Spegillinn - podcast cover

Spegillinn

RÚVwww.ruv.is
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Nýr kafli í stríðinu og samskiptaforritið Ghost

Tólf létust og hátt í 3.000 særðust þegar þúsundir símboða sprungu nánast samtímis í Líbanon í gær og minnst níu hafa látist síðan að labb-rabb-tæki og sólarsellur á þökum íbúðarhúsa tóku að springa líka síðdegis í dag. Og fyrir stundu lýstu Ísraelar því yfir að nýr kafli í stríðinu fyrir botni Miðjarðarhafs væri hafinn, með áherslu á norðurvígstöðvarnar - sem eru við landamæri Líbanons. Evrópsku löggæslustofnanirnar Eurojust og Europol upplýstu í dag að þær hefðu tekið þátt í alþjóðlegum aðgerð...

Sep 18, 202420 minEp. 395

Réttindagæsla fatlaðra um mál Yazans Tamimi og læsisþjálfun

Áfram ríkir talsverð óvissa um hver örlög hins ellefu ára gamla Yazans Tamimi frá Palestínu verða. Til stóð að fljúga með hann og foreldra hans til Spánar í gærmorgun en brottflutningi þeirra var frestað eftir að dómsmálaráðherra barst beiðni þar um frá félagsmálaráðherra. Málið var síðan rætt á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun þar sem ráðherrarnir gáfu óljós svör um næstu skref. Á laugardag færist ábyrgð á máli Yazans alfarið yfir á Ísland og ekki verður lengur hægt að senda hann til Spánar. Y...

Sep 17, 202420 minEp. 394

Brottvísun verður hápólitísk og leiðtogakjör í Japan

Mál Yazans Tamimi, sem er með vöðvahrörnunarsjúkdóm, er orðið hápólítískt eftir að formaður Vinstri grænna og félagsmálaráðherra bað dómsmálaráðherra um að fresta brottvísun hans. Ríkisstjórnin fundar á morgun eins og venja er og dómsmálaráðherra segir brottvísun fjölskyldunnar standa þótt aðeins séu fimm dagar þar til forsendur fyrir máli Yazan gjörbreytast. Metfjöldi býður sig fram til forystu í flokki frjálslyndra demókrata í Japan, valdamesta flokki landsins um áratuga skeið, í skugga hneyks...

Sep 16, 202420 minEp. 393

Vaxandi spenna í innrásarstríði Rússa og engin ánægður með ákvörðun ráðherra

Við ætlum að ræða við formann dómarafélags Íslands um umdeilda breytingu á dómskerfinu í Mexikó sem kveður á um að allir dómarar í landinu verða kosnir í beinni útsendingu. Svo er það mál vararíkissaksóknara og ákvörðun dómsmálaráðherra sem engin virðist ánægður með en ráðherrann ákvað að verða ekki við ósk um að leysa hann tímabundið frá störfum. En við byrjun á vaxandi spennu í kringum innrásarstríð Rússa í Úkraínu og fundi forsætisráðherra Bretlands og forseta Bandaríkjanna í Washington í kvö...

Sep 13, 202420 minEp. 392

217 þingmál, kenning um Skaftárelda hrakin

Spegillinn rýndi í þingmálaskránna nýju og skoðaði hvað ráðherrar ríkisstjórnarinnar ætla að setja á dagskrá í vetur. Á skránni eru 217 mál. Þetta eru frumvörp, tillögur og skýrslur. Sum eru endurflutt, önnur eru ný af nálinni. Fjármálaráðherra er með flest, forsætisráðherra fæst. Og það er ekki þannig að þetta séu málin sem ríkisstjórnarflokkarnir eru sammála um. Við segjum frá nýrri rannsókn sem hrekur þær staðhæfingar að Íslendingar og íbúar á meginlandi Evrópu hafi látist af völdum gosmóðu e...

Sep 12, 202420 minEp. 391

Kappræður Trump og Harris, ferðasumarið á Norðurlandi

Fyrstu - og mögulega einu - kappræður Donalds Trumps og Kamölu Harris fóru fram í nótt. Eins og við var búist voru stóru orðin hvergi spöruð, ásakanir gengu á víxl, þar á meðal um lygar og blekkingar, og töluvert var um persónuárásir - en málefnin fengu líka sitt pláss. Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir og Benedikt Jóhannesson ræða kappræðurnar við Ævar Örn Jósepsson. Tuttugu til þrjátíu prósent færri erlendir ferðamenn gistu á Norðurlandi í sumar en áætlað var og munar þar mest um afbókanir ferðask...

