíma til 30. október til að skila inn framboðslistum. Það verður víðar kosið í nóvember en á Íslandi, til að mynda í Bandaríkjunum þar sem baráttan harðnar með hverjum degi. Kamala Harris reynir nú að sækja atkvæði til svartra karla með misjöfnum árangri. Og líffræðilegur fjölbreytileiki jarðar hnignar, samk...

Oct 15, 202420 minEp. 414

Sitjandi stjórn er ekki starfsstjórn og flokkarnir í blóðspreng fyrir væntanlegar kosningar

Aðdragandi þess að forsætisráðherra vill rjúfa þing. Forseti Íslands ætlar síðar í vikunni að gera grein fyrir afstöðu sinni til tillögu forsætisráðherra um þingrof, verði fallist á hana er líklegt að 30. nóvember verði kjördagurinn. Forsætisráðherra hefur ekki beðist lausnar fyrir ráðuneyti sitt og það er ekki nema hann geri það sem starfsstjórn tekur við. Rætt við Ragnhildi Helgadóttur lagaprófessor við HR og Evu H. Önnudóttur stjórnmálafræðiprófessor við HÍ um þingrof og yfirvofandi kosningar...

Oct 14, 202420 minEp. 413

Staðan í Sjálfstæðisflokknum, friðarverðlaun og átök í Brussel

Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins fundaði í dag, skyndilega eða ekki, um stöðu ríkisstjórnarinnar og næstu skref. Það kvað við svolítið nýjan tón eftir fund ríkisstjórnarinnar í morgun þar sem ráðherrar virtust ekki útiloka að kosningar væru handan við hornið. Friðjón Friðjónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, og Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi þingmaður og ráðherra Sjálfstæðisflokksins, fóru yfir stöðuna. Það eru víða átök en í Brussel hafa menn tekist á um ræðu Victors Orbans, forsætis...

Oct 11, 202420 minEp. 412

Guðmundur hringdi ríkislögreglustjóra en ekki dómsmálaráðherra og aðstöðumunur í framhaldsskólum

Sex framhaldsskólar í landinu geta ekki boðið þær einingar í stærðfræði sem þarf til að komast í verkfræði og raungreinanám. Þetta hefur gerst í kjölfar breyinga sem urðu fyrir rúmum tíu árum, á námsskrá og námsbrautum framhaldsskólanna og svo styttingunni. Breytingar sem erfiðara er að takast á við í smærri skólum, ekki síst á landsbyggðinni. Við fjöllum líka um málaferli sem Orkubú Vestfjarða stendur í og snýst um vatnsréttindi á Vestfjörðum. Spegillinn greindi í gær frá samskiptum ráðherra og...

Oct 10, 202420 minEp. 411

Afskipti ráðamanna af máli Yazans Tamimi og fellibylurinn Milton

Ný gögn varpa ljósi á að það var Bjarni Benediktsson forsætisráðherra sem tók ákvörðun um að stöðva brottflutning hins tólf ára gamla Yazans Tamimi í síðasta mánuði, innan við klukkustund áður en til famkvæmdar brottvísunarinnar kom. Þáverandi formaður Vinstri grænna hafði þá verið í beinum samskiptum við hvorutveggja forsætisráðherra og ríkislögreglustjóra um málið. Freyr Gígja Gunnarsson kafar ofan í þessi og önnur samskipti ráðafólks í aðdraganda þessarar ákvörðunar. Ægiöflugur fellibylur, Mi...

Oct 09, 202420 minEp. 410

Hverjir ætla að hætta á þingi? Hvernig verður kosningaveturinn? Opinber heimsókn Höllu.

Það er farið að bera á kosningaskjálfta ; talað um að kjósa í vor frekar en næsta haust þegar og að áhugaverður vetur og átök séu framundan í pólitíkinn. Spegillinn ræddi við Bergþór Ólason, þingmann Miðflokks og Bryndísi Haraldsdóttur þingmann Sjálfstæðisflokks um veturinn framundan. Spegillinn spurði alþingismenn hvort þeir ætluðu að gefa kost á sér á fyrir næstu þinkosningar. Og það er bara einn ákveðinn í að hætta. 34 ætla sér að halda áfram. Hallgrímur Indriðason segir frá því helsta sem ge...

Oct 08, 202420 minEp. 409

Utanríkisráðherra og þingmenn í utarnríkismálanefnd um stríðið fyrir botni Miðjarðarhafs

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, segir að þótt hryðjuverkaárás Hamaz hafi ekki verið einhver upphafspunktur að átökunum hafi allt breyst á þeim degi. Síðastliðnir tólf mánuðir hafi haft mikil áhrif á alla utanríkismálapólitík, Evrópa sé klofin og jafnvel Norðurlöndin, sem alla jafna eru mjög samstíga, fylgi ekki sömu línunni. Birgir Þórarinsson, Sjálfstæðisflokki og Logi Einarsson, Samfylkingu sitja báðir í utanríkismálanefnd Alþingis. Þeir eru sammála um að staðan eftir ...

Oct 07, 202419 minEp. 408

Landsfundur VG og risarollur í Montana

Fátt ef nokkuð getur komið í veg fyrir að Svandís Svavarsdóttir verði næsti formaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs þegar kosið verður um embættið á Landsfundi flokksins um helgina. Svandís tekur við stöðunni af Guðmundi Inga Guðbrandssyni sem varð formaður þegar Katrín Jakobsdóttir hætti í stjórnmálum. VG er í erfiðri stöðu og hefur ekki mælst með þingmann í síðustu könnunum. Fundurinn um helgina er því mikilvægur fyrir sögu þessa stjórnmálaflokks sem fagnar aldarfjórðungs afmæli á næst...

Oct 04, 202420 minEp. 407

Öryggi ferðafólks, handhafar forsetavalds og samskipti Breta og ESB

Í síðustu viku fórust tveir útlendingar sem voru hér á ferðalagi, annar í bílslysi á Skaga, hinn féll í Hlauptungufoss á Suðurlandi og í sumar dó maður í íshellaferð á Breiðamerkurjökli. Þetta eru þrjú nærtæk dæmi um banaslys erlendra ferðamanna. Hingað koma í ár um tvær milljónir ferðamanna. Er nóg að gert til að tryggja öryggi þeirra gesta sem hingað koma? Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Lilju Dögg Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra. 23 fengu greitt fyrir að vera handhafi forseta...

Oct 03, 202420 minEp. 406

Stýrivextir, Líbanon og ný Ölfusárbrú

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tók í dag varfærin skref í átt að lækkun stýrivaxta þegar þeir voru lækkaðir úr níu komma tuttugu og fimm prósentum í níu. Greiningardeildir bankanna höfðu flestar spáð því að stýrivextir yrðu óbreyttir. Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, segir ákvörðun peningastefnunefndar hafa komið á óvart og það hafi mátt sjá þess merki þegar ákvörðunin var kynnt að fólk liti þróun mála ekki alveg sömu augum. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Unu. Um 350.000 m...

Oct 02, 202420 minEp. 405

Magnús Þorkell um stöðuna í Miðausturlöndum og íbúðarkaup ungs fólks

Ísraelar hafa gert fjölda loftárása á Líbanon síðustu daga og innrás Ísraelshers á jörðu niðri er hafin. Hátt í þúsund manns hafa fallið í Líbanon á síðustu dögum og hundruð þúsunda eru á flótta. Eins og fram kom í fréttum hefndu Íranir árásanna á Hezbollah og drápsins á leiðtoga samtakanna með eldflaugaárás síðdegis í dag. Ólöf Ragnarsdóttir fréttamaður ræddi við Magnús Þorkel Bernharðsson sérfræðing í málefnum Miðausturlanda skömmu áður en þær árásir hófust spurði hvernig hann mæti stöðu mála ...

Oct 01, 202420 minEp. 404

Netsvik færast í aukana, hrottalegt morð í Bretlandi og vinsælt lag á Tiktok

Almennt og gegnumgangandi traust Norðurlandabúa til stofnana og næsta manns gerir þá berskjaldaða gagnvart netþrjótum. Þetta kemur fram í nýju sameiginlegu áhættumati norrænna löggæsluyfirvalda. Rætt verður við Ólaf Þór Hauksson, héraðssaksóknara. Fjallað verður um hrottalegt morð á Bretlandseyjum þar sem drengir á þrettánda aldursári voru sakfelldir. Fjölskyldan fórnarlambsins er ósátt með lengd dómanna því drengirnir tveir verða tvítugir þegar þeir ljúka afplánun. Hressilegt og kunnuglegt lag ...