Sep 11, 202421 minEp. 390

Fjárlagafrumvarp og forsetakappræður

Spegillinn er auðvitað með hugann við fjárlagafrumvarpið sem kynnt var í morgun. Una Jónsdóttir forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans spáir í frumvarpið og áhrif á verðbólgu og vexti. En það er ekki bara rætt um frumjöfnuð í Speglinum. Forsetaefnin Harris og Trump mætast í sínum fyrstu kappræðum í kvöld - Ævar Örn Jósepsson og Birta Björnsdóttir sá í spilin.

Sep 10, 202420 minEp. 389

Fjárlagafrumvarp, sameiningarmál Skorrdælinga, ofsóknir á hendur rússneskum vísindamönnum

Sigurður Ingi Jóhannsson kynnir á morgun , klukkan níu, sitt fyrsta fjárlagafrumvarp. Þetta verður söguleg stund í íslenskri stjórnmálasögu því Sigurður Ingi er fyrsti Framsóknarmaðurinn í nærri hálfa öld til að vera fjármálaráðherra. Freyr Gígja Gunnarsson reifar það helsta sem búast má við í frumvarpinu og ræðir það við Finnbjörn Hermannsson, formann ASÍ. Skorradalshreppur er eitt af fámennustu sveitarfélögum landsins og hefur ítrekað hafnað sameiningu við stærri sveitarfélög. Meirihluti hrepp...

Sep 09, 202420 minEp. 388

Atvinnuleysi hjá innflytjendum, viðhorf til ferðamanna og málið sem Frakkar eiga erfitt með að trúa

Meira en helmingur þeirra um 7.200 sem voru á atvinnuleysisskrá í júlí voru erlendir ríkisborgarar. Hlutfallið var þá 53% og hefur sigið upp á við undanfarið - var 48% fyrir ári. Atvinnuþátttaka útlendinga er mikil hérlendis en þetta háa hlutfall þeirra sem eru atvinnulausir var meðal þess sem til var tekið í nýlegri úttekt Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD sem kynnt var í vikunni. Rætt verður við Unni Sverrisdóttur, forstjóra Vinnumálastofnunar. Landsmenn eru áfram almennt jákvæðir og án...

Sep 06, 202420 minEp. 387

Þingmenn setja sig í stellingar og forstjóri Landsvirkjunar

Alþingi verður sett á þriðjudag og þingmenn eru að setja sig stellingar. Við ræðum við þingflokksformenn og Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur, fréttamann, um þingveturinn framundan. Forstjóri Landsvirkjunar bindur vonir við að Búrfellslundur verði kominn í gagnið 2026. Landsvirkjun hafi reynt að flýta fyrir með útboðum samhliða leyfisveitingunni sem sé óvanalegt. Kæra Skeiða- og Gnúpverjahrepps breyti litlu. Við ræðum við Hörð Arnarson, forstjóra Landsvirkjunar.

Sep 05, 202420 minEp. 386

Tungumálið er lykillinn að samfélaginu, neyðarástand í Súdan og Landsvirkjun og tafir á leyfisveitingum

Hlutfall útlendinga af landsmönnum hefur tvöfaldast á skömmum tíma, atvinnuþátttaka þeirra er meiri en innfæddra en styðja þarf betur við íslenskufærni þeirra og barna af erlendum uppruna til að tryggja aðgang að samfélaginu.... Það er mjög slæmt að Landsvirkjun skuli vera milli steins og sleggju í deilum orkusveitarfélaganna við ríkið, segir forstjóri Landsvirkjunar. Þótt Landsvirkjun hafi talað máli sveitarfélaganna um meiri sanngirni verði þau líka standa við sínar skuldbindingar Neyðarástand...

Sep 04, 202420 minEp. 385

Ákveða hvort leyfi fyrir Búfellslundi verður kært, pólitík í Þýringalandi og Saxlandi, verðsamráð í Noregi

Sveitastjórn Skeiða-og Gnúpverjahrepps tekur á morgun ákvörðun um hvort leyfi Orkustofnunar fyrir Búrfellslundi verði kært til úrskurðarnefndar umhverfis-og auðlindamála. Sveitastjóri hreppsins segir komið að skuldadögum hjá ríkisstjórninni. Að vera annars flokks borgarar og mismunað, þannig líður mörgum Þjóðverjum sem búa í austurhluta landsins og þessa líðan létu íbúar í Þýringalandi og Saxlandi rækilega í ljós í kosningum í sambandslöndunum um helgina Norskar verslanakeðjur eru grunaðar um ól...