Sep 27, 202420 minEp. 402

Umboðsmaður Alþingis kveður, Pútín hótar kjarnorkuvopnum

Skúli Magnússon lætur af störfum sem umboðsmaður Alþingis á þriðjudag og sest í dómarasæti í Hæstarétti Íslands. Við starfi hans tekur Kristín Benediktsdóttir sem Alþingi kaus í dag. Skúli hefur sem umboðsmaður slegið á putta ráðherra, meðal annars í Íslandsbankamálinu, sem varð til þess að þáverandi fjármálaráðherra sagði af sér - þó með þeim orðum að hann væri ósammála áliti umboðsmanns. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Skúla. Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti er í opinberri heimsókn í Bandarí...

Sep 26, 202420 minEp. 401

Fjármálastöðugleiki, tafir á upplýsingagjöf stjórnvalda ámælisverðar og deilur Norðmanna og Evrópusambandsins

Vextir verða ekki lækkaðir nema verðbólga hjaðni segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Hún stendur í sex prósentum en markmiðið sem að er stefnt er 2,5%. Hann segir að hækkandi fjármagnskostnaður geti haft áhrif á greiðslubyrði vissra hópa en almennt sé eiginfjárstaða heimila góð og vanskil hafi lítið aukist. Umboðsmaður Alþingis gerði í vikunni athugasemdir við hversu lengi úrskurðarnefnd um upplýsingamál væri að kveða upp úr úrskurði sína. Tafirnar væru ekki réttlætanlegar og þær gætu í ýmsum...

Sep 25, 202420 minEp. 400

Ekki útilokað að Svandís fái mótframboð, siðferðisspurningar vegna fósturskimana

Eitt verst geymda leyndarmálið í íslenskum stjórnmálum var opinberað í dag þegar Svandís Svavarsdóttir tilkynnti að hún vildi verða næsti formaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs. Hún sagðist um leið vera fylgjandi því að kosið yrði í vor en ekki í haust þegar kjörtímabili ríkisstjórnarinnar lýkur. Freyr Gígja Gunnarsson ræddi við Evu H. Önnudóttur, stjórnmálafræðiprófessor, um hvort kosningar að vori eða hausti breyti miklu og hvort það sé líklegt að einhver skori Svandísi á hólm í kjöri...

Sep 24, 202420 minEp. 399

Fíkniefnum smyglað um hafnir, kosningar í Brandenburg og fílar

Óttast er að minni hafnir í Evrópu verði í meira mæli notaðar til að smygla stórum sendingum af fíkniefnum í vöruflutningagámum. Á Íslandi er aðeins brotabrot af öllum þeim þúsundum gáma sem hingað eru fluttir gegnumlýstir í rúmlega sextán ára gömlum skanna. Jafnaðarmannaflokkur Olafs Scholz kanslara Þýskalands, SPD, slapp kannski með skrekkinn í kosningum í Brandenburg um helgina en Scholz ekki, að dómi stjórnmálaskýranda. Rúmlega 200.000 fílar lifia á verndarsvæði sem teygir sig til fimm landa...

Sep 23, 202420 minEp. 398

Afbrotatölfræði og valdatafl - í Brussell og hjá Murdoch

Síðustu daga og vikur hefur mikið verið rætt um ofbeldi í samfélaginu í ljósi voðaverka sem framin hafa verið í ár. Ekki síst er mikið rætt um ofbeldi meðal ungs fólks. Rannveig Þórisdóttir félagsfræðingur og samskiptastjóri hjá ríkislögreglustjóra segir það skiljanlegt en að þótt skráðum ofbeldisbrotum hafi fjölgað sýni þolendakannir ekki að fleiri verði fyrir brotum. Tuttugu og sex nýjir framkvæmdastjórar Evrópusambandsins voru kynntir á þriðjudaginn, eftir talsverðar sviptingar í tengslum við...

Sep 20, 202420 minEp. 397

Hvítabjörn, Líbanon og sígarettusmygl rafrettukónga

Fyrsti hvítabjörninn sem gengið hefur á land síðan 2016 var felldur í fjörunni á Höfðaströnd í Jökulfjörðum skömmu fyrir klukkan fjögur í dag. Helgi Jensson, lögreglustjóri á Vestfjörðum, segir dýrið hafa verið aflífað eins snyrtilega og hægt var en vill ekki gefa upp hverjir það voru sem felldu björnin en bæði lögreglumenn frá lögreglunni á Vestfjörðum og séraðgerðardeild Landhelgisgæslunnar voru á staðnum, lögreglumennirnir á björgunarbátnum Kobba Lák en sérðagerðardeildin um borð í þyrlu Land...

Sep 19, 202420 minEp. 396
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android