Sep 03, 202420 minEp. 384

Aukinn hnífaburður og flakkandi félagsmiðstöð

Tíðindin af því að ung stúlka, sautján ára nemandi við Verslunarskóla Íslands hafa væri látin eftir að hafa verið stungin á Menningarnótt hafa vakið sterk viðbrögð og umræðu um ofbeldi og vopnaburð ungmenna. Barnaverndaryfirvöld hafa bent á að börn með þroska-, hegðunar- og geðvanda fái ekki viðeigandi stuðning og þjónustu. Þau eru líklegri en önnur börn til að vera bæði gerendur og þolendur í eineltis- og ofbeldismálum. Í áhættumati, unnið á þeim ungmennum sem innrituðust á Stuðla og höfðu beit...

Sep 02, 202420 minEp. 383

Handtaka Durov atlaga að tjáningarfrelsinu? Konunglegt brúðkaup í Noregi og smokkanotkun

Ný rannsókn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, WHO, bendir til þess að smokkanotkun ungmenna um allan heim hafi dregist saman. Könnun WHO var gerð í Evrópu, Mið-Asíu og Kanada, náði til nemenda í sjötta, áttunda og tíunda bekk og sýndi að hlutfall óvarinna kynmaka hefur ekki verið hærra í þessum aldursflokki síðan 2014. Rætt verður við Ársæl Má Arnarsson, prófessor við menntavísindasvið HÍ. Fylgi við konungsdæmið í Noregi fellur jafnt og þétt vegna hneykslismála. Kannanir sýna að nær helmingi...

Aug 30, 202420 minEp. 382

Átakavetur framundan í pólitíkinni en stjórnarslit vart í augsýn og úræði skortir fyrir börn sem beita ofbeldi

Ný skoðanakönnun Maskínu í gær um fylgi flokkanna hefur vakið mikla athygli. Fimmtán prósent sögðust myndu kjósa Miðflokkinn ef gengið yrði til kosninga nú en fjórtán prósent Sjálfstæðisflokkinn - sem verða að teljast töluverð tíðindi í íslenskum stjórnmálum. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður MIðflokksins býst við átökum í vettvangi stjórnmálanna í vetur. Fallandi gengi Sjálfstæðisflokksins vekur athygli en Eva H. Önnudóttir prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands segir að mönnum haf...

Aug 29, 202419 minEp. 381

Slysið á Breiðamerkurjökli og hnífaburður ungmenna

Umræða um aukin hnífaburð hefur verið hávær síðustu daga eftir lífshættulega árás sextán ára drengs á jafnaldra sína við Skúlagötu eftir menningarnótt. Við ræðum við yfirlögregluþjón hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og lækni á bráðamóttöku Landspítalans. Banaslysið á Breiðamerkurjökli hefur vakið upp mikla umræðu um ferðaþjónustuna, hvort græðgisvæðing hafi þar náð yfirhöndinni og hvort farið hafi verið of geyst þegar landið opnaðist eftir COVID og hingað komu skyndilega tvær milljónir ferða...

Aug 28, 202420 minEp. 380

Eftirlit og öryggi með skipulögðum ferðum á hættuslóðir

Slysið á Breiðamerkujökli hefur vakið upp spurningar um eftirlit og öryggi með skipulögðum ferðum á hættuslóðir. Freyr Gígja Gunnarsson ræddi við Arnar Má Ólafsson, ferðamálastjóra, sem eitt sinn var fjallaleiðsögumaður og Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar.

Aug 27, 202420 minEp. 379

Öryggi ferðmanna og þolmörk Öskju

Talið var að 25 hefðu verið í íshellaskoðun á Breiðamerkurjökli þegar ishrun varð. Bandarískt par varð undir ísnum, karlinn lést og konan slasaðist illa en er ekki í lífshættu. Búið var að gera grein fyrir 23 í gær og var leit því haldið áfram en í dag kom í ljós að það voru 23 í ferðinni ekki 25. Lögreglan segir að skráning og utanumhald hafi ekki verið nákvæmt og upplýsingar um fjölda misvísandi. Rætt við Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúa Landsbjargar og Vilhjálm Árnason varamann formann...

Aug 26, 202420 minEp. 378

Önnur eldkerfi á Reykjanesi í biðstöðu og Össur áberandi á Ólympíumóti fatlaðra

Ármann Höskuldsson ræðir við Spegilinn um stöðuna á Reykjanesskaga eftir að sjötta eldgosið á Sundhnúksgígaröðinni hófst í gærkvöld. Verulega hefur dregið úr krafti gossins en Ármann telur tímabært að skoða varnir fyrir Reykjanesbraut og Voga. Bjarnaveiðitímabilið byrjaði í Svíþjóð á miðvikudag. Samkvæmt vefsíðu Sænsku rándýrasamtakanna, sem láta sig velferð, viðgang og afkomu rándýra landsins varða, voru yfir hundrað birnir felldir strax á fyrsta degi og í gær féllu rúmlega fimmtíu til viðbótar...

Aug 23, 202420 minEp. 377

Verðbólga og vextir, innrás Úkraínumanna í Rússland

Ákvörðun Seðlabankans í gær um að halda stýrivöxtum óbreyttum hefur verið gagnrýnd og hagfræðingar hafa lýst efasemdum um að hátt vaxtastig skili lengur árangri í baráttunni við verðbólguna. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka sagði í hádegisfréttum RÚV að trúverðugleiki Seðlabankans væri laskaður. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Ágúst Bjarna Garðarsson, þingmann Framsóknarflokksins, og Ásthildi Lóu Þórsdóttur, þingmann Flokks fólksins um stöðuna og spurði þau líka út í þessi ummæli fjármálaráðherra ...

Aug 22, 202420 minEp. 376

Stýrivextir, enskir óeirðaseggir og orlofsgreiðslur sveitarstjóra

Seðlabankinn ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum, í 9,25 prósentum. Finnbjörn A. Hermannsson forseti ASÍ segir það vonbrigði að Seðlabankinn skuli ekki hafa þorað að stíga inn í þann spíral sem við erum í. Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir marga krafta halda verðbólgunni uppi. Freyr Gígja Gunnarsson ræddi við þau um tíðindi dagsins. Búið er að dæma um fimm hundruð bullur og óeirðaseggi fyrir sinn þátt í óeirðum í Bretlandi í byrjun mánaðar...

Aug 21, 202420 minEp. 375

Gosið gæti hafist með krafti, sveifluríkin sex, bakteríuveirur í stað sýklalyfja

Kristín Jónsdóttir jarðeðlisfræðingur segir að vísindamenn búist við að eldgosið sem vofir yfir hefjist með miklum krafti. Opnist gosrásin sunnarlega gæti hraun runnið út í sjó á nokkrum klukkustundum. Það er hægt að nota bakteríuveirur sem valkost við sýklalyf, segir nýdoktor í örveruerfðafræði. Sýklalyfjaónæmi er ein mesta ógn sem heilbrigðiskerfið stendur frammi fyrir. Spáð er í sveifluríkin svokölluðu í Bandaríkjunum. Ríkin sem sveiflast á milli demókrata og rebúblíkana og forsetaframbjóðend...

Aug 20, 202420 minEp. 374

Skeytasendingar hjá ráðherrum ríkisstjórnarinnar og öldrun

Það hefur ekki farið framhjá neinum sem fylgist með stjórnmálum að það hafa verið skeytasendingar milli stjórnarflokkanna síðustu daga og vikur; þær hófust með umræðu um ókeypis skólagögn, fóru svo yfir í umræðuna um orkumál og þá sérstaklega vindorkuna, síðan útlendingamálin og náðu eiginlega hámarki þegar flokksráð VG ákvað að samþykkja ályktun þar sem ákvörðun Bjarna Benediktssonar um að frysta tímabundið greiðslur til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna var fordæmd. Jóhann Páll J...

Aug 19, 202420 minEp. 373

Bág staða láglaunakvenna, orlof og orðræða Trumps

Heimsk, brjáluð, kommmúnísk og stórkostlega vanhæf kona sem hlær furðulega. Þetta er meðal þess sem Donald Trump hefur sagt um Kamölu Harris, mótherja sinn í forsetakosningunum vestanhafs. Við ætlum að rýna í talsmáta Trumps og þær áhyggjur sem samflokksmenn hans hafa af orðfæri hans. Við fjöllum líka orlof hjá æðstu embættismönnum eins og sveitastjórum, borgarstjóra og fyrrverandi forsætisráðherra. Hvernig eru ráðningarsamningarnir hjá bæjarstjórum stærstu sveitarfélaganna? Láglaunakonur á Ísla...

Aug 16, 202420 minEp. 372

Vindorka, skemmdarverk á gasleiðslu og norska konungsfjölskyldan

Frumvarp umhverfis- og orkumálaráðherra um breytingar á rammaáætlun vegna vindorkuvera náði ekki fram að ganga í vor, og vakti raunar nokkrar deilur og gagnrýni, innan þings sem utan. Ráðherra vísar allri gagnrýni um samráðsleysi á bug og segir að nú sé að hrökkva eða stökkva - ef fólk vill græna orku, þá þurfi að virkja vindinn. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Guðlaug Þór Þórðarson. Þýsk yfirvöld upplýsa að hópur Úkraínumanna sé grunaður um að hafa unnið skemmdarverk á Nord Stream-gasleiðslunu...

Aug 15, 202420 minEp. 371

Ofbeldi í nánum samböndum, hitametaregn og kvikmynd um leiðtogafundinn

Nauðungarstjórnun getur best spáð fyrir um alvarlegt ofbeldi eða manndráp í nánum samböndum, samkvæmt rannsókn breska afbrotafræðingsins Jane Monckton-Smith. Hún kortlagði hegðun geranda og útbjó líkan; tímalínu til að meta hættuna á manndrápi. Lögregla hér á landi hefur tímalínuna til hliðsjónar við hættumat og vinnur nú að innleiðingu nýs áhættumats Hitamet hafa verið slegin á tugum þúsunda veðurstöðva um alla Jörð á þessu ári, allt frá Norður-heimskautinu suður í syðstu höf. Það sem af er þes...

Aug 14, 202420 minEp. 370

Ráðuneyti gerði ekki athugasemd við áminninguna, Rússar í vanda, Normenn ofbeldisfullir en Danir í bissnes

Sigríður Friðjónsdóttir, ríkissaksóknari, var í samskiptum við dómsmálaráðuneytið í aðdraganda þess að Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari, var áminntur fyrir ummæli sín um hælisleitendur og homma sumarið 2022. Ráðuneytið gerði aldrei neinar athugasemdir við áminninguna. Rússar hafa áttt í stökustu vandræðum með að stöðva sókn innrásarhers Úrkaínumanna - innrásin kom Rússum í opna skjöldu...eins og fleirum, líka hernaðarsagnfræðingnum Erlingi Erlingssyni, sem spáir á eftir í framhaldið ...

Aug 13, 202420 minEp. 369

Bóluefnin björguðu mannslífum í COVID og hver eru áhrif gervigreindar á tónlist?

Fjallað verður um nýja rannsókn sem rennir enn frekari stoðum um hversu mikilvæg bóluefnin voru í baráttunni gegn COVID-19 - sóttvarnalæknir telur neikvæða umræðu um þau ekki hafa átt rétt á sér, hún hafi ekki verið byggð á gögnum eða góðum rökum. Síðar í þættinum verður sagt frá gervigreind í tónlist og hvaða áhrif hefur hún haft. Tónlistarfólk, útgefendur og samtök höfundarréttarhafa víða um heim hafa áhyggjur af aukinni notkun gervigreindar í tónlist. Flest vilja nýta tæknina en vara við því ...

Aug 12, 202420 minEp. 368

Kaldur blettur í hitnandi heimi, tímamótadómur yfir Google

Kuldapollur, eða blár blettur, sem myndast hefur í hafinu suður af landinu er ein helsta ástæða þess að þau methlýindi sem geisað hafa á Jörðinni að undanförnu hafa að mestu sneitt hjá Íslandi í sumar. Kuldapollurinn er afleiðing óstöðugleika í svokallaðri veltihringrás hafstrauma, eða AMOC, einskonar blöndunartækjum hafsins sem blanda heitum yfirborðssjó við kaldandjúpsjó. Halldór Björnsson fagstjóri veðurs og loftslags á Veðurstofunni, segir afar ólíklegt að téður kuldapollur verði varanlegur....

Aug 09, 202410 minEp. 367

Kaldur blettur í hitnandi heimi, Puigdemont snýr aftur til Barcelona

Samkvæmt evrópsku loftslagsþjónustunni Kópernikus var 22. júlí síðastliðinn heitasti dagur á Jörðinni frá upphafi mælinga, og sló þar með fyrra hitamet - sem var frá deginum áður. Hlýnun Jarðar er staðreynd, og það á jafnt við um andrúmsloftið sem hafið - nema á stöku stað. Einn þessara stöku staða er heljarinnar kuldapollur eða blár blettur í hafinu suðvestur af Íslandi, sem hefur mikil áhrif á veðurfar hér, enda voru engin hitamet slegin hér á þessum heitasta degi Jarðar, eins og segir á vef V...

Aug 08, 202410 minEp. 366
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android